Morgunblaðið - 02.02.1983, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983
Utgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 150 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 12 kr. eintakið.
Tekst Sjálfstæðis-
flokknum að sameinast?
Frá athöfninni á Patreksfirði.
Samúó og
góðvild og h
Iumræðum manna á meðal
undanfarið um prófkjör og
gildi þeirra hefur þess viðhorfs
fremur gætt, að gott væri að
staldra við og íhuga hvort önn-
ur leið væri ekki heppilegri við
val á frambjóðendum heldur en
að prófkjörin væru eini kostur-
inn. Morgunblaðið hefur löng-
um verið þeirrar skoðunar, að
prófkjör eigi alls ekki að vera
algild regla við skipan fram-
boðslista og þess vegna fagnar
blaðið því nú þegar þetta við-
horf þess nýtur meiri stuð-
nings en oft áður. Það er ljóst
að prófkjör leysa ekki allar
framboðsraunir og einnig er
vitað að ekki eru allir jafn
ánægðir með ákvarðanir sem
teknar eru af rétt kjörnum
fulltrúum flokkanna í kjör-
nefndum eða kjördæmisráðum.
Sjálfstæðismenn í Vest-
fjarðakjördæmi ákváðu að
viðhafa ekki prófkjör til að
raða mönnum á framboðslist-
ann vegna væntanlegra þing-
kosninga. Allar ákvarðanir um
það mál voru teknar af rétt-
kjörnum mönnum innan
flokksins. Eftir að listinn hafði
verið ákveðinn risu menn upp
meðal sjálfstæðismanna á
Vestfjörðum og lýstu því yfir,
að þeir gætu ekki sætt sig við
þessa meðferð mála, það hefði
átt að fara fram prófkjör. í
þessum hópi var Sigurlaug
Bjarnadóttir, sem var þing-
maður Sjálfstæðisflokksins
fyrir Vestfjarðakjördæmi eitt
kjörtímabil og síðan varaþing-
maður. Síðan hafa þessir
óánægðu aðilar látið í veðri
vaka, að þeir muni bjóða fram
sérstakan lista á Vestfjörðum.
í kosningunum 1979 buðu
sjálfstæðismenn fram sérstak-
an lista í tveimur kjördæmum,
Norðurlandskjördæmi eystra
og Suðurlandskjördæmi. Er
ekki að efa að þessi sundrung
spillti áiiti flokksins meðal
kjósenda um land allt. Nú hafa
farið fram prófkjör í þessum
tveimur kjördæmum og ekki
ber á öðru en menn uni úrslit-
unum án þess að ætla að stofna
til sprengiframboðs. Ef vest-
firskir sjálfstæðismenn klofna
vegna skipan manna á fram-
boðslista er ekki að efa, að ým-
is þau öfl sem vilja hlut sjálf-
stæðismanna sem minnstan
muni nota þá sundrungu til að
grafa undan trú manna á
Sjálfstæðisflokknum og í því
skyni að efna til sprengifram-
boðs víðar. Hinir óánægðu
sjálfstæðismenn á Vestfjörðum
komast ekki hjá því að meta
eigin gjörðir í víðara samhengi,
reynslan frá 1979 segir þeim
það. Samstaða sjálfstæð-
ismanna í öllum kjördæmum
er forsenda árangurs í þing-
kosningunum.
Vilji menn að Sjálfstæðis-
flokkurinn endurheimti styrk
sinn og fyrri stöðu verða þeir
að byggja þá baráttu á sameig-
inlegu átaki allra sjálfstæð-
ismanna. Það kann að þykja
lítils metið nú á tímum upp-
lausnar og stjórnleysis að hafa
það að leiðarljósi að standa
vörð um sinn gamla flokk, eins
og það er oft orðað. Slík varð-
staða er þó forsenda þess að
stjórnmálaflokkur njóti fylgis
og trausts. Ef þeir sem um
lengri eða skemmri tíma hafa
verið dyggir stuðningsmenn
flokks svo ekki sé rætt um þá
sem kosnir hafa verið í trúnað-
arstöður af flokksmönnum
bregðast þannig við lögmætum
ákvörðunum að þeir rjúfa frið-
inn verður öllum ljóst, að
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ekki náð tökum á vandamálum
sínum. Það er í senn óviturlegt
og hryggilegt ef hópur manna á
Vestfjörðum ætlar að rjúfa þá
skjaldborg sem nú er nauðsyn-
legt að slá um Sjálfstæðis-
flokkinn.
