Morgunblaðið - 23.03.1983, Side 29

Morgunblaðið - 23.03.1983, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983 29 Alyktun sambandsráðsfundar ungra sjálfstæðismanna: Mikilvægt að sjálfstæðismenn gangi sam- einaðir til kosninga gegn vinstri mönnum Örlagaríkar Alþingiskosningar eru framundan á íslandi. Gengið er til þessara kosninga við aðstæð- ur sem vart eiga sér hliðstæðu í stjórnarfarslegu og efnahagslegu tilliti. Stjórnarfarslegt upplausn- arástand hefur ríkt í landinu und- anfarið og landið í raun verið stjórnlaust um langa hríð. Efna- hagslegt öngþveiti blasir við og út- lit í atvinnumálum hefur sjaldan verið dekkra. Skuldastaða þjóðar- búsins út á við hefur aldrei áður verið jafnalvarleg, verðbólga aldr- ei meiri og fjárhagsstaða fyrir- tækja og heimila bví afar ótraust. Allt fram yfir mitt síðara ár hafa þeir aðilar sem nú stjórna landinu, notið góðs af óvenju- hagstæðum ytri skily-rðum þjóðar- búsins. Þetta góðæri var því miður ekki notað sem skyldi til að búa í haginn fyrir framtíðina, treysta rótgróna atvinnuvegi og byggja upp nýja. Á sumum sviðum, t.d. í iðnaðar- og orkumálum, er engu líkara en skipulega hafi verið að því stefnt að grafa undan framtíð- aratvinnutækifærum ungs fólks í landinu. I þessu efni er knýjandi þörf fyrir stefnubreytingu. Ungir sjálfstæðismenn fagna samstöðu þriggja flokka i álmálinu, en með því að taka það mál úr höndum iðnaðarráðherra má loks vænta alvarlegra tilrauna til að fá hækk- að raforkuverð til álversins í Straumsvík. Húsnæðismálin brýnt hagsmunamál Ungir sjálfstæðismenn telja að eitt brýnasta hagsmunamál ungs fólks á Íslandi og raunar þjóðar- innar allrar sé að treysta atvinnu- lífið og skapa framtíðaratvinnu- tækifæri við hæfi allra lands- manna, ekki sízt þeirra sem vegna fötlunar eða af öðrum orsökum búa við skerta starfsgetu. Ungir sjálfstæðismenn eru jafn- framt þeirrar skoðunar, að eitt helzta úrlausnarefni sem bíður nýrrar ríkisstjórnar og varðar ungt fólk sérstaklega, sé á sviði húsnæðismála. Á þeim vettvangi sjást nú hvarvetna fingraför sósí- alistanna í Alþýðubandalaginu með þeim afleiðingum að ungu fólki hefur verið gert nær ókleift að koma sér upp þaki yfir höfuðið með sómasamlegum hætti. Sú stefna Alþýðubandalagsins að beina húsbyggjendum inn í hið svokallaða félagslega bygginga- kerfi er mjög varhugaverð og býð- ur upp á póiitíska misnotkun, auk þess sem ungu fólki er að verulegu leyti úthýst. Mjög brýnt er að bæta úr þessu og vísast til fyrri tillagna SUS og Sjálfstæðisflokks- ins í því sambandi. Mörg fleiri brýn mál bíða úr- lausnar, sem núverandi valdhafar hafa ekki haft dug til að koma í framkvæmd eða ekki náð sam- stöðu um. Má þar nefna byggingu flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli, lög um frjálsa útvarpsstarfsemi, lög um framhaldsskóla og mörg fleiri framfaramál, sem sjálfstæð- ismenn munu beita sér fyrir. Viðunandi áfangasigur Ungir sjálfstæðismenn fagna þeirri samstöðu sem náðst hefur í kjördæmamálinu á Alþingi