Morgunblaðið - 23.03.1983, Page 7

Morgunblaðið - 23.03.1983, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983 7 AÐAL- FUNDUR félagsins verður haldinn í Átthagasal, Hótel Sögu, mánudaginn 28. marz kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Tekin ákvörðun um byggingaframkvæmdir aö félags- miðstöö viö Víðivöllum. Lagabreytingar vegna íþróttadeildar. Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofu félags- ins dagana 21.—25. marz kl. 13—18. Félagar eru minntir á að greiöa ársgjöld fyrir aöal- fund. Árshátíð félagsins veröur að Hótel Sögu, föstudaginn 25. marz. Hestamannafélagiö Fákur. Nýkomið Úrval af dömuhúfum. Feldskerinn Skólavörðustíg 18, sími 10840. Skrifborð Efni: Furufilma Stærð: 120x55, hæð 188 cm. Hillur — Ljós — Korktafla. Verð: Afborgun Kr. 3.596.- Staögreitt Kr. 3.417.- Sendum um land allt. fp árumarkaðurinn hf. múla 1 A. Sími 86112. mwm Framkvæmdastjori Skrifstotustjori: Jóha Ritstjórar: Pórarinn t V. Ólafsson. I Umojónarmaóur I Þriðjudagur 22. mars 1983 67. tölublað - 67. árgangur forsætisrAðherra FER EKKI FRAM ■ „Að uiulanfömu hefur mér þeim ákvörðun sína i fvrradae. Enn allra veðra von ■ Sú ákvörðun Gunnars Thoroddsen forsætisráðherra. að gefa ekki kost á sér til framboðs til alhinaiviívsninon Steingrímur Hermannsson: „Hefur áhrif á kosn- ingabaráttuna” ■ „Ég hélt af ýmsum ásfæd- um ad Gunnar Tboroddsen gerði við Sjálfstædisflokkinn í sjónvarpsumræðum ffá Al- Tíminn setur upp hundshaus Fýlan bókstaflega lekur af forsíðu og forystugrein Tímans í gær vegna ákvörðunar Gunnar Thoroddssen, forsætisráðherra, að fara ekki í framboð gegn sínum gamla flokki, Sjálfstæðis- flokknum. „Ég hélt af ýmsum ástæðum að Gunnar Thoroddsen ætlaði fram,“ sagði Steingrímur Hermannsson í forsíðuviðtali, og bætti við: „Þessi ákvörðun forsætisráðherra hefur aö sjálfsögðu veruleg áhrif á kosningabaráttuna. Mér finnst alveg Ijóst að ríkisstjórn sú sem nú situr hljóti að segja af sér strax að loknum kosningum.“ Hálmstrá eða hugarfóstur Vonbrigöi framsóknar- manna vegna ákvörðunar forsætisráðherra, sem skvja himinn Tímans í gær, eru fyrirferðamikil á síðum blaðsins. Engu aö síður tekst leiðarahöfundi Tím- ans að finna sér huggun harmi gegn. Hann vitnar til yfirljsingar, sem „fylgis- menn Gunnars hafa sent frá sér,“ hvar líta megi gagnrýni á „flokksræðið" í Sjálfstæðisflokknum, sem vantanlega kemur fram í ákvörðunum framboðslista með prófkjörum og þátt- töku tuga þúsunda fólks á hcildina litið. Og leiðarahöfundur Tímans kemst að eftirfar- andi niöurstöðu, sér til óblandinnar ánægju, að því er virðist: „Þrátt fyrir ákvörðun forsætisráðherra virðist samt allra veðra von innan Sjálfstæðisflokksins og sættir ekki tekizt, hvað sem síðar kann að verða." I»eir eiga samleið í því, Tíminn og l'jóðviljinn, að byggja framavonir flokka sinna í komandi kosning- um fremur á hugsanlegum ágreiningi eða átökum inn- an Sjálfstæðisflokksins en „ágæti" eigin flokka, fram- boðslista eða stefnumála! I*eir reiða sig fremur á hugsanlegan óvinafagnaö innan Sjálfsta'ðisflokksins en aðdráttarafl eigin kennisetninga og stcfnum- iða. hetta er eftirtektar- vcrt, bæði fyrir sjálfstæðis- fólk og aðra kjósendur í landinu. Vonarglæta Þjóðvilja- ritstjórans Vesturland, blað vest- flrzks sjálfstæðisfólks, fjallar í nýlcgum leiðara um „sérframboð" í Vest- fjarðakjördæmi, sem kepp- ir um svipað fylgi og fram- boðsllsti Sjálfstæðisflokks- ins. Blaðið leiðir að því Ifk- ur að Kjartan Ólafsson, rit- stjóri Þjóðviljans, sem skipar efsta sæti á fram- boöslista Alþýðubandalags- ins í Vestfjarðakjördæmi, byggi vonir sínar um kjör- dæmakosningu einkum á þessu sérframboði, sem kunni að dreifa