Morgunblaðið - 02.02.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983
3
Varðarfundur:
Samningur-
inn um Keldna-
land kynntur
Landsmálafélagið Vörður held-
ur almennan fund um samning-
ana um Keldnaland, í kvöld mið-
vikudagskvöld kl. 20.30 í Valhöll,
Háaleitisbraut 1.
Davíð Oddsson borgarstjóri
mun kynna samninginn og
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
formaður skipulagsnefndar
mun kynna nánar það svæði
sem til umfjöllunar er i samn-
ingum og byggð mun rísa á.
Davíð Oddsson
Eins og fyrr segir er fundur-
inn opinn öllum þeim, sem
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
áhuga hafa á að kynna sér hinn
nýgerða samning.
Landsvirkjun tekur
um 400 millj.kr. lán
LÁNSSAMNINGUR tnilli Landsvirkjunar og Yamaichi Sec-
urities Company og nokkurra annarra japanskra lánastofn-
ana varðandi skuldabréfalán til Landsvirkjunar, að fjárhæð 5
milljarðar yena, eða um 400 milljónir króna á núverandi
gengi, var undirritaður í Tokyo í vikunni, segir í frétt Lan'
virkjunar.
Af hálfu Landsvirkjunar var
lánssamningurinn undirritaður af
Halldóri Jónatanssyni, aðstoðar-
framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Lánið er til 10 ára og eru fyrstu 6
árin afborgunarlaus. Vextir eru
8,6% á ári. Lánsfénu verður varið
til fjármögnunar Blönduvirkjunar
og annarra framkvæmda Lands-
virkjunar í ár.
4IMNLEN"r
Þorsteinn Pálsson
VSÍ:
Þorsteinn
Pálsson lætur
af starfi
framkvæmdastj.
„ÉG HEF valist til þess að vera í
framboði, og það samrýmist ekki
þessu starfi, sem ég hef gegnt, og því
kom það af sjálfu sér sem nú hefur
orðið, að ég léti af því,“ sagði Þor-
steinn Pálsson í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins í gær. Þor-
steinn hefur sem kunnugt er valist
til að skipa fyrsta sæti framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í Suðurlands-
kjördæmi við næstu alþingiskosn-
ingar.
Morgunblaðinu barst í gær svo-
hljóðandi fréttatilkynning frá
Vinnuveitendasambandinu:
„Þorsteinn Pálsson, sem undan-
farin fjögur ár hefur gegnt starfi
framkvæmdastjóra Vinnuveit-
endasambands íslands, hefur
óskað eftir að láta af því starfi frá
deginum í dag að telja.
Framkvæmdastjórn Vinnuveit-
endasambandsins hefur á fundi
sínum í dag fallist á þessa ósk.“
Lesendaþjónusta
Morgunblaðsins:
Spurt og svar-
ad um skattamál
MOKGPNBLADID veitir nú les-
endum sínum þá þjónustu að afla
svara við spumingum þeirra um
skattamál. (ieta lesendur hringt í
síma 10100 klukkan 10—12 á
mánudegi til föstudags og borið
upp spurningar sínar viðvíkjandi
skattamálum, útfyllingu framtals-
eyðublaðs, frádráttarreglum og
fleiri atriðum.
Morgunblaðið leitar svara hjá
skrifstofu ríkisskattstjóra í
Reykjavík og birtast þau síðan i
blaðinu ásamt spurningum.
Nauðsynlegt er að spyrjendur
gefi upp nafn sitt og heimilis-
fang. Þessi lesendaþjónusta
verður veitt þar til skilafrestur
skattaframtala einstaklinga er
úti, þ.e. fimmtudaginn 10. febrú-
ar. Síminn er 10100 milli klukk-
an 10 og 12 virka daga.
VERÐLÆKKUN!
í snjónum hefur SCHAEFF sýnt yfirburði sína, því aö í sumum tilfellum hefur hann
afkastaö eins og tvær vélar af öörum gerðum. Skýringin er augljós, því aö þessi vél er í
raun kattlipur hjólaskófla, meö ótrúlega eiginleika. Hjá Mosfellshreppi hefur SCHAEFF
meö snjóruöningstönn veriö í fullri notkun í vetur og haldiö götum opnum. Nú getum viö
boöið nokkrar af þessum frábæru vélum á ótrúlegu veröi.
SCHAEFF fæst i tveimur
stærðum:
SKB-600 (6 tonn),
SKB-800 (8 tonn).
Aka má vélinni úr aftursæti
Vökvaflæði er 142 I pr. mínútu
á SKB-600 og 2001 pr. minútu á
SKB-800.
Stiglaust vökvadrif
kassa.
Öryggishús með sérstaklega
góðu útsýni.
Liðstýring — kostir hennar eru
augljósir.
Hægt er að fá opnanlega fram
skóflu og lyftaragaffla, hvor
tveggja með hraðtengiútbúnaði
Fjórhjóladrif og öll hjól eru
jafn stór er mikið atriði.
Þegar SCHAEFF-inn er hjóla
skófla án gröfuarms er þyngd
arjöfnunarlóðum rennt auð
veldlega úr frambrettum i aft
urbretti.
SKB-600 hefur 3.6 tonna há
markslyftikraft,
SKB-800 hefur 4ra tonna há
markslyftikraft.
SKB-600 hefur 9.5 tonna brot
kraft,
SKB-800 hefur 13.0 tonna brot
kraft.
SCHAEFF-inn sýnir vestur þýskt hugvit og hönnun
Þeir fylgjast meö sem þekkja SCHAEFF.
;X xbíioom
Gafflar fyrir lyftivinnu t.d. fisk-
kassa, timbur o.fl.
Gröfuarmur losa : jr
bragðLr-' sinn, tve,;
yngdarj :!*un
Höfðabakka 9 Simi 8-52-60