Morgunblaðið - 23.03.1983, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983
Afganistan:
Forseti flug-
félags myrtur
Nýju-Delhi, 22. mars. AP.
FORSETI afganska flugfélagsins var myrtur á heimili sínu í Kabúl um
síAastliðna helgi, að því er segir í fregnum vestrænna stjórnarerindreka í
dag.
Ekki reyndist unnt að fá frekari
fregnir um dauða yfirmannsins,
Baba, en hann mun hafa verið
skotinn til bana í íbúð sinni og
jarðsunginn degi síðar. íbúð yfir-
mannsins er á svæði í Kabúl sem
vandlega er gætt, en þar búa einn-
ig margir Sovétmenn.
Fjöldi sögusagna gekk um Kab-
úl eftir að morðið var framið, en
Baba var dyggur meðlimur þess
hluta afganska kommúnista-
flokksins sem er í stjórn og sumir
halda því fram, að hann hafi verið
fórnarlamb langvarandi deilna
innan flokksins.
Einnig var tilkynnt á sama tíma
um aukna bardaga á Shomali-
svæðinu norður af Kabúl, að því er
segir í fregnum stjórnarerindreka.
Saudi-Arabar vara
við olíuverðstríði
Kuwait, 22. mars. AP.
SAUDI-ARABÍA er „alveg í stakk
búin til að vinna olíuverðstríð“ ef
samkomulag olíuútflutningsríkja um
verð og framleiðslumagn á hvert ríki
fer út um þúfur, var haft eftir
krónprinsi Saudi-Arabíu í dag.
„Við viljum ekki að til þess
komi,“ sagði Abdullah Ibn Alxiel-
Az í viðtali við Kuwait-blaðið Al-
Seyassa. Hann varaði við því að ef
til verðstríðs kæmi myndi það
ekki síður bitna á olíuútflutn-
ingsríkjum, sem ekki eru aðilar að
OPEC.
Abdullah viðurkenndi að tekjur
Saudi-Arabíu af olíusölu myndu
minnka til muna eftir samkomu-
lagið en hann bætti því við að þeir
hefðu jafnt innlendar sem alþjóð-
legar skuldbindingar, sem ekki
yrðu sviknar eða gengið frá.
Nkomo kveðst snúa
aftur til Zimbabwe
Ltindúnum, 22. mars. AP.
JOSHUA NKOMO, stjórnarand
stöóuleiðtogi í Zimbabwe, sem ný-
lega flúði land sitt, sagði í gær í
sjónvarpsþætti, að Robert Mugabe,
forsætisráðherra, gæti ekki komið
stjórnmálaflokki sínum fyrir katt-
arnef með ofbeldi.
í þættinum, sem var tæprar
klukkustundar langur sagði
Nkomo, að hann myndi hverfa aft-
ur til Zimbabwe, en tók ekki fram
hvenær það yrði.
„Ef Mugabe vill ná fram eins
flokks ríki er ofbeldi ekki rétta
leiðin. Besta leiðin til að ná slíku
fram er með því að vinna hugi og
hjörtu landsmanna og sýna þeim
hvað upp á er boðið," sagði Nkomo
í viðtalinu.
Hitar angra
prinsessuna
Alice Springs, Ástralíu, 22. mars. AP.
DÍANA prinsessa og Karl Breta-
prins, sem um Jiessar mundir eru á
ferðalagi um Astralíu, hafa fengið
að kenna á miklum hitum sem þar
geisa og mikla athygli vakti í dag
þegar prinsessan viðurkenndi,
rauð og þrútin vegna sólarinnar,
að sér gengi illa að venjast hitan-
um, sem er um 36 gráður á Celsíus.
Prinsessan var eins fáklædd
og velsæmið leyfði þegar hún
gegndi embættisskyldum sínum
í dag, en innfæddir bentu henni
á að hattur gerði mikið gagn
gegn sólinni.
