Morgunblaðið - 12.03.1983, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1983
13
dagblaðið Tíminn verið þar í
fyrsta sæti. Hin síðari ár hefur
hins vegar hallað undan fæti fyrir
Tímanum, en útbreiðsla DV hefur
hins vegar aukizt. Hefur DV tekizt
að komast inn í það tómarúm, sem
Tíminn hefur skilið eftir sig á
landsbyggðinni, einkum í „fram-
sóknarkjördæmum" austan- og
NA-lands.
Eitt af því, sem mér finnst at-
hugavert við könnun Sam-
bands íslenzkra auglýsingastofa,
er að ekki skyldi vera spurt um,
hve langur tfmi fer í lestur hvers
blaðs. Auðvitað hlýtur það að
skipta höfuðmáli, hve lengi og ít-
arlega menn lesa blaðið sitt. í
janúar 1980 lét Morgunblaðið
Hagvang, sama aðila og annaðist
könnunina fyrir auglýsingastof-
urnar, gera könnun á því hvernig
menn læsu Morgunblaðið. Um
helmingur lesenda blaðsins, eða
49,9%, lásu blaðið í 20 mínútur
eða lengur á degi hverjum. „Auk
þess taldi enginn," segir í skýrslu
Hagvangs, „að hann læsi eða liti
venjulega ekki í Morgunblaðið og
einungis um 1% að lesturinn næði
ekki 5 mín. daglega." Þar sem
þessar upplýsingar liggja ekki
fyrir um hin blöðin, finnst mér
þessi könnun ekki marktækur
samanburður á auglýsingagildi
Morgunblaðsins annars vegar og
svo hinna blaðanna.
Aeins árs afmæli sameiningar
Dagblaðsins og Vísis tók DV
upp á því að birta á forsíðu blaðs-
ins tölur yfir „prentuð eintök".
Þeir, sem fylgzt hafa með þessum
upplagstölum Dagblaðsins Vísis
hafa tekið eftir því að á mánudög-
um hækkar þessi tala talsvert.
Þetta stafar af því, að á mánudög-
um er DV eitt um markaðinn. DV
byggir og að stórum hluta á lausa-
sölu, eins og raunar kemur fram f
könnuninni. Sérstaða Morgun-
blaðsins er hins vegar fólgin í því,
að það er nánast eingöngu selt tií
áskrifenda. Meðalupplag Morgun-
blaðsins í febrúarmánuði siðast-
liðnum var 45.650 eintök.
Sem dæmi um það má nefna, að
VG f Osló, sem eingöngu er selt í
lausasölu, prentaði síðastliðið
haust um 294 þúsund eintök, en
gaf upp sem daglegt upplag um
245 þúsund eintök. Þetta þýðir að
blaðið prentar 50 þúsund eintök
umfram sölu. Hvers vegna, má
spyrja? Ástæðan er sú, að þegar
blað er selt í lausasölu, er það
keypt á þessum stað í dag og öðr-
um á morgun. Til þess að vera ör-
uggt um, að kaupandi geti gengið
að blaðinu vísu, þar sem honum
hentar hverju sinni, er verulegu
magni dreift umfram sölu.
Nú hefur hlutfall áskrifenda í
sölu DV áreiðanlega aukizt frá þvf
sem áður var, en engu að síður er
um verulega lausasölu að ræða,
sem væntanlega lýtur svipuðum
lögmálum og hjá VG í Osló. Til
viðbótar má geta þess, að prentað
upplag segir litla sögu um raun-
verulegt upplag, þar sem
500—1500 blöð, sem teljari prent-
vélar telur, skemmast og fer aldrei
út úr húsi.
Eins og áður segir, fór könnun
Sambands íslenzkra auglýs-
ingastofa fram í nóvember og des-
ember. Allan októbermánuð og
fram í miðjan nóvember safnaði
Dagblaðið Vísir áskrifendum
með áskrifendagetraun, þar sem
vinningur var Opel Kadett að
verðmæti 180 þúsund krónur.
Hann var dreginn út 15. nóvember
og hlaut hann heppinn Kópa-
vogsbúi. Dagblaðið Tíminn, sem
eins og önnur blöð hefur fjallað
um könnun auglýsingastofanna,
segir í leiðara síðastliðinn þriðju-
dag „Tíminn er í sókn samkvæmt
þessari könnun þrátt fyrir að hún
hafi verið gerð áður en áskrif-
endagetraun Tímans komst í full-
an gang, en hún hefur skilað á
annað þúsund nýjum áskrifendum
síðustu mánuðina."
