Morgunblaðið - 04.01.1983, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1983
15
Ingólfi bregst
bogalistin
Ingólfur Guðbrandsson skrif-
ar í Morgunblaðið, fimmtudag-
inn 30. desember, 1982, ádrepu á
íslenska sjónvarpið.
Þar sakar hann stofnunina um
að hafa gefið áhorfendum óþarf-
lega stóran skammt af annars
ágætum verkum Tchaikowskys á
jóladag. Þar á hann við Landið
okkar annars vegar og Svana-
vatnið hins vegar.
Þykir mér leitt að Ingólfur
skuli að ástæðulausu nota jafn
stór orð og „fáránlega smekk-
leysu og grófa móðgun". Reiði
menn svo hátt til höggs er
ástæða til að krefja þá um að
hafa staðreyndir máli sínu til
stuðnings.
Ingólfur hefur að þessu sinni
spennt bogann of hátt og misst
marks, því í þættinum Landið
okkar heyrist enginn tónn úr
verki eftir Tchaikowsky. Þykir
mér miður að svo mætur maður
og fróður á tónlistarsviðinu, sem
Ingólfur er, þekki ekki til tónsm:
íða þeirra, sem fluttar voru. I
þættinum voru leikin brot úr eft-
irfarandi verkum: Big Country
(kvikmyndatónlist) Star Wars
(kvikmyndatónlist), Nýi heimur-
inn eftir Dvorák og Rhapsodie
espagnole og Síðdegi Skógarpúk-
ans eftir Ravel. Vissulega hefur
Ingólfur rétt fyrir sér þegar
hann segir að: „Við eigum okkar
eigin tónskáld og tónlist,
sprottna upp af hrjóstrum þessa
lands með tón landsins í sjálfu
sér“. Hins vegar er það staðföst
trú okkar, sem unnið höfum
þessa þætti að tónlist sé al-
heimsmál og að val tónlistar mót-
ist af andblæ myndraðanna hverju
sinni, þannig að mynd og tónlist
renni saman í eina heild.
Tónlistarverk verða því ekki
valin til flutnings við hvern þátt
fyrir fram (eða vegna þess að
þau séu íslensk), heldur verða
myndir og tónlist valin sam-
hliða. Islensk tónlist verður not-
uð í þessum þáttum þar sem við
á.
Virðingarfyllst,
Maríanna Friðjónsdóttir,
dagskrárgerðarmaður FFD,
Sjónvarpinu.
Guðmundur Halldórsson
Eimskip opnar
markaðsskrifstofu
í JANÚAR mun Eimskip hefja rekst-
ur sérstakrar markaðsskrifstofu í
Rotterdam, og verður skrifstofan
rekin í samstarfi við Meyer & Co.
umboðsmenn félagsins þar, segir
m.a. í frétt frá Eimskipafélagi Is-
lands.
Guðmundur Halldórsson, nú-
verandi starfsmannastjóri Eim-
skips, mun veita markaðsskrif-
stofunni í Rotterdam forstöðu, og
tekur hann við því starfi um miðj-
an janúar. A skrifstofunni mun
einnig starfa Hollendingur að
nafni Jan Barendrecht, en hann
hefur hingað til unnið hjá Meyer
& Co. Skrifstofan í Rotterdam
mun starfa í nánu samstarfi við
aðalskrifstofu Eimskips í Reykja-
vík, og tilheyrir hún meginlands-
deild Eimskips.
Athugasemd
Hr. ritstjóri,
Vegna fréttar Mbl. fimmudag-
inn 30. desember sl. um þróun
kaupmáttar kauptaxta og ráðstöf-
unartekna á mann á árabilinu
1976—1983, þar sem töflurit
Stjórnunarfélags íslands í sam-
antekt undirritaðs er tilgreint sem
heimild, er rétt að eftirfarandi
komi fram:
Tafla sú í riti Stjórnunarfélags
íslands, sem fjallar um árlegar
breytingar kaupmáttar kauptaxta
og ráðstöfunartekna á mann á
árabilinu 1972—1983 getur á eng-
an hátt gefið tilefni til ályktana af
því tagi sem blaðamaður birti í
fyrrgreindri frétt. Tölur þær, sem
standa í fyrirsögn fréttarinnar, er
hvergi að finna í ritinu. Heimildir
að frétt þessari eru því engar aðr-
ar en misskilningur blaðamanns,
sem komast hefði mátt hjá með
símtali.
Með þökk fyrir birtinguna,
Olafur ísleifsson,
hagfræðingur.
Tónlistarskóli
Rangæinga 25 ára
TONLISTARSKOLI Rangæinga
fagnar 25 starfsárum á árinu 1983.
Afmælisins er minnst með margvís-
legum hætti. Þegar er komin út
hljómplata Barnakórs Tónlistar-
skóla Rangæinga, „Ég bíð eftir vori“
í tilefni þess. Á næstunni mun koma
út bæklingur, sem fjallar um starf-
semi skólans fyrr og nú.
Dagana 2. til 15. janúar eru sex
afmælistónleikar, þar sem fram
koma ýmsir listamenn, þ.á m. Jón-
as Ingimundarson, Guðni Þ. Guð-
mundsson, Sigfús Halldórsson,
Trómet-blásarasveitin, Félag
áhugamanna um harmonikuleik
og eldri nemendur Tónlistarskóla
Rangæinga, sem nú eru í fram-
haldsnámi.
Tónlistarskóli Rangæinga tekur
í dag 235 nemendur og við hann
starfa 15 kennarar. Kennt er á 7
stöðum í sýslunni. Skólastjóri er
Sigríður Sigurðardóttir.
Það bjóða margir vel í dag, en
HONDA*
býður hreint ótrúleg verð
CIVIC 3ja dyra.
Verö kr. 159.000 5
CIVIC SEDAN ACCORD 3ja dyra EX-gerð.
ACCORD SEDAN
Verö frá 197.000
5 gíra m. fleiru.
Verð gilda til 7. januar 1983
HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, SÍMI 38772