Morgunblaðið - 17.11.1982, Page 32

Morgunblaðið - 17.11.1982, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982 Var með villt gælu- dýr á heimilinu Fréttabréf frá Tryggva Helgasyni í Texas KZÍSSÍÍ I’EGAR menn hittast á fórnum vegi berst talið oftast að veðrinu, hvernig það hafi verið, og svo framvegis. Veðrið hér í Texas hefur verið mjög gott í sumar en frekar þurrt, og hef- ur uppskera ekki orðið svo góð sem skyldi, í sumum sveitum. Miðað við íslenzkan mælikvarða, má segja að veður sé mjög gott hér allt árið um kring, nema helst á vor- in að þrumuveður ganga hér yfir, aðallega á timabilinu frá marz til maí. í verstu þrumuveðrunum mynd- ast stundum skýstrokkar sem geta valdið skaða, ef þeir ná til jarðar, og síðastliðið vor bar talsvert á ský- strokkum. Landbúnaður er geysimikill hér í Texas, en iðnaður fer þó mjög ört vaxandi. I'rátt fyrir lágt verð á land- búnaðarvörum virðist framleiðslan lítið minnka, og jafnvel vex á sum- um vörum, en bændur eru hvattir til að draga úr framleiðslu. Til dæmis má nefna að árleg framleiðsla í Bandaríkjunum af kjöti allra teg- unda er um 24 milljónir tonna, eða rúm 100 kiló á mann. Texas skiptist í 254 sýslur eða sveitir, og sú sveit sem framleiðir raesta mjólk er Erath-sveit (Erath County) sem er tæpir 3000 ferkíló- metrar að stærð. Þar er framleiðslan 160 milljónir lítra árlega. Út úr búð kostar lítri af mjólk 50 til 70 sent, eftir umbúðum og gæðum. Stærsti bóndinn er með 800 mjólkandi kýr, en margir eru með 200 til 500 kýr. Villt gæludýr Hér á dögunum bar það við að jagúar réðst á fjögurra ára barn og beit það illa. Þetta væri varla stórfrétt ef væri frá frumskógum Suður-Ameríku, en þetta gerðist hins vegar inn í miðri Fort Worth-borg. Amma barnsins réðst vopnlaus á jagúarinn og tókst að ná barninu og koma því á sjúkrahús. En forsaga málsins er sú að hálfrugluð kona, 27 ára gömul, móðir barnsins, geymdi jagúar í húsi sínu nr. 3401 við James Avenue. Móðir konunnar (þ.e. amman) átti síðan að fara og gefa dýrinu í fjarveru eigandans, og tók hún dótturdóttur sína með sér. Dýrið átti að vera í búri í húsinu, en þegar þær komu inn í húsið, skipti engum togum að jagúarinn stökk á barnið utan úr myrkrinu. Eftir að amman náði barninu og komst burt, gekk jagúarinn laus utan dyra sem innan, og hljóp urr- andi kringum húsið alla nóttina, nágrönnunum til lítillar ánægju. Varð uppi fótur og fit meðal yf- irvalda, þegar þeim loks skildist að jagúar en ekki hundur hefði slasað barnið, og var skotið á skyndifundi í borgarstjórn, þar sem jagúarinn var snarlega dæmdur til dauða, þótt það væri ekkert í lögum sem bannaði mönnum að halda villidýr í búrum heima hjá sér. Var nú gerður út nokkurskonar herleiðangur, hópur manna búinn alls kyns vopnum, deyfilyfjabyss- um og bareflum, og voru þar á meðal lögregla, borgarfulltrúar, lögfræðingar, dýralæknar og dýraeftirlitsmenn, til að fanga dýrið, en eigandinn var þá kominn heim og hótaði að skjóta hvern þann sem vogaði sér inn í garðinn. Menn létu það þó ekki aftra sér, og gerðu áhlaup á húsið. Eigandinn sleppti þá jagúarnum lausum á lögregluna, og þeim til mikillar undrunar einnig fullvaxinni púmu og litlum bob-ketti. Allur hópur- inn var þó snarlega yfirbugaður og fluttur burtu í búrum, nema eigandinn sem tókst að laumast burt. Síðustu fréttir voru svo þær að barnið væri á batavegi, en dýra- eigandinn finnst hvergi. Betra efnahagsástand en í Noróurrlkjunum Af öllum ríkjum Bandaríkjanna hefur atvinnu- og efnahagsástand verið einna best í Texas, og at- vinnuleysi tiltölulega lítið. Ríkis- stjórinn hér hélt því fram fyrir nokkrum mánuðum í sjónvarpinu, að í rauninni væri ekkert atvinnu- leysi í Texas, ávallt væru einhverj- ir sem ekki kæmu sér í vinnu og þyrfti að hjálpa, jafnvel í bezta góðæri. En atvinnuleysi hefur Tryggvi Helgason eitthvað aukizt síðan, og var talið í september um 8% í Texas, en 9,7% í landinu í heild. Verðbólga er nánast engin hér í Texas, enda