Morgunblaðið - 17.11.1982, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982
21
„Heiöri fylgir skylda“
— eftir Guðmund
H. Garðarsson
Afleiðingar verðbólgu
Illar afleiðingar verðbólgu eru
upplausn. Það hafa margar þjóðir
reynt. Þekktast dæmi þessa eru
örlög Weimar-lýðveldisins þýska,
sem leiddi til valdatöku nazista
árið 1933. Óstöðvandi verðbólga
með þar af leiðandi rýrnun á verð-
gildi þýsks gjaldmiðils, lokun þús-
unda fyrirtækja og gífurlegt at-
vinnuleysi stefndi í algjört efna-
hagslegt hrun í Þýskalandi á þess-
um tíma. Þetta ástand veikti trú
manna á lýðræðinu og ýtti undir
öfgaöfl frá hægri til vinstri.
Sorgleg urðu örlög þýzkra jafn-
aðarmanna, sem lentu á milli
kommúnista og nazista. Veikleiki
þýzku jafnaðarmannanna, sem
mynduðu einn lýðræðislegan jafn-
aðarmannaflokk, var m.a. fólginn
í því, að þeir gátu ekki sannfært
þýzku þjóðina nægilega um, að
eftir lýðræðislegum leiðum væri
unnt að snúa ofan af verðbólgunni
og skapa efnahagslegt jafnvægi. í
skjóli þessa risu ofbeldisöflin upp
og framkölluðu enn meiri upp-
lausn og ótta hjá öllum almenn-
ingi. Ófyrirleitnir menn notfærðu
sér ástandið og tryggðu sér völdin,
afnámu lýðræðið og innleiddu ein-
ræði. Persónudýrkun hófst. Tugir
þúsunda manna voru fangelsaðir.
Auðvitað var atburðarás þessara
miklu örlaga miklu stærri í snið-
um og flóknari en að framan
greinir. En segja má, að þannig
hafi hlutirnir gerst í hnotskurn.
Auðvitað mun ekkert þvílíkt ger-
ast á íslandi þótt verðbólgan
geysist áfram. ísland er ekki
Þýskaland.
Hættuástand
En það breytir ekki þeirri stað-
reynd að mikilli verðbólgu hérlendis
getur fylgt upplausn, sem mun
veikja trú manna á lýðræðislcgum
stjórnarháttum. Gjaldþrot fyrir-
tækja, greiðsluþrot einstaklinga,
vanskil, óreiða, skuldasöfnun og
atvinnuleysi; í stuttu máli sagt,
hugsanlegt efnahagslegt gjaldþrot
þjóðarinnar býður upp á hættu-
legt ástand, sem á einni nóttu gæti
breytt Islandi úr fyrirmyndar lýð-
ræðisríki í ríki stjórnleysis og ör-
væntingar.
Litlar líkur eru á því að einræði
fái fest hér rætúr. Því ræður
skapferli og lífsviðhorf íslendinga,
en hins vegar er hætta á tíma-
bundnu stjórnleysi með miklum
þjáningum fyrir þorra lands-
manna samfara þjóðfélagsbreyt-
ingu sem hugsanlega kann að hafa
í för með sér skerðingu á persónu-
frelsi manna miðað við það frelsi,
sem íslendingar búa við í dag.
Stjórnarfarsleg
upplausn
Núverandi óðaverðbólga á ís-
landi, 70—80% á ári, er þegar farin
að sýna hættumerki fyrir lýðræðið í
landinu. Fyrstu merki stjórnar-
farslegrar upplausnar eru þegar
komin í ljós. Ríkisstjórn landsins
á í vök að verjast á Alþingi. Hún
kemur ekki í gegn nauðsynlegum
lögum (að hennar mati) til að
hemja verðbólguna eitthvað, þ.e.
að afstýra því að hún fari í 100% á
næsta ári í stað þess að vera 60%
eins og verðbólgan hefur verið á
þessu ári. En samt skal setið.
Stjórnarandstaðan segir: Bráða-
birgðalög ríkisstjórnarinnar eru
skammtíma lausnir og ná ekki til-
ætluðum árangri. Þess vegna veit-
um við þeim ekki brautargengi.
Afleiðing: llpplausnarástand á Al-
þingi.
Seðlabanki íslands ákveður
vaxtahækkun á grundvelli laga
um vaxtabreytingar í samræmi
við verðbólgustig. Ríkisstjórnin
tefur framgang málsins og er klof-
in í afstöðu sinni til vaxtabreyt-
inga. Afleiðingar: Upplausn á pen-
ingamarkaðnum, viðskiptabankar og
lánastofnanir eiga í miklum erfið-
leikum. Sparisjóðseigendur eru
hlunnfarnir.
