Morgunblaðið - 23.03.1983, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983
27
Yngstu borgararnir standa þétt við hlið forsetans er hann ritar í gestabók
Hérðasbókasafnsins á Hvolsvelli.
Sýslumannshjónin og forseti íslands ganga í gegnum fánaborg skólabarna við Héraðsbókasafnið á Hvolsvelli.
„Við emm hetjur af konungakyni“
sagði forseti íslands er Rangœingar tóku á
móti henni við Þjórsárbrú
„Við erum hetjur af konungakyni og kippum okkur ekki upp við það þó kalt sé
í veðri,“ sagði frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, á sunnudagsmorgun, er
hún hitti Böðvar Bragason, sýslumann Rangæinga, við Þjórsárbrú í upphafi
opinberrar heimsóknar um Rangárvallasýslu. Sýslumaður og kona hans, frú
Gígja Haraldsdóttir, tóku á móti forsetanum og fylgdarliði hans við sýslumörkin,
í kalsaveðri, eins og ráða mátti af orðum forseta hér að framan.
Sérstaða Rangárþings
Frá Þjórsárbrú var ekið rak-
leitt að elliheimilinu Lundi á
Hellu, sem þar er til húsa í nýju
og glæislegu húsi. Þar heilsaði
forsetinn upp á vistmenn, sem
og aðra Hellubúa, sem þar voru
komnir til að hylla Vigdísi. Boðið
var upp á kaffi og með því, og frú
Vigdís gaf sér góðan tíma til að
ræða við fólk á öllum aldri, ekki
síst yngstu borgarana.
Það var hreppsnefnd Rangár-
vallahrepps, sem fyrir boðinu
stóð, og Jón Þorgilsson, sveitar-
stjóri á Hellu, mælti nokkur orð
til forsetans. Kvað hann sér það
mikið ánægjuefni að taka á móti
forsetanum á Rangárvöllum, og
hefði forseti vonandi nokkra
ánægju af heimsókn til sýslu-
nnar, sem Rangæingar a.m.k.
sjálfir teldu hafa nokkra sér-
stöðu á landinu. Hér væri nátt-
úran oft óblíð og erfið, stríðandi
eldfjöll í næsta nágrenni og
skaðar af völdum sandfoks mikl-
ir. Um leið væri svo Rangár-
vallasýsla kunn fyrir glæsta for-
tíð, þar sem margir merkustu
menn íslandssögunnar hefðu bú-
ið í sýslunni áður fyrr. Jón færði
frú Vigdísi síðan að gjöf Rang-
vellingabók í tveimur bindum,
þar sem rakin er saga byggðar á
Rangárvöllum og taldar upp all-
ar jarðir þar.
Vigdís Finnbogadóttir þakkaði
hlý orð í sinn garð, kvaðst fagna
því að koma á Rangárvelli, þar
sem nútímamenn byggju mynd-
arlega með glæsta fortíð að baki.
Hún sagði sér ánægju að veita
viðtöku Rangvellingabók, sem
hefði að geyma mikinn sögu-
legan fróðleik um héraðið.
Bókin var árituð af hrepps-
nefndarmönnum Rangárvalla-
hrepps, sem bókina gaf.
Sögustaðurinn Oddi
heimsóttur
Að lokinni dvöl á Hellu var
síðan ekið að hinu fornfræga
setri Odda á Rangárvöllum, sem
á sínum tíma byggðu ekki minni
menn en Sæmundur Sigfússon
hinn fróði, sonur hans Loftur og
sonarsonur, Jón Loftsson, og á
staðnum var upp fóstraður
Snorri Sturluson. I Odda tóku á
móti forseta og fylgdarliði pró-
fasturinn í Rangárþingi og fleiri
prestar.
Inni í kirkjunni hélt séra Stef-
án Lárusson, sóknarprestur í
Odda, stutta ræðu um hið forna
höfðingjasetur, gat ábúenda
jarðarinnar að fornu, og minnt-
ist sérstaklega séra Matthíasar
Jochumssonar, sem þar var
prestur á síðustu öld.
Síðan var stutt helgistund, þar
sem Sváfnir Sveinbjörnsson,
prófastur, prédikaði, en séra
Stefán Lárusson þjónaði fyrir
altari.
Frá Odda var síðan ekið eftir
skamma viðdvöl að Hvolsvelli,
og byrjað á því að heimsækja
Héraðsbókasafnið.
