Morgunblaðið - 04.01.1983, Síða 2

Morgunblaðið - 04.01.1983, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1983 Nýtt fiskverð ákveðið á gamlársdag: 14% meðalhækkun og tilfærslur milli flokka Ríkisstjórnin tilkynnti framlengingu 7% olíugjalds- ins, 35% olíunidurgreiöslur og 4% útflutningsgjald YFIRNEFND Verdlagsráðs sjávarút- vegsins gekk frá nýju fiskverði á gamlárskvöld. Verðið var ákveðið af oddamanni og fulltrúa útgerðar- manna gegn atkvæði fulltrúa sjó- manna, en fulltrúar kaupenda sátu hjá. Verðákvörðunin felur í sér 14% meðalhækkun frá núgildandi verði. Tilfærslur voru gerðar á verðmun eft- ir stærð og gæðum, einnig milli slægðs og óslægðs fisks. Þá lá fyrir við verðákvörðunina yfirlýsing frá rík- isstjórninni um að olíugjald verði óbreytt, þ.e. 7% og að olía til fiski- skipa verði greidd niður um 35% og tekna til niðurgreiðslunnar aflað með 4% útflutningsgjaldi. Gæðaflokkum var breytt á þá lund að 2. flokkur er nú 77% af verði 1. flokks í staðinn fyrir 85% áður. 3. flokkur er 50% í stað 60% af verði 1. flokks. Þá var bil milli slægðs og óslægðs fisks aukið þann- ig að verð óslægðs fisks verður nú 86 af verði slægðs fisks í stað 89 áður. Þá var fyrsta flokks stór þorskur hækkaður um 20,7% en smár fiskur lækkaður í verði, áður en til 14% hækkunarinnar kom. Fyrir 1. flokks stóran þorsk fást nú 8,28 kr. í stað 6,86 kr. áður. Fulltrúar kaupenda sátu hjá eins og fyrr segir og gerðu þeir svofellda grein fyrir afstöðu sinni: „Ríkis- stjórnin hefur lýst yfir að fisk- vinnslunni verði að fullu bættar þær kostnaðarhækkanir sem af þessari fiskverðsákvörðun leiða. Fulltrúar kaupenda geta þó ekki greitt atkvæði með þessari ákvörðun, þar sem þeir eru andvígir þeirri hækkun útflutningsgjalds. Guðmundur G. Þórarinsson: „Ekki ástæða til að gefa skýringar' M „ÉG SÉ ekki ástæðu til að gefa nein- ar skýringar, en hrandara ársins tel ég að menn skuli ætla að ég verði flugmálastjóri," sagði Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaður, er Mbl. spurði hann um ástæöu þess að hann gefur ekki kost á sér í prófkjör Framsóknarflokksins í Reykjavík, en það fer fram 9. janúar nk. Guð- mundur vildi ekki láta hafa annað eftir sér í þessu sambandi. Tíu gefa kost á sér í jjrófkjörið. Þeir eru eftirtaldir: Arni Bene- diktsson, Ásta R. Jóhannesdóttir, Björn Líndal, Bolli Héðinsson, Dollý Erla Nilsen, Haraldur Ólafsson, Kristín Eggertsdóttir, Ólafur Jóhannesson, Steinunn Finnbogadóttir og Viggó Jörg- ensson. Þátttökurétt í prófkjörinu eiga einvörðungu fulltrúaráðsmenn í Reykjavík, ennfremur þeir sem Framsóknarflokkurinn hefur kos- ið á Alþingi og í borgarstjórn og nefndir á þeirra vegum. Fyrir- komulagið er þannig að númera skal sex nöfn í þeirri röð sem þátttakandi vill að frambjóðendur skipi framboðslistann. sem ríkisstjórnin hefur ákveðið, og telja að hægt hefði verið að ná sömu heildarniðurstöðu eftir ann- arri leið, sem fyrir lá að útgerðin gat einnig fallist á.