Morgunblaðið - 10.12.1982, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1982
Úr Eyjólfsstaðarskógi á Völlum
Egilsstaðir:
2000 jólatré á markað
Kgil»8töðum, 7. desember.
IJM síðastlióna helgi hófu félagar úr
Skógræktarfélagi Austurlands að fella
tré í Eyjólfsstaðarskógi. Eyjólfsstað-
arskógur á V öllum er rétt innan við
Egilsstaði ofan við orlofshús Alþýðu-
samhands Austurlands. Séð frá þjóð-
veginum lætur skógurinn lítið yfir sér
— en þegar upp í skóginn er komið
reynist þar hið fegursta skóglendi.
Þau tré — sem nú voru felld —
voru gróðursett fyrir u.þ.b. 20 árum,
aðallega rauðgreni auk blágrenis.
Þetta er þriðja árið í röð sem tré eru
höggvin í Eyjólfsstaðarskógi fyrir
hinn almenna jólatrjáamarkað, en
Eyjólfsstaðarskógur er í eigu Skóg-
ræktarfélags Austurlands.
í ár eru felld um 150 tré í Eyj-
ólfsstaðarskógi flest um 1 Vi m að
hæð.
Skógrækt ríkisins á Hallormsstað
annast dreifingu og sölu jólatrjánna
úr Eyjólfsstaðarskógi. Að sögn Jóns
Loftssonar skógarvarðar verða nú
felld um 2.000 tré í Hallormsstaðar-
skógi — þannig að héðan fara um
2.150 jólatré á sölumarkað. Helm-
ingur þessara trjáa fer til Reykja-
víkur — en hinn helmingur er seldur
víðs vegar um Austurland.
Flest trén úr Hallormsstaðarskógi
eru að svipaðri stærð og trén úr Eyj-
ólfsstaðarskógi — þ.é.a.s. til heimil-
isskrauts, en þó eru einnig felld þar
tré til útiskrauts allt að 10 metrar á
hæð.
Skógræktarfélag Austurlands var
stofnað 1943 og núverandi formaður
þess er Halldór Sigurðsson, Miðhús-
um.
— Ólafur
GUNNAR ÞÓRÐARSON
Hún er komin. hliómplatan sem beðió hefur veriö eftir! — Platan
meö Gunnari Þóröarsyni og Pálma Gunnarssyni. Á plötunni eru tiu
splunkuný lög eftir Gunnar, sem öll eru sungin af Pálma.
Enn einu sinni kemur Gunnar meö frábæra tónlist, og Pálmi
hefur aldrei sungiö betur. Þaö veröur ekki erfitt aö velja hljóm-
plötu til jólagjafa i ár!
Barónsstíg 18, 101
Reykjavík.
Sími 1 88 30.
Póstsendum
Laugavegí 13,
sími 13508.
ELAN SKÍDI
í miklu úrvali
á alla
fjölskylduna
DOMUS
Þýzkir kvenskór. Stærðir: 36—41. Verö kr. 861.- Litir: Svart, vínrautt.
k
Enskir karlmannaskór. Stærðir: 40—46. Verö kr. 1.030.- Litir: Svart, dökkbrúnt.
ÉHHHHHHHHHHÉ