Morgunblaðið - 07.12.1982, Blaðsíða 32
17
DAGAR'
TIL JÓLA,
<&u\l & íé>ilfur
Laugavegi 35
jmpiiiiljrfafrft
___kuglýsinga-
síminn er 2 24 80
I’RIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1982
„Fyrsta, annad og þridja . . . “
Á laugardag og í gær var haldið opinbert uppboð í verzlun, sem lýst hafði verið gjaldþrota á Egilsstöðum og
stóðu þeir Þráinn Jónsson hreppstjóri Fellahrepps og Sveinbjörn Sveinbjörnsson fulltrúi sýslumanns i Norður-
Múlasýslu fyrir uppboðinu. Þar voru boðnar upp hinar margvíslegustu vörutegundir. Að sögn fréttaritara Mbl.
ríkti kátína á uppboðinu og virtust margir gera góð kaup. Ljósm.: MorKunbiaðiö/óiafur Guömundsson.
Viðræður Alusuisse og iðnaðarráðherra:
Staða mála
enn óbreytt
„Morgundagurinn verður að leiða niður-
stöður í Ijós“ sagði iðnaðarráðherra í gær
„MÁLIÐ er á viðkvæmu stigi, þannig að ég gef engar yfirlýsingar," sagði
dr. Paul Miiller, cr hann gekk af viðræðufundi með iðnaðarráðherra og
fulitrúum hans í fundarsal fjármálaráðuneytisins í Borgartúni um kl. 17.30
í dag. „Ekkert að segja um stöðu mála eins og komið er. Morgundagurinn
verður að leiða það í ljós,“ sagði Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra
aðspurður um hvort niðurstöður hefðu fengist í viðræðunum, er hann gekk
út rúmum hálftíma síðar ásamt ráðgjöfum sínum. Viðræðufundum verður
framhaldið í dag.
Samkvæmt ummælum iðnað-
arráðherra og heimildum Mbl.
ræðst væntanlega á fundum í dag
hvort samkomulag næst milli
Alusuisse og íslenzkra stjórn-
valda vegna álversins í Straums-
vík, eða hvort upp úr slitnar á ný.
Alusuissemenn lögðu fram bréf á
fundinum í gærmorgun þar sem
ítrekaðar eru og nánar útskýrðar
fyrri yfirlýsingar um vilja til að
ágreiningsmál verði lögð í ein-
faldan gerðardóm og að síðan
verði setzt að samningaborði um
hækkun raforkuverðs og fleiri
atriði.
Iðnaðarráðherra mun þar á
móti hafa ítrekað sínar skoðanir
um að jafnhliða því að ákvörðun
verði tekin um hvernig leysa
skuli ágreiningsmálin frá fyrri
tíð sé samið um önnur atriði, svo
sem hækkun raforkuverðs o.fl.
Málin voru rædd fram og aftur,
en engar niðurstöður fengust.
Heimildarmenn þeir er Mbl.
ræddi við í gær voru þeirrar
skoðunar, að væntanlega myndi
ráðast á fundunum í dag hvort
samkomulag næðist, eða hvort
„áfram yrði allt járn í járn“, eins
og einn viðmælenda blaðsins
orðaði það.
I gærkvöldi fundaði álviðræðu-
nefnd ríkisstjórnarinnar og er
Mbl. kunnugt um að stjórn ÍSALs
var boðuð til fundar eftir hádegi í
dag.
Útflutningur hefiir dreg-
izt saman um 11,5% í ár
— Verömætaaukningin milli ára er aðeins 28,5%
Heildarútflutningur landsmanna
dróst saman um tæplega 11,5%
fyrstu tiu mánuði ársins í magni tal-
ið, en alls voru flutt út 443.597,3
tonn borið saman við 501.030,5 tonn
Getraunir:
„Potturinn“
Vz milljón kr.
TVEIR unnu stærsta „pott“ frá upp-
hafi Getrauna um helgina, Reykvík-
ingur og Hornfirðingur. Hvor um sig
fengu liðlega 174 þúsund krónur en
potturinn nam hálfri milljón króna,
sem er 10% hækkun frá síðustu
helgi.
Alls komu fram 75 raðir með 11
rétta og er vinningsupphæð fyrir
hverja röð 1.992 krónur. ,
fyrstu tíu mánuðina í fyrra. Verð-
mætaaukningin milli ára er aðeins
tæplega 28,5%, en verðmæti útflutn-
ings fyrstu tíu mánuðina í ár er lið-
lega 6.320,7 milljónir króna, en var á
sama tíma í fyrra liðlega 4.920,5
milljónir króna. Almennar verð-
breytingar í landinu eru um 55% á
þessu tímabili.
Heildarútflutningur iðnaðar-
vara dróst hins vegar saman um
4,5%, en alls voru flutt út
131.262,0 tonn fyrstu tíu mánuðina
í ár, en á sama tíma í fyrra voru
flutt út 137.518,1 tonn. Verðmæta-
aukningin í iðnaðarvöruútflutn-
ingnum milli ára er liðlega 41,5%,
en verðmætið í ár er liðlega 1.465
milljónir króna, borið saman við
liðlega 1.035 milljónir króna á
sama tíma í fyrra.
