Morgunblaðið - 04.01.1983, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1983
5
Ferðafólkið þurfli oft að vaða ár og ösla snjó á meðan rútnrnar fretetuðu þess að komast yfir árnar.
Voru 18 klukkutíma frá
Þórsmörk að Stórumörk
ÞAÐ VAR lúið ferðafólkið sem kom
til Reykjavíkur kl. 10.30 i gærmorg-
un úr áramótaferð til l*ór.smerkur.
Og skyldi engan undra. Það var ekki
nóg með að heimferðin hafi tekið
sólarhring, heldur stóð fólk í ströngu
við að moka snjóskafla, ýta bílum,
vaða ár og ösla snjó langa kafla.
Þarna voru á ferðinni um 150 manns
í fjórum rútum og þremur jeppum á
vegum Ferðafélags fslands og Úti-
vistar. Það var lagt af stað frá Þórs-
mörk snemma á sunnudagsmorgun-
inn og komið í bæinn kl. 10.30 i
gærmorgun. Þrátt fyrir strembið
ferðalag í bæinn varð engum meint
af og þótti mörgum sem þessi þunga
heimferð hafi gert ferðalagið i heild
sinni skemmtilegra, a.m.k. eftir-
minnilegra.
Jón M. Jóhannsson bifreiðar-
stjóri keyrði aðra rútuna á vegum
Ferðafélags íslands, mjög full-
komna nýja rútu af Scania-gerð.
Hann lýsti heimferðinni svo:
„Það voru fyrstu 25 km sem
gerðu okkur gramt í geði, þ.e.a.s.
leiðin að Markarfljótsbrú, en það
tók okkur 18 klukkustundir að
komast þangað. En þegar við loks-
ins komumst á þjóðveginn var til-
tölulega greiðfært. Það hafði snjó-
að mikið um áramótin og aðfara-
nótt sunnudagsins og skafið tals-
vert á vegina. Menn þurftu því oft
að fara út og moka skafla af vegin-
Jón M. Jóhannsson bif-
reiðarstjóri. „Ferðafólkið
stóð sig eins og hetjur."
llnnur
„Þctta var
ævintýri."
Marinósdóttir.
spennandi
um. En í rauninni voru það árnar
sem reyndust okkur erfiðastar.
Þær voru sums staðar stiflaðar af
ís þannig að smásprænur urðu að
stórum stöðuvötnum og krapaelg
sem erfitt var að komast yfir.
En þetta tókst þó allt að lokum
ekki síst fyrir frábæran dugnað
ferðafólksins sem lagðist allt á
eitt við að moka og ýta þegar þess
þurfti. Einhver lét þau orð falla að
hér væri verið að beita kínversku
aðferðinni, og það er lýsing við
hæfi því það var samstillt átak
fjöldans sem kom okkur áfram.
Svo var ég svo heppinn að vera á
aldeilis frábærum bíl, nýjum
Scania frá Vestfjarðarleið, sem
síWk '
Egill Einarsson. „Fólk
tók þessu með jafnaóar-
geói.“
Árnar voru erfiðasti farartálminn.
þolir mikla dýpt og gat því farið í
fararbroddi og rutt veginn."
Unnur Marinósdóttir, marg-
reynd ferðakona, lýsti heimferð-
inni sem „spennandi ævintýri".
„Auðvitað var þetta erfitt, en ég
er nú þannig gerð að mér finnst
bara gaman að lenda í svona basli.
En ég verð þó að segja það eins og
er, að ég man aldrei eftir að hafa
lent í svona miklum vandræðum
út af færð og þó fer ég oft í vetrar-
ferðir og hef gert í 10 ár. En sem
betur fer veit ég ekki til að nokkr-
um hafi orðið meint af volkinu,
enda var í rauninni ekki um neina
vosbúð að ræða, bílarnir voru vel
upphitaðir og menn almennt vel
útbúnir."
Annar ferðamaður, Egill Ein-
arsson, var líka hinn hressasti:
„Þetta var hörku púl, því er ekki
að neita. Snjórinn var sums staðar
1 m á hæð og við þurftum oft að
grípa til skóflunnar. Þá lentu
nokkrir í því að vökna talsvert,
sérstaklega þeir sem voru með
Ferðafélagi Islands, en það fólk
neyddist til að vaða Krossá. Og
vissulega voru margir orðnir ansi
þreyttir og slæptir þegar heim var
komið. En hins vegar varð ég ekk-
ert var við það að fólk væri svekkt
eða óánægt. Enda vita allir sem á
annað borð fara í slíkt ferðalag að
svona nokkuð getur alltaf komið
fyrir."
