Morgunblaðið - 04.01.1983, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1983
íbúar stálu öllu úr
skipi á strandstað
Bude, Bretland, 3. jan. AP.
BÓKSTAFLEGA öllu var stolið úr
skipi nokkru sem strandaði á norður-
strönd Cornwall-skaga á nýársnótt, og
segja hollenskir skipverjar þess, að
þar hafi verið að verki íbúar í nálæg-
um strandbæjum.
Talstöð, keðjum, reipum og öðru
á þilfari var öllu stolið ásamt far-
angri áhafnarinnar, matvælum,
setu af salerni skipstjórans og jóla-
tré skipsins og var þetta allt borið á
brott af konum, mönnum og börn-
um sem fetuðu sig upp og niður
kletta við strandstaðinn.
Skipið sem skráð er í Panama,
strandaði, sem áður segir, á norður-
strönd Cornwall-skagans, en áhöfn-
inni var bjargað af þyrlu og björg-
unarbáti. Tveimur dögum síðar
þegar skipstjórinn fór að huga að
skipi sínu, fann hann það tómt og
án nokkurs útbúnaðar.
Samkvæmt lögum á að tilkynna
allan varning sem tekinn er úr
strönduðum skipum til tollayfir-
valda, en samkvæmt gamalli hefð
tóku íbúar í nánd við strandstaðinn
allt sem til náðist úr skipinu.
Sprenging í Stokkhólmi:
Næturklúbbur lagður í rúst
Stokkhólmi, 3. janúar. AP.
TÍU kílóa sprengja var orsök hinnar
öflugu sprengingar og elds sem lagði
í rúst næturklúbb nokkurn í mið-
borg Stokkhólms síðastliðinn föstu-
dag, segir í niðurstöðum sérfræðinga
sem birtar voru í dag.
Veður
víða um heim
Akureyri 0 hálfskýjaö
Amsterdam 7 rigning
Aþena 10 heiðskírt
Barcelona 10 heiðríkt
Berlín 6 skýjað
Brijssel 10 rigning
Buenos Aires 32 skýjað
Caracas 28 skýjað
Chicago 2 skýjað
Dyflinni 10 rigning
Feneyjar 3 skýjaö
Frankturt 2 rigning
Færeyjar 6 alskýjaö
Genl 1 skýjað
Helsinki 2 skýjað
Hong Kong 19 skýjað
Jerúsalem 5 rigning
Jóhannesarborg 27 heiðskirt
Kairó 16 skýjað
Kaupmannahöfn 5 skýjað
Las Palmas 18 lóttskýjað
Lissabon 11 heiðskírt
London 12 skýjað
Los Angeles 19 heiðskírt
Madrid 11 skýjað
Malaga 13 lóttskýjað
Mallorca 14 lóttskýjað
Mexíkóborg 21 heíðskírt
Miami 26 skýjað
Montreal 3 snjókoma
Moskva -18 snjókoma
Nýja Delhi 19 heiðskirt
New York 9 heiðskfrt
Ósló 3 heiðskírt
París 12 skýjað
Reykjavík 2 rigning
Rio de Janeiro 32 skýjað
Róm 11 heiöskírt
San Francisco 8 heiöskírt
Stokkhólmur 4 skýjað
Tókýó 10 heiðskírt
Vancouver 4 rigning
Vín 6 skýjað
Lögreglan leitar nú manns sem
er u.þ.b. 35 ára að aldri, en hann
sást á hlaupum um bygginguna
skömmu áður en sprengjan
sprakk.
Sprengingin olli miklum
skemmdum, en engin meiðsli urðu
á mönnum.
Næturklúbburinn var lokaður
þegar sprengingin átti sér stað.
Mynd þessi sýnir hvar Lech Walesa snýr heim að lokinni guðþjónustu í
kirkju í nánd við heimili hans á jóladag. Með honum á myndinni eru
eiginkona hans og dóttirin Magda, sem er fjögurra ára gömul, en til
hliðar við þau má sjá börn úr nágrenninu. Walesa sagði fréttamönnum
að hann myndi eyða jólunum ásamt fjölskyldu sinni í ró og næði.
Óskin um frid
— einkenndi áramótaávörp margra þjóðarleiðtoga
New Vork, 3. janúar. Al*.
