Morgunblaðið - 17.11.1982, Page 36

Morgunblaðið - 17.11.1982, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982 Hinn gullni medalvegur Um taóisma, trúarbrögð og talsvert fleira eftir Þorstein Eggertsson Helstu trúarbrögö nútímans „Ef Guð væri ekki til, þá væri bráðnauðsynlegt að finna hann upp,“ er haft eftir franska heim- spekingnum Voltaire og víst er að trúarþörfin hefur fylgt mannkyn- inu a.m.k. síðastliðin 10.000 ár. Ekki hafa menn heldur afneitað trúarbrögðum sínum öðruvísi en að fara að trúa á eitthvað annað í staðinn. Fyrir 200 árum var kristni fjölmennust allra trúar- bragða. Hún er það reyndar enn í dag, en nokkur nýrri trúarbrögð virðast nú ógna veldi henna s.s. vísindatrú, kommúnismi, kapítal- ismi eða peningatrú og hreint og beint trúleysi (sem er trú útaf fyrir sig). Þessir keppinautar kristninnar eiga a.m.k. tvennt sameiginlegt: efnishyggju og skynsemisdýrkun. Margir telja mikla skynsemi bera góðum gáfum vitni en ég er ekki sammála því. Imyndið ykkur „skynsamlega" samið tónverk. Hvað ætli hefði orðið úr Mozart ef hann hefði alltaf beitt skynsem- inni? Gáfur eru eitt — skynsemi annað og í sumum tilvikum er skynsemin fremur lágkúruleg hvöt. Að vísu getur hún magnað upp gáfur, en hún getur líka -for- heimskað menn. Hún blindaði annan eins gáfumann og Leonardo da Vinci sem reyndi áratugum saman að finna upp flugvél eða sviftæki en tókst ekki (ef fallhlíf- in, sem er hans verk, er undanskil- in). Hefði hann, með alla sína þekkingu, látið skynsemina gossa í nokkrar vikur, þá hefði hann ör- ugglega fundið upp svifdrekann. Og það er etv. mjög skynsam- legt að trúa ekki sköpunarsögunni í Fyrstu Mósebók. Hvernig gat heimurinn orðið til á 6 dögum þeg- ar það tekur 10 tunglmánuði að skapa eitt ósjálfbjarga manns- barn? Engu að síður er sköpunar- sagan sönn og var þar að auki skrifuð af Guði sjálfum. Þetta vita jafnvel gáfuðustu vísindamenn. Einstein vissi það til dæmis. En auðvitað er sagan út í hött ef hún er tekin bókstaflega og Guð skrif- aði hana ekki með penna á bókfell. Hann skrifaði hana í sjálfa nátt- úruna og með eigin hendi, tíman- um. I sköpunarsögu Mósebókar er þess reyndar getið að einn sköpun- ardagur hafi getað verið 1000 ár að lengd, en það köllum vér nú- tímamenn tímabil. Þeir sem skráðu frásögnina (líklega sam- kvæmt guðlegum innblæstri og at- hugunum) voru bara ekki farnir að hugsa í milljonum, því að ann- ars hefðu þeir eflaust sagt að „hver dagur hafi varað um hundr- uð milljónir ára“. Og ef við gerum ráð fyrir að Adam hafi ekki verið einn maður, heldur heil þjóð, þá verður strax skiljanlegra hvernig Eva varð til „úr síðu hans“. Vísindamenn hafa komist að því að í upphafi hafi verið algert myrkur í tóminu en síðan varð ein allsherjar sprenging („Verði ljós“) sem alheimurinn varð til úr. Þeir vita líka að fiskarnir, fuglarnir og dýr merkurinnar voru öll sköpuð á undan manninum. Svo hvíldi Guð sig á sjöunda degi. Við skulum ekki velta þeirri staðhæfingu mik- ið fyrir okkur því að vegir Hans eru órannsakanlegir. Hálf skynsemi er því verri en engin og of mikið af henni spillir lífsgleðinni. Svo er þetta með trúleysið — en jafnvel algert trúleysi er líka sprottið af einhverskonar trúar- þörf, eða hvað finnst ykkur t.d. um mann sem grípur til eins heimsku- legra örþrifaráða og að sletta skyri á prúðbúið fólk til þess eins að vekja athygli á að hann trúir ekki á Jesúm Krist? Sannfæring þessa manns hlýtur að vera mikil. Eg hef þekkt mann sem er svo sannfærður um að ekkert líf sé eftir dauðann, að hann ætlar að láta brenna líkama sinn, að sér látnum, og sjá til þess að öskunni verði dreift yfir Faxaflóa. Þetta er maður með fulla skynsemi — en