Morgunblaðið - 04.01.1983, Síða 44

Morgunblaðið - 04.01.1983, Síða 44
ns _ ^uglýsinga- síminn er 2 24 80 jntgpttltfMfafrÍfr _,skriftar- síminn er 830 33 I>RIÐJUDACíUR 4. JANÚAR 1983 Gjaldeyrisdeildir lokaðar: Rætt um 9% gengis- fellingu krónunnar — og síðan hratt gengissig í kjölfarið VEGNA óvissu í gengismálum hefur geng- isskráning veriö felld niður frá opnun banka í dag, en samkvæmt upplýsingum Mbl., er talin þörf á um 9% gengisfellingu krónunnar, sem þýðir um 11% meðaltalshækkun erlendra gjaldmiðla, vegna 14% hækkunar á fiskverði. Var í rétti — ók af slysstað Á GAMLÁRSDAG, rétt um klukk- an 1S, varð harður árckstur á mót- um Vífilstaðavegar og afleggjarans að iþróttahúsinu Ásgarði. Okumað- ur Datsun-birreiðar ók frá Ásgarði og hugðist bevgja austur Vífils- staðaveg, en tókst ekki betur til en svo, að hann ók í veg fyrir bláa Subaru-fólksbifreið sem ekið var vestur Vifilstaðaveg, en biðskylda var á Datsuninn. Varð af harður árekstur og er Datsuninn stórskemmdur og mun svo einnig um Subaruinn. Ökumenn fóru út úr bifreiðum sínum og ræddust við. Settust síðan hvor upp í sína bifreið, en ökumanni Datsunins brá heldur en ekki í brún þegar Subarunum var ekið á brott, svona alveg fyrirvaralaust, einkum þegar haft er í huga að Datsuninn var í órétti. Logreglan í Hafnarfirði biður ökumann Subaru-bifreiðarinnar vinsamlega að gefa sig fram. 14% fiskverðshækkun hefur í för með sér um 7% kostnað- araukningu fyrir fiskvinnsluna og síðan kemur til 4% útflutn- ingsgjald. Jóhannes Nordal, seðla- bankastjóri, sagði aðspurður í gærdag, að bankastjórn Seðla- bankans myndi væntanlega koma saman til fundar seinni- partinn í dag og ræða stöðu málsins, en von væri á tillögum frá ríkisstjórninni um málið fyrripartinn í dag. „Það er hins vegar ekki hægt að segja um það á þessari stundu hvort málið verður til lykta leitt á þessum fundi og þá hvenær gjaldeyrisdeildir verða opnaðar að nýju,“ sagði Jó- hannes Nordal ennfremur. Samkvæmt upplýsingum Mbl. er rætt um framan- greinda 9% gengisfellingu, en síðan komi til hratt gengissig í kjölfarið. 9% gengisfelling hefur í för með sér um 11% meðaltals- hækkun á erlendum gjaldeyri. Sem dæmi um hækkunina má nefna, að sölugengi Banda- ríkjadollars var skráð 16,620 krónur fyrir áramót, en myndi við 9% gengisfellingu verða 18,448 krónur. Sölugengi vestur-þýzka marksins var skráð 6,9803 krónur fyrir áramót, en myndi hækka í 7,7481 krónu við 9% gengisfellingu. Gamla árið kvatt í útsynningi Pessi mynd var tekin í höfuðborginni í gamlárskvöld, en það kvöld viðraði illa til flugeldaskota. Þegar nýja árið gekk í garð sást varla nokkurt blys vegna veðursins, en sumsstaðar í borginni rofaði þó aðeins til. Er þessi mynd tekin undir slíkum kringumstæðum. Mbl. kók. Hinn látni var með 4 stungusár á baki TUTTUGU og átta ára gam- all maður, Óskar Árni Blomsterberg, til heimilis aö Hátúni við Rauðavatn, var Gunnar Sigurður Oskarsson Páll Ragnarsson Sigurður Pétursson Þrír íslendingar létust í slysum á nýársdag ÞRÍR íslendingar biðu bana í slysum á nýársdag. Tveir menn, Páll Ragn- arsson, 30 ára að aldri, og Gunnar Sigurður Oskarsson, 39 ára að aldri, biðu bana þegar þeir hröpuðu i hlíðum Vífilsfells og Sigurður Pétursson, 28 