“ Fulltrúi sjómanna greiddi at- kvæði gegn og gerði svofellda grein fyrir atkvæði sínu: „Ég tel að verð- ákvörðun þessi og forsendur hennar hafi verið tekin með þeim hætti að ekki verði annað talið, en að fulltrúi ríkisvaldsins, oddamaður yfir- nefndar, hafi með atkvæði sínu, svo og fulltrúar kaupenda með hjásetu sinni, haft bein afskipti af hluta- skiptakjörum sjómanna og útgerð- armanna. Mun því fulltrúi sjó- manna með tilvísun til ofangreinds i samráði við stjórnir sjómanna- samtakanna meta það, hvort grundvöllur sé fyrir áframhaldandi setu fulltrúa sjómanna í Verðlags- ráði sjávarútvegsins." í yfirnefndinni eiga sæti: Ólafur Davíðsson forstjóri Þjóðhagsstofn- unar sem er oddamaður, Kristján Ragnarsson af hálfu útgerðar- manna, Óskar Vigfússon af hálfu sjómanna og Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson og Friðrik Pálsson af hálfu kaupenda. Sjá viðtöl vegna fiskverðs- ákvörðunar á miðopnu. Fyrsta barn ársins fæddist á nýársnótt FYRSTA barn ársins 1983 fæddist á fæðingadeild Landspítalans í Reykjavík kl. 2.47 á nýársnótt. Var það myndardrengur, 14 merkur og 51 sentimetri, sonur þeirra Þórunnar Kristjánsdóttur og Andrésar Guð- mundssonar. Þetta er þeirra þriðja barn en þau eiga 2 dætur fyrir, þær Helgu Jónínu 10 ára og írisi Kristínu 6 ára. Þau búa á Þingeyri við Dýrafjörð en komu suður vegna fæðingarinnar. Reykjavík og nágrenni: Talsverðir erfidleikar urdu vegna snjókomu og ófærðar Fyrirframgreiðsla skatta ákveðin 70% Fjármálaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um fyrirfram- greiðslu skatta á fyrri helmingi þessa árs, en samkvæmt upplýs- ingum Höskuldar Jónssonar, ráðuneytisstjóra, hefur verið ákv- eðið að skattgreiðendur skuli greiða 70% af sköttum fyrra árs fyrirfram á næstu fimm mánuð- um, þ.e. með gjalddögum 1. febrú- ar, 1. marz, 1. apríl, 1. maí og 1. júní. Fyrirframgreiðslan nú er sú sama og í fyrra. TALSVKRÐIR erfiðleikar voru í Reykjavík og nágrenni í gærkveldi vegna ófærðar, en um tíma var ófært í Garðabæ og Hafnarfjörð og voru erf- iðleikarnir einkum á Kringlumýrar- braut. Þar töfðu vanbúnir bilar mjög umferðina, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. Þá var færðin einnig farin að þyngjast í úthverfum borgar- innar, en snjórinn var bæði blautur og þungur og einungis vel útbúnum bíl- um sóttist ferðin sæmilega. Hellisheiði er ófær, en fært var um Þrengsli í gær og víða um sveit- ir sunnanlands og með ströndinni allt austur á Austfirði. Fjallvegir þar eru færir. Á Suðvesturlandi snjóaði talsvert í gær og var víða hálka á vegum og var slæmt ástand í Svínahrauni og í Hvalfirði og gekk umferð hægt en vegir voru þó færir. Fært var vestur á Mýrar og í Borgarfirði, einnig var fært um Heydal og norðanvert Snæfellsnes, allt út á Hellissand, en slæmt veður var á þessum slóðum í gær. Snjóflóð lokuðu Ólafsvíkurenni í gær, en um miðjan dag tókst að opna þá leið. Fært var um Svínadal og í Reykhólasveit. Hætta varð við að moka frá Patreksfirði og út á flugvöll vegna snjóflóða. Frá Pat- reksfirði var fært til Tálknafjarðar en ófært á Bíldudal. Á milli ísa- fjarðar og Bolungarvíkur var fært, en í Óshlíð féllu mörg snjóflóð, og einnig lokuðu snjóflóð veginum til Súðavíkur. Voru þessar leiðir rudd- ar og voru færar síðdegis í gær. Al- mannavarnir á Vestfjörðum vöruðu í gær fólk við snjóflóðahættu. Holtavörðuheiði var rudd í gær, en þar var slæmt veður og talsverð snjókoma, en þegar í Hrútafjörð kom var fært allt austur til Þórs- hafnar og til Siglufjarðar, Ólafs- fjarðar, Húsavíkur