Morgunblaðið - 23.03.1983, Side 19

Morgunblaðið - 23.03.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983 19 Konur eru líka menn Bryndís Schram svarar Einari Braga Nýtt íþróttahús við Seljaskóla: Mikil bót fyrir börnin og skólann — segir Hjalti Jónasson, skólastjóri Fyrst langar mig til að byrja á þvi að þakka þér tilskrifin hér í blaðinu um helgina. Það er alltaf ánægjulegt að finna einhver viðbrögð við því, sem maður segir eða gerir og tala ekki fyrir daufum eyrum. Ekki er það síðra að fá heila síðu í útbreiddasta blaði landsins undir bréf til sín. Ekki hefði það hvarflað að mér forðum daga, að við ættum eftir að skrif- ast á í Morgunblaðinu. En tímarn- ir eru breyttir og við sjálfsagt líka. Mér finnst ég verða að svara bréfi þínu og reyna að bera hönd fyrir höfuð mér, þar sem ég sætti mig ekki við það að vera dæmdur svikari við málstað kynsystra minna. Ég ætla mér hins vegar ekki, eins og þú gerir á svo smekklegan hátt, að vera með skæting í garð maka þíns, enda er maki þinn væntanlega ein úr hinni kúguðu stétt íslenzkra kvenna, og ekki er vert að ráðast gegn lítil- magnanum. Þú segir í bréfi þínu, að ég hafi notað þennan ræðustól þjóðarinn- ar (í erindi um daginn og veginn), til að „ráðast gegn kynsystrum mínum, sem í nauðvörn eru að undurbúa sérstaka kvennalista ..." Þú segir, „að okkar réttur hafi reynzt lítið annað en réttur til að kjósa karlmenn á þing.“ Þú gefur í skyn, að „konur séu beittar yfirgengilegri rangsleitni." Þú segir, að „þeir sem ferðinni ráði, hafi stillt málum þannig, að réttur kvenna er fyrir borð borinn." Þú talar um, að karlar séu andstæð- ingar okkar kvenna. Þú segir, að „konur séu hin kúgaða stétt í ís- ienzku þjóðfélagi," og þess vegna eigi „að kjósa konur á þing.“ Heyr á endemi! Ef þetta væri allt satt, þá þyrftirðu ekki að efast um afstöðu mína. Þú ert með stór- ar fullyrðingar, en þú nefnir engin rök. Auðvitað eru margar konur beittar rangsleitni, en það eru karlar líka. Heilu stéttirnar búa við léleg kjör, slæman húsakost, og algert vonleysi. En ætla að segja, „að konur séu hin kúgaða stétt í íslenzku þjóðfélagi" er alger firra. Og ætla, að þessi ímyndaða kúgun réttlæti baráttu kvenna gegn „andstæðingum" sínum er jafn fáránlegt. Ekki er laust við, að það gæti ofurlítillar samúðar í skrifum þín- um. Þú hefur meðaumkvun með lítilmagnanum, sem í „nauðvörn" undirbýr sérstakan lista. En í samúð þinni leynist líka yfirlæti, sem kemur stundum óvart fram í afstöðu karla til kvenna. Slíkir kariar hafa verið nefndir á góðri íslenzku karlrembusvín. Það eru þeir, sem eru svo vissir um yfir- burði sína, að þeir geta ekki leynt því. En ég frábið mér samúð þína, Einar Bragi, eða ykkur karlmanna yfirleitt. Við konur erum ekki hin kúgaða stétt, og réttur okkar er ekki fyrir borð borinn á nokkurn hátt. Við erum jafnréttháar og hver annar þegn þessa þjóðfélags (auk þess sem við erum bæði gáf- aðri og fallegri), og við getum allt, sem við viljum. Mín persónulega kvenfrelsis- barátta hefur verið fólgin í því frá því að ég man eftir mér, að viður- kenna aldrei, að ég væri kúguð og lifa samkvæmt því. Ég hafði sömu réttindi og tækifæri og bræður