Morgunblaðið - 04.01.1983, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 04.01.1983, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1983 Sinfóníuhljómsveit íslands Tónleikar í Háskólabíói fimmtudaginn 6. janúar 1983 j kl. 20.30. Verkefni: Molter: Klarinett konsert. Páll P. Pálsson: Klarinett konsert'1 (frumfltn.). Brahms: Sinfónía nr. 4. Stjórnandi: Páll P. Pálsson. Einleikari: Siguröur I. Snorrason. Aögöngumiöar í Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar og Lárusar Blöndal og í ístóni Freyjugötu 1. Sinfóníuhljómsveit íslands. IDNADARMANNAHÚSINU Hafnarfirði ferlti byrj«ndí, kanntu eitthvaá fyrir þér, eáa viltu erftkatrma? Símínn «r 63007. * Pyrsti kennstutími vnrður mánudaginn K). janúar og er hann itmifafinn l stofngiaidi Eftir það borgar þú aðeins fyrir þá tima sem f»ú maetfr í og það sem meira er, þú raeður þrnum mætingum ★ Hvernig væri því aff dusta rykjff af dansskónum og laera stepp, sem er nú eftir nokkra hvtid að verða jafnvel vinsaetla en á sjálfum gullnu árum kvik- myndanna og þar sem aldurstakmörk eru engin en inntökuskilyrffi göngukunnátta og jákvætt hugarfar. ^ Stepp var það heillin, og síminn er 53007 Já, fimmtíuogþrír James Bor d. \ SJÁUMST ! / Námskeiö í framleiöslu og birgðastýringu Tölvumiöstööin hf. hyggst dagana 22. febrúar til 25. febrúar 1983 gangast fyrir námskeiði aö Hótel Borg- arnesi um tölvuvædd framleiöslu- og birgðastýrikerfi fyrir fyrirtæki í framleiðsluiðnaöi. Leiöbeinandi á námskeiöinu veröur sænski hagfræö- ingurinn Lennard Bjernfalk, sem á undanförnum ár- um hefur gengist fyrir mörgum slíkum námskeiöum í Svíþjóö, Danmörku og víöar. Námskeiöiö mun aö töluveröu leiti fara fram í hóp- vinnu, þar sem þátttakendum veröur faliö aö leysa úr raunhæfum verkefnum og þannig ná betri tökum á efninu. Námskeiöiö mun aö töluveröu leyti fara fram í hóp- stjórnendur sem tengjast framleiösluferli innan fyrir- tækis. Kennsla mun fara fram á ensku en nám- skeiösgögn veröa á sænsku. Þátttaka tilkynnist til Ólafs Tryggvasonar í síma 26080 fyrir 7. janúar 1983. Ljósmynd JúIíuh Vitastígur 11 skemmd- ist af eldi á nýársdag ELDIIR kom upp i húsinu á Vitastíg 11 á nýársdag, rétt fyrir klukkan 16 og þegar slökkviliðið kom á staðinn var talsverður eldur í kjallara, en reykur á 1. hæð, samkvæmt upplýs- ingum sem Mbl. fékk hjá slokkvilið- inu í Reykjavík. Vitastígur 11 er tveggja hæða timburhús, kjallari og ris. Tveir reykkafarar fóru strax í kjallara hússins, en síðan aðrir tveir upp á hæðirnar og aðstoðuðu fólk út og gengu úr skugga um að ekki væru fleiri í húsinu. Fljótlega gekk að slökkva eld í kjallaranum, en hann hafði komist í loft og millivegg og náði að teygja sig að þaki hússins. Því þurfti að rjúfa gat á vegg og þak til þess að komast að eldinum og gekk það greiðlega. Skemmdir eru aðallega vegna vatns og rofs, en vegna elds í kjallara. Kallaður var út hluti slökkvi- liðsins til aðstoðar og þrír menn stóðu vakt við húsið fram á kvöld. Slökkvistarfi lauk um klukkan 17.00. EM unglinga: Elvar vann Tékkann Stohl ÞEGAR ein umferð var eftir á Evr- ópumeistaramóti unglinga í skák var Elvar Guðmundsson í 7.—10. sæti með 6!