þekkjast varla óraunhæfar launahækkanir, og hér eru fá launþegafélög til að þvinga fram kauphækkanir. Laun hér eru samkomulagsatriði milli atvinnurekanda og launþega, og er heilbrigð skynsemi og geta hvers fyrirtækis látin ráða. í Norðurríkjunum er þetta hinsvegar mikið vandamál, þar sem verkalýðsfélög hafa með sam- takamætti getað knésett fjölda stórfyrirtækja með taumlausum kaupkröfum og verkföllum, og stóru bílaverksmiðjurnar ramba á barmi gjaldþrots, vegna stór- felldra og óraunhæfra launahækk- ana. Verðið á bílunum hefur stöð- ugt hækkað til að mæta auknum launakostnaði, en salan hefur þá jafnframt minnkað, enda margir bílarnir illa smíðaðir. Finnst mönnum hér, að gæðin séu lítt í samræmi við launin sem menn fá fyrir að smíða bílana. Innfluttir bílar eru mun vand- aðri að flestu leyti, og yfirleitt gallalausir og eru japanskir bílar þar fremstir í flokki. * Odýr en ólöglegur vinnukraftur Eitt er það vandamál sem Texas-búar þurfa að glíma við, og landið. Ain Rio Grande skiptir löndum Mexíkó og Texas, og renn- ur frá E1 Paso til sjávar nær 1500 km leið. Þurfa menn því yfir ána til að komast til Texas. Sagt er að menn syndi yfir ána Rio Grande til að sleppa framhjá landamæra- vörðum, og ef einhver er gripinn hundblautur skammt frá ánni, þá er það talin góð sönnun fyrir því að sá hinn sami hafi verið að laumast inn í landið á sundi, og er hann þá sendur snarlega til baka. Ólöglegir Mexíkanar hér í Texas hafa því fengið viðurnefni, og eru kallaðir „blautbakar". En það sem rekur þessa menn til Texas er neyðin í Mexíkó. Þar er atvinnuleysi gífurlegt, jafnvel 50% eða meir, enda vinstri mennska og ríkisafskipti sögð allsráðandi, og einkaframtak fær ekki að njóta sín, og afleiðingarn- ar eru þar sem annars staðar að efnahagslífið koðnar niður. Þessir Mexíkanar sem sleppa óséðir inn í landið, reyna að fá vinnu á bændabýlum og taka hverju sem býðst. Og þar sem þeir eru ólöglegir mega þeir hvergi koma fram á skýrslum, né heldur borga skatta. Allt sem þeir kunna að fá greitt er því skattfrjálst, og sagt er að flestir sendi hvert ein- asta cent heim til fjölskyldunnar í Mexíkó, sem flestar búi við sár- ustu örbirgð. Og bændur hér sem margir hverjir eiga í erfiðleikum með að fá menn úr bæjunum til vinnu, og eru sumir skuldum vafðir vegna hins lága verðs á afurðum, grípa fegins hendi að fá ódýran vinnu- kraft, þótt ólöglegur sé. Enginn veit með vissu, hve margir ólöglegir Mexíkanar eru hér í Texas, en heyrt hefi ég tölur allt upp í rúmlega eina milljón. Vegakerfið gott Vegakerfið i Texas er talið mjög gott, og með því bezta í Bandaríkj- unum. Jafnvel afskekktir, fáfarnir sveitavegir eru bikaðir eða olíu- bornir. Stöðugt er verið að leggja nýja vegi, byggja vegbrýr og breyta einföldum vegum í tví- skipta vegi með tveim eða fleiri akreinum í hvora átt. Vegamerkingar eru víðast hvar fnjög góðar og því auðvelt að ferð- ast um landið. Tillitssemi í umferð er mikil, og sjaldan nokkur asi á mönnum, nema helzt í stórborg- unum. Á ýmsum gatnamótum þar sem engin ljós eru, er höfð stöðvun- arskylda á allar hliðar. Sá sem er fyrstur að stöðva bíl sinn við gatnamótin, fer fyrstur af stað. Ef tveir stöðva samtímis, þá dokar annar við, og veifar hinum að leggja fyrst af stað. Þetta gefst ótrúlega vel, og yfirleitt er maður fljótari yfir svona gatnamót, held- ur en þar sem götuljós eru. Á kvöldin og um helgar eru mörg umferðarljós látin blikka stöðugt. Önnur gatan er þá eins og venjuleg aðalgata, og þar blikka gul ljós, en á hinni götunni er full stöðvunarskylda, og þar blikka rauð ljós. Einhver sagði mér að í Reykjavík væru ljós sem blikkuðu gulu á báðar hliðar. Ég á nú raun- ar erfitt með að trúa því að þetta sé rétt. Ef slík ljós, sem blikkuðu gulu á allar hliðar, væru sett upp hér í Texas, þá væru það nánast dauðagildrur, þar sem flestir myndu aka hiklaust yfir gatna- mótin á blikkandi gulu ljósi. Aftur á móti eru sum ljós hér látin blikka rauðu ljósi