Morgunblaðið - 02.02.1983, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 02.02.1983, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983 jjKlæðum og bólstrumj ígömul húsgögn. Gott<j ^úrval af áklæðum BÓLSTRUNi ÁSGRÍMS, Bergstaðastræti 2, Simi 16807. Lestunar- áætlun Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: HULL: Jan ........... 7/2 Jan ........... 21/2 Jan ............ 7/3 Jan ........... 21/2 ROTTERDAM: Jan ............ 8/2 Jan ........... 22/2 Jan ............ 8/3 Jan ........... 22/3 ANTWERPEN: Jan ............ 9/2 Jan ........... 23/2 Jan ............ 9/3 Jan ........... 23/3 HAMBORG: Jan ........... 11/2 Jan ........... 25/2 Jan ........... 11/3 Jan ........... 25/3 HELSINKI: Mælifell ...... 16/2 Helgafell ...... 3/3 LARVIK: Hvassafell .... 14/2 Hvassafell .... 28/2 Hvassafell .... 14/3 GAUTABORG: Hvassafell .... 31/1 Hvassafell .... 15/2 Hvassafell ..... 1/3 Hvassafell .... 15/3 KAUPMANNAHÖFN: Hvassafell .... 16/2 Hvassafell ..... 2/3 Hvassafell .... 16/3 SVENDBORG: Hvassafell .... 17/2 Disarfell ...... 3/3 Hvassafell .... 17/3 AARHUS: Hvasssafell ... 17/2 Hvasssafell .... 3/3 Hvasssafell ... 17/3 GLOUCESTER MASS.: Skaftafell .... 22/2 HALIFAX, KANADA: Jökulfell ...... 4/2 •Skaftafell ..... "> ..... 24/2 m. SKIPADEILU SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavik Sími 28200 Telex 2101 Schultz til Kína í dag: Mun líklega frið- mælast við kín- verska ráðamenn Birgitte Bardot Kaupmannahófn, I. febrúar. AP. GRÆNLENZK sendinefnd undir for- ystu Jonathans MotzfeldLs, forsætis- ráðherra grænlenzku landstjórnarinn- ar, er lögð af stað frá Kaupmannahöfn í langferðavagni og hyggst ferðast víða og sannfæra Evrópumenn um, að grænlenzkir veiðimenn drepi ekki selskópa né nokkra þá selategund, sem hætt sé við útrýmingu. { París ætla Grænlendingamir að hitta leikkonuna frægu, Brigitte Bardot, að máli, en hún er einn helzti talsmaður hreyfingar, sem berst gegn drápi á selskópum við Nýfundnaland og að fólk kaupi vörur úr sclskinni, hvaðan sem þær koma, þar á meðal Grænlandi. „Við mótmælum og við hörmum, að vanþekking og misskilningur í Vestur-Evrópu er í þann veginn að eyðileggja veiðimannamenningu okkar,“ sagði Motzfeldt við brottför sendinefndarinnar frá Kaupmanna- höfn. Er ætlunin, að ferðalag hennar standi yfir í 9 daga og að á þeim tíma heimsæki hún Hamborg, Frankfurt, París, London, Brussel og Haag. Margrét Danadrottning hefur lýst yfir stuðningi sínum við för sendi- nefndarinnar, en hún á sjálf kápu úr selskinni. Þá hefur maður hennar, Hinrik prins, einnig lýst yfir stuðn- ingi sínum. Jafnvel Grænfriðunga- samtökin, samtök umhverfisvernd- armanna, sem berjast gegn drápi á selskópum, hafa tekið málstað Grænlendinganna. „Við höfum ekkert á móti selveið- Veður víða um heim Akursyn +9 skýjað Amsterdam 5 rigning Aþena 13 rigning Berlln S skýjað Brussef 3 rigning Chicago +1 skýjað Dublin 8 skýjað Feneyiar 4 skýjað Franklurt 6 skýjað Faereyjar +1 léttskýjað Genf 5 skýjað Helsinki *1 skýjað Hong Kong 23 skýjað Jerúsalem 13 heiðskirt Jóhannesarborg 30 rigning Kaupmannahöfn 4 heiðsktrt Kairó 19 skýjað Las Palmaa 23 Mttskýjað Lissabon 16 heiðskfrt London 9 skýjað Los Angeies 20 haiðskírt Madrid 17 heiðskírt Maliorca 17 heiðskfrt Malaga 17 hálfskýjað Mexikóborg 24 heiðskírt Miami 24 iteiðsklrt Moskva 0 snjókoma Nýja Delhi 18 heióskírt New York 8 heiðsktrf Ósló +5 skýjað París 12 skýjað Peking 1 snjókoma Perth 24 heiðskfrt Reykjavík 4« alskýjað Rio de Jeneiro 37 skýjaö Rómaborg 13 heiöakírt San Francisco 