atkvæðum borgaralega sinnaðs fólks eitthvað — með þeim af- leiðingum, að Þjóðviljarit- stjórinn smjúgi inn á Ak þingi. Hér er aftur komið að þeim meinta óvinafagnaði í Sjálfstæðisflokknum, sem bæði Tíminn og Þjóðviljinn hafa lengi séð fyrir hug- arsjónum sínum, sem bjarghring viðkomandi flokka í komandi þing- kosningum. Þeir óttast ekkert meir en að kosn- ingarnar snúizt um þá arf- leifð fráfarandi ríkisstjórn- ar, sem vísað hefur verið í dóm þjóóarinnar með þing- rofl og þingkosningum. Sá valkostur er þeim litlu hugstæðari að kosningarn- ar snúizt um stefnumið þeirra sjálfra. Þess vegna er mergurinn málsins í hugarheimi þeirra, að blása að sundrungu í sterkasta stjórnmálaafli þjóöarinnar, Sjálfstæöisflokknum, sem þjóðarhagsmunir krefja að komi sterkur og samstilltur út úr væntanlegum þing- kosningum í endaðan næsta mánuð. Tapið á rík- isfyrirtækjum Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra, upplýsti á Alþingi. I. marz sl„ að rekstrartap járnblendiverk- smiöjunnar á Grundar- tanga hafl verið 64.4 m.kr. 1981 og að áætlað tap 1982 væri 170 m.kr. Tapið var ekki sízt fjármagnað með erlendum lántökum. Sama máli gengdi um ýmis fyrir- tæki, sem ríkið á: áburðar- verksmiðju, sementsverk- smiðju, kísiliöju o.fl. Ríkis- útgerðin var öll á erlend skuldamið. l>essi tapútgerð öll hlýt- ur að vekja ýmsar spurn- ingar. m.a. þá, hvern veg væri komið við atvinnuör- yggi starfsmanna ÍSAL (og skattheimtu á almenning), ef álverið hefði alfarið ver- iö eign íslenzka ríkisins 1 ráðherratið Hjörleifs Gutt- ormssonar? „Okkur blöskrar hvernig unnið er að stjórnarskrármálinu Samtök um jafnrétti milli landshluta stofnuð: — segir Pétur Valdimarsson STEFNT er að því að stofna lands- samtök áhugamanna um jafnrétti milli landshluta í öllum kjördæmum landsins í lok mánaðarins, en slík- um félögum hefur þegar verið komið á fót á Akureyri, Selfossi, Hvamm- stanga og víðar. Þetta kom fram hjá Pétri Vald- imarssyni, forsvarsmanni samtak- anna á Akureyri, í samtali við Mbl. „Ástæðan til stofnunar þess- ara félaga er sú, að okkur blöskrar hvernig unnið er að kjördæma- málinu eða kosningarétti manna, en einnig viljum við vekja athygli á misskiptingu þjóiiustu milli landshluta. T.a.m. er hitakostnað- ur í Reykjavík hlægilegur miðað við upphitunarkostnað annars staðar á landinu," sagði Pétur, er hann var spurður um tildrögin að stofnsetningu samtakanna. „Okkur ofbýður einnig hvernig staðið hefur verið að stjórnar- skrármálinu. Það er út í hött þeg- ar um stjórnarskrárbreytingar er að ræða að þingmenn setji lög um sjálfa sig án nokkurs samráðs við þjóðina,“ sagði Pétur. Hann sagði ennfremur að það kæmi mörgum spánskt fyrir sjónir að stjórn- arskrárnefnd gæti ekki gefið upp- lýsingar um þau lönd sem hún helst miðar við um jöfnun kosn- ingaréttar hér. Pétur kvað t.d. allt aðrar reglur gilda um kosninga- rétt í Danmörku en hér á landi. I Svíþjóð væri t.d. ekki um jafnan kosningarétt að ræða, og svo væri einnig um Noreg, enda þótt byggð- arstefna væri þar ráðandi og mikil vaiddreifing. Pétur var næst spurður að því hvort félögin um jafnrétti milli landshluta ætluðu að vinna mikið saman. „Já, að sjálfsögðu. Við stöndum að þessu til að gera þjóðinni kleift að starfa sameiginlega að þessum málum og við vonumst einnig til þess að eiga samstarf við bæði Reykvíkinga og Reyknesinga. En við leggjum á það áherslu að þetta er ekki flokkspólitískt mál heldur vænt- um við stuðnings úr öllum flokk- um. Enda verður þjóðin að læra að taka tillit til hvers annars, en ekki aðeins að taka til greina ákvarð- anir og kröfur meirihlutans," sagði Pétur að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.