og telja þær breytingar sem nú verða gerðar, viðunandi áfangasigur í baráttunni fyrir því að allir lands- menn njóti jafns atkvæðisréttar óháð búsetu. Á það skal sérstak- lega bent, að ef stjórnarskrármál- ið verður til heildarafgreiðslu á næsta kjörtímabili eins og vænta má, gefst að sjálfsögðu tækifæri til að taka kjördæmamálið upp að nýju og ná fram frekari leiðrétt- ingu. Eins og vænta má á tímum upp- lausnar og ólgu, fiska pólitískir ævintýramenn nú í gruggugu vatni og reyna að gera sér mat úr ástandinu. Upp er sprottinn fimmti stjórnmátaflokkurinn, byggður í kringum einn mann og grundvallaður á ruglingslegu sam- safni hugmynda, þar sem ekki er gerður einfaldasti greinarmunur á stjórnkerfi og stjórnarstefnu. Ungir sjálfstæðismenn vara ein- dregið við því að slíkum aðilum sem nærast á ringulreiðinni einni verði veittur stuðningur í komandi kosningum. Sameinaðir sjálfstæðismenn I þeim kosningum sem nú fara í hönd er afar mikilvægt að sjálf- stæðismenn gangi sameinaðir til baráttu gegn þeim vinstri öflum, sem lamað hafa efnahags- og at- vinnulíf í landinu á undanförnum árum. Sjálfstæðisflokkurinn er sú kjölfesta, sem almenningur i land- inu getur treyst, á þeim miklu um- brotatímum sem nú ganga yfir. Við þær sérstöku aðstæður sem nú eru fyrir hendi í landsmálum, hlýtur að verða að telja að hugs- anleg sérframboð sjálfstæð- ismanna verði Sjálfstæðisflokkn- um og stefnumálum hans til óþurftar. Ungir sjálfstæðismenn skora á sjálfstæðisfólk um land allt að fylkja sér um flokk sinn og á þá, sem leitt hafa hugann að sérframboðum, að sýna þá ábyrgð að láta hina minni hagsmuni víkja fyrir heildarhagsmunum flokks og þjóðar. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar • Ódýr og gód fermingjargjöf. Ljóömæli Ólínu og Herdísar á Hagamel 42. Tökum aö okkur alls konar viðgerðir Skiptum um glugga, huröir, setj- um upp sólbekki, viögerölr á skólp- og hitalögn, alhliöa vlö- geröir á bööum og flísalögnum, vanir menn. Uppl. í síma 72273. Fasteignaþjónusta Suð- urnesja Grindavík: Viöiagasjóöshús viö Suöurvör. Verö 1.150 þús. Raöhús viö Efstahraun 122 fm m/bilskúr. Verð 1.250 þús. Parhús viö Austurveg. Verö 700 þús. Garður: Einbýlishús 110 fm viö Sunnu- braut m/tvöf. bílskúr. Verö 1,3 millj. Einbýlishús viö Heiöarbraut. Verö 1,4 millj. Sandgerði: Einbýlishús viö Austurgötu. Endaraðhús viö Heiöarbraut. Skipti á 2ja herb. ibúö í Keflavík. Vallargata neöri hæö m/bílskúr. Verö 850 þús. Hafnir: Einbýlishús 120 fm viö Djúpa- vog m/57 fm bílskúr. Verö 850 þús. Fasteignaþjónusta Suöurnesja, Hafnargötu 31.2. hæö. Sími 3722. I.O.O.F. — 9 = 16403238 'h = □ Helgafell 59833237 VI-2 □ Glitnir 59833237 = Frl. Kristniboðssambandið Almennu samkomurnar meö norska prédikaranum, Gunnari Hamnöy, halda áfram i kristni- boöshúsinu Betaniu, Laufásvegi 13 í kvöld og annaö kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomn- ir. Nefndin. I.O.G.T. St. Veröandi og Frón nr. 227 fundur í kvöld kl. 8.30. Stúku- heimsókn. Æt. