Morgunblaðið - 04.01.1983, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 04.01.1983, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1983 3 „Við snérum við en þá missti Gunnar líka fótanna og hrapaði“ Rætt vid VíÖi Óskars- son en tveir félaga hans biðu bana í fjall- göngu í Vífilsfelli „VIÐ vorum upp undir hamrabeltinu efst í Vífilsfellinu og fór ég fyrir — hafði varóað leiðina með því að höggva holur í ísinn fyrir félaga mína, því ég var best skóaður. Við gengum skáhallt yfir ísbreiðu og komst ég klakklaust yfir. Þá heyrði ég að Gunnar bróðir minn kallaði og sá þá að I’áll var ekki meðal okkar — hann hafði misst fótanna og hrap- að niður bratt fjallið. Við snerum við en þá missti Gunnar líka fótanna og hrapaði og hvarf sjónum mínum,“ sagði Víðir Óskarsson, 21 árs gamall læknanemi, en félagar hans biðu bana á nýársdag er þeir hröpuðu í hliðum Vírdsfells. „Hlíðar Vífilsfells voru snar- brattar og grýttar og munu þeir hafa hlotið þung högg þegar þeir þeyttust niður fjallið og skullu utan í grjótið. Eg hóf þegar að fikra mig niður — reyndi að fara varlega í sakirnar og leitaði þeirra í hlíðinni á leiðinni niður en sá ekkert annað en slóð þeirra. Ég hrópaði og loks var mér svarað og fann þá liggjandi. Gunn- ar var þá með rænu og hafði svar- að köllum mínum en Páll var með- vitundarlaus. Ég reyndi að búa eins vel um þá og mér var unnt og Víðir Óskarsson hljóp síðan niður á Suðurlandsveg til að sækja hjálp. Niður á veg voru um 5 kílómetrar og ég datt nokkrum sinnum, var útkeyrður þegar ég kom niður á brautarend- ann á Sandskeiði. Þar sá ég bíl og veifaði en ökumaður kom ekki auga á mig. Skömmu síðar kom annar bíll, ég veifaði og ökumaður stöðvaði. Ég staulaðist örmagna af þreytu að bílnum og skýrði frá hvað gerst hafði. Ökumaður ók mér sem leið lá í bæinn eftir hjálp, en kona hans varð eftir með dúnpoka og hóf að leita að hinum særðu félög- um mínum. Ég skýrði frá hvað gerst hafði þegar á lögreglustöðina í Árbæ kom og fór ásamt lögreglu- mönnum á slysstað á ný. Komst þó aldrei alla leið — örmagnaðist á leiðinni en lýsti hvar slysið hefði átt sér stað. Þegar til baka kom sá ég að sjúkrabíll og læknir var kominn og skömmu síðar komu björgunarsveitir. Stuttu síðar kom þyrla Land- helgisgæzlunnar og lenti skammt frá slysstað. En allt var um sein- an, stuttu síðar bárust þær fréttir í talstöðinni að Gunnar bróðir minn og Páll væru látnir. Ég hef verið miður mín vegna þessa hörmulega atburðar og get vel fallist á, að við félagarnir hefð- um átt að sýna meiri varkárni. Ég var ágætlega útbúinn og vel skó- aður en þeir voru í stígvélum, þó vel klæddir. Við strengdum þess heit um síð- ustu áramót að ganga á fyrsta degi hvers árs á fjall. Á nýársdag í fyrra gengum við á Móskarðs- hnjúka í Esju og sjálfur hef ég oft gengið á fjall og félagar mínir gengu á Snæfellsjökul í sumar og Keili í vetur. En trúin hefur reynst mér og aðstandendum mikill styrkur í sorg okkar. Ég er og félagar mínir mormónatrúar," sagði Víðir Óskarsson. Þyrla Landhelgisgæzlunnar við komuna til Reykjavíkur. M)'nd Mbl-Jniius Aðstæður mjög erfiöar tfl björgunar 1 Vífilsfellinu: „Mennirnir lágu helsærðir í 2-300 m hæð í fjallinu“ „AÐSTÆÐUR til björgunar í hlíd- um Vífilsfells voru mjög erfiðar — það var varla stætt í hvössustu hríð- unum og gekk á með dimmum élj- um. Mennirnir lágu helsærðir í 200—300 metra hæð innan um stór- grýti. Þarna var glerhált og frosið hjarn og því miklum erfiðleikum háð að komast til hinna særðu manna. Þá varð að sækja sérstakar börur til þess að flytja þá niður hlíð- ina, þar sem ekki var talið ráðlegt að hreyfa þá. Þegar leggja átti af stað gerði mikla hríð með svörtum éljum og ekki varð stætt. Því varð að bíða uns hríðinni slotaði — eða 15—20 mínútur," sagði Engelhart Björnsson, formaður Björgunar- sveitarinnar Ingólfs, í samtali við