Að hugsa
fyrst
Steingrímur Hermannsson,
sjávarútvegsráðherra, er
sannarlega fær um að klúðra
hvalamálinu eins og öðrum
málum. Æskilegt væri að ráð-
herrann gæfi sér stund til að
hugsa áður en hann lýsir því til
dæmis yfir, að það sé „óviðeig-
andi“ að Bandaríkjastjórn
skuli bjóða íslenskum skipum
að stunda fiskveiðar í 200
mílna lögsögu sinni. Svo virðist
sem ráðherrann telji, að í þessu
viðkvæma máli sem aðeins
formlega er á valdsviði ríkis-
stjórna geti hann boðið al-
menningsáliti um allan hinn
lýðfrjálsa heim byrginn með
því að þykjast móðgaður yfir
ráðherrabréfi, dyntir Stein-
gríms hér verða vafalaust til að
espa hvalavini enn frekar. Það
kemur íslendingum ekki á
óvart að formaður Framsókn-
arflokksins gleymir stundum
að hugsa áður en hann talar en
ógjörlegt er að segja hvaða
áhrif þetta hugsunarleysi kann
að hafa meðal annarra þjóða.
Rœða séra
Þóraríns Þór
prófasts
við útförina
á Patreksfirði
Útíor og minningarathöfn
um þá fjóra sem létu lífið í
krapaflóðinu á Patreksfirði
var gerð frá félagsheimilinu
á Patreksfirði í gær að við-
stöddu miklu fjölmenni, en
milli 500 og 600 manns voru
við athöfnina. Séra Þórarinn
Þór prófastur jarðsöng og
flutti minningarorð að við-
stöddum forseta íslands,
Vigdísi Finnbogadóttur, og
fleiri aðkomnum gestum.
Það var fagurt veður á Pat-
reksfirði í gær og sólin sendi
geisla sína um glugga félags-
heimilisins að kistunum fjór-
um, en prófasturinn fjallaði í
ræðu sinni um sáran trega og
söknuð þeirra sem um sárt
eiga að binda. Það var harm-
þrunginn blær yfir friðsælli
byggð Patreksfjarðar og víða
blakti íslenzki fáninn í hálfa
stöng. Með virðuleika og
reisn í styrkri trú fór athöfn-
in fram. Hér fer á eftir ræða
séra Þórarins Þór prófasts.
Nád sé med yður og friður frá Guði
föður vorum og drottni Jesú Kristi.
Amen.
í Davíðs sálmum standa þessi orð:
Kg hugsaói um hvernig ég ætti aó skilja þaó.
þad var erfitt í augum mínum
unz ég kom inn í helgidóm (íuðs.
Vertu eigi varbúinn revnslunni
er þú kemur að þjóna drottni Guði.
Vertu einbeittur og hugsterkur
og óttast eigi er á reynir.
ilaltu þér fast við hann og slepptu honum eigi
svo að þú vaxir að vizku um síðir.
Taktu öllu er að höndum ber
og vertu þolinmóður í þjáningu og eymd.
I»ví að eins og gull prófast í eldi
prófist guðhræddir menn í nauðum.
Náðugur og miskunnsamur er drottinn.
Hann styður alla þá, sem ætla að hníga,
og reisir upp alla niðurbeygða.
Drottinn er nálægur öllum, sem ákalla hann í
|einlægni.
Hann heyrir hróp þeirra og hjálpar þeim.
Ámen.
Minningarorð séra Þórarins Þór
prófasts í Patreksfirði um fjór-
menningana sem létu lífið í krapa-
flóðinu á Patrksfírði 22. janúar sl.
en í ræðu prcstsins flutti hann fjöl-
rnargar kveðjur til ættingja og vina
hinna látnu, m.a. frá biskupi ís-
lands, forsætisráðherra og ýmsum
bæjarfélögum, félagasamtökum
og einstaklingum.
Sigrún Guðbrandsdóttir
sex ára, fædd 3. desember 1976.
Indæl lítil stúlka, yngsta barn og
eftirlæti foreldra sinna Guðbrands
Haraldssonar og Vigdísar Helga-
dóttur. Eldri eru tveir bræður.
Lenti annar þeirra í flóðinu og
grófst með systur sinni en var
bjargað eftir hálfa aðra klukku-
stund og sýndi mikla stillingu og
dugnað svo ungur piltur, aðeins 12
ára gamall.
Mikill harmur er kveðinn að
þessari fjölskyldu, ungum foreldr-
um og sonum þeirra tveim og öðr-
um ástvinum öllum. Líkami litlu
stúlkunnar verður fluttur til greftr-
unar í Reykjavík við hlið langafa og
langömmu hennar næstkomandi
mánudag. — Við kveðjum hana hér
og felum Guði ódauðlega sál hennar
til varðveizlu um alla eilífð.
