Morgunblaðið - 17.11.1982, Síða 17

Morgunblaðið - 17.11.1982, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982 17 í þoku vindar Bókmenntír Jóhann Hjálmarsson Hannes Sigfússon: UÓÐASAFN. Myndir eftir Kjartan Guðjónsson. Iöunn 1982. í Viðtölum og eintölum, löngu ljóði sem birtist í Sprek á eldinn (1961) yrkir Hannes Sigfússon: Við sitjum auðum höndum sjáum tímann fletta biöðum dags og nætur, líður best í Ijósaskiptunum Síðar segir: Við erum meðal hinna dauðu minjagripa á sýningu dagsins — folir steingervingar stjörf líkneski Og að því kemur að skáldið kveður sterkt að orði um kynslóð sína: „Orð okkar væru helst yfir/ skilvitlegur skáldskapur." Það eru tímamót framundan: „Nei nú er tímabært að andæfa/ að stinga við árum.“ Viðtöl og eintöl leiða í ljós vilja skáldsins til stefnubreytingar í lífi og list, enda sér hennar merki í Sprek á eldinn og ekki síður í Jar- teikn (1966) þar sem ort er skorin- ljósri vefa ort um samtíðina, heimsósóma- kvæðum fjölgar. í örvamæli (1978) er enn hvatt til baráttu. Lokaerindið í Samúð er til dæmis svona: Kkkert er hlyrra en samúð snyrtilega unnin og þæfð í belgvettlinga þegar veruleikinn krefur þig um annað en vettlingatök Svo oft hefur undirritaður fjall- að um skáldskap Hannesar Sig- fússonar (sjá m.a. íslensk nútíma- ljóðlist, 1971) að hér verður ekki gerð nein úttekt á skáldinu. En öllum ætti að vera ljóst sem lesa Ljóðasafn hans að þar fer eitt af okkar helstu skáldum; þetta er bók auðug af skáldskap og til- komumiklum myndum og hljómi. Dymbilvaka (1949), endurskoðuð (1954) og Imbrudagar (1951) eru meðal áhrifameiri verka samtíma- ljóðlistar hér á landi, báðar lýsa sundraðri heimsmynd, geigvæn- legri lífssýn. í Imbrudögum er súrrealískt myndmál áberandi, en líka viðleitni til að átta sig í „vöiundarhúsi tímans" þótt dag- arnir „flökti við gluggana". Mynd- rík ljóð Hannesar eiga sér marga kosti, en best tekst honum að mála angistina og veðrabrigði hugans: „I þoku ljósri vindar vefa/ úr viði feysknum bleikan eld.“ Ilannes Sigfússon Fremst í Ljóðasafni eru nokkur stök ljóð sem Hannes kallar Laus kvæði og vísur. Meðal þeirra eru Haustljóð, ort 1946 og Borgarnótt- in, ort 1947. Þessi ljóð eru bæði eftirminnileg, ekki síst vegna þess að þau boða það sem koma skal. Nótt mannsins á jörðinni verður Hannesi snemma hugleikin. I Haustljóði er ort um „nætur sem líða hægt eins og haltur leiði/ helsáran vin að gröf“ og í Borg- arnóttinni „nótt sem fellur í haf/ af hrollköldu ljósi". En frá myrkri lífssýn hafa ljóð Hannesar Sigfússonar þróast í þá átt að koma auga á manninn og jörð sem er „nákomin", getur verið „ný og lokkandi" eins og stendur í Vetrarmyndum úr lífi skálda (Sprek á eldinn), einu besta ljóði hans. . Ljóðasafn Hannesar Sigfússon- ar er með myndum eftir Kjartan Guðjónsson og sannar Kjartan þar enn á ný hve vel honum lætur að skreyta bækur. Ósvikin gamansaga Bókmenntír Erlendur Jónsson Sæmundur Guövinsson: VIÐ SKRÁARGATIÐ. 