Morgunblaðið - 12.03.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1983
17
Frakkar hafa tvær löggjafarsam-
komur, þar sem önnur er skipuð
fulltrúum sveitarstjórna og hér-
aðssamtaka.
Fullyrðingar í blöðum og fjöl-
miðlum að undanförnu, og er þá
gjarnan vitnað í velvirta fræði-
menn, um að allar lýðræðisþjóðir
hafi í reynd viðurkennt jafnan at-
kvæðisrétt, eru rangar eða ekki
skoðaðar með hliðsjón af því að
oft er um að ræða tvö löggjafar-
þing, þar sem réttur byggðarlag-
anna er sérstaklega virtur í öðru,
eins og framangreind dæmi sýna.
í Weimar-lýðveldinu, þ.e. í
Þýskalandi eftir fyrri heimsstyrj-
öldina, var komið á fullkomnu
jafnrétti atkvæða. Landið allt var
eitt kjördæmi og atkvæðisréttur
jafn. Flestir stjórnmálafræðingar
telja þetta vera einn af höfuðveik-
leikum þess stjórnkerfis, en þá
sögu þekkja allir.
Jöfnun atkvæðisréttar
Það er ljóst að of mikið mis-
ræmi um gildi atkvæða hefur ver-
ið við lýði hér á landi hin síðari ár.
Hef ég undanfarin ár barist fyrir
sanngjarnri leiðréttingu, jafn-
framt hef ég vakið athygli á því að
efla þyrfti sjálfsstjórn héraðanna
meira en gert hefur verið. Algjört
jafnrétti atkvæða hef ég alltaf tal-
ið fjarstæðu miðað við núverandi
aðstæður. Hef ég gjarnan vitnað
til Norðmanna, en þeir hafa viður-
kennt að tvö atkvæði í Osló jafn-
giltu einu atkvæði í Finnmörk.
Norðmenn viðurkenna þennan að-
stöðumun milli íbúa eftir því hvar
þeir búa. Ekki er mér kunnugt um
neinar óánægjuraddir frá Osló-
búum vegna þessa, enda þótt þetta
misvægi sé samþykkt í stjórn-
arskrá landsins. Telji Norðmenn
ástæðu til að auka vægi atkvæða í
Finnmörk á kostnað þéttbýlisins,
þá er enn meiri ástæða fyrir okkur
að gera slíkt hið sama.
Byggðaþróun hér á landi hefur
gjörbreyst á síðustu 70 árum eða
frá fyrri heimsstyrjöld. Nær
helmingur þjóðarinnar hefur sest
að á höfuðborgarsvæðinu og virð-
ist þessi þróun halda enn áfram.
Ástæður fyrir þessum fólksflutn-
ingum eru margvíslegar, en hér
skiptir samt mestu að um mikinn
mismun er að ræða í þjónustu og
ungar gætir meðal vestfirskra
sjálfstæðismanna. Sundrungin er
vatn á þeirra myllu og gefur þeim
vonir um að þeim megi takast að
fella annan mann Sjálfstæðis-
flokksins og taka sæti hans. Það
væri vissulega ömurlegt til þess að
vita ef sérframboð „óánægðra
sjálfstæðismanna" nú yrði til þess
að fleyta fulltrúa Alþýðubanda-
lagsins á Vestfjörðum inn á þing.
„Sérframboð“
fær lítinn
hljómgrunn
Það er engin tilviljun að mál-
gögn Alþýðubandalagsins og
Framsóknarflokksins, Tíminn og
Þjóðviljinn, hafa verið einkar
áhugasöm um sérframboð hinna
„óánægðu". Linnulausar frásagnir
þessara blaða hafa verið til þess
gerðar að kynda undir eldum
óánægju og sundrungar meðal
vestfirskra sjálfstæðismanna. Til-
gangurinn hefur vitanlega verið
sá að grafa undan fylgi Sjálfstæð-
isflokksins og efla Alþýðubanda-
lagið og Framsóknarflokkinn.
Frásagnir og fréttamat Tímans og
Þjóðviljans helgast fyrst og
fremst af pólitískum hagsmunum
þeirra afla er standa að útgáfu
þessara blaða. Uppsláttur þeirra á
yfirlýsingum sérframboðssinna
eru greinilegt dæmi um það.
Hvort sem mönnum líkar það
betur eða verr, er sérframboð
„óánægðra sjálfstæðismanna"
fyrst og fremst vatn á myllu and-
stæðinga Sjálfstæðisflokksins.