mínir, og ég hef aldrei lotið vilja nokkurs manns, nema af því að ég vildi það sjálf. Ef ég lýsti stuðn- ingi við kvennaframboð, væri ég um leið búin að viðurkenna, að ég væri kúguð, minni máttar. Og það get ég ekki samvizku minnar vegna. Konur ætla að bjóða fram sér- staklega. Auðvitað er það allt í lagi. Það er meira að segja mjög spennandi og skemmtilegt. En þá hljótum við líka að spyrja, hver er þeirra málefnagrundvöllur? Get- um við sætt okkur við hann? í landsmálum er ekki kosið um menn eða konur, heldur málefni. Þú getur varla ætlazt til þess, Ein- ar Bragi, að við konur séum allar á sömu skoðun. Þú gerir varla aðrar kröfur til okkar en ykkar karl- mannanna. Það eru ekki allar kon- ur herstöðvarandstæðingar, það eru ekki allar konur á móti stór- iðju, það eru ekki allar konur með því að kaupa fleiri togara, o.s.frv. o.s.frv. Okkar hagsmunir og áhugamál fara saman við ykkar Múrarameistarafélag Reykjavíkur var stofnað hinn 18. mars árið 1933 og er því 50 ára um þessar mundir. Fyrir 1933 var múrarafélagið aðeins eitt, og áttu bæði meistarar og svein- ar aðild að því. Sýnt þótti við upphaf heimskreppunnar, að til atvinnuleys- is kynni að koma í stéttinni. Margir meistarar voru þá þeirrar skoðunar, að hamla mætti gegn slíku með auk- inni verkaskiptingu innan stéttar- innar. Þessir menn ákváðu að stofna sérstakt meistarafélag, og skyldu meðlimir þess aðeins vinna sem verkstjórar í eigin verkum, en ekki skyldu þeir vinna venjuleg störf múrara. Þeir skyldu ennfremur gerast verktakar og annast hina verklegu kennslu nema í iðninni. Fjórtán múrarameistarar undir- rituðu lögin á stofnfundi, en á miðju ári 1933 voru félagsmenn orðnir nítján. Kristinn Sigurðsson var kosinn fyrsti formaður félags- ins en auk hans sátu þeir Jón Bryndís Schram karlanna, þó svo að við séum bara konur. Og hvernig á þá að leysa málin? Bjóða fram marga kvenna- lista? Það hefði mér litizt betur á. Ekki stendur á mér að styðja kynsystur mínar til valda, svo framarlega sem ég finn hljóm- grunn í þeim málefnum, sem þær berjast fyrir. Einar Bragi, samkvæmt stjórn- arskránni höfum við konur rétt- indi til jafns við aðra þegna þjóð- félagsins. Við höfum ekki við neinn að sakast nema okkur sjálf- ar, ef við notfærum okkur ekki þessi réttindi. Það sem konur skortir fyrst og fremst er trú á sjálfar okkur. Það kúgar okkur enginn, nema við viijum það sjálf- ar. Andstæðingar okkar erum við sjálfar. Við þurfum að rísa upp gegn sjálfum okkur, hrista af okkur slenið, vera virkari og áhugasamari um alla hluti, þar á meðal stjórnun þjóðfélagsins. Við berum ábyrgð á þessu þjóðfélagi til jafns við alla aðra, og þess vegna er kominn tími til að við förum að hugsa sjálfar en ekki láta aðra gera það fyrir okkur. Því að konur eru menn, og hagsmunir okkar eru hagsmunir allrar þjóð- arinnar. Bergsteinsson og Kjartan Ólafs- son í fyrstu stjórninni. Félagið hefur frá öndverðu ver- ið málsvari verkaskiptingar innan múrarastéttarinnar. Nokkuð dofn- aði yfir starfseminni á stríðsárun- um og ollu því annir félagsmanna, en á síðari hluta 6. áratugarins lifnaði yfir félagsstarfinu á nýjan leik. Samningar við sveina um kaup