hvað ætlast hann fyrir með þess- ari uppákomu eftir að hann verður að eilífu horfinn úr veröldinni? Ekki reiknar hann með að geta fylgst með þessu og því síður að geta fengið fréttir af atburðinum. Má þá ekki alveg eins aka líkinu út á hauga þar sem enginn gefur því frekari gaum? Á öllum tímum og um allar jarðir hefur fólk orðið vitni að ótrúlegustu hlutum. Sum þessara fyrirbæra hafa verið sérstæð og einangruð en önnur eru að gerast á hverri einustu sekúndu um heim allan — t.d. barnsfæðingar. Þorskurinn á það til að éta börnin sín nýfædd, jafnvel í tuga- tali, enda hugsar hann líklega ekki mikið um trúmál eða hinstu rök tilverunnar. Maðurinn er öðruvísi gerður (skyldi maður ætla) og þess vegna hefur hann, á þúsund alda vegleið sinni, komist á snoðir um eitthvað sem sumir kalla Guð. Öldungurinn spaki Guð skrifaði sköpunarsöguna með eigin hendi en það er langt síðan mennirnir skrásettu fyrstu samþjöppuðu útgáfuna að verkinu. Hugsanagangur og þekk- ing nútímamannsins er allt önnur en sú vitneskja sem þjóð Móse bjó yfir og þess vegna er auðvitað orð- ið tímabært að skrásetja frá- sögnina upp á nýtt. Og einmitt það hafa vísindamenn síðustu kyn- slóða gert vel og dyggilega. Að vísu hafa flestir þeirra talið sig vera að hrekja sköpunarsögu Mósebókar, en niðurstöðurnar eru þær sömu. Rit Darwins og Ein- steins, auk margra annarra, eru mun ítarlegri en verk þeirra sem skráðu Genesis (Fyrstu bók Móse) og meira í anda nútímans, en í grófum dráttum er þetta sama sagan, enda verið að lýsa sama sköpunarverkinu. Það er m.a. af þessum ástæðum sem sumir af mestu hugsuðum allra tíma hafa talið Biblíuna full- komnasta ritverk allra tíma. Satt að segja er bókin svo yfirgrips- mikil að ég efast um að nokkur einn maður geti gert henni full skil þótt honum entist öll ævin til þess. Reyndar er hægt að segja þetta um fleiri bækur, jafnvel um rit sem eru margfalt minni en Biblí- an. Tao Te King, sem á íslensku hef- ur verið nefnd Bókin um veginn, er ekki nema rúmlega 100 blaðsíð- ur í mjög litlu broti. Hún er svo samþjöppuð, hnitmiðuð og blátt áfram að það er aldeilis yfirgengi- legt. Hún hefur verið þýdd a.m.k. tvisvar á íslensku en útgáfurnar af henni eru orðnar mýmargar um víða veröld og mismunandi að- gengilegar. Þessi bók er eitt af höfuðverkum taóismans, ásamt I King og ritsafni Kwang Tze. I King hefur talsverða sérstöðu meðal bóka. Hún er einskonar samræðufélagi sem menn geta ráðfært sig við. Sumir kalla hana spádómabók og eflaust hefur hún komið mörgum að gangi sem slík, en sérstakar serimóníur eru við- hafðar þegar hún er notuð og hún hefur alltaf svar á reiðum höndum við hverri spurningu. Sum þessara svara geta að vísu virst nokkuð háfleyg í fyrstu, en öll búa þau yfir djúpri speki sem hollt er að fara eftir. Rit Kwang Tze (sem var uppi á 3. og 4. öld f. Kr.) er safn dæmisagna og útskýringa á verkum Lao Tze (öldungsins spaka sem var uppi um 600 f. Kr.). Tao Te King (Bókin um veginn) er eina verk Lao Tze (en auk þess eru varðveittar margar af setning- um hans í ritsafni Kwang Tze). Meistari Lao Tse fer í hinstu fór sína. „Hvað er taóismi? — Þegar stórt er spurt verður oft lítið um svör, en úr því ég er að fjalla um taóisma verð ég að reyna að svara þessu — þó ekki sé nema með því að vekja nýjar spurningar.