14 akýjað Stokkhólmur 1 snjðkoma Tel Aviv 16 heiðskírt Tókýó 10 heiðskfrt Vancouver 10 skýjað Vfnarborg 5 skýjað Jónatan Motzfeldt um við Grænland," er haft eftir Mikael Nielsen, talsmanni grænfrið- unga. „Við hörmum, að herferð okkar hefur, án þess að það hafi ver- ið ásetningur okkar, orðið ógnun við samfélag veiðimanna á Grænlandi." MIKIÐ „stríð“ hefur brotizt út milli bandaríska sendiráðsins í Osló og verkamannaflokksins í Noregi með Gro Harlem Brundtland, formann flokksins, í fararbroddi. Af hálfu sendiráðsins hefur verið brugðizt harkalega við því að í fyrirlestri, sem frú Brundtland flutti um helgina, dró hún í efa vilja Reagans Bandaríkja- forsela um að fara samningaleiðina í kjarnorkuvopnaviðræðunum í Genf. Hefur hún haldið því fram, að samn- ingavilji Carter-stjórnarinnar hafí verið mun meiri á þessu sviði. Tokyo, 1. febrúar. AP. GEORGE P. Schultz, utanrfkisráð- herra Bandaríkjanna heldur í dag áleiðis til Kína, eftir að hafa lokið gagnlegri heimsókn til ráðamanna í Japan. John Hughes, talsmaður utanríkisráðuneytisins hefur til þessa séð um opinberar yfirlýsingar í ferðinni og hann sagði að ferðin hefði verið afar gagnleg og lagt grunninn að greiðari viðskiptasam- böndum þjóðanna í milli, „eitt sem var alveg Ijóst í ferðinni, það var einlægur vilji og ætlun Japana að standa við gefln loforð og samþykkt- ir sem forsætisráðherra þeirra, Nakasone, stóð fyrir er hann kom til Washington," sagði Hughes. Þá hafa Bandaríkjamenn lýst ánægju sinni yflr því að Japanir hafi í hyggju að efla varnir sínar. Ráðamenn í Bandaríkiunum Frú Brundtland, sem er þekkt fyrir skapsmuni sína, hefur gagn- rýnt bandaríska sendiráðið fyrir að blanda sér í norsk innanríkismál. Þá hefur hún haldið því fram, að Carter, fyrrverandi forseti Banda- ríkjanna, hafi verið reiðubúinn til þess að ábyrgjast persónulega samningsvilja Bandaríkjamanna í Genfarviðræðunum. Hins vegar kveðst hún ekki vera sannfærð um samningsvilja Reagans í þessum viðræðum nú. I fréttatilkynningu, sem banda- ríska sendiráðið í Osló lét frá sér hafa ekki sett markið ýkja hátt varðandi komandi viðræður Schultz við kínversku ráðamenn- ina, segja heimsókn hans þangað fyrst og fremst til þess ætlaða að gefa Schulz tækifæri til að kynn- ast leiðtogum kínversku þjóðar- innar. Undir niðri hvílir þó sú von að Schulz verði vel ágengt og heimsókn hans létti á stífninni sem verið hefur í samskiptum risaveldanna tveggja vegna Tai- wan-málsins. Schultz tjáði Naka- sone í Tokyo, að Bandaríkjamenn myndu aldrei fallast á afvopnun- arsamning sem fæli í sér að Sov- étmenn færðu hluta af meðal- drægu flaugum sínum til Asíu. Búist er við því að utanríkisráð- herrann bandaríski gefi kínverska leiðtoganum sams konar loforð. fara í gær, er brugðizt harkalega við ummælum frú Brundtland og sagt, að þau feli í sér persónulega árás á heiður Reagans forseta og snerti öryggi allra landa innan Atlantshafsbandalagsins. Leiðtogar annarra norskra stjórnmálaflokka hafa verið tregir til þess að blanda sér í þessar deil- ur. Kaare Willoch forsætisráð- herra, leiðtogi hægri flokksins, hef- ur látið sér nægja að segja, að það væri hættulegra en nokkuð annað, ef sundrung kæmi upp milli Banda- ríkjanna og Vestur-Evrópu. Njósnarinn Erickson lést í yikunni: Fjölmargir heldri Svíar anda léttar — nöfn fjölda kvislinga fóru með í gröfina FJÖLMARGIR heldri Svíar anda léttar um þessar mundir, eða eftir aö þeir fréttu um lát Ericks Erickson í Frakklandi í vikunni. Erickson var 92 ára gamali og varð hann bráð- kvaddur. Það fóru