á allar hliðar, og þá gildir sama reglan, að aliir verða að stöðva til fulls við gatnamótin, og sá sem er fyrstur að stöðva fer fyrstur af stað. téhá störfum en að vinna úti Frá llelgu Jónsdóttur, fréttaritara Mbl. í Hurgos, Spáni. Hafi það verið þannig áður fyrr, að konur skömmuðust sín fyrir að láta lesa á persónuskil- ríkjum sínum að þær væru hús- mæður, þá er það liðin tið. Það hefur nefnilega komið í ljós að spænskar konur eru hæstánægð- ar með hlutskipti sitt sem hús- mæður. Þetta er a.m.k. það sem kemur fram í nýafstaðinni könn- un sem menningarmálaráðuneyti Spánar lét fara fram og birti ráðuneytið niðurstöður nýlega. 78,9% spænskra kvenna eru hæstánægðar með lífið sem hús- mæður; 55% segja að húsmóð- urstarfið sé fyllilega nóg fyrir þær, þótt 30% vildu gjarnan starfa einnig utan heimilis með heimilisstörfunum sem eiginkona og móðir. Hálfsdagsvinna kæmi sér mjög vel fyrir 78% kvenn- anna; þannig gætu þær líka sinnt heimilinu án nokkurra vand- kvæða. Þrátt fyrir að allar konurnar kvarti yfir því að þær eigi ekki hálfa mínútu lausa eftir að vera búnar að skúra, vaska upp, strauja og elda mat eru þær ham- ingjusamar og segja að þær þarfnist einskis frekar. Jú, ef til vill þægju þær gjarnan að hafa svolitlu meiri peninga milli hand- anna. Það kemur annað hljóð í strokkinn þegar þær eru spurðar um mat þjóðfélagsins á húsmóð- urstarfinu. Allar með tölu eru þær sammála um að starf þeirra að vera „bara" húsmóðir sé lítils eða jafnvel einskis metið. Þær segja þó að eiginmenn og börn meti vinnu þeirra innan veggja heimilisins. Þetta eru helstu niðurstöður skoðanakönnunar menningarmálaráðuneytis Spán- ar þar sem þátttakendur voru yf- ir 2.000 spænskar húsmæður á öllum aldri, úr öllum stéttum þjóðfélagsins, búsettar víðs vegar um Spán. Ungar konur og konur úr lægri stéttum eru þær sem helst kysu að fara út á vinnumarkaðinn. Hvað sem því líður segja 49,6% að eiginmenn þeirra séu mjög þröngsýnir og öfundsjúkir og myndu banna þeim að starfa utan heimilisins. Það sem skýrt kemur fram er að spænskar konur eru fullkom- lega samþykkar hlutverki sínu sem húsmæður og vilja ekki neina breytingu hvað varðar starfsskiptingu hjónanna. 59,3% eru algjörlega mótfallnar að kon- an ynúi úti og eiginmaðurinn keypti í matinn, eldaði, vaskaði upp o.s.frv. Tæp 20% hefðu ekk- ert á móti því. Konur búsettar í Barcelona- borg eru án efa þær konur er mestan áhuga hafa á kvenrétt- indamálum á Spáni og berjast að einhverju marki fyrir jafnrétti kynjanna. Konur þar í borg hefðu ekkert á móti því að menn þeirra sæju um heimilisstörfin og þær ynnu úti. Auk þess kemur fram að karlmenn í Barcelona hjálpa þó nokkuð til á heimilinu. Konur annars staðar á Spáni (fyrir utan hóp ungra nýgiftra kvenna) segja að eiginmenn þeirra þvægju ekki einn einasta disk þótt þeim væri borgað fyrir það! Þeir stíga ekki einu sinni öðrum fæti inn í eld- húsið. En konurnar kvarta ekki. Meira að segja eru margar sem vilja alls ekki að eiginmaðurinn komi nálægt matreiðslunni eða hreingerningunum!! Nokkrar þeirra er spurðar voru, og skiptir þá ekki máli hvort um ungar eða eldri konur var að ræða, fátækar eða ríkar, búsettar í Andalúsíuhéraði á S-Spáni eða í Galisíuhéraði á NV-Spáni, eiga saumaskap sem uppáhaldstómstundaiðju. Lítill hluti kvenna í Cataluna-héraði kýs heldur að horfa á sjónvarp en að sitja við hannyrðir. Aðeins 9,9% segja að þær lesi í frístund- um sínum. Rannsóknardeild menningar- málaráðuneytis Spánar kemst einnig að því að spænskar hús- mæður taka yfirleitt ekki þátt í félagsstarfi af neinu tagi, hvort sem um er að ræða stjórnmála- starf, kvenfélög, menningar- og listasamtök eða íþróttastarfsemi. I mörgum borgum Spánar kom í ljós að 100% þeirra er voru þátt- takendur í könnuninni eru ekki meðlimir né hafa áhuga á að starfa í neinu félagi, klúbbi eða samtökum. Heima er bezt — spænskar konur kjósa fremur að sinna heimilis-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.