Morgunblaðið - 04.01.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1983
29
Heimsmet í Bolungarvík:
Syntu 308,6
km í mara-
þonsundinu
Bolungarvík, 3. janúar.
MARAÞONSUNDI Bolvíkinga lauk klukkan 15 á gaml-
ársdag, eins og áætlað hafði verið við mikinn fognuð fjöl-
margra Bolvíkinga, sem fjölmennt höfðu i sundlaugina.
Sundfólkið heiðraði þjálfara sina með tolleringum og til-
heyrandi dýfíngum. Hafði það þá lagt að baki 308,6 km
þann tíma sem sundið stóð.
Boðsund sundfólksins síð-
asta hálftímann var ákaflega
spennandi og mikið kapp í
sundfólkinu, hver hlyti þann
heiður að synda síðasta spöl-
inn. Sú heppna var ein af
fræknustu sundkonum okkar
Bolvíkinga, Ingigerður Stef-
ánsdóttir. Þegar fagnaðarlát-
um linnti í sundlauginni, flykt-
ist fólk út til þess að njóta
flugeldasýningar Lionsklúbbs-
ins, sem klúbbfélagar stóðu
fyrir í tilefni sundafreks fólks-
ins.
Þegar sundið hófst kl. 15.00
sl. mánudag, gerðu forráða-
menn sundsins ráð fyrir að alls
tækist að synda um 250—300
km og var því takmarki náð.
Yngsti sundkappinn fram að
þessu er 9 ára, en sá elsti 48
Sundið í fullum gangi í Bolungarvfk.
ára, en það er Hörður Snorra-
son sundlaugarstjóri, sem
einnig á sæti í stjórn sundd-
eildar, en hann tók hálftíma
sundsprett á dögunum. Að öðru
leyti hafa aðrir meðlimir
sunddeildar séð um að synda.
Guðmunda Jónasdóttir,
þjálfari sunddeildar bað fyrir
innilegar þakkir fyrir hönd
sunddeildar, til Bolvíkinga,
fyrir þann mikla skilning og
stuðning sem þeir hafa sýnt
starfi sunddeildar þessa dag-
ana. Hún sagði að ótrúlega
margir hefðu haft samband og
óskað eftir að fá t.d. að standa
vaktir yfir sundinu og leggja
þannig hönd á plóginn. „Með
þetta erum við ánægðust,"
sagði Guðmunda, „því tilgang-
urinn hjá okkur var fyrst og
fremst að vekja áhuga á al-
mennri sundiðkun."
— Nú eruð þið jafnframt
með fjársöfnun í formi áheita á
hvern kílómetra, hvernig hefur
gengið?
„Fjársöfnunin hefur gengið
framar vonum, við höfum feng-
ið mjög mörg áheit og áheitin
hafa verið allt að 4 kr. á hvern
km.“
— Er þetta heimsmet, Guð-
munda?
„Ja, það er nú það,“ sagði
Guðmunda hlæjandi. „Við höf-
um ekkert fundið, um svona
nokkuð í heimsmetabókinni."
Springdýnur —
springdýnuviðgerðir
Við
óskum
lands-
mönnum
öllum
gleðilegs
nýárs.
Hvernig væri að byrja nýja árið á að hugsa betur um
heilsuna. Þú sefur V4 af ævi þinni og er mikils virði að þú
sofir á góðri dýnu. Við sækjum gamlar dýnur að morgni
og þú færð hana nýja að kvöldi. Einnig framleiðum við
nýjar dýnur eftir máli og i þremur styrkleikum.
Póstsendum um land allt.
Dýnu- og bólsturgerðin hf.
Smiðjuvegi 28, sími 79233.
MYNDLIST
í áföngum
Kennari Einar Hákonarson listm.
Námskeið í teikningu veröa haldin á vinnustofu minni aö
Vogaseli 1, Breiöholti, 17. jan.—17. febr. Innritun í
síma 71271.
1. áfangi, byrjendur, 10 skiptl. Hluta og módelteiknun
Mánud. og fimmtud. kl. 17.50—19.50. 2. áfangi,
framhaldsfl., 10. skipti. Myndbygging, módelteiknun
kl. 20.00—22.00.
Kennslugjald, efni og áhöld hvers áfanga 1500 kr.
Aldurslágmark 16 éra.
. Inrbekk-1 "yx alATÍ
ATHUGIÐ!
J létt«r erum flutt að
Skúlatúni 4
Ný ndmskeiö hefjast mánudaginn 10. janúar.
Framhaldsnemendur mœta á sömu tímum
og áður.
Innritun og upplýsingar í sima 76350
kl. llf.00—18.00 daglega.
Afhending og endurnýjun skírteina í skólanum að Skúlatúni 4,
fjórðu hæð, laugardaginn 8. jan. kl. 14.00—17.00.
Líkamsþjál fun
Bst 1 lcttskóla
Eddu Sclicving
SKÚLATÚNI 4 — SÍMAR 25620 og 76350