Morgunblaðið - 23.03.1983, Page 16

Morgunblaðið - 23.03.1983, Page 16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983 Sameinaðir til sigurs Auknar sigurlíkur Sjálfstæðisflokksins — eftir Friðrik Soph- usson, varaformann Sjálfstœðisflokksins Umdeildu stjórnarsamstarfi er senn lokið. Óþarfi er að rifja upp aðdraganda stjórnarsamstarfsins, en þegar Steingrímur Hermanns- son gerði orð Tryggva Þórhallsson- ar að sínum og sagði, að allt væri betra en íhaldið, brá hann snöru Alþýðubandalagsins um höfuð sér og þar situr hún enn. Steingrímur hefur löngum þótt nokkuð lausmáll og fljótfær og landsfræg er lýsing Ólafs Ragnars á samstarfsmanni sínum, þegar hann sagði, að „blaðr- ið í Steingrími væri mesta efna- hagsböl þjóðarinnar". Víst er, að af- staða formanns Framsóknarflokks- ins fækkaði möguleikum í stjórn- armyndunartilraunum, sem í hönd fóru, og færði Alþýðubandalaginu miklu sterkari stöðu en atkvæða- magn og þingfylgi ætla því. Stjórn- armyndunin tók tvo mánuði og lauk ekki fyrr en Gunnar Thoroddsen myndaði ríkisstjórn með eftir- minnilegum hætti, sem ekki verður rakið hér. Ætlunin var að kljúfa „íhaldiö“ Ljóst er, að eitt meginmarkmið andstæðinga Sjálfstæðisflokksins með þátttöku í ríkisstjórninni var að kljúfa flokkinn, sem frá því hann var stofnaður hefur verið stærsta stjórnmálaafl þjóðarinnar. Báðir stjórnarflokkarnir, Framsóknar- flokkurinn og Alþýðubandalagið, þekkja af eigin raun, hve afdrifa- ríkt það getur reynst þegar flokkar klofna og hópar manna yfirgefa þá og mynda nýjan flokk eða ganga til samstarfs við aðra flokka. And- stæðingar Sjálfstæðisflokksins hafa hins vegar misreiknað sig illi- lega, þegar þeir töldu sig hafa klof- Ákvörðun Gunnars og yfiriýsingar Friðjóns og Pálma staðfesta samstöðuna í Sjálfstæðisflokknum og auka sigurlíkur hans. Kjósendur hafna einingu um það neyðarástand, sem Alþýðu- bandalagið hefur leitt yfir þjóð- ina. ið flokkinn, því að smám saman hefur það skýrst, að sjálfstæðis- menn eru einhuga um að ganga sameinaðir til kosningabaráttunn- ar. Sigurlíkurnar hafa aukist Friðjón Þórðarson og Pálmi Jónsson hafa báðir gefið yfirlýs- ingar þess efnis, að núverandi stjórnarsamstarfi ljúki strax að kosningum loknum, og þeir hafa að undanförnu unnið að mótun kosn- ingastefnuskrár við hlið annarra frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins. Gunnar Thoroddsen forsætisráð- herra hefur ákveðið að verða ekki í kjöri. Hann lýsti yfir afdráttarlaus- um stuðningi við Sjálfstæðisflokk- inn fyrir sveitarstjórnarkosn- ingarnar á sl. vori og undirritaður er illa svikinn, ef hann leggur ekki sitt af mörkum til að gera hlut flokksins sem mestan í kosninga- baráttunni. Þrátt fyrir atburði síð- ustu þriggja ára er litið á Gunnar sem eindreginn sjálfstæðismann og hálfrar aldar stjórnmálaferill hans er svo samslunginn sögu Sjálfstæð- Fallkandidat í varaformanns- kjöri Alþýðuflokksins er ekki vænlegur kostur til að koma á festu í íslenskum stjórnmálum. isflokksins að ekki verður í sundur slitið. Yfirlýsingar Friðjóns og Pálma og ákvörðun Gunnars hafa stórlega styrkt Sjálfstæðisflokkinn og aukið sigurlíkur hans í komandi kosning- um. Höfnum íslenskri neyð Um þessar mundir er það í nokk- urri tísku að gera lítið úr stjórn- málaflokkum