Karl prins hefur heldur ekki
farið varhluta af hitanum og var
nef hans rautt og húðin byrjuð
að flagna af í dag. Hins vegar er
læknir stöðugt með þeim hjón-
um í förum, ef eitthvað skyldi
bera útaf.
Tólf Pólverjar flýðu til Svíþjóðar í eins hreyfils flugvél:
Hrópuðu „Swezia, Swezia“
í gleði sinni yfír frelsinu
Siokkhólmi 22. mars. Frá Cuðfínnu Hagnars-
dóttur, frétUriUra Mbl.
TRÚLEGA bjargaði slæmt veður
pólsku flóttamönnunum 12, sem
nauðlentu á akri í Suður-Svíþjóð í
gær, frá því að verða teknir á flótt-
anum. En stuttu eftir að þeir lögðu
af stað í lítilli eins hreyfils áburðar-
vél frá Gdansk heyrðu þeir í talstöð-
inni, að pólsk og rússnesk lögregla
hafði séð til þeirra á ratsjánni. Til-
kynning var fyrst lesin upp á pólsku,
síðan rússnesku. En flóttamennirnir
urðu ekki varir við neinar flugvélar
á eftir sér, trúlega vegna slæms veð-
urs.
Af ótta við að finnast flugu
Pólverjarnir mjög lágt, oft aðeins
nokkra metra yfir sjávarmáli.
Þegar vélin kom á móts við Borg-
undarhólm ruglaðist flugmaður-
inn sem er vélsmiður og ekki með
flugmannspróf, á áttunum í þok-
unni og rigningunni og neyddist
til að fljúga blindflug í ókunna
átt.
Allt í einu slóst annar vængur
vélarinnar í sjóinn og flugmannin-
um tókst með naumindum að rétta
vélina af og nauðlenda henni á
akri við ströndina, án þess að vita
hvar hann var niðurkominn. Þá
voru Pólverjarnir búnir að vera á
flugi í tvær klukkustundir. Bens-
ínið var alveg á þrotum og skyggn-
ið aðeins um 50 metrar.
I fyrstu óttuðust Pólverjarnir,
að þeir hefðu lent í A-Þýskalandi,
og gleði þeirra var mikil er þeir
komust að því að þeir væru í Sví-
þjóð. Fyrsta spurning flugmanns-
ins þegar hann kom út úr vélinni
var: „Hvar erum við?“ Þegar hann
heyrði að þau hefðu lent í Svíþjóð
hljóp hann aftur að vélinni og
hrópaði „Swezia, Swezia", en
þannig er Svíþjóð skrifað á pólsku.
Við þessi tíðindi þustu allir far-
þegarnir út og föðmuðu hver ann-
an. Þeir voru allir þreyttir og
kaldir eftir ferðina, þar sem þeir
höfðu setið á gólfinu, auk þess sem
sum barnanna voru flugveik.
Flóttafólkið er þrjár fjölskyldur
með fjögur börn á aldrinum 2—10
ára, auk tveggja einstaklinga.
Þetta fólk fær allt dvalarleyfi í
Svíþjóð.
Þetta er í annað sinn í vetur
sem Pólveriar flýja í flugvél til
Svíþjóðar. I haust komu 18 Pól-
verjar í lítilli eins hreyfils vél, en
þá voru vanir flugmenn við stýrið
og vélin flaug að nóttu til.
Menntaskólakennari
með vafasama fortíð
Marri.sburg, l’ennsylvania, 22. mars. AP.
í EINUM menntaskóla gekk hann
undir nafninu Peter H. Pearse, hag-
fræöikennari, í öörum var hann
tölvufræöikennarinn John Byron
Hext. Þar sem hann leigði húsnæöi
vissi enginn betur en hann héti
Anthony S. Williams. Á handtöku-
skýrslunni var hann kallaður John.
Lögreglan, sem meira að segja
var í vandræðum með að ná
fingraförum mannsins þar sem
þau voru svo dauf, var enn að
reyna að komast að hinu sanna
um uppruna þessa manns í dag,
þar sem hann sat í fangelsi
ákærður fyrir svik, skjalafals og
fleira.
