Morgunblaðið - 23.03.1983, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.03.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983 21 unnar 17/1 1975, 250 lítrar (eðlisþyngd 0,72) 397 lbs. Samtals 7.245 lbs.* Frá dregst eyðsla í uppkeyrslu og vegna flugs að slysstað 75 lbs. 7.179 lbs. Þótt gengið sé út frá því, að eitthvert eldsneyti hafi verið í geymum þyrlunnar fyrir áfyll- ingu 17. janúar 1975, er ekki vitað hversu mikið það var og ekki unnt að reikna það út samkvæmt þeim gögnum, sem fyrir liggja í máli þessu. Verður niðurstaða um þetta atriði ekki byggð á ágiskunum. Þó að ég telji senni- legt, að heildarþungi þyrlunnar kunni að hafa farið eitthvað fram úr 7.200 enskum pundum, þá get ég ekki fallist á það með meiri- hluta dómenda, að staðfesta eigi niðurstöðu héraðsdóms um elds- neytisþáttinn í hleðslu þyrlunn- ar. Fellst ég þvi heldur ekki á það með meirihluta dómenda, að sannað sé að þyrluflugmaðurinn, Lúðvík Karlsson, hafi sýnt af sér það gáleysi eða vangá, sem í dómi greinir. Sú staðhæfing að þyrlan hafi verið ranglega hlaðin er byggð á ofhleðslu og staðsetningu farþega í henni er slysið varð. Hvorugt er sannað og verður ætlað gáleysi flugmannsins því ekki heldur tengt rangri hleðslu. Þá get ég ekki heldur fallist á það með meirihluta dómenda að sannað sé, að ofhleðsla og ókyrrð í lofti séu samvirkar orsakir þess að þyrlan fórst. Ég tel orsök slyssins ókunna. f skýrslu rann- sóknarnefndar flugslysa segir m.a.: „Ekkert hefur komið fram sem bent getur til, að hreyfillinn hafi ekki verið í gangi þegar þyrl- an kom til jarðar." Ekki verður séð af skýrslunni, að nefndin hafi leitt frekari huga að hugsanlegri bilum í aflvél þyrlunnar eða öðr- um bilunum í henni, heldur beint þunga rannsóknarinnar að hleðslu þyrlunnar og veðurfari á slysstað. f gögnum rannsóknarnefndar flugslysa eru skráðir framburðir nokkurra vitna, sem næst voru slysstað. Tveir menn í olíuflutn- ingabifreið, sem nærstödd var, fylgdust með aðdraganda slyss- ins. Hvorugur þeirra heyrði vél- arhljóð. Gluggi bifreiðar er sneri að þyrlunni, var opinn en vél bif- reiðarinnar i gangi. Kona, sem var úti við nálægt slysstað og fylgdist með aðdraganda slyssins kvaðst ekki geta fullyrt, að hún hefði heyrt vélarhljóð í þyrlunni. Bóndi á næsta bæ vaknaði við sprengingu, en hafði ekki heyrt vélarhljóð. Hann kvaðst ýmist vakna eða ekki þegar flugvélar flygju yfir í námunda við bæ hans. f skjali sem vitnað var til við flutning málsins fyrir Hæsta- rétti, þar sem gerð er grein fyrir afdrifum 12 þyrla í íslenskri eigu i sambandi við fyrirspurn til ráð- herra um öryggismál varðandi þyrlurekstur, kemur fram að 9 þyrlur höfðu farist, 3 vegna hreyfilbilunar, 2 vegna bilana í stélskrúfu eða drifkassa, 1 vegna árekstrar á loftlínu, 1 vegna þess að flogið var á jörð i dimmviðri og ein vegna misvindis og svipti- vinds, auk þyrlu þeirrar sem mál þetta fjallar um. Bilun í tækinu sjálfu er því lang algengasta ástæða þyrluslysa hér á landi. Með þessum athugasemdum er ég sammála niðurstöðu meiri hluta dómenda Hæstaréttar, svo og rökstuðningi þeirra um önnur atriði, sem ekki snerta það sem ég hef rakið hér að framan. Ferill flugmannsins Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins, voru m.a. eftirfarandi gögn lögð fyrir Hæstarétt í