Morgunblaðið - 12.03.1983, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1983
33
gráðu í bókmenntum og haidið til
Toronto þar sem hún vonar að bíði
hennar glaumur stórborgarinnar,
kennarastaða og álitlegur maður.
Unga konan, sem er um þrítugt, er
ekki fyrr stigin inn fyrir dyr há-
skólans í Toronto að þrír karl-
menn taka að keppa um hylli
hennar. Armstrong, nemandi, yrk-
ir til hennar ástarljóð, John
Truman, samkennari, hrasar á
eldhúsgólfi í ölvímu í heimboði
hjá Willy og yfirgefur hana í leiðu
skapi og þá er kominn á staðinn
Archie, prófessor við háskólann,
ekkjumaður rúmlega sextugur,
sem tekur að sýna henni áhuga.
Hann kennir stúlkunni ýmis und-
irstöðuatriði í kökubakstri og ást-
in fer að dafna. Prófessorinn biður
stúlkunnar og allt sýnist ætla að
taka farsæla stefnu eða þar til
vinurinn verður bráðkvaddur þeg-
ar hann bregður sér í ferðalag frá
Toronto til Florida til systur sinn-
ar. Dapurlegur endir og slæmur.
Ég hefði viljað sjá veglega brúð-
kaupsveislu, mikið af blóma-
körfum og freyðandi kampavín á
borðum.
Sunnudagur 6. mars:
Sigmar B. Hauksson stjórnaði
þætti í útvarpinu sem hét „Kaup-
mannahöfn — París Norður-
landa“, og var sendur út klukkan
tvö eftir hádegi. Sverrir Hólm-
arsson, menntaskólakennari, sem
dvelur í vetur við nám í Kaup-
mannahöfn, sagði frá menningar-
lífi í þessari ljúfu borg við sundin,
frá leikhúslífi og jazzlífi sem er
með miklum blóma í borginni og
eru það ekki ný tíðindi fyrir okkur
Vernharð Linnet. Fyrir tæpum
áratug sáum við í Höfn marga
stórsnillinga jazzins og urðum
fyrir slíkum áhrifum nótt eina að
við munum aldrei gleyma því er
Dexter Gordon, tenórsaxófónleik-
ari, lék ásamt hljómsveit af vöru-
bílspalli í miðborginni og gerði
allt vitlaust, og menn og dýr 1
nágrenni tóku þátt í gleðinni.
Bent Chr. Jakobsen, sendikenn-
ari við Háskóla íslands, spjallaði
um byggingarlist í Kaupmanna-
höfn, bjórkrá, vaxmyndasafnið,
Kristjaníu og Istedgade, þar sem
pútnahúsin eru á hverju götuhorni
og viðskiptin sögð mikil.
Einn af leiðtogum sælkera á ís-
landi, Jónas Kristjánsson, rit-
stjóri DV, flutti skemmtilegt er-
indi um veitingahúsarekstur í
Kaupmannahöfn. „Spunarokkur-
inn“ er ekki langt frá járnbrauta-
stöðinni. Úrvalsmatsölustaður að
dómi Jónasar, á matseðli ofnsoðin
lúða í appelsínusósu, franskir
ostar og annað lostæti. Jónas'er
lítið fyrir hamborgara og pizzur.
Þegar hann dvelur í Kaupmanna-
höfn leitar hann uppi staði sem
selja stórsteikur og eru með vín á
boðstólum sem sælkerar geta sætt
sig við.
Þátturinn um Kaupmannahöfn,
París Norðurlanda, var góður,
bæði áheyrilegur og fróðlegur.
Mánudagur 7. mars:
Ungur maður, Þorvaldur Þor-
valdsson, trésmiður, sem af og til
skrifar kjallaragreinar í Dag-
blaðið-Vísi og á það ömurlega
áhugamál að stofna kommúnist-
aflokk á íslandi, var með erindi í
útvarpi fyrir miðnætti og fylgdi
því draugagangur. Erindið kallaði
hann „í minningu Stalíns". Þor-
valdur nefndi þennan harðstjóra
og illmenni „fjallaörninn", og er
það ekki ósniðug nafngift. Fjalla-
ernir eru grimmir fuglar sem
leggjast á dýr og skepnur og
myrða.
Þorvaldur þarf endilega að
koma því í verk að þýða útvarpser-
indið fyrir vini sína í Albaníu.
Pilturinn er haldinn frumlegu
ofstæki. Þjóðskjalasafnið eða önn-
ur álíka söfn ættu að verða sér úti
um segulbandsspóluna með út-
varpserindi Þorvalds trésmiðs
þannig að komandi kynslóðir fái
að kynnast hinu kostulega erindi.
Marxistar á íslandi hafa eignast
nýjan leiðtoga.
Þriðjudagur 8. mars:
Nýr bresk-bandarískur fram-
haldsmyndaflokkur í sex þáttum,
gerður eftir samnefndri njósna-
sögu John le Carrés um George
Smileys, byrjaði klukkan tuttugu
fjörutíu. Fyrsti þáttur, „Teflt til
sigurs“, var spennandi frá upphafi
til enda.
Bretar hafa lengi verið þekktir
fyrir gerð frábærra sakamála-
þátta og þessi þáttur er ekki síðri
mörgum sem áður hafa verið
sýndir hér í sjónvarpinu. Alec
Guinness í hlutverki Smileys
spæjara er minnisstæður. Hann er
í fremstu röð leikara sem uppi
hafa verið og snilldartúlkun hans í
fjölmörgum hlutverkum ógleym-
anleg.