og kjör og við verðlagsyfir- völd um álagningarprósentu meistara hafa verið meginvið- fangsefni félagsins, en fleira hefur verið á döfinni. Félagið opnaði skrifstofu að Suðurlandsbraut 12 árið 1964, en ári síðar flutti hún í eigin húsnæði að Skipholti 70 og starfar þar enn. Skrifstofan annast marghátt- aða fyrirgreiðslu fyrir meistara og hefur með höndum endurskoðun mælinga. Þá festi félagið ásamt Múrarafélagi Reykjavíkur kaup á jörðinni Öndverðarnesi í Gríms- nesi árið 1968. Þar er sumardval- „ÞAÐ ER óhætt að segja að það hafi verið kraftaverk hve fljótt íþrótta- húsið hefur risið. Krakkarnir eiga það svo sannarlega skilið að fá íþróttakennslu hér við skólann, en frá því að skólinn tók til starfa hefur kennsla í leikfimi annaðhvort legið niðri eða þurft hefur að sækja hana um langan veg. Þetta er því mjög ánægjulegur áfangi, sem nú hefur náðst,“ sagði Hjalti Jónasson, skóla- stjóri Seljaskóla, er Morgunblaðið ræddi við hann um nýtt íþróttahús við skólann, sem nú er að verða full- búið. Sagði Hjalti að bygging hússins hefði hafist síðastliðið sumar og hefði það ekki verið fokhelt fyrr en rétt fyrir jól. Húsið væri um 2.000 fermetrar að stærð og salur- inn væri 28 sinnum 45 metrar að stærð eða löglegur keppnisvöllur. Auk þess væri í húsinu allur sá útbúnaður annar, sem til þyrfti. Sagði hann, að skólinn hefði nú starfað í 4 ár, fyrsta árið hefðu aðeins ung börn stundað þar nám arsvæði múrara og hafa á annað hundrað sumarbústaðir risið á svæðinu. Félögin hafa kostað ýms- ar framkvæmdir í Öndverðarnesi, t.d. vatns- og hitaveitu, vegagerð, sundlaug og golfvöll. Núverandi stjórn Múrarameistarafélags Reykjavíkur skipa þeir Þórður Þórðarson formaður, Friðrik og hefðu þau fengið smá úrlausn í Austurbæjarskóla. Tvö næstu ár hefðu Seljaskóli og Ölduselsskóli fengið aðstöðu til leikfimikennslu í Vals- og Ármannsheimilinu og hefði börnunum þá verið ekið þangað. Á þessum vetri hefði eng- in íþróttakennsla verið. Tilkoma nýja íþróttahússins hefði því það í för með sér, að hægt væri að halda uppi löglegri íþróttakennslu, bæði fyrir Seljaskóla og Ölduselsskóla, og væri fyrirhugað að, að þann 6. næsta mánaðar hæfist kennsla í húsinu samkvæmt stundaskrá og yrðu þá þrír flokkar frá Seljaskóla og Ölduselsskóla samtímis í hús- inu. Hjalti sagði ennfremur, að þol- inmæði nemenda hefði verið með eindæmum hvað þetta varðaði og því hefði fengist leyfi fyrir íþróttahátið í húsinu, þó það væri ekki fullfrágengið. Eftirlit með byggingu íþrótta- hússins hafði Ágúst Þór Jónsson, verkfræðingur,. Andrésson varaformaður, Páll Þorsteinsson ritari, Björn Krist- jánsson gjaldkeri og Hafsteinn Júlíusson meðstjórnandi. Lengst hefur Jón Bergsteinsson átt sæti í stjórn félagsins eða alls í 27 ár og er hann heiðursfélagi. Félagsmenn voru 86 í febrúarbyrj- un. (Fréttatilkynning) Íþróttahátíð í nýju íþróttahúsi í Seljaskóla. Morgunblaðið/KÖE. Múrarameistara- félag Reykjavíkur k, Stjórn Múrarameistarafélags Reykjavíkur. SUBSTRAL SUBSTRAL SUBSTRAL SUBSTRAL SUBSTRAL SUBSTRAL SUBSTRAL SUBSTRAL SUBSTRAL SUBSTRAL ef blómin gætu talað, bædu þau um SUBSTRAL.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.