ára að aldri, lést af slysforum í ('hile i Suður-Ameríku. Tildrög slyssins í Vífilsfelli eru þau, að þeir Páll og Gunnar hugðust ganga á fjallið ásamt Víði Óskars- syni, bróður Gunnars. Þeir lögðu upp um hálftíu á nýársdagsmorgun. Þeir voru komnir upp að hamrabelti efst í fjallinu og voru að ganga yfir ísbreiðu þegar Páll missti fótanna og hrapaði. Þeir Gunnar og Víðir snéru við, en þá missti Gunnar fót- anna á íshjarninu, hrapaði og hvarf sjónum bróður síns. Þeir munu hafa hrapað um 300 metra niður snar- brattar hlíðar fjallsins og hlotið al- varleg höfuðsár þegar þeir skullu á stórgrýti í fjallshlíðinni. Víðir kom að mönnunum helsærð- um, hlúði að þeim og fór eftir hjálp. Hann kom skömmu fyrir klukkan 13 í lögreglustöðina í Árbæ og voru þá þegar hafnar aðgerðir til þess að bjarga mönnunum. Lögregla, lækn- ar og björgunarsveitir fóru á stað- inn. Þá lenti þyrla Landhelgisgæzl- unnar skammt frá slysstað. Aðstæð- ur til björgunar voru afleitar, mennirnir lágu helsærðir í 2—300 metra hæð í fjallinu, veðurofsi mik- ill og gekk á með dimmum éljum. Þeir voru látnir þegar komið var með þá í sjúkrahús. Páll Ragnarsson var fæddur 4. maí 1952. Hann lætur eftir sig konu og 2 börn. Gunnar Sigurður Óskarsson var fæddur 3. apríl 1943. Hann var ókvæntur og barnlaus. Sigurður Pétursson var á ferða- lagi um Suður-Ameríku þegar hann lést. Hann var staddur í Chile ásamt erlendum ferðafélögum. Hann var á sundi við baðströnd, kom ekki til lands og fannst skömmu síðar lát- inn. Sigurður var fæddur 30. janúar 1954. Hann var ókvæntur og barn- laus. Sjá: „Við snenim við en þá missti Gunn- ar lika fótanna og hrapaði", á bls. 3. stunginn til bana á sjötta tímanum að morgni nýárs- dags, í íbúð að Kleppsvegi 42 í Reykjavík. Óskar var gest- komandi í íbúðinni. Þórður Jóhann Eyþórsson, 25 ára gamall bifreiðastjóri, sem einnig var gestkomandi, hefur ját- að að vera valdur að dauða Óskars og hefur hann verið úrskurðaður í gæzluvarðhald til 9. marz næst- komandi og gert að sæta rannsókn á geðheilbrigði sínu og sakhæfi. Tildrög þessa voðaatburðar eru ekki að fullu ljós. óskar heitinn mun hafa dvalið um hálfa klukku- stund í íbúðinni þegar atvikið átti sér stað. Að því er Mbl. kemst næst, mun Þórður hafa sótt stóran eldhúshníf fram í eldhús. Til ein- hverra deilna kom þeirra í millum og enduðu þær með því, að Þórður stakk Óskar fjórum stungum í bakið þar sem hann var í stofu. Óskar náði að komast fram á gang íbúðarinnar, en lést skömmu eftir að lögreglu bar að garði. Hringt var á lögreglu og sjúkralið úr íbúðinni. Sjö manns voru í íbúðinni þegar atburðurinn átti sér stað og voru allir færðir til yfirheyrslu, en hefur verið sleppt utan Þórðar, sem er í gæzluvarð- haldi. Ástæður ódæðisins eru full- Óskar Árni Blomsterbérg komlega óljósar, en þeir Öskar og Þórður munu hafa verið lítt kunn- ugir. Þó er Mbl. kunnugt um, að tvívegis áður hafði komið til átaka þeirra í millum en langt var um liðið. Samkvæmt heimildum Mbl. mun Þórður hafa borið haturshug til Óskars. óskar heitinn lætur eftir sig unnustu, dóttur og fósturdóttur. Hann var fæddur 17. október 1954. Kleppsvegur 42 — ódæóið var framið á 4. hæð til vinstri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.