Miðvikudagur 9. mars:
„Áfangar", tónlistarþáttur í
umsjá Asmundar Jónssonar og
Guðna Rúnars Agnarssonar, hef-
ur verið á dagskrá útvarpsins í
nokkur ár eða síðan á miðjum átt-
unda áratugnum. Þættir þeirra fé-
laga eru ávallt athyglisverðir.
Umsjónarmenn eru vel að sér um
tónlist. í þessum þætti, sem hófst
klukkan átta um kvöldið og stóð
yfir í rúman hálftíma, voru kynnt-
ar ýmsar nýjar plötur, rokkmúsík
og framúrstefnujazz voru aðallega
á dagskrá og spilað lag af óút-
kominni plötu hljómsveitarinnar
Þeys sem væntanleg er á markað
með vorinu.
Ólafur Ormsson
Framboðslisti Vöku til stúdentaráðs
hMK
Helgi Már Haraldsson og Jóna Guðrún Ásgeirsdóttir við nýja bflinn sem
ætlaður er sem leigubfll fyrir fatlað fólk í hjólastól.
Síminn er 71215 og nú hafa
fatlaðir fengið leigubfl
stofnsett sérhæfð fyrirtæki til að
veita fötluðu fólki þá þjónustu,
sem opinberir aðilar veittu ekki.
Hér hefur verið starfandi á veg-
um Reykjavíkurborgar ferðaþjón-
usta fyrir fatlaða í fjögur ár, og
höfum við bæði verið þar starf-
andi frá upphafi. Hefur hún
breytt allri aðstöðu fatlaðs fólks
við að komast leiðar sinnar, reglu-
legar læknisferðir, þjalfun og
fleira. Það tók nokkurn tíma áður
en fólk gerði sér þann möguleika
ljósan og voru aðeins farnar 90
ferðir fyrsta mánuðinn, nú eru
farnar 120 ferðir á dag og alls
voru farnar 20.000 ferðir á síðasta
ári. Þegar ferðaþjónustan hófst
var til dæmis aðeins einn einstakl-
ingur keyrður í vinnu á dag en nú
eru farnar 50 ferðir á dag með
fatlað fólk í vinnu eða í skóla.
Verð á ferðum ferðaþjónustunn-
SKYNDIFERÐIR fatlaðra heitir
fyrirtæki sem Helgi Már Haraldsson
og Jóna Guðrún Asgeirsdóttir hafa
nýlega stofnað. Er hér um að ræða
sérstakan leigubflaakstur sérhæfðan
fyrir fatlað fólk í hjólastól. Þau hafa
keypt hingað bfl af gerðinni Volks-
wagen Microbus og gert á honum
breytingar. Hefur hann nú verið út-
búinn með festingum fyrir tvo hjóla-
stóla og sætum fyrir fylgdarfólk og
rennibraut og breiðar hurðir auð-
velda akstur inn og út úr bifreiðinni.
„Fyrirmyndina sækjum við til
Kaupmannahafnar og Stokkhólms
þar sem hliðstæð fyrirtæki eru
starfrækt," sögðu þau Jóna og
Helgi í viðtali við Mbl. „Það sýndi
sig að á almennum leigubílastöðv-
um gáfust bíistjórar upp á að
sinna slíkum akstri samhliða al-
mennum leiguakstri og voru
Óli Björn Kárason,
viðskiptafræði.
Stefanía Oskarsdóttir,
lögfræði.
Karl Konráð Andersen,
læknisfræði.
Kalmansson,
viðskiptafræði.
Páll Björnsson, sagnfræði.
Rúna Hauksdóttir, lyfjafræði. Jakob Bjarnason, verkfræði. Brynjar Nielsson, lögfræði.
Halldóra Kristjánsdóttir,
lögfræði.
Omar Benediktsson,
viðskiptafræði.
ar er það sama og fargjöld stræt-
isvagna og þarf að panta ferðir
með dags fyrirvara, og fyrir helg-
ar þarf að panta á föstudegi.
Það er ljóst að þessi fyrirvari
getur komið sér illa fyrir fatlað
fólk í hjólastólum sem vill fara
eitthvað án fyrirvara. Það er
þessvegna sem við höfum hætt
störfum hjá ferðaþjónustunni til
að geta aukið möguleika fatlaðs
fólks á ferðum. Við munum starfa
sem leigubíll og er taxti okkar
15% hærri en venjulegra leigu-
bíla, það er 10% lægra en ef leigu-
bílastöðvarnar mundu keyra
svona bíl á sértaxta sínum.
Við viljum koma á framfæri
þakklæti til félagsmálaráðherra
og fjármálaráðherra fyrir góða og
skilningsríka fyrirgreiðslu í formi
styrks, einnig sýndi samgönguráð-
herra skilning með veitingu leyfis
fyrir fyrirtækinu.“
Skyndiferðir fatlaðra eru til
húsa í Leirubakka 22. Pöntunar-
sími er 71215 verður í talstöðvar-
sambandi við bifreiðina. Þeim
fötluðu bifreiðaeigendum sem
þurfa á ferðum eða aðstoð að
halda er bent á FR-númerið er
6636.
Símatími er 7.30—21.00 mánu-
daga til fimmtudaga, en um helg-
ar frá 7.30 og fram á nótt, fyrir
fatlaða sem eru í heimsóknum, á
skemmtistöðum eða eru seint á
ferðinni af öðrum orsökum eru.
Skyndiferðir fyrir fatlaða munu
góðfúslega veita þjónustu utan
þessa tíma ef beðið er um.
m.e.
Bökamarkaöurinn
Góóar bækur
Gamalt veró
HÚSGAGNAHÖLLINNI, ÁRTÚNSHÖFÐA
Opió í dag, kl 9 -18
næst síóasti dagur