132 bls. Vaka. Reykjavík 1982. Sæmundur Guðvinsson hefur lík- ast til verið settur að ritvélinni strax og hann sá þessa heims ljós. Stíll hans er eðlilegur og fyrirhafn- arlaus eins og andardráttur manns. Sæmundur er einn margra sem hefja ritferil í blaðamennsku en færa sig svo yfir á skáldskaparsvið- ið. Það hefur í för með sér tiltekna hagræðing: Maður losnar við þá hugraun að skrifa lengi fyrir körf- una sem svo mörg skáld mega reyna áður en sú þjálfun næst í stíl og framsetningu að útgefandi sjái sér hag í að taka handrit til útgáfu. Við skráargatið er samsafn laus- tengdra þátta — skáldsaga þar sem hver kafli er í raun og veru sérstök saga. Efnið er út af fyrir sig ekki til að halda fyrir manni vöku. Sagan er sögð í fyrstu persónu, söguþulur er í frásögninni »ég«. Hann er mað- ur yngri en miðaldra, kvæntur og á tvö börn, unglingstelpu og dreng á óvitaaldri. Daglega lífið silast áfram með öllum sínum tilbrigðum, vinnu, hvíld, fjárhagsáhyggjum, ferðalögum og skemmtunum. Hjón- in skipta um íbúð, konan fer í bæ- inn með dótturinni að kaupa á hana buxur, söguþulur skellir sér til London og þannig mætti lengi telja. Allt er þetta skoðað í hæfilega ýkjukenndum spéspegli. Það er ærinn vandi að skrifa svo um lítið efni að úr því verði mikið en það tekst Sæmundi Guðvinssyni í þessari bók að mínum dómi. Sögu- þulur er stundum dálitill hrakfalla- bálkur í huganum, t.d. í leikhúsi í London þar sem hann fær sæti við hliðina á töfrandi fallegri og ungri frú sem er svo altilleg við hann að hann heyrir ekki betur en hún sé að gefa sér undir fótinn. — Spennandi saga sem fær óvæntan endi! Karp hjónanna um verðbólguna er dæmi- gert fyrir þá geðflækju sem póli- tikin veldur venjulegu fólki nú á tímum sem skilur hvorki upp né niður í vitleysunni. Hver á t.d. sök á þessu öllu saman? »Á að reka raf- magnsstjórann?* í stöku kafla þykir mér höfundur sprella einum of mikið fyrir minn smekk, svo sem í »Handbók fyrir flugfarþega.* Annars er hér á ferð- inni allt í senn: glens og gaman, sem maður hlær að, og alvarlegri húmor sem kemur manni ekki til að hlæja en situr eftir í undirvitund- inni að lestri loknum. Veigur frá- sagnarinnar er fyrst og fremst fólg- inn í stílnum. Sæmundur skrifar skemmtileg samtöl, hnyttin, klár og lík því sem fólk talar dagsdaglega. Einkum þykja mér minnisstæð samtöl sögu- þular og eiginkonunnar: hann hæg- ur og rólegur og líklega dálítið lat- ur, hún drífandi og ákveðin og stundum ekki laus við að vera lítið eitt snefsin. Annars gerist sagan mestan part í hugarfylgsnum sögu- manns sem er gæddur fjörlegu ímyndunarafli og ímyndar sér stundum rétt en stundum líka rangt. Eins og títt er snúast hug- renningar hans tíðast um eigin vanda sem hann miklar ósjaldan fyrir sér. Allt slampast þó einhvern veginn af að lokum. Það er veruleg tilbreyting að þessari skáldsögu þar sem gaman- sögur hafa ekki átt upp á pallborð- ið, hvorki hjá lesendum né gagn- Eitthvað Bókmenntir Sveinbjörn I. Baldvinsson ísak Harðarson: ÞRIGGJA ORÐA NAFN Ljóð, 102 bls., Almenna bókafélagið. Þessi bók hlaut viðurkenningu í bókmenntasamkeppni sem Al- menna bókafélagið