Morgunblaðið - 04.01.1983, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.01.1983, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1983 Jólaóratoría Tónlist Jón Ásgeirsson Nú eru hvítklædd jólin senn algengin og nýtt ár tekið að flétta dagaröð sína í takt við hækkandi sól. Eftir þeirri hrynj- andi sporar maðurinn sögu sína, þungstígur og fótsár, rekinn áfram af tímanum og fjötraður við hringleik sköpunar og dauða. Sátt mannsins er trúin á að gáf- ur hans séu guðlegar og fyrir þær hafi hann rétt til að drottna yfir lífríki jarðarinnar. Fyrir þessar guðsgjafir hefur maður- inn öðlast sjálfræði og í þessu sjálfræði liggur einmitt ábyrgð hans og þarf hann því að svara til saka fyrir gerðir sínar. An þessa sjálfræðis væri maðurinn ábyrgðarlaus leiksoppur, er ekki réði sínum örlögum. Hver maður hefur verk að vinna og í þessum verkum sínum, smáum sem stór- um, ritar maðurinn sögu sína til varðveislu orðstír sínum. Verk mannanna er í rauninni ögun þessa sjálfræðis og mynd þessa sjálfræðis er kölluð menning, sem margir telja að séu skilin milli manna og dýra. Með hvaða hætti menn rækta gáfur sínar, kemur glögglega fram í þeim markmiðum er stýra sjálfráðum athöfnum þeirra. í listsköpun er þetta mjög ljóst, sérlega í lista- verkum sem smíðuð eru til að lofsyngja Guð. Þar leyfir list- smiðurinn sér ekki að blekkja eða sýnast, þar er hann allur og án alls yfirdrepsskapar. Johann Sebastian Bach er einn þeirra manna er margfaldaði pund sitt. Sjálfráður agaði hann guðsgáfur sínar og gaf mannkyninu gjafir, er menn enn í dag safnast um- hverfis til að dást að. Afköst hans og gæði verka hans eru næsta ótrúleg og hafa hlustend- ur hér á landi átt þess kost að heyra mörg meistaraverka hans, nú á seinustu árum, flutt af ís- lenskum tónlistarmönnum, sem vel má minnast á, til að árétta það hversu mikil gróska er í tónmennt hér á landi. Einn þeirra manna, er lyft hefur grettistaki á sviði tónmenntar, er Jón Stefánsson og nú milli jóla og nýárs flutti kórinn hans Jólaóratoríuna eftir Bach, óstytta. Til samstarfs við sig fékk hann einsöngvara og hljómsveit og það sem ekki er minnst tíðinda, að tónleikarnir voru haldnir í hálfbyggðri kirkju hans, Langholtskirkju. Sú kirkja er rík sem á meðal starfsmanna sinna fólk, er ekki telur eftir sér að vinna verk eins og hér um ræðir og í slíka kirkju eiga menn margvísleg erindi. Það má vera að tími til flutnings hafi ekki verið vel valinn og t.d. hefði Ný- ársdagur verið betri og að flytja hefði átt verkið á einum degi, en með matarhléi, eins og gert var er Mattheusarpassían var flutt. Kór Langholtskirkju er mjög góður en nokkuð gætti þreytu í síðustu kórunum og einnig var hljómsveitin ekki í góðu jafn- vægi, sem trúlega er vegna æf- ingaleysis, sem aftur stafar af féleysi. Konsertmeistari var Michael Shelton og átti hann ásamt nokkrum meðlimum hljómsveitarinnar nokkra vel leikna einleikskafla. Undirleik- urinn við tónlesið var með ýms- um formerkjum, sem ekki allir eru sáttir við, þó margvíslega hafi verið reynt að útfæra það. Að sleppa hljómum, jafnvel þar sem um hljómskipti er að ræða, getur truflað eðlilegt tónferli tónlessins en það sem einkum truflaði undirritaðan, var of sterk bassalína á móti orgelinu. Basso continuo þarf ekki að vera sterkur og því óþarfi að tvöfalda röddina eða leika hana með safa- ríkum og sterkum tóni. Aðalat- riði tónlessins er framsaga text- ans. Einsöngvararnir voru Ólöf K. Harðardóttir, Sólveig Björl- ing, Halldór Vilhelmsson og Michael Goldthorpe. íslensku söngvararnir voru góðir og má sérstaklega minnast á „echo“- aríuna sem