Morgunblaðið - 04.01.1983, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1983
Mesta bankarán í
sögu Bretlands
Lundúnum, 3. janúar. AP.
I’JÓFAR sem brutust inn í íransk-
an banka í Lundúnum höföu á brott
með sér verðbréf að verðmæti 9
Drottningin lítt
hrifin af Koo?
I.undúnum, 3. janúar. AP.
ELÍSABET II Bretadrottning hefur
farið fram á það viö Andrew son
sinn að „fara sér hægar“ í ástarsam-
bandi sínu við bandarísku ieikkon-
una Koo Stark, samkvæmt fregnum
blaðsins Sunday People.
Blaðið hefur þetta eftir
ónafngreindum vinum fjölskyld-
unnar sem segja einnig að „dynt-
ir“ Andrews í þessum efnum hafi
vaidið leiðindum innan konungs-
fjölskyldunnar sem æski þess að
sambandið fari hljótt.
milijónir punda, sem er mesti ráns-
fengur í breskri sögu, segir í fregn-
um lögreglunnar þar í borg síðast-
liðinn sunnudag.
Þjófarnir munu einnig hafa
haft á brott með sér u.þ.b. 31.000
pund í ýmsum gjaldmiðli, en
lögreglan kveðst hafa haft upp á
númerum verðbréfanna, þannig
að ekki verði hægt að koma þeim
í verð.
Blaðið Sunday Telegraph held-
ur því fram að hugsanlegt sé að
ránið hafi verið framið af hópi
manna er séu starfandi fyrir
Ayatollah Ruollah Khomeini,
leiðtoga írana.
Ránið var framið helgina 4.-5.
desember, og haft er eftir heim-
ildum innan lögreglunnar að ekk-
ert hafi af því spurst fyrr en ein-
um mánuði eftir að það var fram-
ið, vegna óska yfirmanna bank-
Leiðtogar Varsjár-
bandalagsins funda
IVag, .3. januar. AP.
LEIÐTOGAR varsjárbandalagsins
voru væntanlegir til Prag í dag til
200.000 ára
barnakjálki
St. Asaph, Wales. AP.
Fornleifafræðingar fundu ný-
lega kjálkabrot úr ungu barni,
karlkyns, í Pontnewydd-hellin-
um skammt frá Asaph, en í helli
þeim hafa áður fundist merki-
legar fornleifar, þ.á m. kjálki úr
barni. Leifar þessar eru 200.000
ára gamlar.
Auk kjálkanna hafa fundist í
hellinum frumstæðar axir og
fleiri verkfæri og vopn. Þetta
er eini staðurinn á Bretlands-
eyjum þar sem menjar um for-
sögulegar mannverur hafa
fundist ef frá er talin gryfja
ein mikil við Barnfield,
skammt frá Swanscombe í
Kent.
fundar, þar sem staðfesta á forystu
Sovétmanna í bandalaginu undir
stjórn hins nýja leiðtoga, Yuri
Andropov. Þá er talið líklegt, að
leiðtogarnir samþykki einróma til-
lögu Andropov um stöðvun á fram-
leiðslu kjarnorkuvopna á jafnréttis-
grundvelli.
Undirbúningur undir fund
þennan hefur farið fram með
mikilli leynd og lítið hefur verið
látið uppi um hann í fjölmiðlum.
Síðasti fundur leiðtoga Varsjár-
bandalagsins var haldinn í
Varsjá í maí 1980.
Gengið var frá dagskrá fundar-
ins á fundi utanríkisráðherra að-
ildarríkjanna í Moskvu í október
á síðasta ári að sögn ungliða-
málgagnsins Smena í Slóvakíu.
Samkvæmt ákvörðun ráðherr-
anna í október verður aðalum-
ræðuefni fundarins í Prag versn-
andi samskipti við Vesturlönd.
Nýjar kenningar
um aldur heimsins
Boston, 3. janúar. AP.
STJÖRNUFRÆÐINGAR hafa löng-
um verið ósammála um aldur heims-
ins, en tvær nýjar rannsóknir, sem
eru innbyrðis ólíkar, hafa báðar leitt
til þeirrar niðurstöðu að heimurinn
sé 12 milljarða ára gamall.
Margir vísindamenn halda því
fram að heimurinn sé ekki eldri en
7 milljarða ára gamall, en aðrir
halda því fram að hann sé allt að
20 milljarða ára gamall. Þessar
nýju rannsóknir hafa því vakið
forvitni margra, en niðurstöður
þeirra birtust í janúarhefti tíma-
ritsins „Astrophysical Journal."
Frá hátíðahöldunum á Trafalgar Square í miðborg Lundúna á nýársnótt. Tveir létu lifið í fagnaðarlátunum þar sem
talið er að um 100.000 manns hafi verið saman komin.
Mikið um slys og
óhöpp um ármótin
Tvær konur tróðust til bana í London
Sænskur maður drepinn í Kaupmannahöfn
Ix>ndon, 3. janúar. AP.
TVÆR konur biðu bana, er þær tróðust undir í mannþröng á Trafalgar-
torgi í London á nýjársnótt, en þá safnaðist mikill mannfjöldi þar saman.
Þrjátiu og sex manns til viðbótar hlutu þar meiri eða minni meiðsli. I
Kaupmannahöfn var sænskur maður stunginn til bana með hníf í götu-
slagsmálum, sem urðu á Ráðhústorginu á nýjársnótt.
Yfir hundrað þúsund manns var með þær á sjúkrahús.
söfnuðust saman í miðborg Lund-
úna á nýjársnótt til þess að fagna
nýjárinu. Mikil hreyfing var á
þessu fólki og er talið, að konurn-
ar tvær hafi orðið undir í látun-
um, án þess að nokkur yrði þess
var. Þær voru báðar um þrítugt og
fundust liggjandi meðvitundar-
lausar skammt frá Whitehall.