efndi til á 25 ára afmæli sínu í fyrra og hún á það skilið. Mér finnst þetta ekki vegna þess að öll ljóðin i þessari dálítið of stóru ljóðabók séu stór- kostleg, heldur vegna þess að hér er á ferðinni höfundur sem hefur eitthvað að segja og gerir það. Það er greinilegt að Isak er mikið niðri fyrir og þessi ljóð virðast skrifuð af mikilli þörf. Þetta eru skrifleg- ar tilraunir ungs manns til að átta sig á heiminum og lífinu og hvort það sé eitthvert vit eða tilgangur í þessu öllu. Efniviðurinn er sem sagt ekki smávægilegur og það er nú aldrei verra. Bókin skiptist í þrjá kafla sem bera einkar afgerandi heiti: Villi- | götur, Afvegir og Vegurinn til Sunnuhlíðar. Hér er á ferðinni ljóðabók þar sem höfundur lýsir leit sinni að hugarró, einhvers konar, tilgangi og þar fram eftir götunum og gefur í skyn í lokin að sú leit hafi borið árangur. Fer ekki hjá því að bókarlokin minni á trú- arlegan kveðskap að þessu leyti, en þar segir m.a. í ljóðinu „Myrkur og fólk“: l>að er fólk úti og fólkid er fullt af myrkri. myrkrinu í þér og mér — alls konar myrkri. Sæmundur Guðvinsson rýnendum, undanfarin ár. Félags- málaþvælan og pólitíkin hefur verið svo ágeng að menn hafa ekki leyft sér að brosa út í annað hvað þá meir. Sama máli gegnir í raun og veru um aðrar listgreinar, vilji menn t.d. skemmta sér ærlega við að horfa á kvikmynd verður að draga fram Chaplin eða Harold Lloyd. Vonandi kemur að því að heimur- inn taki gleði sína á ný. Rithöfund- ur sem skemmtir fólki á græsku- lausan hátt — eins og Sæmundur Guðvinsson gerir í þessari bók — á þakkir skildar. Þetta er ósvikin gamansaga. að segja Og myrkrid í fólkinu breytist í gegnum tímann: l>að þynnist og þynnist. uns það verður að UOSl. Og UÓSIÐ í MANNINIM mun skáka sólinni. Þegar á heildina er litið eru ljóðin í bók ísaks mjög miklu nær því að vera orð heldur en myndir. Isak Harðarson Ljóðin fjalla um hugmyndir og hugsanir, þau greina frá fremur en að lýsa, eða bregða upp mynd af. Það er auðvitað einstaklings- bundið hvort fólki fellur betur. Mér falla myndræn ljóð betur. Það er kannski vegna þess að ef ljóð eru ekki myndræn þarf hugsun þeirra að vera ákaflega sterk og djúp til þess að manni finnist þau ekki vera gamlar klisjur. Mér finnst ekki að ljóðin í þess- ari bók séu neitt afskaplega djúp að speki til. Mér finnst ég þekkja aftur ýmsar hugleiðingar sem lágu þungt á manni þegar maður var í menntaskóla og manni fannst maður þurfa að tjá sig um, rétt eins og Steinn og hinir. Mér finnst Isak takast best upp þegar hann verður dálítið per- sónulegur eða hefur altént eitt- hvert „ég“ í ljóðinu. Hinar breiðu speglasjónir um „alltið“ og „ekk- ertið" og það, þykja mér svolítið slitnar: 1 upphafí var ekkert, og ekkerl vard aó engu, og ekkert ert þú. Nú er ég búinn að eyða nokkrum línum í að tína til það sem mér líst lítt eða ekki á í bókinni, en þar er líka allmargt sem mér finnst gott. Ég nefni ljóð eins og „Hugtök" og „Endalok séð fyrir". í báðum þess- um ljóðum örlar nefnilega á veru- legum frumleika. Mér finnst ekki að