Morgunblaðið - 23.03.1983, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983
15
glæsilegt met í spjótkasti fyrir
nokkrum dögum. Þá var Þráinn
Hafsteinsson að setja glæsilegt
met í tugþraut. Allt er þetta
íþróttafólk í fremstu röð sem við
getum verið stolt af.
Þeir íþróttamenn sem skara
fram úr öðrum, verða þekktir í
heimalandi sínu. Þeir eru æskunni
hvatning og hún hefur þá að leið-
arljósi í líkamsrækt og heilbrigð-
um leik. Æskan tekur sér afreks-
mennina til fyrirmyndar. Nú eru
innan vébanda íþróttahreyfingar-
innar um 75 þúsund manns, eða
tæplega þriðjungur þjóðarinnar.
Og víst má telja að íþróttir tengist
svo til hverju heimili í landi voru.
Gildi íþrótta er ekki allt fólgið í
sigrum. í íþróttum öðlast ungt
fólk féiagsþroska og einbeitingu,
lærir að temja skap sitt og taka
mótlæti sem meðbyr. Þar verður
hver einstaklingur að leggja sig
fram í þágu liðsheildar, en jafn-
framt að treysta á samherja og
samstarf. íþróttamaðurinn, æsku-
maðurinn, stælir líkama sinn,
skapgerð og andlegan þroska og
fátt er ungu fólki heilbrigðara en
ástundun íþrótta, hvort sem það
er fyrir ánægjuna eða keppnina.
Hvort tveggja fer þetta þó oftast
saman, sem betur fer.
Iþróttir snúast mikið um sigra
og ósigra. Keppnin er hvatn-
ingin en sigurinn uppskeran. Þeg-
ar á allt er litið á þjóðfélagið
íþróttunum mikið að þakka. Þær
örva æskuna til líkamsræktar,
efla félagskennd og skyldur við
aðra en sjálfa sig og þær setja svip
sinn á lífið og tilveruna.
Þeim sem ekki fylgjast með
íþróttum kann að þykja með ólík-
indum hvílíkt erfiði og ástundun
íþróttamenn og -konur leggja á
sig, og jafnframt þeir sem starfa
með íþróttafólkinu. íþróttafólkið
æfir oft sex sinnum í viku og oft
tvisvar á dag. Stjórnarmenn í
íþróttafélögunum leggja nótt við
dag til að undirbúningur, fjárhag-
ur og starfsemin öll geti verið í
sem bestu lagi.
í íþróttafélögunum þykir þetta
sjálfsagður hlutur. Þar er starfað
af lífi og sál, og sú ræktarsemi og
sá áhugi sem þúsundir manna
sýna félögum sínum er til mikillar
fyrirmyndar. Og hvað er æski-
legra en að beina starfsorku sinni
að æskulýðsmálum, heilbrigðu
íþróttalífi, þar sem menn blanda
saman geði í metnaðarfullum leik.
Á því er enginn vafi, að áhugi á
íþróttum og útilífi vex með ári
hverju og er það vel. Það er ekki
aðeins í keppnisgreinum sem iðk-
endum fjölgar, heldur leynir sér
ekki að fjöldinn allur stundar
íþróttir og útilíf sér til heilsubótar
og ánægju og því ber að fagna.
En um leið og skynsamlega iðk-
aðar íþróttir eru hverjum manni
hollar og heilbrigðar, eiga þær
líka að vera mannbætandi. íþrótt-
ir og íþróttafélög eiga að vera
æskulýðnum og íþróttafólki öllu
sú aflstöð sem ekki aðeins veitir
þjálfun og góðan líkamsþroska,
heldur kennir jafnframt dreng-
skap og góðar dyggðir, svo að
íþróttafólkið megi verða sem nýt-
astir þjóðfélagsþegnar. Við meg-
um aldrei gleyma gildi íþrótta
fyrir æskuna og óvaxna kynslóð.
Fjórar helstu sprauturnar í uppsetningunni á Guðrúnu. Frá vinstri: Messíana
Tómasdóttir, sem gerir leikmynd og búninga, Þórunn Sigurðardóttir, höfund-
ur og leikstjóri, Jón Ásgeirsson, höfundur tónlistar, og Davíð Walters, sem
annast lýsingu.
kvikmyndatónlist, ætluð til þess
að undirstrika tilfinningaleg
samskipti sögupersónanna."
Það er David Walters sem ann-
ast lýsingu í Guðrúnu, en David
starfar nú í fyrsta skipti hjá
Leikfélagi Reykjavíkur. David
hefur á undanförnum árum getið
sér gott orð sem ljósahönnuður í
ýmsum sýningum í Þjóðleikhús-
inu, hjá Leikfélagi Akureyrar,
Nemendaleikhúsinu og víðar.
Sjálft sviðið er það sama leikrit-
ið út í gegn svo lýsingin gegnir
því hlutverki að túlka umhverf-
isbreytingar.
Sem fyrr segir er frumsýning-
in á Guðrúnu annað kvöld, en
önnur sýning er á föstudags-
kvöld og þriðja sýning á sunnu-
dagskvöld.
Stykkíshólmur:
Stórhríð
hamlar
umferð
Stykkishólmi, 21. mars.
UM SÍÐUSTU helgi geysaði hér
stórhríð á Snæfellsnesi. Áætlunar-
bifreiðin til Stykkishólms, sem fór
klukkan eitt úr Reykjavík, komst á
mitt Kerlingarfjall, en varð þar að
snúa við. Sagði bílstjórinn að hríðin
hefði verið þar svo svört, að hann
hefði ekki gert sér grein fyrir hvað
langt hann hefði komist á fjallið, né
heldur hvernig hann hefði komist til
byggða, en það tók hann um 5
klukkutíma.