og stjórnmálastarfi. Upplausnaröflin beita öllum brögð- um til að koma ár sinni fyrir borð. Alþýðubandalagið hefur ætíð talið upplausn í þjóðfélaginu þjóna sín- um málstað best, en þjóðin gerir sér grein fyrir því, að forystumenn Al- þýðubandalagsins eru skaparar nú- verandi neyðarástands. Þess vegna hefur almenningur snúist gegn kosningaslagorði þeirra og hafnað „einingu um fslenska neyð“. Fyrrverandi tilvonandi varafor- maður Alþýðuflokksins hefur yfir- gefið flokk sinn og stofnað nýjan flokk til að færa sér í nyt upplausn- ina. Þótt Vilmundur hafi þegar haft það upp úr krafsinu að skáka Al- þýðuflokknum út af taflborði stjórnmálabaráttunnar, sjá flestir, að nýr stjórnmálaflokkur, sem myndaður er utan um fallkandidat í varaformannssæti Alþýðuflokksins, er ekki líklegur til að koma á festu. — Miklu fremur eykur hann á ring- ulreiðina. Frá upplausn til ábyrgðar Á undanförnum mánuðum hafa tæplega þrjátíu þúsund manns tek- ið þátt í að stilla upp framboðslist- um Sjálfstæðisflokksins. Auðvitað hefur núverandi stjórnarsamstarf sett mark sitt á flokkinn upp á síð- kastið, en nú hefur flokkurinn fylkt liði á ný og er staðráðinn í að stefna á sigur í komandi kosningum. Sjaldan hefur þjóðin þurft meira á því að halda en nú, að Sjálfstæðis- flokkurinn vinni sigur. Sameinaður Sjálfstæðisflokkur er eina stjórn- málaaflið, sem hefur þann styrk að geta leitt þjóðina út úr ógöngum upplausnar og ábyrgðarleysis á flestum sviðum. Við skulum berjast af fullri hörku gegn upplausnaröfl- unum. Með festu og öryggi getum við unnið okkur út úr vandanum. Með bjartsýni og baráttuþreki tekst okkur að snúa frá upplausn til ábyrgðar. Myndin er tekin á bókamarkaðnum á Akureyri. Bókamarkaður á Akureyri: Um 300 titlar seldust upp fyrstu helgina Akureyri 21. mars. BÓKAMARKAÐL'R Félags íslenskra bókaútgefenda opnaði í Hafnarstræti 81 á Akureyri sl. Fóstudag. Bókaútgáf- urnar Skjaldborg og Edda á Akureyri sjá um þennan markað, en þar má velja úr um 2 þús. titlum sem hafðir eru á „gamla verðinu". Um þúsund manns heimsóttu markaðinn fyrstu helgina og má geta þess að um þrjú hundruð titlar seldust upp og er þegar búið að gera pöntun á þeim að nýju. Bókamark- aðurinn verður opinn til 31. mars, virka daga 13—22 og á laugardögum og sunnudögum 13—18. G.Berg Washington-pistill Margrét I>orvaldsdóttir: Að eiga sér nafti Það krefst aðlögunar að setj- ast að í nýju landi, jafnvel þó til skamms tíma sé. Þrátt fyrir talsverða reynslu í þeim efnum er margt sem kemur á óvart. Sérhvert land hefur sínar hefðir, lög og reglur sem þarf að virða. Það sem í einu landi þykir eðli- legt og sjálfsagt, er næst lög- broti annars staðar. Þannig geta lítil mál, næsta brosleg, orðið að stórmálum. í þessu landi er ekki hægt að búa án þess að eiga bíl og bíl verður ekki ekið nema hafa full- gilt ökuskírteini. Það var einmitt á skrifstofu umferðarmála sem lítið ævintýri hófst. Ég fyllti út umsóknareyðublað og skrifaði nafn mitt undir á sama hátt og það var ritað á vegabréf mitt og íslenska öku- skírteinið, og nákvæmlega þann- ig ætlaúi ég að hafa það. Kona tók við umsókn minni. Hún rak upp stór augu. „Hvað er þetta?" spurði hún, í litlum virðingar- tón. „Þetta er nafnið mitt," svaraði ég. „Por-val-stottir,“ las