Mbl. „Við fengum tilkynningu um slysið laust eftir klukkan eitt á nýársdag, vorum beðnir um flutning á slösuðum mönnum á snjósleða. Þrír menn lögðu af stað vestan úr Gróubúð klukkan 13.30 með snjósleða, börur, teppi og sjúkraáhöld. Skömmu síðar lögðu fleiri björgunarmenn af stað til hjálpar. Þá var ljóst, að miklum erfiðleikum var háð að komast til mannanna, sem lágu í hlíðum fjallsins. Síðar kom til- kynning að æskilegt væri að fá þyrlu á staðinn til þess að flytja hina slösuðu menn í sjúkrahús og lagði þyrlan upp um 14.30 — komst uppeftir á milli élja, en því miður tókst ekki að koma mönn- unum í tæka tíð í sjúkrahús," sagði Engelhart Björnsson. Komið með hina slösuðu menn að bíl björgunarsveitarinnar Ingólfs, skammt frá þyrlu Landhelgisgæzlunnar. Gísli Alfreðsson, nýráðinn Þjóðleikhússtjóri. Myndin var tekin í gær. Ljósm: Kri.siján Kinarsson. Gísli Alfreðsson ráðinn Þjóðleikhússtjóri: „Er ánægður en um leið kvíðinn því þetta er vandasamt starf ‘ „ÉG ER aö sjálfsögðu mjög ánægður með þetta, ánægður en um leið kvíöinn, því þetta er vandasamt starf,“ sagði Gísli Alfreðsson leikari í samtali viö blaöamann Morgunblaðsins í gær, eftir að menntamálaráðherra hafði skipað hann Þjóð- leikhússtjóra til næstu fjögurra ára. „Ég tek að hluta við starfinu nú þegar," sagði Gísli, „og mitt starf á næstunni verður fyrst og fremst að undirbúa næsta leikár, sem hefst næsta haust. Það geri ég í samráði við leikritavals- nefnd, og vænti góðs samstarfs við hana. Ég tek síðan endanlega við starfinu fyrsta september næstkomandi.“ Gísli kvaðst í gær ekki vera tilbúinn að ræða hugmyndir sín- ar um starfsemi Þjóðleikhússins, það biði síns tíma. Fyrir lægi að hann byrjaði þegar að huga að næsta leikári, en hvort hann færi til útlanda til að kynna sér leikhússtarfsemi eða annað, væri allt óráðið. „Ég veit ekki enn hvort þetta þýði að ég muni ekki leika næstu fjögur árin,“ sagði Gísli, „en af sjálfu leiðir að það verður miklu minna en verið hefur, ef það verður þá nokkuð. Það verður tíminn að leiða í ljós.“ Auk Gísla Alfreðssonar, leik- ara og formanns Félags ís- lenskra leikara, sóttu þrjú um starf Þjóðleikhússtjóra: Érling- ur Gíslason leikari, Kristín Magnús leikkona og Þórhallur Sigurðsson leikari. Gísli Al- freðsson tekur við starfi af Sveini Einarssyni, sem ekki sótti á ný um stöðu Þjóðleikhússtjóra, sem lögum samkvæmt er veitt til fjögurra ára í senn. Vinaminni á Hellissandi brann um helgina: Hjón með 4 mánaða gamalt barn sluppu út um glugga HÚSIÐ Vinaminni við Keflavíkur- götu á Hellissandi brann til kaldra kola aðfaranótt sunnudags og er hús- ið talið ónýtt. Slökkvilið var kallað til en réð ekki við eldinn. Fólkið sem í húsinu bjó, hjón með 4 mánaða gam- alt barn, slapp naumlega út um glugga á svefnherbergi og skárust hjónin ba-ði á fótum við að komast út um gluggann. í húsinu bjuggu hjónin Katrín Sigurjónsdóttir og Sölvi Guð- bjartsson. í samtali við Mbl. sagði Katrín Sigurjónsdóttir að eldsins hefði orðið vart á milli klukkan 2.00 og 2.30, en þá var ekki mikill eldur í húsinu, en mikill reykur. Fóru þá hjónin og barnið út um gluggann. Sagði Katrín að Sölvi hefði fundið undarlega lykt og ætlað að fara fram til að kanna málið, en þangað var ófært vegna reyks. Katrín sagði að þegar þau hefðu verið komin út hefðu þeu hringt í slökkviliðið, en þá hefði verið lítill eldur í húsinu og aðeins í einu herbergi inn af eldhúsi. Hins vegar hefði slökkviliðið orðið vatnslaust því brunahani var frosinn fastur. Varð því að reyna að dæla sjó, en þá festist bíllinn í snjó og blossaði þá eldurinn upp á meðan. Katrín sagði að engu hefði tekist að bjarga nema fötunum sem þau stóðu í, en hús og innbú sagði hún hafa verið tryggt. Sagði Katrín að þau hjón hefðu búið í húsinu frá árinu 1980, en húsið er steinhús.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.