mál- inu, en þar er fjallað um náms- feril flugmanns þyrlunnar: Lúðvík Karlsson, fæddur 11. maí 1943, sem stundað hafði flug frá því á árinu 1964, hóf nám í þyrluflugi hjá Orlando Helicopt- er Airways, Inc., Sanford, Flor- ida, haustið 1974. Hann er talinn hafa lokið prófi hinn 29. nóvem- ber 1974, „the FAA Commercial R/H flight test on November 29 with FAA examiner Mr. H. Wiese". FAA virðist vera skamm- stöfun fyrir Federal Aviation Administration. Samkvæmt flug- dagbók hafði hann þá flogið þyrlu af gerðinni S-55B, skrásetn. N- 15187, með kennara og einn síns liðs 55,4 klst. Lúðvík Karlsson kom síðan heim til íslands í önd- verðum desember 1974 „með skír- teini atvinnuflugmanns, áritað réttindum til þess að stjórna þyrlu af gerðinni Sikorsky S-55B". Hinn 6. desember 1974 ritaði loftferðaeftirlit íslands Orlando Helicopter Airways Inc. bréf dags. 6. desember 1974. Skýrir loftferðaeftirlitið þar svo frá, að Lúðvík Karlsson hafi samkvæmt leiðarbók þyrlu þeirrar, sem í málinu getur, flogið henni einn síns liðs eftir próftökuna 29. nóv- ember 1974 dagana 29. nóvember til og með 2. desember 1974, alls 29,3 klst. Biður loftferðaeftirlitið um staðfestingu á þessu. I svarbréfi Orlando Helicopter Airways, Inc. til loftferðaeftirlits fslands, dags. 10. desember 1974, segir: „Með vísan til bréfs yðar, dags. 6. desember 1974, virðast flugtim- ar hr. L. Karlssonar, sem skráðir eru í bréfi yðar frá 6. desember 1974, vera réttir. Bækur flugvél- arinnar eru í henni, en hún er ekki í heimahöfn og bækurnar því ekki fáanlegar nú þegar. En hr. Karlsson flaug vélinni einn alla dagana, sem skráðir eru, og tímasetningar virðast vera rétt- ar. Hr. Karlsson var vissulega ein- stakur nemandi og eflaust sá besti, sem við höfum nokkurn tíma þjálfað. Þekking hans á þyrlunni og framkvæmd á allri flugstjórn var með ágætum, og staðfesti hr. Wiese, eftirlitsflug- maður FAA, það persónulega við mig. FAA samþykkti þjálfun þá, sem hr. Karlssyni var veitt. Ég er þess fullviss, að þegar hr. Karlsson fær þyrlu sína, mun hann vinna einstakt verk sem þyrluflugmaður og rekstrar- stjóri." Bréf þetta erundirritað af Fred P. Clark forstjóra. Eftir viðtöku bréfs þessa færði „loftferðaeftir- litið hinn 20. desember inn rétt- indi til að stjórna Sikorsky S-55B þyrilvængju í skírteini Lúðvíks". Þeir Lúðvík Karlsson og Krist- ján Helgason framkvæmdastjóri keyptu þyrlu þá, sem í málinu greinir, í Bandaríkjunum í nóv- ember 1974, og kom þyrlan til ís- lands um áramótin 1974—1975. Hugðust þeir stofna hlutafélag með nafninu „Þyrluflug hf.“ sem yrði eigandi og rekstrarhafi þyrl- unnar. Hinn 17. desember 1974 veitti loftferðaeftirlit Bandaríkj- anna, „Federal Aviation Admini- stration", þyrlunni lofthæfis- skírteini. Með bréfi, dags. 27. des- ember 1974, sótti Lúðvík Karls- son um lofthæfisskírteini fyrir þyrluna. Segir þar, að þungi alls farms (farþega og flutnings), er eldsneytis- og olíugeymar eru fullir, sé 95 lbs. og mestur leyfður þungi loftfarsins 7.200 lbs. Ahöfn er talin vera 1—2 og tala farþega- sæta alls 11. Hinn 6. janúar 1975 gaf samgöngumálaráðuneytið út lofthæfisskírteini handa þyrlunni til „farþega-, póst- og vöruflutn- inga“ undir þjóðernis- og skrá- setningarmerkinu TF-LKH. Þyrl- an er talin hafa verið skrásett hér á landi af ráðuneytinu sem eign Þyrluflugs hf., Dugguvogi 2, Reykjavík. Ósamræmi milli há- marksþunga þyrlunnar og far- þega sæta sinntu flugyfirvöld ekki, hafa þau því ekki talið, að slíkt ósamræmi væri fyrir hendi, að það stæði í vegi fyrir löggild- ingu.