Um nóttina var svo gist í Lauga-
gerðisskóla, en áætlunarbifreiðin
til Ólafsvíkur komst að Bláfeldi í
Staðarsveit, en þar gisti fólkið um
nóttina. í gær lagði svo bíllinn af
stað frá Laugagerði og fór Heydal.
Var þá veðrið orðið skaplegra, en á
miðjum Heydal bilaði bifreiðin og
varð því að senda aðra bifreið til
þess að koma farþegunum á leið-
arenda. Þegar þeir komu í Stykk-
ishólm höfðu þeir verið rúman sól-
arhring á ferðinni og er langt síð-
an slíkt hefur komið fyrir hér á
Nesinu.
Ferðin frá Reykjavík til Stykk-
ishólms í dag féll svo niður vegna
veðurofsa. — Fréttaritari
Þúsund lestir
af lakki til
Rússlands
NÝLEGA hefur veriö gerður samn-
ingur við Sovétmenn, fyrir milli-
göngu herra Boris L. Radivilov
viðskiptafulltrúa þeirra hér, um sölu
á 1000 tonnum af hvítu lakki.
Afhending skal fara fram á
næstu þrem mánuðum. Máln-
ingarverksmiðjurnar Harpa hf. og
Sjöfn skipta þessum samningi á
rnilli sín að jöfnu. KrélUtilkynnin*
'vÁ'Síll m Plmrgi Tk nfrlnttfr
S Metsölublad ( 00 á hverjwn degi!
Eldra steinhús meö tveimur íbúðum
hs Kjallari og 2 hæöir, ca. 70 fm grunnflötur á rólegum stað viö
'i Bjarnarstíg. Laust eftir samkomulagi. Ekkert áhvílandi. Til sýnis
5 eftir samkomulagi.
Benedikt Halldórsson sölustj.
Hjalti Steinþórsson hdl.
Gústaf Þór Tryggvason hdl.
I
Stekkjarhvammur
Hafnarfirði raðhús
Til sölu tvö glæsileg raöhús ásamt innbyggöum bíl-
skúr. 150 og 160 fm. Húsin afhendast fokheld, frá-
gengin aö utan, meö gleri í gluggum. Einnig mögu-
leiki á aö skila húsunum tilbúnum undir tréverk
Ákveöin sala. Verð 1500 þús.fokhelt.
Huginn fasteignamiðlun
Templarasundi 3
sími 25722, 15522.
Steinhús við Fjólugötu
Húsið er vel byggt og viðhald hefur verið eölilegt. .
Grunnflötur hússins ca. 95 fm. Á 1. hæðinni eru 3 >
stofur, eldhús, wc og inngangur. Á efstu hæöinni
eru 4 til 5 herb., baðherb. og svalir. Gott geymslu-
ris er í íbúöinni. í kjallaranum er þvottahús,
geymslur og íþúð. Stór ræktuð lóö. Bílskúrsréttur.
Ath.: Frábær staösetning. Mögulegt að lækka
útb. ef eftirstöðvar verða verðtryggöar. Teikn-
ingar á skrifstofunni.
s 85009 — 85988
f
Dan V.S. Wiium, lögfraaóingur.
Ármúia 21. Ólafur Guðmundsson sölum.
Xa^^mmmm—^^mmmmm—mamm—mi^
Vesturbær
glæsileg hæð
Til sölu er glæsileg efri hæö ásamt herb. í risi og
sameiginlegri snyrtingu, samt. ca. 170 fm í þríbýli.
Nýtt gler í gluggum. Nýtt eldhús. Mjög vönduð og
falleg eign í toþþstandi. Bílskúrsréttur. Suður svalir.
Upplýsingar aöeins á skrifstofu.
Huginn fasteignamiðlun,
Templarasundi 3,
sími 25722, 15522.
28444 28444
Austurbær Hólmgarður
3ja herb. um 80 fm íbúö á 2. hæö í nýju fjölbýlishúsi. Suöursvalir.
Sameign í sérflokki. Vönduö íbúð. Verö 1200—1250 þús.
Vesturbær Hagar
Neðri hæö í þríbýlishúsi um 130 fm auk einst.íbúöar i kjallara.
Hæðin sk. í 3 sv.herb., 2 stofur o.fl. Endur.nýjuö eign, m.a. gler og
gluggar, teppi o.fl. Vönduö eign á besta staö í Vesturbænum.
Kárastígur
4ra herb. um 90 fm íbúö i risi. Steinhús. Góö íbúö lítið undir súö.
Verö aðeins 1 millj.
Tjarnarbraut Hf.
3ja herb. um 90 fm íbuö á 1. hæö í þríbýlishusi. Nýtt gler, teppi o.fl.
Góð íbúð á besta staö. Verö 1100—1150 þús.
Þessar eignir eru allar í beinni sölu.
Vantar m.a.
3ja—4ra herb. íbúð i Fossvogi eða nágr. Góðar gr. í boði og rúmur
afh.tími.
Einbýli eöa raöhús í Hafnarfirði eöa Garöabæ. Æskilegt aö hafa
tvöf. bílskúr. Þarf ekki aö vera fullgerð eign.
Höfum kaupendur að öllum geröum fasteigna.
HÚSEIGNIR
28444 r“£“ & skip