Gengisleiðréttingar í samræmi
við tilkostnaðarhækkanir í 60%
verðbólgu eru dregnar mánuðum
saman. Afleiðingar: Stórfelld töp í
útflutningsatvinnuvegunum, við
jaðrar alísherjargjaldþrot í útgerð,
við óbreyttar aðstæður blasir við
stöðvun í útgerð og fiskiðnaði í byrj-
un árs 1983.
í peninga-, fjár- og gengismál-
um hefur ráðið röng stjórnmála-
stefna sl. 3 ár, stefna jafnvægis-
leysis. Afleiðingar: Sparifjármynd-
un dregst saman. Sjóðir landsmanna
tæmdir. Stórfelld erlend skuldasöfn-
un. Hvarvetna blasa við erfiðleik-
ar. Teikn upplausnar eru víða á
lofti. IIlu heilli.
Flokkar og verðbólga
í stjórnmálaumræðu kemur
víða fram ótrú á þá miklu þýð-
ingu, sem núverandi stjórnmála-
flokkar hafa fyrir viðhald lýðræð-
islegra stjórnhátta á íslandi. Ung-
ur jafnaðarmaður, sem ýmsir
bundu vonir við, sagði í sjónvarps-
fréttum, aðspurður, að allir núver-
andi stjórnmálaflokkar í landinu
væru úr sér gengnir og bætir svo
við, að Sjálfstæðisflokkurinn,
stærsti flokkur þjóðarinnar, sé
Guðmundur H. Garðarsson
„Þjóðin veit, að þrátt
fyrir liðna stundarerfið-
leika, er Sjálfstæðis-
flokkurinn, sjálfstæðis-
fólk, sá kjarni, sú kjöl-
festa, sem aldrei bregst,
hvernig sem árar. Það
er þess konar staðfesta
sem skiptir máli, sér-
staklega þegar málefn-
um þjóðarinnar er
stefnt í óefni af vinstri
mönnum.“
ekki marktækur. Að vísu bætti
hann síðan við setningunni „Við
erum hrædd." Mun hann þá hafa
átt við það hrikalega efnahagslega
ástand, sem þjóðin er komin í. Þar
hafði jafnaðarmaðurinn ungi lög
að mæla, en ályktun hans varð-
andi stjórnmálaflokkana var ekki
allskostar rétt. Þrátt fyrir ýmsa
ágalla núverandi flokka er ekki
unnt að kenna þeim öllum um það
ófremdarástand, sem nú ríkir og
þjóðin lítur heldur ekki þannig á
málin.
Traustsyfirlýsing á
Sjálfstæðisflokkinn
Fólk veit, að núverandi ríkis-
stjórn er til orðin fyrir samstarf
tveggja flokka, Alþýðubandalags-
ins og Framsóknarflokksins, og
fjögurra alþingismanna, sem viku
frá stefnu Sjálfstæðisflokksins við
myndun stjórnarinnar. Sjálfstæð-
isflokkurinn verður ekki kallaður
til ábyrgðar fyrir gjörðir þessara
aðila. Þetta undirstrikuðu kjós-
endur í borgar- og sveitarstjórn-
arkosningunum. Þeir fylktu sér
um Sjálfstæðisflokkinn og veittu
frambjóðendum hans glæsilegt
brautargengi. Sigrarnir í Reykja-
vík og Vestmannaeyjum voru eft-
irminnilegir.
Ekki verður Alþýðuflokkurinn
heldur kallaður til ábyrgðar á nú-
verandi ástandi í efnahagsmálum.
Hann, eins og Sjálfstæðisflokkur-
inn, hefur allt aðra grundvallar-
stefnu um lausn efnahagsvanda
þjóðarinnar en núverandi ríkis-
stjórn. Að Alþýðuflokknum vegn-
ar illa en Sjálfstæðisflokknum vel,
samanber borgar- og sveitar-
stjórnarkosningarnar sl. vor, staf-
ar m.a. af því að Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur aftur öðlast sinn fyrri
styrk. Nýir menn hafa verið kall-
aðir til forystu á mikilvægum
sviðum. Þjóðin veit, að þrátt fyrir
liðna stundarerfiðleika, er Sjálf-
stæðisflokkurinn, sjálfstæðisfólk, sá
kjarni, sú kjölfesta, sem aldrei
bregst, hvernig sem árar. Það er
þess konar staðfesta sem skiptir
máli, sérstaklega þegar málefnum
þjóðarinnar er stefnt í óefni af
vinstri mönnum.
Leiðin út úr ógöngunum er ekki
fólgin í því að brjóta upp lýðræðis-
flokkana, síst af öllu Alþýðuflokk-
inn og Sjálfstæðisflokkinn.