mörg meiriháttar og viðkvæm leyndarmál með Svían- um í gröfina. Hann vissi ýmis- legt um samborgara sína sem hefði getað kollsteypt viðskipta- veldum og dregið mikils metna stjórnmálamenn ofan í duftið. Hann vissi nöfn allra þeirra Svía sem veittu nasistum liðveislu í síðari heimsstyrjöldinni, nöfn þeirra sem sest hefðu í lepp- stjórn ef Hitler hefði hertekið Svíþjóð. En öll fór vitneskja þessi í gröfina með Erickson. Það var Dwight Eisenhauer, fyrrum Bandaríkjaforseti, sem hvatti hann til að ljóstra ekki upp um föðurlandssvikarana, „hann sagði mér að það myndi gera meiri skaða en gagn og ég var honum sammáía," sagði Erickson í blaðaviðtali árið 1972. Erickson var merkilegur mað- ur. Hann var njósnari fyrir bandamenn í stríðinu. Hann var fæddur í Bandaríkjunum, af sænskum foreldrum, og gerðist sænskur ríkisborgari á fjórða áratugnum. í Svíþjóð var hann fyrst um sinn fulltrúi banda- rísks olíufélags, en setti síðan sitt eigið fyrirtæki á stofn, Penco. Helsta viðskiptaland hans var Þýskaland og fljótlega eftir að stríðið braust út bauð hann bandamönnum að starfa sem njósnari. Hann spilaði sig forfallinn nasista og olíuvið- skipti hans við Þýskaland komu honum í náin kynni við þá Himmler og Göring. „Ég hafði andstyggð á fasisma og því barð- ist ég gegn honum,“ sagði Erick- son. Erickson var mikils metinn af Þjóðverjum og komst hann í að- stöðu til að miðla bandamönnum upplýsingum um bráðmikilvæg skotmörk. Eisenhower forseti sagði síðar að upplýsinga- streymið frá Erickson hafi verið slíkt að það hefði stytt stríðið um nokkur ár. Á árunum frá 1939 til 1945 fór Erickson 31 ferð til Þýskalands og betrumbætti jafnóðum njósnanet sitt. Svo mjög var honum treyst, að hann gekk um með áritað bréf frá Himmler sem tryggði honum ferðafrelsi hvert sem hann vildi í þýska ríkinu, hann gat komið og farið eins og honum hentaði. En andleg átök varð Erickson að glíma við. Eitt sinn þótti hann tortryggilegur. Ef sam- band hans við ástkonu sína að nafni Marianne hefði sannast hefði það verið endalokin fyrir Erickson. Nasistarnir gengu gjarnan óþrifalega til verks og hugðust sanna sekt Ericksons með því að skjóta Marianne fyrir augum hans. Það gerðu þeir, en Erickson sýndi ekki svipbrigði. „Þetta var hryllilegasta stund lífs míns,“ sagði hann síðar. Skömmu fyrir lok stríðsins var Erickson síðan í lest á leið til Leipzig, er hann hitti mann, mikinn og eldheitan nasista, sem vissi að Erickson lék tveim skjöldum. Þeir höfðu hist fyrir stríðið og Erickson talaði ekki blíðlega um nasista á þeim ár- um. Er lestin kom til Leipzig veitti Erickson manni þessum eftirför og fór hann strax inn í símklefa og byrjaði að hringja til aðalstöðva Gestapo í borg- inni. En hann náði aldrei að ljúka því, Erickson vatt sér inn í klefann og drap hann með ber- um höndunum. Erickson var söguhetjan í metsölubók ALexanders Klein, „The Counterfeit Traitor", sem þýða mætti „Gervinjósnarinn". Síðan var gerð kvikmynd upp úr bókinni og lék William Holden hlutverk Erickson. Mynd sú hef- ur verið synd í íslenska sjón- varpinu. Erickson var einnig ráðgefandi er gerð var kvikmynd eftir sögu John Le Carre, „Njósnarinn sem kom inn úr kuídanum". Hann þótti rólyndur og yfirvegaður, ólíklegur til að búa yfir vitneskju sem hefði hrist stórkostlega upp í sænska þjóðfélaginu. (Byggt á Observer.) Vilja ræða við Brigitte Bardot Grænlendingar verja selveiðar sínar Deilir á Reagan Osló, 1. Tebrúar. Frá Jan Krik Lauré, frétlaritara Morgunblaðsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.