BENIDORM 1983: 13, APR., 11. MAÍ, 1. JÚNÍ. 22. JÚNÍ. 13. JÚLÍ, 3. & 24. ÁGÚST, 14. SEPT., 5. OKTÓBER
Pátkaferð 30. mars
Styttiö veturinn á strönd Benidorm. Hinn
þægilegi vorblær og gróandi vorsins heill-
ar íbúa Evrópu sem streyma til Benidorm
um páskana. Þessi ferö er fimmtán dagar
og kostar frá 11.900 í studio-íbúö. Dag-
flug.
Ferö eldri borgara
Sérlega þægileg fjögurra vikna ferö, ætl-
uö eldri borgurum á veröi þriggja vikna
feröa. Brottför: 13. apríl, 28 dagar. Hjúkr-
unarfræöingur veröur meö í feröinni.
Verö: 12.900 (studio-íbúö) einnig dvaliö á
hótelum meö fæði. Dagflug.
Farnar veröa tíu feröir í sumar í beinu
leiguflugi (dagflug) til Benidorm. Fjöl-
breytt gisting, ibúöir eöa góö hótel meö
fæði. Margir veröflokkar og sérstök
FM-greiöslukjör. 30. marz (páskaferö),
13. apríl, 11. maí, 1. og 22. júní, 13. júlí, 3.
og 24. ágúst, 14. sept. og 5. okt. Ferða-
kynning í Þórscafé sunnudagskvöld.
FERÐA
MIÐSTOÐIIM
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133
Leitin ad kettinum sem hvarf heldur áfram
Kattardrama hjá fjölskyldu
einni í einbýiishúsi nokkru rétt
norðan við Borlánge er orðið að
stórmáli og fylgist hálf sænska
þjóðin spennt með fjölskyldunni
og kettinum.
Húseigandinn, Tommy Eng-
ström, kveðst ekki þola ástandið
öllu lengur, þar sem fjölskyldan
er niðurbrotin. Síðan 3. janúar
sl. hefur kötturinn verið lokaður
einhvers staðar inni í húsinu.
Þann dag heyrðist nefnilega
fyrsta veinið og málmið í kisu,
en enginn veit hvaðan það kom.
Engström-fjölskyldan hefur
reynt allt sem í hennar valdi
stendur til að finna köttinn.
Greð hafa verið göt í þak og
veggi í kjallara og leitað í
skúmaskotum með sporhundi,
auk þess sem húsið hefur verið
Ijósmyndað með „varmaljós-
myndavél". Á fimmdag (10.
febrúar) rufu tveir múrarar gat
á arininn, en án árangurs. 1 gær
var svo hluti af veröndinni graf-
inn upp.
Margir efast um að nokkur
köttur sé inni lokaður í húsinu
og gerir það máliö enn óþægi-
legra, segir einn úr fjölskyld-
unni. Köttinn verður að finna
því ef hann deyr, þá verður
óbúandi í húsinu fyrir rotnun-
arlykt. Það eru allir sammála
um. Föstudaginn 11. febrúar
rannsökuðu tveir tæknifræð-
ingar húsið með háþróuðu tæki,
einhvers konar slöngusjóngleri.
Það er útbúnaður, sem hægt er
að sjá með fyrir horn inn í
dimma afkima. Þessi tilraun gaf
engan árangur. Sama dag flutti
fjölskyldan úr húsinu, uppgefin
og þreytt eftir allt tilstandið.
Húseigandinn sagðist hafa þurft
að útvega sér leynisíma eftir að
hafa fengið u.þ.b. 5.000 símtöl
síðustu vikurnar. Fólk hefði
hringt á öllum tímum sólar-
hrings.
Sem sérlegir ráðgjafar í katt-
arleitinni hefur fjöldi spámanna
og -kerlinga stigið fram í dags-
ljósið. Fyrir utan sjónvarps-
menn, tryggingamatsmenn, sér-
fræðinga, fréttamenn, ljósmynd-
ara og aðra forvitna var sérlegur
„dýraumboðsmaður" kominn á
staðinn til að stjórna leitinni
persónulega.
Tryggingafélag eitt hefur
greitt útgjöldin vegna leitarinn-
ar að týnda kettinum, eða um
25.000,- sænskar til þessa, en
föstudaginn 11. febrúar var hætt
við frekara niðurrif á húsinu. En
um sjöleytið sama dag heyrðist
enn einu sinni kattarvein. „Ein-
mitt hérna við svefnherbergis-
vegginn. Það voru ekki nema
nokkur fet á milli okkar." Svo
sagði síðasta vitnið. I dag, laug-
ardaginn 12. febrúar, heldur leit-
in að kettinum áfram og þá eru
42 dagar síðan fyrst heyrðist í
kisu með lífin 9.
Magnús Brynjólfsson,
Ippsolum.