Manndáö og dugur
Við sjálfstæðismenn brutum
blað í sögu Sjálfstæðisflokksins og
þjóðarinnar með hinum miklu
sigrum flokksins sl. vor. Þeir sigr-
ar urðu ekki til fyrir tilviljun eina.
I sigrunum birtist manndómur og
dugur þeirrar kjarkmiklu sveitar,
sem myndar Sjálfstæðisflokkinn.
Enginn maður hefur lýst betur
því besta sem í Sjálfstæðisflokkn-
um býr en fyrrum formaður
flokksins, Bjarni Benediktsson, er
hann í ræðu á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins 1965 mælti sem
hér segir:
„Öll vitum við þó, að við lifum
einungis í upphafi tækni- og vís-
indaaldar. Með því að nota okkur
ávexti hennar og tryggja einstakl-
ingunum til þess frelsi og mögu-
leika, þá greiðum við fyrir meiri,
örari og öruggari framförum,
lífskjarabótum, ef menn svo vilja
segja, en nokkur getur nú séð
fyrir.
Einangrunin hefur verið íslands
mesta mein. Nú, þegar hún er end-
anlega rofin, blasir við okkur
þátttaka í samfélagi þjóðanna.
Engu að síður munum við halda
tryggð við trú og menningu for-
feðra okkar og með þeim styrk,
sem sigrar yfir óteljandi örðug-
leikum hafa gefið kynstofni okkar,
sanna, að hin minnsta þjóð á ekki
Flensborg:
Kyndiklefanum breytt í eldhús
NEMENDAFÉLAG Flensborgarskóla i Hafnarfirði bauð bæjarbúum í
kaffi og pönnukökur á laugardaginn í tilefni þess, að tekið var í notkun
nýtt mötuneyti. Meðfylgjandi myndir tók Kristján Örn og er önnur af
nokkrum gestum, en hin er af stjóm nemendasambandsins í nýju eldhúsi
og afgreiðslu mötuneytisins, sem nemendur innréttuðu sjálfir, en þar var
áður kyndiklefi.
síður rétt á sér en hin stærsta. En
okkur íslendingum tjáir ekki á
sama veg og flestum öðrum að
treysta á mannmergðina, heldur á
manndáðina. Á Islandi þarf
sjálfstæði allrar þjóðarinnar að
eflast af sjálfstæði einstakl-
inganna. Sjálfstæðisflokkurinn
var stofnaður til að tryggja, að
sjálfstæði þjóðar og þegna færi
saman. Að þessu hefur flokkurinn
ætíð unnið og við, sem erum sam-
ankomin hér í kvöld, teljum okkur
heiður að því að skipa flokk, sem
svo glæsilega hefur staðið við þau
fyrirheit, er nafngiftin gaf. Heiðri
fylgir skylda, og okkar skylda er
að leggja okkur öll fram um að
Sjálfstæðisflokkurinn verði ætíð í
fararbroddi í hamingjuleit ís-
lenzku þjóðarinnar."
Það er heiður að fylla slíkan
flokk. Sjálfstæðisflokkurinn er
vegur þjóðarinnar úr upplausn til
öryggis.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
GOOLE:
Arnarfell .... 23/11
Arnarfell .... 6/12
Arnarfell .... 20/12
Arnarfell . 3/1 83
ROTTERDAM:
Arnarfell .... 25/11
Arnarfell .... 8/12
Arnarfell .... 22/12
Arnarfell 5/1 '83
ANTWERPEN:
Arnarfell .... 26/11
Arnarfell .... 9/12
Arnarfell .... 23/12
Arnarfell 7/1 '83
HAMBORG:
Helgafell .... 6/12
Helgafell 27/12
HELSINKI:
Disarfell 17/12
Dísarfell 15/1 '83
LARVIK:
Hvassafell 29/11
Hvassafell 13/12
Hvassafell 27/12
Hvassafell 10/1 '83
GAUTABORG:
Hvassafell 30/11
Hvassafell 14/12
Hvassafell 28/12
Hvassafell 11/1 '83
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell 17/11
Hvassafell 1/12
Hvassafell 15/12
Hvassafell 29/12
Hvassafell .. 12/1 83
SVENDBORG:
Helgafell 18/11
Hvassafell 2/12
Helgafell 8/12
Hvassafell 16/12
Dísarfell
AARHUS:
Helgafell 20/11
Helgafell 10/12
Helgafell 30/12
GLOUCESTER MASS.:
Skaftafell 1/12
Skaftafell 5/1
'83
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell .......... 3/12
Skaftafell .......... 7/1
'83
m
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101