Útflutningur á áli og álmelmi
dróst saman um 9% á fyrstu tíu
mánuðum ársins, en alls voru flutt
út 49.022,5 tonn í ár, borið saman
við 53.810,0 tonn á sama tíma í
fyrra. Verðmætaaukningin í út-
flutningi á áli og álmelmi er að-
eins 21% á umræddu tímabili, en
verðmæti útflutningsins í ár er
639,2 milljónir króna, en var á
sama tíma í fyrra liðlega 529,8
milljónir króna.
Steingrímur Hcrmannsson, sjáv-
arútvegsráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins, hélt utan sl. laug-
Útflutningur á kísiljárni jókst
um liðlega 33% fyrstu tíu mánuð-
ina í ár, en alls voru flutt úr
34.458,6 tonn í ár, borið saman við
25.990,0 tonn á sama tíma í fyrra.
Verðmætaaukningin milli ára er
um 98%, en útflutningsverðmætið
í ár er liðlega 196,2 milljónir
króna á móti liðlega 99,2 milljón-
um króna á sama tíma í fyrra.
ardag og var för hans heitið til
Jamaica, en þar fer fram undirritun
hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóð-
anna í vikunni. Að sögn Jóns Arn-
Undirritun hafréttarsáttmálans:
Steingrímur og Hans
G. undirrita báðir
— Blaðafulltrúum ókunnugt um fdr Steingríms
Ný vísitöluviðmiðun:
Vísitölunefnd ríkisstjórn-
arinnar klofnaði um málið
— Djúpstæður ágreiningur í ríkisstjórn um afgreiðslu þess
VÍSITÖLUNEFNI) ríkisstjórnarinn-
ar klofnaði í gær í afgreiðslu sinni á
skýrslu til ríkisstjórnarinnar. Þröst-
ur Olafsson fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins skilaði séráliti, en Halldór
Ásgrímsson þingmaður Framsóknar-
flokksins og Þóröur Friðjónsson
hagfræðiráöunautur forsætisráð-
hcrra skiluðu sameiginlegri skýrslu,
sem samkvæmt heimildum Mbl. er
samhljóða þeirri skýrslu, sem nefnd-
in hafði komiö sér saman um sl.
haust. Ríkisstjórnin fjallar um málið
á fundi sínum i dag, en samkvæmt
hcimildum Mbl. er djúpstæður
ágreiningur um afgreiðslu þess.
Eins og komið hefur fram í
fréttum er breytingin á vísitölu-
grundvellinum og ný vísitöluvið-
miðun einn af þeim þáttum sem
samkomulag varð um að fylgja
ættu bráðabirgðalögum ríkis-
stjórnarinnar þegar þau voru
samþykkt í ágústmánuði sl. Vísi-
tölunefndin fyrrgreinda hefur
unnið að máli þessu svo mánuðum
skiptir og hafði nefndin náð sam-
komulagi um flest atriði um það
leyti sem bráðabirgðalögin voru
samþykkt, en nú virðast alþýðu-
bandalagsmenn hafa dregið til
baka ýmsar fyrri samþykktir.
Samkvæmt því sem Mbl. kemst
næst hefur Þröstur Ólafsson lagt
fram kröfur um að nýtt útreikn-
ingstímabil verði fyrsta kastið
óbreytt, það er þrír mánuðir í stað
fjögurra eða jafnvel fimm, eins og
áður hafði verið rætt um. Þá er og
ágreiningur um ýmsa aðra þætti
þessa máls.
alds, ráðuneytisstjóra í sjávarút-
vegsráðuneytinu, mun Steingrímur
undirrita hafréttarsáttmálann ásamt
Hans G. Andersen ambassador í
Washington, en áður hefur birst
opinberlega tilkynning frá utanrík-
isráðuneytinu þess efnis að Hans
myndi undirrita samninginn fyrir
hönd íslands.
Er Mbl. leitaði upplýsinga hjá
Tómasi Karlssyni, sendiráðunaut í
utanríkisrðuneytinu, í gær hafði
hann ekki aðrar upplýsingar en
þær, að Hans G. Andersen myndi
undirrita hafréttarsáttmálann af
Islands hálfu, en einnig yrði Guð-
mundur Eiríksson, þjóðréttar-
fræðingur utanríkisráðuneytisins,
viðstaddur. Tómasi var ekki kunn-
ugt um að Steingrímur væri á för-
um til Jamaica í sömu erinda-
gjörðum og Hans G. Andersen.
Magnúsi Torfa Ólafssyni, blaða-
fulltrúa ríkisstjórnarinnar, var
einnig ókunnugt um erindi Stein-
gríms til Jamaica er Mbl. ræddi
við hann um miðjan dag í gær.