ÓSKIN UM frið á komandi ári
einkenndi áramótaávörp margra
þjóðarleiðtoga að þessu sinni. En
samtímis því sem nýja árið gekk í
garð, bárust fregnir af nýjum
bardögum í Líbanon. í Maníla á
Filippseyjum særðust 42 menn, er
handsprengja sprakk og í Kaup-
mannahöfn særðust 40 lögreglu-
þjónar í óeirðum.
Jóhannes Páll páfi II. flutti
nýjársboðskap sinn í Péturs-
kirkjunni í Róm. Hann skoraði á
stórveldin að draga úr vígbúnaði
sínum. Síðan flutti hann nýj-
ársbæn ásamt þeim 10.000 píla-
grímum, sem viðstaddir voru
nýjársmessu hans og bað sér-
staklega fyrir friði á hinu nýja
ári.
Milljónir Japana þyrptust til
helgistaða sinna til þess að bera
þar fram áheit og bænir um
góða heilsu og fé og frama á
komandi ári. I ísrael þyrptust
menn til Jerúsalem, en þar var
allt þakið í snjó að þessu sinni,
sem er harla óvenjulegt þar.
Mörgum stjórnmálaleiðtogum
varð tíðrætt um, að þessi ára-
mót mörkuðu tímamót, og hétu
því að finna lausn á vandamál-
um nýliðins árs. í ræðu, sem
Jóhannes Pill páfi II.
flutt var í sjónvarpið í Líbanon
á gamlársdag, kvaðst Amin
Gemayel, forseti landsins, vera
bjartsýnn á, að allur erlendur
her yrði senn á brott frá Líban-
on og að þjóðin endurheimti
bráðlega fullveldi sitt og sjálfs-
virðingu. En strax á nýjársdag
bárust fréttir af hörðum bar-
dögum stríðandi fylkinga í hafn-
arborginni Tripoli í norðurhluta
landsins.
í Póllandi gengu herlög að
nafninu til úr gildi, en markmið
þeirra hafði verið að kæfa Sam-
stöðu, samtök hinna frjálsu
verkalýðsfélaga. í ræðu, sem
Henry Jablonski, yfirmaður
pólska þjóðarráðsins flutti á
nýjársdag, sagði hann: — Það
ár, sem nú gengur í hönd, verður
ekki auðvelt. Margir Pólverjar,
sem haft höfðu í hyggju að
verða sér út um vodka í tilefni
áramótanna, máttu bíða klukku-
stundum saman í biðröðum á
gamlársdag, og blaðið Pólski
Kurier í Varsjá segir svo frá, að
sumir hafi mátt þola það sér til
„sárrar sorgar og reiði, að flösk-
ur þeirra innihéldu aðeins vatn,
þegar tappinn var dreginn úr“.
Austur-Þjóðverjar á bak við tjöldin:
Veita stórfé til grískra kommúnista
Austur-Þýzkaland hefur komið
á fót stofnun í Lúxemborg, sem
ætlað er að veita fé til kommún-
istaflokka á Vesturlöndum. Hefur
stofnun þessi þegar veitt stórfé til
gríska kommúnistaflokksins.
Hafa órækar skjallegar sannanir
um þetta komið fram fyrir
skemmstu. Stofnun þessari er
ennfremur ætlað að koma á fram-
færi skoðunum sovézkra stjórn-
valda og fylgiríkja þeirra í vest-
rænum fjölmiðlum. Er rannsókn
þegar hafin í mörgum löndum
Vestur-Evróu á starfsemi þessarar
stofnunar, þar sem talið er, að
hún hafi staðið að margs konar
ritum og bæklingum, sem komið
hafa út að undanlornu.
Veruleg athygli beindist fyrst
að þessari stofnun fyrir um
tveimur mánuðum, er gríski
íhaldsflokkurinn birti skjal á
gríska þjóðþinginu, sem sýndi,
að ofangreind stofnun í Lúx-
emborg hafði lánað 2,3 millj.
dollara til útgáfufyrirtækis
gríska kommúnistaflokksins,
sem er hlynntur Sovétstjórn-
inni.
Yfirmaður þessarar stofnunar
í Lúxemborg er Karl Raab, sem
er skráður sem bankastjóri, en
er jafnframt fjármálastjóri
miðstjórnar auisturþýzka
kommúnistaflokksins. Lánið,
sem veitt var gríska kommún-
istaflokknum, var með óvenu
góðum kjörum. Það á að greið-
ast á 25 árum og er með 4 %
ársvöxtum. Þetta fé var notað
m.a. til þess að koma upp nýrri
prentsmiðju gríska kommún-
istaflokksins, sem er búin
nýtízku vélakosti.