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR 11798 og 19533. Frá Ferðafélagi íslands Fimmtudaginn 24. mars kl. 20.30 efnir Feröafélag Islands til kynningar og myndakvölds i nýju Félags- og menningarmiö- stööinni viö Geröuberg 3 og 5 í Hólahverfi, Breiöholti 1) Guörún Þóröardóttir kynnir • máli og myndum nokkrar feröir Fl, tilhögun feröanna og fleira sem nauösynlegt er aö vita fyrir væntanlega þátttakendur í ferð- um félagsins. 2) Björn Rúriksson sýnir myndir frá Hornströndum, teknar úr lofti og á landi. Komiö í hina nýju Menningar- miöstöö i Breiöholti á fimmtu- daginn nk. og kynnist starfl Feröafélagsins. Allir velkomnir meöan húsrúm leyfir. Feröafélag íslands =R£GLA MliSrtRISRIODARA: A RMH /7VV\ 23 — RMHekla 3 - SAR — EH UTIVISTARFERÐIR sérkennilegir staðir sem vert er að sjá, gengiö á jökulinn. Far- arstj. Kristján M. Baldursson. 2. Óræfasveit. Þjóögaröurinn í Skaftafelli. tindar. jöklar og heit- ir lækir. Fararstj. Ingibjörg Ás- geirsdóttir og Styrkár Svein- bjarnarson. 3. Þórsmörk. Mörkin skartar oft sínu fegursta aö vetrarlagi. Far- arstj. Ágúst Björnsson. 4. Fimmvöröuháls. Fyrir áhuga- sama fjallamenn, reynda eöa óreynda, en takið gönguskiði meö. Fararstj. Hermann Valsson. 3ja daga ferö, 2. apríl. Þórsmörk. Velkomin i hópinn sem fyrir er. Skemmtum hvert ööru á kvöld- vökum í öllum ferðum. Enn er timi til aö rifja upp gömlu goöu lögin Sjáumstt Páskaferðir 5 daga ferðir, 31. mars: 1. Snæfellsnes. Ovenju margir Hörgshlíð 12 Samkoma í kvöld kl. 8. radauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar til sölu ísvél til sölu Af sérstökum ástæöum er lítið notuð, vel meö farin, Taylor-ísvél til sölu. Umbúöir geta fy!gt. Upplýsingar gefur Oskar í síma 22366 á skrifstofutíma. ’sstarf Út úr kreppunni Félag Sjálfstæðismanna í Langholti heldur rabbfund meö Albert Guömundssyni í Félagsheim- ili sjálfstæöismanna aö Langholtsvegi 124 fimmtu- daginn 24. marz nk. Fundurinn hefst kl. 20.30. Félagar fjölmenniö og takið með ykkur gesti. Stjórnin. Akureyri Almennur stjórnmálafundur Sjálfstæðisflokkurinn heldur almennan stjórnmálafund á Akureyri fimmtdaginn 24. mars kl. 20.30 í Sjallanum. Ræöa Geirs Hallgrímssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins: Frá upplausn til ábyrgðar. Stutt ávörp: Lárus Jónsson, alþm., Halldór BLöndal, alþm., og Björn Dagbjartsson, for- stjóri. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Sjálfstæöisflokkurinn. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins Fulltrúaráö Sjálfstæöisfélaganna í Kópavogi hefur opnaö kosningaskrifstofu í Sjálfstæö- ishúsinu aö Hamraborg 1, 3. hæö. Skrifstof- an er opin kl. 16—19 virka daga og laugar- daga. Út úr kreppunni Félag sjálfstæö- ismanna í Smáíbúða-, Bústaða og Fossvogs- hverfi heldur rabbfund með Bessí Jóhannsdóttur og Friörik Zophussyni í Valhöll Háaleit- isbraut 1, fimmtudaginn 24. marz nk. Fundurinn hefst kl. 20.30. Félagar fjölmenniö og takið meö ykkur gesti. Stjórnin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.