Tilkomu þess er fagnað í þeim
fjölmiðlum, sem berjast gegn hug-
sjónum flokksins. Vestfirskir
sjálfstæðismenn hafa vitanlega
gert sér þetta ljóst og því hefur
sérframboð hlotið lítinn hljóm-
grunn á meðal þeirra.
Bolungarvík, 27. febr. 1983,
Hinar K. Guðfinnsson.
aðstöðu fólksins á fjölmörgum
sviðum. Orsakir eru margar og
samverkandi og fátt hefur verið
gert til þess að snúa þessari þróun
við eða hamla gegn henni á raun-
hæfan hátt. Tekið skal eitt dæmi
um orsakir þessarar þróunar.
Skipakomur milli íslands og út-
landa dreifðust nokkuð á milli
landshluta fyrir síðari heimsstyrj-
öld, enda voru skipin smá og gerð
út frá mörgum stöðum á landinu.
Vegna legu t.d. Austurlands voru
skipakomur milii þess landshluta
og Evrópu og þó sérstaklega Nor-
egs mjög góðar, enda fjölgaði i
þessum landshluta mest á þeim
tíma. Eftir fyrri heimsstyrjöldina
og fram til dagsins í dag eru nær
allar beinar samgöngur í gegnum
Reykjavík. Afleiðingin er sú m.a.
að allt vöruverð er verulega hærra
úti á landsbyggðinni en í höfuð-
borginni. Fjölmörg svipuð dæmi
mætti nefna t.d. varðandi sam-
göngumál, raforkumál, menn-
ingarmál og fræðslumál og flest
alla þjónustustarfsemi í landinu.
Að mínu mati liggur ein aðalor-
sökin hjá löggjafanum að hafa
ekki nægjanlega varðveitt sjálf-
stæði héraðanna og reynt að
stuðla að þéttbýliskjörnum víðs-
vegar um landið.
Það er því mál, að við hættum
öllum stóryrðum og illdeilum og
tökum höndum saman um að
finna þjóðarsátt í stjórnarskrár-
málinu. Slíkt er hægt, ef vanda-
málin verða krufin til mergjar og
þau rædd öfgalaust og með gagn-
kvæmum skilningi.
Stjórnarskrármálið er
mál þjóðarinnar allrar
Ég fagna því að lagðar hafa ver-
ið fram tillögur að breytingum á
stjórnarskránni, sem nú eru til
umræðu á Alþingi. Þessar tillögur
gera ekki ráð fyrir verulegum
brcytingum á henni og ég tel þær
ekki nægjanlegar og mun taka
þær til sérstakrar umfjöllunar
fljótlega. Engu að síður eru þær
ágætur umræðugrundvöllur og
mörg nýmæli horfa til bóta. Nú-
verandi stjórnarskrá er lítið
breytt frá 1874, en hún hefur
reynst vel og verið hornsteinn lýð-
ræðis og mannréttinda hér á landi
frá þeim tíma til dagsins í dag.
Ákveðið hefur verið að fresta
endanlegri afgreiðslu þeirfa á Al-
þingi og ber að fagna því. Ljóst er
samt að verulegar breytingar
verða samþykktar á kjördæma-
skipuninni til jöfnunar atkvæðis-
réttar og það ekki óeðlilegt, ef
löggjafinn jafnframt tryggir
sjálfstæði sveitarfélaganna og
bætir aðstöðuna á raunhæfan
hátt, en því verkefni er ólokið.
Eðlilegra hefði verið, að
kjördæmabreytingin hefði fengið
málefnalegri og ítarlegri umræðu
og frekari jöfnun atkvæða verður
að bíða uns málefni dreifbýlisins
hafa verið stórbætt. Að lokum
legg ég áherslu á að stjórnar-
skrármálið er og verður mál þjóð-
arinnar allrar.
Seyðisfirði, 7. mars 1983,
Sigurður Helgason.
ALLT í STL
Hægt er aö fá nær allar innréttingar I sama „Stíl“ eldhús - baö - skápa í anddyri og
svefnherbergi - skilveggi - hurðir og meira aö segja stigahandrið. Hvað viltu meira?
Þessar innréttingar eru svo vandaöar og sérstæðar aö margir eru ekki lengi aö ákveöa sig,
ef þeir á annaö borö, eru aö kaupa innréttingar. Þú verður að gera þér ferð í Borgartún 27 til að
sjá þessar glæsilegu innréttingar, sem hannaðar eru af
Birni Einarssyni, íslenskum innanhússarkitekt.
SÝNINGARSALUR OPINN UM HELGINA Laugardag kl. 10-5 og sunnudag kl. 2-5
Gódan daginn!