Ólöf söng glæsilega. Halldór beitti sér einum of í fyrri hlutanum en var mjög góð- ur seinna kvöldið, einkum í bassaariunni Erleucht auch meine finstre Sinnen. Sólveig kom mjög á óvart. Hún hefur fallega rödd og söng vel t.d. Be- reite dich, Zion og Schliesse, meine Herze. Söngmeistari tón- leikanna var svo Michael Goldthorpe, sem söng hlutverk guðspjallamannsins. Goldthorpe er glæsilegur söngvari og auk þess að syngja nærri öll tónlesin, söng hann þrjár aríur allar með miklum glæsibrag. í síðustu arí- unni Nun möght ihr stolzen Feinde schrecken, sem Gold- thorpe söng frábærlega vel, áttu óbóleikararnir Kristján Þ. Stephensen og Daði Kolbeinsson frábæran leik. Það er full ástæða til að óska Jóni Stefánssyni til hamingju með þennan áfanga. Hann er vaxandi stjórnandi, ungur að árum og á vonandi eftir mörg handtökin á sviði stjórn- unar. Hann er nú þegar einn af okkar fremstu kórstjórum og honum fylgja óskir um gott gengi á komandi ári, með þökk fyrir marga góða tónleika á liðnu ári. Jón Asgeirsson Hvernig þjónar lánamarkaðurinn atvinnulífinu? Verzlunarráð íslands gengsl fyrir ráðstefnu um lánamarkaðinn og þjónustu lánastofnana við atvinnulífið, fimmtudaginn 13. janúar n.k. í Kristalsal Hótels Loftleiða, klukkan 14:00 -18:00. Þátttaka tilkynnist til skrifstofu V.Í., síma 8 30 88 fyrir 7 janúar n.k. DAGSKRÁ: 14:00 - 14:10 Mœting 14:10-14:15 Fundarsetning - Ragnar S. Halldórsson, formaður Verzlunarráðs ís- lands. 14:15 - 14:35 Hlutverk lánastofnana í efnahagsþróun landsins - Er skipulagið hem- ill á hagvöxt? - Ragnar Onundarson, aðstoðarbankastjóri Iðnaðar- banka Islands hf. 14:35 - 14:45 Álit Guðmundar Arnaldssonar, hagfræðings Verzlunarráðs ís- lands. 14:45 - 15:00 Innlenþur lánamarkaður - Mætir hann þörfum arðbærs atvinnurekstr- ar? - Ámi Árnason, framkvæmdastjóri Verzlunarráðs Islands. 15:00 - 15:10 Álit Tryggva Pálssonar, hagfræðings Landsbanka íslands. 15:10 - 15:30 Umrœður og fyrirspumir 15:30 - 15:50 Kaffi 15:50 - 16:10 Utanríkisviðskipti og erlendir gjaldeyrismarkaðir - Fylgjumst við með kröfum tímans? - Þórður Magnússon, framkvæmdastjóri fjármála- sviðs Eimskips hf. 1.6:10 - 16:20 Álit Agnars Friðrikssonar, framkvæmdastjóra Arnarflugs hf. 16:20 - 16:30 Álit Þráins Þorvaldssonar, framkvæmdastjóra Hildu hf. 16:30 - 16:50 Fjármögnun íbúðarhúsnæðis - Þjóðarsport íslendinga í vanda -Ár- mann Orn Ármannsson, framkvæmdastjóri Ármannsfell hf. 16:50 - 17:00 Álit Þorsteins Steingrímssonar, framkvæmdastjóra Fasteigna- þjónustunnar sf. 17:00- 18:00 Umrœður og fyrirspurnir Ráðstefnustjóri: Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips hf. Ragnar S. Halldórtson Ragnar Önundarton Guðmundur Arnaldsson Árnl Arn»»on Þráinn Þorvaldsson Ármann ö. Ármannsson Þorstsinn Steingrímsson Höróur Sigurgsstsson VERZLUNARRÁÐ ÍSLANDS Hús verslunarinnar 108 Reykjavík, sími 83088 Varúðarmerking lyfja vegna áhrifa á ökuhæfni manna 1. JANÚAR 1983 kom til fram- kvæmda sérstök varúðarmerking lyfja er skert geta hæfni manna til aö aka bifreið eöa stjórna öðrum vél- um, segir í frétt frá heilbrigöis- og tryggingamálaráöuneytinu. Það var samstarfsnefnd á veg- um Norðurlandaráðs, sem gerði tillögur um þessa merkingu árið 1977, en á fundi sínum 1979 ákvað Norðurlandaráð, að umrædd merking skyldi koma til fram- kvæmda i öllum Norðurlöndunum eigi síðar en 1. janúar 1983. Varúðarmerkingin er rauður jafnhliða þríhyrningur, sem kom- ið er fyrir á merkimiðum eða um- búðum þeirra lyfja, er merkja skal. Merkingin nær til um 70 sérlyfja, auk fjölda forskriftalyfja lækna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.