“ Sagt er að öldungurinn hafi ritað bókina á einni nóttu í litlum landamærabæ, sem laun fyrir næturgreiða. Síðan hvarf hann yf- ir landamærin og sást aldrei aft- ur. Þessi bók (sem er aðeins um 1.300 línur að lengd) er einskonar biblía taóista og þótt hún sé stutt og skorinorð er endalaust hægt að leita sér nýrrar þekkingar í henni. Þótt hlutfall kristninnar hafi minnkað í heiminum, miðað við önnur trúarbrögð og lífsskoðanir undanfarnar 2 aldir, hefur taóist- um fækkað enn meir — ef mark er takandi á skýrslum um þessi efni. Hitt er svo annað mál, hvort nokk- urt mark er takandi á þeim. Síðan kommúnistar komust til valda í Kína og Ráðstjórnarríkjunum er ekki gert ráð fyrir að fólk trúi á annað en kenningar Karls Marx, Mao Tze Tung og Leníns í þessum ríkjum. Staðreyndin er þó önnur. I Ráðstjórnarríkjunum býr t.d. hátt á þriðju milljón manna en þar eru meðlimir Kommúnistaflokksins innan við 20 milljónir eða minna en 10% af þjóðarheildinni. Þar eru hins vegar milljónir kristinna manna og fólks af öðrum trúflokk- um, þótt ríkistrúnni (kommúnism- anum) hafi verið þröngvað upp á fólkið. Trúarbrögðum hefur á öll- um tímum verið þröngvað upp á fólk og jfirleytt í pólitískum til-. gangi. Islendingar köstuðu ekki allir ásatrúnni þegar kristni var lögleidd hér á landi fyrir u.þ.b. 1000 árum, en trúarsiðirnir breyttust smám saman og það gerði yfirvöldum auðveldara með að ná fram ýmsum mikilvægum málum. Taóisminn er opinber trúar- kenning á eyjunni Taiwan en ekki á meginlandi Kína. Tugir ef ekki hundruð milljónir Kínverja eru þó enn taóistar í eðli sínu, en serim- óníurnár og trúarsiðirnir hafa að mestu leyti horfið. Hvort tveggja er þó enn við lýði á Taiwan. Trúarsiðir taóista eru orðnir ansi flóknir og fara í mörgum til- vikum langt út fyrir efnið, en þannig er það oft með trúarbrögð — sérstaklega ef þau eru orðin margra alda gömul. Hváö er taóismi? Þegar stórt er spurt verður oft lítið um svör, en úr því ég er að fjalla um taóisma verð ég að reyna að svara þessu — þó ekki sé nema með því að vekja nýjar spurn- ingar. Taóistar nefna Guð aldrei á nafn og sumir halda því fram að trúarbrögðin séu algerlega guð- laus. Samt gera þeir ráð fyrir ein- hverju allsherjarafli sem heldur himintunglunum gangandi, stuðl- ar að óendanlegri fjölbreytni og jafnvægi í náttúrunni og viðheld- ur lífsaflinu. Þeir gera sér grein fyrir því að dauðlegur maður sem aðeins skynjar 3 víddir, 3 frumliti og 3 tíma í senn (fortíð, nútíð og framtíðarhugboð), hefur lítið sem ekkert inngrip í almættið. Leiðina til móts við almættið kalla þeir tao, en það verður held- ur ekki utskýrt að neinu gagni. Orðið þýðir vegur, leið, aðferð og ýmislegt í þeim dúr, en hefur a.m.k. 400 merkingar í viðbót svo að „það tao sem hægt er að nefna með orðum er alls ekki tao“. Með því að gera ráð fyrir að tvær hliðar séu á hverju máli hafa þeir komist að þeirri niðurstöðu að eðli allra hluta sé þríþætt. Allt heimskerfið byggist á andstæðum; dagur og nótt, karl og kona, fortíð og framtíð, heitt og kalt, svart og hvítt, sársauki og sæla, þurrt og blautt, stórt og smátt o.s.frv. Tví- eðlið fæðir síðan af sér þriðja kostinn. Milli fortíðar og framtíð- ar er núið, en sá tími skiptir alltaf mestu máli. Milli fæðingar og dauða er lífið og milli sorgar og gleði er hamingjan sem líka skipt- ir miklu máli. Þar sem þriðji kost- urinn skiptir alltaf mestu máli eiga menn að stuðla að því að láta andstæðurnar mætast. Maður verður þó að þekkja til andstæðnanna. Sá sem aldrei hef- ur litið glaðan dag á ævinni veit ekki hvað sorg er því að hann er of nátengdur henni. Á sama hátt þekkir maður ekki ástarkvalir fyrr en hann hefur kynnst ástar- sælunni. Andstæðurnar byggja því upp alla hluti, hvers kyns sem þeir eru. Því meiri völd sem einn maður hefur, því meira er öryggisleysi hans. Því fleiri föt sem þú átt, því minna veistu um hverju þú átt að klæðast. Því fleiri skartgripi sem þú eignast, því minni ánægju hef- urðu af hverjum fyrir sig. Svona er hægt að halda áfram endalaust.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.