ég hafi séð þetta áður. Hér kemur ljóðið „Endalokin séð fyrir“: Öll tæki Bókmenntír Jóhanna Kristjónsdóttir Trausti Olafsson: Á leið til annarra manna. Hvernig fjölfotluð stúlka rauf tjáningarfjötra sína. Útg. Iðunn 1982. Þetta er ekki fyrirferðarmikil bók, né heldur lætur hún mikið yfir sér, en hún er áhrifamikil skýrsla um einstakan dugnað og hugsjónir ungs kennara, Trausta Ólafssonar, sem með þrotlausu og óeigingjörnu starfi, komst að því að ung fjölfötluð stúlka, vistmað- ur á Kópavogshælinu, Sigríður Ósk Jónsdóttir, reyndist vera stór- greind og fróð, fluglæs án þess að nokkur vissi, vel að sér um ótrú- ná tilgangi sínum legustu hluti og hagmælt í ofaná- lag. Bók Trausta sem væntanlega er nærtækt að kalla eins konar skýrslufrásögn, dregur upp mjög lifandi mynd af samstarfi hans og stúlkunnar og sýnir, að hann fer fljótlega að gruna, að í þessum fatlaða líkama búi stórvitur og þroskuð sál — og þó hafði stúlkan áður verið greind niður á örvita- stig. Það út af fyrir sig er athyglisvert rannsóknarefni; og trúlegt að ýmsum foreldrum þroskaheftra barna detti í hug, að kannski búi meira í börnum þeirra en fram að þessu hefur verið hald- ið. Um það er auðvitað ógerningur að segja, enda tilfellin sjálfsagt jafn ólík og mismunandi og þeir einstaklingar sem eiga í hlut. En væntanlega verður árangur Trausta og Sigríðar Óskar til þess að málefni þroskaheftra og fjöl- fatlaðra verða skoðuð í dálitið öðru Ijósi í framtíðinni. Það er bæði indælt og fróðlegt að lesa seinni kafla bókarinnar, þegar Sigríður Ósk hefur náð valdi á að tjá sig og sjá hversu margbreytilegan orðaforða telpan hefur, lúmskt skopskyn hennar leynir sér heldur ekki. Ég hefði kosið að Trausti gerði ítarlegar grein fyrir fötlun Sigríð- ar Óskar í upphafi og einnig hefði verið gott að vita hvaða leiðsögn hún hafði fengið fram að þeim tíma sem leið unz þau fóru að starfa saman. Þetta hefði gert myndina af stúlkunni enn skýrari, a.m.k. fyrir leikmann sem tak- markaða þekkingu hefur á fjöl- fötlun, aðra en þá sem beinlínis liggur í augum uppi. Hvað sem þessum annmarka líður, er bókin ákaflega athyglis- verð, læsileg og hlý. Og víst er þetta ævintýri líkast. Afar fallegu ævintýri líkast. Kins og snarrugluð Huga. sem vaknar um midjan vetur og hrekst fyrir helvíti norðanstormsins að upplýstum \erslunarglugga. þar sem jólaseríurnar blikka í hrönnum. eins og raftengdar vetrarbrAitir; mun ég sjá tilganginn áður en ég tek síðasta andvarpið og krókna í desembernóttinni. Ég vona að ísak sé enn að skrifa, því ljóð hans eiga erindi á prent. Ég er ekki sannfærður, hvað varðar öll ljóðin í þessari bók, en ég held að í þeirri næstu gæti verið mikill fengur. Ef sú spá mín rætist, þá, en heldur ekki f.vrr, mun ég óska þjóðinni til hamingju með að hafa eignast nýtt skáld. Það sem gerir þessa ljóðabók merka og áhugaverða er sú einlægni og það kærkomna óttaleysi gagnvart því að tala um tilfinningar sem einkennir hana. Sú næsta verður vonandi enn betri skáldskapur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.