Framkvæmdastjóraskipti hjá Arnarflugi
Framkvæmdastjóraskipti fór fram
hjá Arnarflugi í gærdag, þegar
Gunnar Þorvaldsson lét af störfum,
en við tók Agnar Friðriksson, við-
skiptafræðingur, sem gegnt hefur
starfi framkvæmdastjóra fjármála
hjá lieklu sl. 5 ár.
Gunnar Þorvaldsson, sem gegnt
hefur starfi framkvæmdastjóra í
rúmt ár, sagði starfi sínu lausu sl.
haust og óskaði eftir því, að taka
að nýju upp starf, sem flugstjóri
hjá félaginu og varð stjórn félags-
ins við beiðni hans og réð Agnar
til starfans. Gunnar Þorvaldsson
mun jafnhliða starfi flugstjóra
sinna ýmsum sérverkefnum fyrir
félagið. Myndin var tekin við
framkvæmdastjóraskiptin í gær-
dag.
Um leið og Verðbréfamarkaður Fjárfestingarfélagsins
óskar viðskiptavinum sínum gleöilegs árs og þakkar
þeim viðskiptin á liðnu ári þá birtir hann hér yfirlit yfir
nokkra þá ávöxtunarmöguleika sem í boði voru á árinu
1982 og stöðu þeirra nú um áramótin.
Ávöxtunarleið: Peninga- eign 1-jan 82 Peninga- eign 31.des.82 Ávöxtun i% árið 82
_HaDDdr.skuldabréf Ríkissióðs 100.000 167.769 68%
SDariskírteini Ríkissióðs 100.000 169.069 69%
. Verötrvaað veðskuldabréf 100 000 173.372 73%
Óverðtrvaað veðskuldabréf J1QQQQ0 173-750 IA%
Verðbréfamarkaöur
Fjárfestingarfélagsins
Lækjargötu 12 101 Reykjavik
lónaöarbankahúsinu Simi 28566
Gengi verðbréfa
1. janúar 1983:
VERÐTRYGGD
SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS: Sölugengi pr. kr. 100,-
1970 2. flokkur 10.252,05
1971 1. flokkur 8.964.63
1972 1. flokkur 7.773.22
1972 2. flokkur 6.587,51
1973 1. flokkur A 4.731.66
1973 2. flokkur 4.358.30
1974 1. flokkur 3.008,82
1975 1. flokkur 2.472.62
1975 2. flokkur 1.862.85
1976 1. flokkur 1.765,54
1976 2. flokkur 1.410,51
1977 1. flokkur 1.308.63
1977 2. flokkur 1.092,78
1978 1. flokkur 887.26
1978 2. flokkur 698.08
1979 1. flokkur 588.44
1979 2. flokkur 454.87
1980 1. flokkur 340.03
1980 2. flokkur 267.38
1981 1. flokkur 229.70
1981 2. flokkur 170.59
1982 1. flokkur 154,87
Meóalávöxtun ofangreindra llokka um
fram verötryggingu er 3,7—5%.
VEÐSKULDABRÉF
ÓVERÐTRYGGÐ:
Sölugengi m.v. nafnvexti
12% 14% 16% 18% 20% (HLV) 47%
1 ár 63 64 65 66 67 81
2 ár 52 54 55 56 58 75
3 ár 44 45 47 48 50 72
4 ár 38 39 41 43 45 69
5 ár 33 35 37 36 40 67
VEÐSKULDABRÉF
MEÐ LÁNSKJARAVÍSITÖLU:
Sölugengi nafn- Ávöxtun
m.v. vextir umfram
2 afb./ári (HLV) verðtr.
1 ár 96,49 2% 7%
2 ár 94,28 2% 7%
3 ár 92,96 2W/o 7%
4 ár 91,14 2%% 7%
5 ár 90,59 3% 7%
6 ár 88,50 3% 7’/4%
7 ár 87,01 3% 7’/4%
8 ár 84,85 3% 7V4%
9 ár 83,43 3% 7%%
10 ár 80,40 3% 8%
15 ár 74,05 3% 8%
VERÐTRYGGD
HAPPDRÆTTISLÁN
RÍKISSJÓÐS
B — 1973
C — 1973
O — 1974
E — 1974
F — 1974
G — 1975
H — 1976
I — 1976
J — 1977
1. fl. — 1981
ölugengi
pr. kr. 100.-
3.266,14
2.777.76
2.403,13
1.808.03
1.808,03
1.198.59
1.142,08
869,00
808,57
161,50
Ofanskráð gengi er m.v. 5%
ávöxtun p.á. umfram verðtrygg-
ingu auk vinningavonar. Happ-
drættisbréfin eru gefin út á
handhafa.
Verðbréfamarkaður
Fjárfestingarfélagsins
Lækjargötu12 101 Reykjavík
Iðnaðarbankahúsinu Sími 28566