Sýning Árnýjar
Filippusdóttur
t Hérðsbókasafninu, sem er í
húsi tengdu skólunum á Hvols-
velli, stendur nú yfir í sambandi
við Hérðasvöku Rangæinga, sýn-
ing á verkum Árnýjar heitinnar
Filippusdóttur frá Hellum í
Landssveit, sem lengi rak
kvennaskóla á Hverabökkum í
Hveragerði. Skoðaði forsetinn
sýninguna í fylgd heimamanna,
en meðal gripa á sýningunni eru
listvefnaður af fjölbreytilegum
toga, útskornir munir, myndlist
og margt fleira.
Að lokinni viðkomu í Héraðs-
bókasafninu ræddi Vigdis við
skólabörn og hljóp stuttan
sprett með þeim utan dyra, en að
því loknu beið hádegisverðaborð
í félagsheimilinu Hvoli, þar sem
snætt var kalt borð í boði sýslu-
nefndar.
Héraðsvaka undir
Vestur-Eyjafjöllum
Um klukkan hálf þrjú var síð-
an ekið Iengra í austurátt, að
nýju félagsheimili Vestur-Ey-
fellinga, þar sem frú Vigdís var
viðstödd einn lið Héraðsvökunn-
ar. Fyrst talaði Böðvar Braga-
Fjöldasöngur á Hérðasvöku Rangæinga: Forsetinn, sýslumannshjónin,
Halldór Reynisson, forsetaritari, og frú, í fremstu röð.
son, sýslumaður, bauð forseta
velkominn og ræddi stuttlega
um sögu Rangárvallasýslu.
Þá söng Barnakór Tónlist-
arskóla Rangæinga undir stjórn
Sigríðar Sigurðardóttur fjögur
lög, og að því búnu flutti séra
Páll Pálsson á Bergþórshvoli
ávarp, en hann er gamall skóla-
bróðir forsetans og minntist
hann kynna þeirra i skóla og
ræddi um foreldra Vigdísar.
Þá stjórnaði Friðrik Guðni
Þorleifsson Kammersveit Tón-
listarskóla Rangæinga er lék
nokkur lög, og að því loknu flutti
Friðrik Guðni frumort ljóð, er
hann færði forseta.
Þá söng Elín Ósk Óskarsdóttir
sópransöngkona nokkur lög við
undirleik Láru Rafnsdóttur.
Að því loknu las Edda Karls-
dóttir ljóð eftir Þorstein
Erlingsson og Sigurður Har-
aldsson í Kirkjubæ las ljóð eftir
Sigurð Einarsson í Holti. Að
ljóðalestrinum loknum stjórnaði
Sigríður Sigurðardóttir fjölda-
söng samkomugesta, og því næst
flutti Þórður Tómasson, safn-
vörður á Skógum, ræðu. í ræðu
sinni fór Þórður ekki hefð-
bundna leið í ávarpi til þjóðhöfð-
ingja, heldur rakti hann ættir
frú Vigdísar um Rangárþing allt
frá því forfeður hennar fluttust
þangað á 18. öld. Kvað hann
Rangæinga hreykna af heim-
sókn forsetans, ekki síst í ljósi
þessara tengsla hennar við hér-
aðsmenn.
Frú Vigdís þakkaði mörg og
hlý orð í sinn garð, og minnti á,
að allt það sem sagt væri henni
til hróss, væri í raun þakklæti til
allrar þjóðarinnar er hún stæði
fyrir. Því vildi hún snúa þökkun-
um og hrósinu við, vísa því aftur
til fundarmanna, sem ekki ættu
síður hrós skilið en hún. Hún vék
einnig að fornri frægð Rangár-
þings, minntist á Njálssögu sér-
staklega, sem hún kvað hafa ver-
ið sér holla og lærdómsríka lesn-
ingu allt frá unga aldri. Hún
sagðist ekki hika við að segja að
svo mikil og góð áhrif hefði
Njála haft á sig, að hún stæði
tæpast í þessum sporum sem
forseti, hefði hún ekki lært af
Njálu.
Kynnir á hátíðasamkomunni
var Sigríður Theodóra Sæ-
mundsdóttir.
Kvöldverður í
Fljótshlíð
Að lokinni samkomunni undir
Eyjafjöllum, sem lauk með
kaffidrykkju, hélt frú Vigdís
með fylgdarliði sínu að bænum
Lambey í Fljótshlíð, þar sem
snæddur var léttur kvöldverður í
boði hjónanna þar.
Þar með var lokið fyrstu heim-
sókn Vigdísar Finnbogadóttur
sem forseta um Rangárþing.
Hlaðborð beið gestanna á Hvoli.