“ AF ERLENDUM VETTVANGI eftir ED BLANCHE Njósnarar KGB ágirnast vestræna tækniþekkingu Fjöldi sovéskra njósnara hefur verið staðinn að verki í Vestur-Evrópu á undanförnum vikura og segja sérfræðingar í þessum málum, að um sé að ræða sönnun þess að yfirvöld í Kreml leggi mikið í sölurnar til að afla vestrænna tæknileyndarmála og atriða varðandi byggingar nýrra orustu- flugvéla. Að minnsta kosti tíu sovéskir njósnarar hafa veriö staðnir að verki og vísað úr landi á jafnmörgum vikum á þessu ári, og á síðastliðnu ári var a.m.k. þrettán njósnurum vísað til síns heima frá Vestur-Evrópu. Talan gæti verið hærri þar sem nokkrum sovéskum njósnurum hefur hljóðlega verið kippt úr starfi og þeir sendir heim, eftir að upp komst ura njósna- starf þeirra. að sem mest aðdráttarafl hefur fyrir njósnarana, virðist vera tækniþekking og leyndarmál þau sem umlykja byggingu og framleiðslu á full- komnustu orustuflugvélum, svo sem Panavia Tornado sem fram- leiddar eru í Bretlandi, Vestur- Þýskalandi og ftalíu og F-16 Fal- kon. Sovétmenn hófu að leita tækninýjunga á þennan hátt í auknum mæli eftir að Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, sagði að Sovétríkin bæru ábyrgð á kúguninni í Póllandi og hætti út- flutningi tækninýjunga til Sov- étríkjanna 29. desember 1981. Þrátt fyrir að banni þessu við útflutningi á tækninýjungum til Sovétríkjanna hafi verið aflétt í nóvember 1982 er enn ekki um að ræða að Sovétríkin hafi aðgang að upplýsingum sem sovéskur herafli gæti nýtt sér í sína þágu. Flestir yfirmenn stjórnvalda telja, að allt að 40 prósent allra sovéskra stjórnar og verslunar- erindreka á Vesturlöndum vinni á laun fyrir sovésku leyniþjón- ustuna KGB eða leyniþjónustu sovéska hersins, GRU. Starfsemi sovésku leyniþjón- ustunnar í Bandaríkjunum mið- ast mikið við Silicon-Walley í norðurhluta Kaliforníu, en svo virðist sem Sovétmenn séu nú einbeittari en áður í öflun frek- ari upplýsinga um alla banda- menn Bandaríkjanna í þessum efnum í Vestur-Evrópu. Danmörk er einmitt slíkt að- dráttarafl fyrir sovéska njósn- ara. Háttsettur starfsmaður lögreglunnar i Kaupmannahöfn telur sovéska njósnara hafa greinilega meiri umsvif nú en áður og hafi þau orðið „alvar- legri“ nú á síðustu mánuðum. Hann sagði að meðal aðgerða þeirra væru „stjórnmálalegar mútur“, þar sem njósnarar reyndu að afla upplýsinga sinna um ríkisleyndarmál hjá yfir- mönnum þjóðfélagsins í stjórn- málum og iðnaði. Dönsk stjórnvöld ráku nýverið sovéskan ráðgjafa, Evgueni Leonidovich Motorv, úr landi vegna njósna sem voru „sér- staklega alvarlegs eðlis“. Hann starfaði sem vísinda- og tækni- ráðgjafi við sendiráð Sovétríkj- anna í Kaupmannahöfn. Stjórn- völd neituðu að gefa nokkuð frekar upp um starfa Motorov, en dönsk dagblöð sögðu hann vera háttsettan starfsmann KGB, sem hefði það starf að safna dönskum rafeinda- og tölvuupplýsingum fyrir sam- svarandi kerfi í Sovétríkjunum. Tveimur sovéskum sendi- ráðsstarfsmönnum var vísað frá Svíþjóð í desember síðastliðnum vegna „njósna í iðnaði", sérstak- lega í skipasmíðastöðvum í Gautaborg. Þessi brottvísun dró nokkurn dilk á eftir sér, þ.