Morgunblaðið - 02.02.1983, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983
25
Innréttingar í
Borgarspítal-
ann smíðaðar
í Eyjum
TRÉSMÍÐAVERKSTÆÐI Erlendar
Péturssonar í Vestmannaeyjum hef-
ur samið við Reykjavíkurborg um
smíði innréttinga fyrir 5. og 6. hæð
B-álmu Borgarspítalans, en þar er
um að ræða ailar innréttingar, skápa
og handrið.
Trésmíðaverkstæði Erlendar
Péturssonar var með lægsta tilboð
í verkið, upp á liðlega 1 millj. kr.,
en verkinu á að vera lokið um
mánaðamótin apríl-maí.
Aðspurður sagði Erlendur Pét-
ursson í samtali við Mbl. að 7—10
menn myndu vinna verkið, en
hann sagði að þeir hefðu áhuga
fyrir því að leita fyrir sér með
verkefni víðar en í Eyjum. „Það er
greinilegt," sagði Erlendur, „að
við erum fullkomlega samkeppn-
isfærir, bæði hvað varðar verð og
afgreiðslutíma."
Ýmsar hindr-
anir fyrir
konur að hefja
aftur störf
KVENRÉTTINDAFÉLAG fslands
hélt ráðstefnu sl. laugardag í
Reykjavík, þar sem fjallað var um
möguleika kvenna á því að koma
aftur til starfa á vinnumarkaðnum
eftir að hafa verið frá útivinnu um
langan tíma, t.d. við heimilisstörf.
Ráðstcfnan sóttu 100 konur og í
samtali við Esther Guðmundsdóttur,
þjóðfélagsfræðing og formann
Kvenréttindafélagsins sagðist hún
vera mjög ánægð með ráðstefnuna,
hún hefði verið jákvæð og mikill
áhugi væri hefði verið á henni.
Áformað er að þau 12 erindi
sem flutt voru á ráðstefnunni
verði prentuð og send ýmsum aðil-
um, bæði félögum og einstakling-
um og sveitarfélögum. Á ráðstefn-
unni kom m.a. fram að það virðist
ýmsum erfiðleikum bundið fyrir
konur að hefja aftur störf á vinnu-
markaðinum eftir hlé, og markmið
með ráðstefnunni var m.a. að
kanna hvernig hægt sé að sjá við
þeim vandamálum í framtíðinni.
^fVskriftar-
síminn er 830 33
Samkomulag kaupmanna og Vífílfells:
2% staðgreiðsluafsláttur nú
þegar og 1% í viðbót síðar
SAMKOMULAG hefur tekist milli
Kaupmannasamtakanna og Coca-
Colav-erksmiöjunnar Vífilfells, um
staðgreiðsluafslátt af vörum verk-
smiðjunnar. Verður gefinn 2% af-
sláttur fljótlega, og síðar verður
hækkaður í 3%, eða til jafns við
þann afslátt er gosdrykkjaverk-
smiðjan Sanitas veitir kaup-
mönnum, að því er Gunnar Snorra-
son, formaður Kaupmannasamtak-
anna, sagði í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins.
„Við erum ánægðir með að
samkomulag hefur tekist," sagði
Gunnar, „og væntum þess að
eðlileg viðskipti haldist, en þau
hófust aftur á miðvikudaginn.“
Gunnar sagði staðgreiðslu-
afsláttinn vera sambærilegan
við það er Sanitas veitir, og fylli-
lega sambærilegan við það sem
sælgætis- og matvælaframleið-
endur veittu. Hann sagði til at-
hugunar að Ölgerðin veitti einn-
ig afslátt, sem raunar væri þeg-
ar fyrir hendi í öðru formi, það
er lánakjörum.
Pétur Björnsson, forstjóri Víf-
ilfells, sagði í samtali við Mbl. í
gær, að Vífilfell hefði ekki viljað
ræða þessi mál við einstaka
kaupmenn eins og í fyrstu hefði
verið krafist. Þeir hefðu hins
vegar viljað ræða þessi mál við
Kaupmannasamtökin, og ágrein-
ingi hefði nú verið eytt. „Við höf-
um hins vegar ekki verið
þvingaðir til eins eða neins,“
sagði Pétur, „heldur er um það
að ræða að við gátum nú veitt
2% staðgreiðsluafslátt vegna
breyttra verðlagsreglna. Send-
um við bréf um þetta eftir fund
með kaupmönnum, sem haldinn
var hjá Verslunarráði, og sögð-
umst jafnframt geta síðar bætt
við 3. prósentinu," sagði Pétur.