Þegar talsmaður gríska
íhaldsflokksins á þingi krafðist
skýringa á því, hvers vegna
kommúnistaflokkurinn hefði
fengið svona hagstætt lán frá
austurþýzkum aðila, þá fékk
hann engin svör.
21
Þrjú morö
á Ítalíu
('asorla, Ítalíu, 3. janúar. Al*.
LÖGREGLAN á Ítalíu fann í dag
brunnin lik þriggja ungra manna
sem höfðu verið myrtir í fyrirsát,
sem bar öll einkenni Mafíunnar.
Þessir þrír menn eru fyrstu fórn-
arlömb hennar á þessu ári og
fundust líkin í brunnu bílhræi
fyrir sunnan bæinn Caserta, en
hann er ekki langt fyrir norðan
Napólí.
Hinir myrtu eru Luigi Cant-
elli, sem var 17 ára, og frændur
hans Luigi og Nicola Diana,
sem voru 24 og 29 ára. Þessir
þrír menn tilheyrðu efnuðum
fjölskyldum og hurfu allir á
gamlárskvöld. Lögreglan held-
ur því fram, að þeir hafi verið
myrtir, áður en kveikt var í
bifreið þeirra.
Skakki
turninn hall-
ast enn
Kóm, 3. janúar. AP.
SKAKKI turninn í Pisa hallaðist
enn á árinu 1982, eða um 1,19
millimetra.
Itölsk stjórnvöld eyða stórfé
á hverju ári til að reyna að
koma í veg fyrir hallann, en
vísindamenn segja að það sem
komi turninum til að halla sé
enn sem komið er alls ókunn-
ugt.
„Hann hlýtur að falla ein-
hvern tíma ef við finnum ekki
einhverja leið til að stöðva
hann. Við vitum hins vegar
ekki hvenær það mun gerast,“
sagði einn vísindamannanna í
viðtali og bætti við: „Það er
hugsanlegt að það taíci hann
100 ár að falla á hliðina, en það
getur einnig tekið miklu
skemmri tíma.“
Thatcher ekki
til Falk-
landseyja
l/ondon, 3. janúar. AP.
MARGRÉT Thatcher forsætis-
ráðherra Bretlands hefur frestað
fyrirhugaðri för sinni til Falk-
landseyja í þessum mánuði, segir
í fregnum breska blaðsins The
Observer síðastliðinn sunnudag.
Þar kemur fram að ráðgjöf-
um forsætisráðherrans þyki
þessi þrettán þúsund kílómetra
langa ferð bæði „of hættuleg
og ekki sérlega stjórnmálalega
hagstæð".
I september síðastliðnum
var það mál manna að Margrét
Thatcher ráðgerði að verða
fyrst breskra forsætisráðherra
til að heimsækja þessar fjar-
lægu eyjar í Suður-Atlants-
hafi, en engin opinber tilkynn-
ing var gerð um þetta mál.
Tal vann
Andersson
Stokkhólmi, 3. januar. Al\
MIKHAIL Tal, fyrrverandi heims-
meistari í skák vann fyrstu skák-
ina í einvígi hans og Svíans, Ulf
Andersons, en einvigi þetta fer
fram í Málmey. Tal, sem stýrði
hvítu mönnunum, náði yfirhönd-
inni, eftir að Svíinn komst í tíma-
hrak í miðtaflinu og gafst hann
upp í 41. leik, þegar hann var kom-
inn með peði minna og mjög
þrönga stööu.
Þeir Tal og Andersson skiptu
með sér þriðja og fjórða sæti á
millisvæðamótinu í Moskvu í
september sl. Þeir munu tefla
sex skákir nú og lýkur einvíginu
10. janúar nk. Sá þeirra, sem
vinnur, fær ekki sjálfkrafa rétt
til þess að taka þátt í áskorenda-
einvígjunum, sem framundan
eru, en ef einhver þeirra 8
skákmeistara forfallast, sem
þegar hafa unnið sér rétt til
þátttöku í þessum einvígjum, þá
á sigurvegarinn í einvíginu nú að
tefla við Boris Spassky, fyrrum
heimsmeistara um það sæti, sem
losnar.