á m. mikla umferð sovéskra kafbáta við austurströnd Svíþjóðar. Lögreglumenn í Vestur- Þýskalandi handtóku fulltrúa sovésku verslunarmiðstöðvar- innar í Köln, 18. febrúar síðast- liðinn, en hann var þá á leið til fundar við vestur-þýskan við- skiptajöfur til að festa kaup á leyniskýrslum varðandi tækni- búnað. Réttur í Hamborg dæmdi ný- lega í fangelsi einn yfirmann í verkalýðsfélagi málmiðnaðar- manna (IG), en hann var ákærð- ur fyrir njósnir í þágu Austur- Þýskalands og Sovétríkjanna í aldarfjórðung. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði látið þeim í té gífurlega mikilvægar og viðkvæmar upp- lýsingar. Tveir sovéskir njósnarar voru handteknir á Ítalíu fyrr í þess- um mánuði. Victor Pronine, 38 ára gamall, yfirmaður sovéska flugfélagsins Aeroflot, var ákærður fyrir njósnir í þágu hernaðar. Italskur viðskiptajöf- ur var handtekinn sama dag og Pronine, með úttroðna skjala- tösku af míkrófilmum, sem höfðu að geyma hernaðarlega mikilvæg NATO-skjöl og upplýs- ingar um Tornado-orustuflug- vélar, en allar þessar upplýs- ingar voru ætlaðar Pronine. Hinn sovétmaðurinn, Viktor Konaiev, 38 ára gamall, varafor- maður sovésk-ítalska olíufyrir- tækisins Nafta-ltalía, var hand- tekinn níu dögum síðar og vísað úr landi. Álitið er að hann hafi séð um útborganir til KGB-njósnara. Tveir yfirmenn Aeroflot á Spáni voru reknir úr landi á sl. ári vegna ótilgreindra njósna- mála, en alls hafa tólf sovéskir embættismenn verið gerðir brottrækir frá Spáni vegna njósna frá því stjórnmálatengsl- um milli Madrid og Moskvu var komið á, árið 1977. Hollenska utanríkisráðuneytið tilkynnti 25. febrúar sl., að það hefði vísað sovéska sendiráðs- starfsmanninum Alexander F. Konoval á laun úr landi vegna njósna. Síðastliðið sumar var síðan tveimur sovéskum starfs- mönnum verslunarráðsins vísað úr landi vegna njósna um hol- lenska hernaðarstarfsemi sem og málefni NATO. Norðmenn vísuðu tveimur sov- éskum starfsmönnum úr landi á síðastliðnu ári, en stjórnvöld gáfu ekki upp ákærur þær sem á hendur þeim voru lagðar. Dag- blöð og aðrir fjölmiðlar þar í landi sögðu þá hafa verið að reyna að afla upplýsinga um raf- eindabúnað F-16 orustuflugvél- Sovéski hernaðarráðgjafinn Anat- oly Zotov, sem gerður var brott- rækur frá Bretlandi í desember síðastliðnum vegna njósna. anna, en ekki haft árangur sem erfiði. Svissnesk stjórnvöld hafa rek- ið þrjá sovéska stjórnarerind- reka úr landi á þessu ári fyrir að reyna að safna upplýsingum úr leyniskjölum. Talið var að tveir þeirra hefðu verið að kanna skýrslur ríkisborgara austan- tjaldsríkjanna, sem sótt hafa um hæli í Sviss og hafi einnig átt þátt í fölsunum á skilríkjum fyrir njósnara Sovétríkjanna þar í landi. Fjórum útsendurum sovésku leyniþjónustunnar hefur verið vísað úr landi í Bretlandi á und- anförnum fimmtán mánuðum, en breska leyniþjónustan hefur beðið mörg skipbrot frá lokum síðari heimstyrjaldarinnar. Einn þeirra sem rekinn var frá Bretlandi, var hernaðarráð- gjafi sendiráðs Sovétmanna, An- atoly Zotov, en talið var að hann hefði reynt að fá menn til liðs við sig til að njósna um nýjan rafeindabúnað um borð í bresk- um herskipum. (Þýð. — EJ. Heimild: AP.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.