Morgunblaðið - 04.01.1983, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1983
ást er ..
.. að trúa á hann.
TM Rag U.S. P*t Otf—aH riotits resarvad
•1982 Loe AngMM Tlmn Syndlcate
Haldið ykkur, drengir, þegar ég sný
mér á hæl.
Hann sonur minn. — Jú, hann safn-
ar bílnúmerum. Kr ekki allt i lagi
með það?
HÖGNI HREKKVÍSI
HAWN SETURSKIPTErHONIOMSýAJISTSVO."
Á tónleikum hjá Kílharmóníuhljómsveit Berlínar.
Sjón sögu ríkari
Ingibjörg Snorra skrifar 11. des-
ember:
„Velvakandi.
Eg vil byrja á því að beina orðum
mínum til Sighvats Finnssonar sem
skrifar í dálka þína 10. desember
sl., að allt of mikið hafi verið um
tónlistarþætti í sjónvarpinu og að
nær væri að láta útvarpið um að
senda út tónlist. Ég vil minna Sig-
hvat á að smekkur manna er mis-
jafn. Og væri e.t.v. rökréttast að
láta kvikmyndahúsin alveg um
kvikmyndirnar? Það væri jafnvit-
urlegt.
Annars er erindi mitt annað en
að setja út á skrif Sighvats, því að
mig langar til að vita, hvort ekki
væri möguleiki á að komast yfir
upptöku eða myndband af aldar-
afmælistónleikum Fílharmóníu-
hljómsveitar Berlínar, sem útvarp-
að var í sl. viku, og sýna í sjónvarp-
inu.
Það var alveg frábært að heyra
þessa tónleika í útvarpinu, en ólýs-
anlega væri skemmtilegra að fá að
sjá þá á skjánum. Tónleikarnir fóru
nefnilega þannig fram, að í þessu
tilviki væri sjón svo sannarlega
sögu ríkari. Ég efa ekki að margir
eru mér sammála í bessu efni og
vona því bara að úr rætist.
Ég ætla líka að vona, sé þetta
ekki unnt, að þá fái ég útskýringar
á því. Að mínu áliti er þetta langt-
um merkilegra og skemmtilegra en
öll sænska þvælan, sem keypt var
hér um árið, að ég minnist nú ekki á
Dallas-þvæluna.
Að lokum skora ég á Sighvat
Finnsson að horfa á þessa tónleika,
verði þeir sýndir, og senda svo álit
sitt til Velvakanda, án þess að vera
með innantómar fullyrðingar. En
ég verð að segja, að ég er honum
fyllilega sammála, hvað varðar þul-
ina.“
Reynum að halda
innviðunum heilum
A.S. skrifar:
„Velvakandi.
Það er margt sem við megum
þakka fyrir þrátt fyrir dapurlegt
efnahagsástand. Þegar við vöknum
á morgnana eru húsakynni hlý.
Með því að snerta rofa fáum við
næga birtu í herbergin. Við getum
klæðst góðum og hlýjum flíkum í
vetrarveðrinu. Ég t.d. fer til vinnu
með strætisvagni sem er nær alltaf
á réttum tíma. Vagninn er hreinn,
bjartur og hlýr. Umgengni í stræt-
isvögnunum hefur stórbatnað.
Strætisvagninn stansar nálægt
vinnustaðnum og ég þarf ekki að
ganga nema í um fimm mínútur.
Þessi stutta ganga er bara hress-
andi. Göturnar eru vel upplýstar.
Færðin er misjöfn, en það er ósköp
eðlilegt. Það getur engin ráðið
veðrinu, sem betur fcr líklega. Ég
er svo heppinn að vinnustaður
minn er bjartur og hlýr. Tillitsleysi
reykingamanna er dálítið slæmt, af
því að mér finnst reykurinn svo
hvimleiður og illa lyktandi.
Lífið gengur sinn vanagang. Á
heimleiðinni er fjöldi verslana með
alls konar varning, bæði nauðsyn-
legan og ónauðsynlegan. Þetta með
nauðsynina er álitamál. Hver og
einn er frjáls að því að velja hvað
hann kaupir. Vöruverð er vissulega
hátt. Við verðum að skoða og velja
vandlega. Það hefur auðvitað alltaf
verið nauðsynlegt að gera það.
Þetta hefur viljað gleymast undan-
farin ár. Afgreiðslufólk er yfirleitt
almennilegt og vöruúrval mikið.
Hvað skyldi það eiginlega vera sem
ekki fæst hér á landi. Það er ekki
margt. Við höfum nóg af öllu
(nema peningum, segir líklega ein-
hver). Við megum ekki gleyma
hvað allur ytri aðbúnaður er orðinn
góður. Tæknin er orðin mikil og
fjöldi fólks starfar við að láta
okkur líða sem best. Við megum
samt ekki gleyma hinum innra
manni. Nú fer í hönd sá árstími
þegar bestu tilfinningar okkar fá
að njóta sín. Jólin og áramótin með
fögnuði, góðvild, gjafmildi, gleði,
en einnig söknuði og eftirsjá og
jafnframt óvissu.
Það er margt sem okkur þykir
vera að. Það er þó miklu fleira sem
er viðunandi og raunar fagnaðar-
efni. Fyrir þessi jól hafa komið á
markaðinn margar bækur um liðna
tíma. Það er af sem áður var. Menn
og málleysingar höfðu hvorki í sig
eða á. Nú má segja að við lifum við
allsnægtir. Ég held að það sé engin
vitleysa að bera saman fortíð og
nútíð. Við lærum hvort eð er best
af reynslunni. Gleymum ekki að
þakka forsjóninni fyrir allt sem við
höfum. Það gæti verið verra,
ástandið. Verum bjartsýn. Jóla-
birtan bendir okkur á ljósið í öllum
skilningi. Útlitið í efnahagsmálum
landsmanna er óneitanlega slæmt.
En birtir ekki öll él upp um síðir?
Það skiptast á skin og skúrir í
þessu lífi. Og hvers vegna ekki? Ef
ekkert er myrkrið, þá er engin birt-
an. Ef engin sorg, þá engin gleði.
Þótt enginn viti sína ævina fyrr en
öll er, má ekki gleyma því, að hver
er sinnar gæfu smiður. Tökum
höndum saman og stefnum að því
að draga úr ytri áföllum. Reynum
að halda innviðunum heilum. Þá
mun okkur vel farnast. Gleðileg
jóL-