ú vinning í 12 skákum. Elvar vann Tékkann Igor Stohl í 12. um- ferð, tapaði fyrir ísraelanum Alon Greenfeld í 11. umferð og vann ítal- ann Carlo D’Amore í 10. umferð. Sovétmaðurinn Jaan Ehlvest og Daninn Curt Hansen voru jafnir og efstir yfir síðustu umferð — höfðu hvor um sig 10 Vfe vinning. í þriðja sæti kom Alon Greenfeld, Israel með 9 vinninga og er því um einvígi Sovétmannsins og Danans um titilinn að ræða. Síðasta um- ferð verður tefld í dag. Skákmót í Noregi: Sævar efstur NÚ ERU búnar þrjár umferðir á skákmótinu í Hamar í Noregi, en þar tefla þrír íslendingar, Margeir Pétursson, Sævar Bjarnason og Karl Þorsteins. Þrjátíu þátttakendur eru á mót- inu og verða tefldar níu umferðir eftir Monrad-kerfi. Eftir þrjár umferðir er Sævar Bjarnason í efsta sæti með 2,5 vinninga af þremur mögulegum, en staða næstu manna er óljós vegna fjölda biðskáka. Karl Þorsteins hefur tvo vinninga og Margeir er með 1,5 vinninga og biðskák. Sævar og Margeir tefldu saman í fyrstu umferð og gerðu jafntefli, en Karl tefldi við Norðmanninn Delange og gerði einnig jafntefli. í annarri umferð vann Margeir Norðmanninn Barn og Sævar vann Stiger frá Noregi og Karl gerði jafntefli við alþjóðlega meistarann Davis frá Englandi. í þriðju umferð vann Sævar Elseth frá Noregi, Karl vann Donaldsson, FIDE-meistara frá Bandaríkjun- um, en Margeir á biðskák við Norðmann, Moen að nafni. Húsavík: Hagstætt veður um hátíðarnar Húsavík, 3. janúar. Um hátiðarnar hefur verid frekar hagstætt veóur á Húsavík, þó um nónbil á jóladag hafi gert tveggja tíma hálfgerðan stórhríðarbyl. A að- fangadag gengu menn til aftansöngs i mildri kvöldkyrrð og var kirkjan fullsetin svo fólk varð frá að hverfa. En aðra messudaga rúmaði hún fleiri en til hennar leituðu. Við aftansöng á gamlárskvöld prédikaði Sigurjón Jóhannesson skólastjóri, en í öðrum messum sr. Björn H. Jónsson. Á nýársdag færði frú Þóra Hafstein Húsavík- urkirkju fallegan „söfnunarkassa" að gjöf, hinn fegursta grip, til minningar um son sinn, Júlíus B. Hafstein. Gripinn gerði Jóhann Björnsson myndskeri. Á fimmtudag héldu kór Tónlist- arfélagsins og Lúðrasveit Húsa- víkur tónleika í kirkjunni undir stjórn Ulrichs Ólasonar og Sigurð- ar Hallmarssonar og var góður rómur gerður að. Á gamlárskvöld bauð Húsavíkurbær til áramóta- dansleiks í félagsheimilinu og var fjölmenni mikið, en allt fór vel fram. í dag fara hjól atvinnulífs- ins að snúast og lita menn mis- jafnlega björtum augum til fram- tíðarinnar, en vonandi tekst þeim, sem tögiin og hagldirnar hafa, að sigla þjóðarskútunni áfallalítið, þó erfitt verði á þessu nýbyrjaða ári. Viltu grennast, vlltu styrkjast, viltu verða brún(n), viltu slappa af? í Apolló býðst þér fullkomin aðstaða til almennrar líkams- og heilsuræktar. • Æfingatæki gerast ekki betri — yfir 30 stöðvar. • Sólböð eru hreinleg og fljótvirk — 4 klefar — engin biðröð. • Gufubað, 8 manna vatnsnuddpottur, nuddtæki. • Einstaklingsbundin, þaulreynd æfingaprógrömm. • Húsakynni eru björt og vistleg. — Þægilegt andrúmsloft. • í setustofu er boðið upp á kaffi og svaladrykki. • Mánaöargjald er 500 kr./ 650 kr. með sólböðum. Tilboð: 25% afsláttur á 3ja mánaða gjöldum HALDIÐ VID HEILSUNNI í APOLLÓ APHLLé »P LÍíil«K£IT Brautarholti 4, sími 22224. Opnunartímar í janúar: Konur: Karlar: Þri. 12—21 Mán. 12—21 Fim. 12—21 Mið. 12—21 Lau. 10—15 Fös. 12—21 Sun. 14—16 Sun. 10—14

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.