Voru þær báðar látnar, er komið
Svíinn Johann Magnus Myrgven
frá Lundi hafði farið ásamt 6 vin-
um sínum til Kaupmannahafnar
til þess að skemmta sér þar um
áramótin. Um miðnættið voru
þeirr staddir við Ráðhústorgið til
þess að fylgjast með flugeldasýn-
ingu, sem skotið var upp frá
Tívolígarðinum. Þegar slagsmálin
hófust var fjöldi manns viðstadd-
Sphinxinn í andlitslyftingu
en óvíst hver árangurinn verður
Kairo, Kifrplalandi. Al’.
UNNIÐ er að því næstum myrkr-
anna á milli, að hefta tæringu og
veðrun „Sphinxins" fræga, sem
hinn forni konungur Kephren lét
gera á valdatíma sínum. „Sphinx-
inn“ er eitt af sérkennum Egypta-
lands og eitthvert mesta listaverk
allra tíma, risavaxinn Ijónsbúkur
með mannsandlit sem snýr að sól-
arupprás.
Samtök fornleifafræðinga,
sagnfræðinga, myndlistarmanna
og fleiri stétta, hafa samvinnu
um verndun og viðhald fyrir-
bærisins, og nýjasta „lækningin"
er fólgin í því, að bera leðjugrím-
ur á andlit og útlimi Sphinxins.
„Meðferðin er svipuð og kvenfólk
notar gjarnan til að hreinsa húð
sína, makar Leðjugrímum fram-
an í sig en í leðjuna eru sett ýmis
hreinsiefni, sem síast inn í húð-
ina,“ segir Dr. Ahmed Kadry,
einn af leiðtogum verndunar-
samtakanna. Það eru einkum
alls kyns sölt, sem reynt er að
hreinsa úr Sphinxinum, en þau
stuðla að mjög örri veðrun í
sandsteininum, sem Sphinxinn
er höggvinn í. „Grímurnar"
brotna af á tveggja vikna fresti
og eru þá nýjar settar á umsvifa-
laust.
Ekki eru allir sammála um
meðferðina. Sumir segja drullu-
grímurnar þrýsta saltefnunum
lengra inn í Sphinxinn, aðrir
segja að óæskileg saltefni séu
hreinlega borin í sandsteininn
með grímunum. Bandarískur
rannsóknarleiðangur var þarna
á ferðinni fyrir þremur árum og
þá fyrst kom saltvandamálið
fram í dagsljósið. Bandaríkja-
mennirnir sögðu saltmagnið
stafa af mjög háum jarðvatns-
stuðli, sem aftur kæmi frá mik-
illi virkjun í Suður-Egyptalandi
sem Sovétmenn byggðu meðan
þeir voru ennþá í náðinni hjá
Egyptum. Bandaríkjamennirnir
eru ekki hrifnir af „grímumeð-
ferðinni", eru þeirrar skoðunar
að hún þrýsti hinu óæskilega
salti enn rækilegar inn í sand-
steininn. Þeir vilja soga efnið úr
steininum með til þess gerðum
tækjum.
Hverju svo sem menn hallast
að í þessum efnum er ljóst, að
Sphinxinn verður aldrei samur
og er Kephren lét höggva hann.
ww>
Egypskir verkamenn að störfum
utan i Sphinxinum.
Andlitið er afmyndað og nefið
vantar. Skeggið er horfið og
hlutar af makkanum eru á söfn-
um í KairtPbg London.
ur, og gátu meira en 100 manns
gefið lýsingu á manninum, sem
Myrgven átti í höggi við. Atburða-
rásin hafði hins vegar verið mjög
hröð og höfðu fæstir þeirra tekið
vel eftir því, sem gerðist.
í Napólí beið ein kona bana á
gamlárskvöld, en alls hlutu yfir
350 manns meiðsli á Ítalíu yfir
áramótin. Þar í landi eru jafnan
mikil brögð að því, að nýjárinu sé
ekki bara fagnað með flugeldum
og blysum, heldur þurfa margir að
skjóta af byssum sínum upp í loft-
ið. Konan, sem beið bana, var 27
ára gömul og er talið, að hún hafi
orðið fyrir byssukúlu af hendingu,
þar sem hún stóð á svölum íbúðar
sinnar í Napólí. Þar í borg var tit~-
kynnt um 122 óhöpp um þess ára-
mót og var það meira en nokkurs
staðar annars staðar á Ítalíu.
Taka varð hönd af mörgum
mönnum, sökum þess hve illa þeir
höfðu slasazt við að sprengja púð-
urkerlingar og kínverja.
I Maníla á Filippseyjum biðu
fjórir menn bana um áramótin, og
flestir þeirra með þeim hætti, að
þeir urðu fyrir byssukúlum, er
skotið var af byssum í tilefni ára-
mótanna.
Hins vegar ríkti ró og spekt í
Miami í Bandaríkjunum, en þar
safnaðist um hálf millj. manna
saman á gamlárskvöld aðeins ör-
stuttan spöl frá þeim stað, sem
miklar kynþáttaóeirðir höfðu átt
sér stað nokkrum dögum áður.
Á frönsku eynni Korsíku í Mið-
jarðarhafi urðu miklar spreng-
ingar á nýjársdag, sem virtust
vera fyrirboði þess, að hið nýja ár
yrði ekki friðsælt frekar en það,
sem var að líða, en þar hafa að-
skilnaðarsinnar haldið uppi mikl-
■vt um hermdarverkum að undan-
förnu.