Vér erum hér samankomnir, —
kristinn söfnuður — frammi fyrir
augliti Guðs — á sorgardegi, til þess
að inna af hendi dapurlega þjón-
ustu. Hér er stund saknaðar og
trega er við minnumst og kveðjum
þau fjögur, úr okkar hópi, sem
hamslaus og heiftúðugur náttúru-
kraftur kramdi til bana, er hann
með skyndingu og fyrirvaralaust
spratt fram úr fjallinu og ruddist
niður yfir byggðina með slíku helj-
arafli og þvílíkum feiknamætti að
allt varð undan að láta, sem á vegi
hans varð. Hús brotnuðu í spón —
heimili ónýttust — húsbúnaður og
persónulegir hlutir splundruðust og
grófust undir aurbleytu og snjó, —
allt ónýttist, sem fyrir varð, bílar
klesstust saman eða rifnuðu eins og
úr pappír væru — og enginn mundi
geta sloppið lifandi úr þessum
ósköpum, sem í þeim lenti. Þar
hlaut bráður bani að .vera búinn
bæði mönnum og skepnum. A.m.k.
varð ekki annað séð þá, þótt annað
Vertu sæl, vor litla Ijúfan blída.
l,of aé Guði, búin ertu að siríða.
( pp til sælu sala
saklaust barn án dvala.
Lærðu ung við cngla (íuðs að tala.
Drottinn veiti huggun og styrk. I
Jesú nafni. Amen.
Sigurbjörg Sigurðardóttir
Hún fæddist í Bolungarvík 13.
ágúst 1924. Foreldrar hennar voru
Kristín Angantýsdóttir og Sigurður
Sigurðsson sjómaður. Missti föður
sinn 10 daga gömul og var þá tekin
í fóstur af föðprbróður sínum Guð-
bjarti í Skálavík og var þar til 7 ára
aldurs. Fór þá aftur til móður sinn-
ar, sem giftist Jóhannesi Gíslasyni í
Gilsbakka hér á Patreksfirði. Átti
heima hér alla tíð upp frá því.
Hún giftist Eggert Skúlasyni sjó-
manni og áttu þau heimili sitt
lengst af á Brunnum 13. Þau eign-
uðust einn son, Jóhannes, sem er
uppkominn með eigið heimili, konu
og börn.
Sigurbjörg var væn kona, atorku-
söm og myndarleg í verkum sínum.
Barngóð og hjartahlý kona og er
hennar nú sárt saknað af eigin-
manni sínum, syni, tengdadóttur og
börnum þeirra, öðru venzlafólki og
ættingjum.
kæmi síðar í ljós. Og þegar kyrrðust
þessar hamfarir — vantaði þau
fjögur, sem hér hvíla í hvítum kist-
um. Þau fundust öll látin í helgreip-
um dauðaskriðunnar, sem loksins
nam staðar í sjónum. — Auðn og
rúst og dauða skildi hún eftir í sinni
slóð — voða og tjón — söknuð og
sorg.
Hver var sá óvinur, sem svo grátt
lék þessa friðsælu byggð?
Það sagði einn fréttamaður eftir
að hafa lýst náttúruhamförunum og
sýnt héðan verksummerki í sjón-
varpinu, þar sem sást hve^nig skrið-
an lá eins og svartur óþrifnaður á
breiðu svæði þvert í gegnum byggð-
ina — eins og óhreinindi á bjartri
ásjónu þorpsins: Langur tími mun
líða þar til grær um heilt og bættur
verður sá skaði, sem orðinn er með
ósköpum í þessu friðsæla sjávar-
þorpi.
Hann hafði rétt fyrir sér. Við
munum aldrei gleyma því, sem gerð-
ist hér 22. janúar sl. — Og lengi
Vér kveðjum hana í Jesú nafni og
biðjum henni blessunar á eilífð-
arbraut.
Svo hvíl þá rólt á hinzla bcdi
þú holdsin.s duft — en andi þinn
nú býr þar eilíf blómgast gleði
og bjartur Ijómar himinninn
hjá honum, sem kom ofanað
með eilíft líf og gaf oss það.
Drottinn Guð, lát þitt eilífa ljós
lýsa henni. — í Jesú nafni. Amen.
Valgerður Elinborg
Jónsdóttir
var fædd á Skriðnafelli á Barða-
strönd 23. janúar 1906. Voru for-
eldrar hennar Jón Guðbjartur Elí-
asson bóndi á Skriðnafelli og kona
hans Jóhanna Ebenezersdóttir.
Hún ólst þar upp og átti þar heima
alla ævi þar til fyrir fáum árum að
hún flutti hingað á Patreksfjörð
með yngsta son sinn í húsið númer
79 við Aðalstræti. — Elinborg gift-
ist Pétri Bjarnasyni frá Siglunesi.
Hann dó 1961. En Valgerður hélt
áfram búskap með sonum sínum
meðan þess var nokkur kostur. Þau
hjón eignuðust 5 börn, 4 þeirra
fylgja móður sinni og bróður til
grafar.
Valgerður Jónsdóttir var dug-
mikil bóndakona af aldamótakyns-
lóð og skilaði oft erfiðu ævistarfi
Fjórmenningarnir .<