Sjálfur bað hann um að vera
kallaður Anthony S. Williams við
réttarhöldin, sem haldin voru í
rnáli hans á mánudag.
Maðurinn hóf kennslu við báða
menntaskólana síðastliðið haust,
en farið var að kanna mál hans
þegar nemendur tóku að kvarta
yfir honum á öðrum staðnum og
babb kom í bátinn með nafngift-
ina sem hann hafði valið sér þar.
Ijögreglan segir manninn mjög
einlægan og samvinnuþýðan, en
hann er á sextugsaldri.
Enn langt í
samkomulag
Peking, 22. mars. AP.
QIAN QICHEN, aöstoðarforsætis-
ráðherra Kínverja, sneri í dag heim
frá Moskvu eftir viðræður við þar-
lenda ráðamenn um bætt samskipti
þjóðanna. Hann sagði við komuna
heim, að ekkert nýtt hefði komið
fram í viðræðunum og enn ríkti
verulegur ágreiningur á milli við-
ræðuaðila.
Qichen sagði fréttamönnum á
flugvellinum í Peking, að and-
rúmsloftið á fundunum hefði verið
mjög þægilegt og allar viðræður
gagnlegar. Hann ræddi við Andrei
Gromyko, utanríkisráðherra Sov-
étríkjanna, í rúma klukkustund í
gær og var eftir atvikum ánægður
með útkomuna, en sagði enn tals-
vert langt í land með samkomulag
á milli þjóðanna.
Reyndi að
bjarga hundi
og drukknaði
Shelling, Knglandi, 22. mars. AP.
ROSKINN biskup, sem gerði tilraun
til að bjarga hundi nágrannans úr
stórum vatnsgeymi, féll sjálfur í
vatnið og drukknaði, að því er segir í
fregnum lögreglunnar í dag.
„Svo virðist sem þessi hugrakki
maður hafi fórnað lífi sínu til að
bjarga hundinum," sagði talsmað-
ur lögreglunnar.
Lík biskupsins, Kenneth Warn-
er, sem var 92 ára gamall, fyrrum
biskup yfir Edinborg í Skotlandi,
fannst í vatnsgeyminum nálægt
heimili hans í Kent.
Hundurinn komst hins vegar
lífs af.
■ ■■ ’
ERLENT,
Veður
víða um heim
Akureyri
Amsterdam
Aþena
Barcelona
Berlin
BrUssel
Chicago
Dublin
Feneyjar
Frankfurt
Faareyjar
Genf
Helsinki
Hong Kong
Jerúsalem
Jóhannesarborg
Kaupmannahöfn
Kairó
Las Palmas
Lissabon
London
Los Angeles
Madrid
Mallorca
Malaga
Mexikóborg
Miami
Moskva
Nýja Delhí
New York
Osló
París
Peking
Perth
Reykjavik
Rio de Janeiro
Rómaborg
San Francisco
Stokkhólmur
Tel Aviv
Tókýó
Vancouver
Vínarborg
+6 alskýjaó
9 skýjað
21 heióskírt
17 léttskýjaö
6 skýjaö
vantar
+2 skýjaó
10 skýjaö
16 skýjaö
12 skýjaö
6 skýjaö
vantar
2 heióskírt
25 skýjaó
11 rigning
23 skýjað
8 skýjaó
21 heióskírt
19 alskýjað
20 heióskirt
8 heiöskirt
19 skýjaö
23 heiðskírt
16 hálfskýjaó
18 súld
27 heióskírl
29 heiöskírt
3 skýjaö
24 heióskirt
14 skýjaó
4 skýjaó
12 skýjaö
11 skýjaó
25 heíðskírt
+4 léttskýjaö
26 skýjaö
16 skýjaö
14 skýjaó
2 snjókoma
17 rigning
17 heiðskírt
10 skýjaó
13 skýjaö