hún. „Þorvaldsdóttir," leiðrétti ég. „Eiginmaðurinn var hérna rétt áðan og hann var ekki með þetta nafn,“ segir hún og horfir á mig rannsakandi. „Hann hefur ekki sama nafn og ég,“ segi ég án þess að depla auga. „Sjáið þér til,“ segi ég þá — „við erum íslensk og á íslandi taka konur ekki nöfn eigin- manna sinna er giftast, ég ætla ekki að breyta því, þó ég komi hingað til þessa lands," bætti ég við. Mér fannst bara gaman af þessum samræðum enda upp- blásin af stolti yfir þessari ágætu fornu íslensku hefð. Athugasemdin snart hana ekki vitundarögn. Hún kallaði nú á embættismann úr næsta bás. „Sérð þú þetta?“ spyr hún hvellt. „Sérð þú þennan staf? Hvaða stafur er þetta?" „Þetta er P,“ segir hann. „Þetta er Þ,“ segi ég — „Þessi stafur er ekki til í enska stafróf- inu.“ „Ekki það,“ segir hún. „í íslenska stafrófinu eru tveir stafir til viðbótar sem þekkjast ekki í ensku," bæti ég við. Þar með var mælirinn fullur. Hún spratt upp úr sæti sínu, hóf báðar hendur á loft með vegabréf mitt í annarri hendi og íslenska ökuskírteinið í hinni og næstum kallaði upp: „Oh, if I had a crystal ball." — Raddblær- inn sagði, ég hélt ég hefði áður heyrt allt. „Þetta á eftir að verða vænn biti,“ segir hún og bætir við „ekki veit ég hvernig við komust fram úr þessu.“ Síðan gekk hún snarlega inn á skrifstofu yfir- manns sins veifandi skilríkjum mínum yfir höfði sér. í höfuðstöðvunum var þingað. Menn voru kallaðir inn til ráða en ekkert gekk. „Hvað er eiginlega að?“ spyr eiginmaðurinn mig. „Það er Þ-ið,“ segi ég. „Ég var búinn að vara þig við eftir vandræðin í Sviss," segir hann þá. „Taktu það rólega," segi ég — „ég mun áfram ferðast undir eig- in nafni." — Nei, ég hafði ekki gleymt Sviss. Þeir höfðu aldrei séð neitt því Iíkt í Afoltern í Zúr- ich. Fjögurra manna fjölskylda Margrét Þorvaldsdóttir og enginn með sama eftirnafnið. Það var þeim óskiljanlegt. Eftir 2ja tíma útskýringar höfðum við yfirgefið fógetaskrifstofuna vegabréfslaus. Þau fengum við ekki í hendur aftur fyrr en 4 mánuðum síðar. Þetta var stór- mál. Ökuskírteinislaus í 4 mánuði get ég ekki verið, var ég að hugsa, þegar ég fékk bendingu um að koma. Það var komið að mér að ræða við yfirvaldið. Yfirmaðurinn reyndist vera einstaklega alúðlegur maður, sem allt vildi fyrir mig gera. Vandamálið var þessi furðustaf- ur Þ, sem aldrei fyrr hafði á þeirra borð komið. Stafurinn var ekki P — að rita hann Th var ekki sjálfsagður hlutur, nema hægt væri áð sýna fram á það á löglegan hátt. Hann hafði lögum að fylgja. Ég skildi afstöðu hans og virti það að hann reyndi að skilja mína. Var samkomulag um að ég fengi bréf frá sendiráð- inu um að íslenskt Þ væri lög- lega ritað Th á ensku. 'tað tókst og málið leystist. Það hefur aldrei verið vanda- laust að vera íslendingur. Þessi atvik hafa oft leitt hugann að nöfnum almennt og viðhorfum til þeirra. Nöfnin eru flestum heilög. Menn bregðast öndverðir við lítilsvirðingu eða breytingu á þeim. Þau eru nær óaðskiljan- legur hluti af okkur sjálfum. Þeir sem knúðir eru til að afsala sér þessum rétti sinum til nafns síns færa stórar fórnir, stærri en flest okkar eru tilbúin að færa. Ástæðan er einfaldlega sú, að það telst til grundvallamann- réttinda að eiga sér nafn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.