og til Mývatns. Matthías Á. Mathiesen: Ummæli formanns Sjómanna- sambandsins helber ósannindi Stjórnarandstöðuflokkarnir bera enga ábyrgð á fiskverðsákvörðun Gömul kona fyrir bíl Jón SvavarsNon GÖMUL kona, 72 ára ad aldri, varó fyrir bifreid fyrir framan hús sitt á Hringbraut 43 um klukkan 9.30 í gærmorgun. Konan var á leið norður yfir götuna þegar hún varð fyrir SAAB—bifreið, sem ekið var austur Hringbraut. Hún var flutt á slysadeild og reyndist fótbrotin, auk þess skaddaðist hún á böfði. Brauð handa hungruðum heimi: Tvær milljónir hafa safnast „UMM/ELI formanns Sjómannasam- bandsins, Óskars Vigfússonar, í sjón- varpinu sl. sunnudagskvöld um af- stöðu stjórnarandstöðunnar til þeirra ráðstafana, er ríkisstjórnin hyggst beita fjfir í sambandi við fiskverðsákvörðunina eru helber ósannindi svo og að stjórnarandstöðu- flokkarnir beri nokkra ábyrgð á fisk- verðsákvörðuninni“, sagði Matthias Á. Mathiesen fulltrúi Sjáífstæðisflokks- ins i þingmannanefnd þeirri, sem sjávarútvegsráðherra lét tilnefna, til að fylgjast með ráðstöfunum ríkis- stjórnarinnar vegna vanda útgerðar- innar. Matthías sagði einnig: „Sjávar- útvegsráðherra hafði óskað eftir til- nefningu þingmanna úr öllum þing- flokkum til að fylgjast með og hafa með höndum upplýsingamiðlun til þingflokka sinna varðandi vanda- mál útgerðarinnar. Ákvörðun fisk- verðsins var í höndum yfirnefndar VCrðlí>£roP^i»,n 'xrr ».íú«n<-4-nn- . wwtfiiia i nviðSLjui ii<&rinn- ar. Með aðgerðum hennar er það ríkisstjórnin og enginn annar en ríkisstjórnin sem ber ábyrgð á fisk- verðsákvörðuninni eins og hún varð. Sjávarútvegsráðherra var ljóst, að sjálfstæðismenn hafa verið og eru andvígir sjóðamyndun og milli- færsluleiðum til niðurgreiðslu á rekstrarkostnaði útgerðarinnar. Ríkisstjórnin virðist hins vegar ekki hafa vitað fyrr en seint á gamlárs- dag hvað hún hafði til málanna að leggja, og mér eins og öðrum lands- mönnum var ókunnugt um niður- stöður fyrr en við fengum fréttir þar um sem nýársboðskap. Ég veit að formaður Sjómanna sambandsins er óánægður fyrir hönd sjómanna hversu illa til tókst með fiskverðsákvörðunina að þessu sinni. Þaö styrkir hins vegar ekki málstað neins, að gera öðrum upp afstöðu sem ekki er rétt, og ég veit að það er ekki að skapi íslenzkra sjómanna að svo sé gert. Það er svo atriði út af fyrir sig, að fréttamaður sjónvarpsins taldi ekki ástæðu til að leita staðfestingar á fullyrðingu formanns Sjómannasambandsins hjá þeim sem hlut áttu að máii, né heldur kynna sér hvert var verkefni þeirra þingmanna, sem áttu viðræð- ur við sjávarútvegsráðherra um vandamál sjávarútvegsins. Allt þetta hefði hann getað fengið upp- lýst og leiðrétt með einu símtali." SÖFNUNIN Brauð handa hungruö- um heimi gengur vel, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Gunnlaugi Stefánssyni fræðslu- fulltrúa hjá Hjálparstofnun kirkj- unnar. Nú hafa safnast um tvær millj- ónir króna og sagði Gunnlaugur að fólk hefði haft góðan skilning á þessari söfnun. Ætlunin er að halda söfnuninni áfram í janúar. Safnað er til þróunarverkefnis- ins í Suður-Súdan og til neyðar- hjálpar og sagði Gunnlaugur að margar slíkar hjálparbeiðnir hefðu borist.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.