Morgunblaðið - 23.03.1983, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983
Náttúruverndarsamtök og ferða-
félög mótmæla alþjóða rallinu
MORGUNBLAÐINU hefur borizt til
birtingar álvktanir náttúruverndar-
samtaka og ferðafélaga, þar sem
fyrirhugaðri alþjóðlegri rallkeppni
um hálendi íslands er mótmælt.
Fara þær hér á eftir:
Landvernd
Á aðalfundi Landvérndar, sem
haldinn var 13. og 14. nóvember
sl., var eftirfarandi tillaga um
fyrirhugaða alþjóðlega rallý-
keppni á íslandi samþykkt:
„Áðalfundur Landverndar 1982
varar eindregið við hugmyndum
um alþjóðlega rallýkeppni á ís-
landi og felur stjórn Landverndar
að berjast gegn því að hún verði
að veruleika. Jafnframt skorar
fundurinn á dómsmálaráðherra að
setja nú þegar ákveðnar reglur um
rallýakstur á íslandi, þar sem til-
lit verði tekið til landverndar,
eignarhalds á landi og almennrar
umferðar."
Nú er ljóst að ákveðnir aðilar
vinna markvisst að því að þessi
keppni verði haldin hér á landi í
ágústmánuði næstkomandi. Af því
tilefni vill stjórn Landverndar
vekja athygli á nokkrum atriðum
varðandi þetta mál.
1. Stjórnandi keppninnar, sem er
franskur, hefur þegar sent kynn-
ingarbækling til 2.500 aðila víðs-
vegar um heim. Þar kynnir hann
reglur og fyrirkomulag keppninn-
ar án þess að hafa fengið tilskilin
leyfi fyrir henni hjá íslenskum
stjórnvöldum.
2. Skipuleggjendur fullyrða í
bæklingi sínum að starfsmenn
Náttúruverndarráðs, sýslumenn
og lögreglulið landsins muni ann-
ast eftirlit og löggæslu með
keppninni. Samkvæmt viðtölum
við forsvarsmenn Náttúruvernd-
arráðs og sýslumenn á viðkomandi
svæðum eru þetta beinar rang-
færslur og hefur slíkt aldrei verið
ámálgað við þá, enda segjast þeir
ekki hafa starfslið til slíks.
3. Gert er ráð fyrir að fjöldi bif-
reiða verði allt að 100 og bifhjóla
50. Um gerð þeirra er lítið til-
greint annað en það, að ekki skuli
vera fleiri en 10 hjól á hverju far-
artæki.
4. Leiðir eru þannig valdar að úti-
lokað er að fara þær á öðru en
torfæruökutækjum. Sumar þeirra
liggja um viðkvæmustu gróður-
lönd hálendisins. Má þar nefna
Friðland að Fjallabaki en þar á að
aka um Fjallabaksleiðir nyrðri og
syðri og þar með um afar viðkvæm
gróðurlönd á afrétt Skaftár-
tungna. Einnig á að aka um efri
hluta Þjórsárvera og um Herðu-
breiðarlindir er þeyst fram og til
baka, en hvort tveggja eru þetta
viðkvæm náttúruverndarsvæði.
Mörg önnur svæði sem fara á um,
þola einnig mjög takmarkaða um-
ferð. Virðist val skipuleggjenda á
akstursleiðum bera lítinn vott um
þekkingu á umhverfisvernd.
5. Miðað við fjölda farartækja
keppenda, aðstoðarfólks, eftir-
litsmanna, áhorfenda og áhuga-
samra fulltrúa fjölmiðla, en hann
hlýtur að skipta hundruðum, verð-
ur vart séð að hjá því verði komist
að ekið verði utan vega og slóða.
Af því getur hlotist mikið jarð-
rask og stórfelldar gróður-
skemmdir, enda er þessi keppni af
allt öðru tagi en áður hefur tíðk-
ast og miklu hættulegri gróðri og
umhverfi.
Telja verður að allur undirbún-
ingur keppninnar sé gerður af
dæmalausri vanþekkingu á ís-
lenskum aðstæðum og tillitsleysi
við gróður og náttúru landsins.
Það er álit Landverndar að ekki
komi til greina að leyfa rallýkeppni
af þessu tagi á viðkvæmu hálendi
landsins og skorar Landvernd á
viðkomandi að vernda land og
þjóð gegn þessum ófögnuði.
Ferðafélag íslands
Eftirfarandi samþykkt var gerð
á fundi stjórnar Ferðafélags ís-
lands 9. mars sl.:
„Vegna fyrirætlana um alþjóð-
legt „rall“ á öræfaslóðum Islands
og umsóknir um leyfi til slíks vill
stjórn Ferðafélags íslands taka
fram eftirfarandi:
Vegna viðkvæmra gróðursvæða
á hálendi landsins verður að gæta
ýtrustu varfærni svo að umferð
valdi ekki tjóni á gróðri og ber því
að forðast aðgerðir, sem leiða til
aukinnar umferðar á hálendinu
umfram venjulega umferð ferða-
fólks.
Verður því að telja mjög óráð-
legt að leyfa slíka ökukeppni á
þeim svæðum á hálendinu, þar
sem hætta getur verið á gróður-
skemmdum.
Treystir stjórn Ferðafélagsins
því, að við umfjöllum þessa máls
láti stjórnvöld þessi sjónarmið
ráða.“
Vestfirzk náttúru-
verndarsamtök
Á fundi sínum 8. mars 1983
samþykkti stjórn Vestfirzkra
náttúruverndarsamtaka eftirfar-
andi ályktun:
„Svo sem ljóst er af fréttum,
hyggst Frakkinn Jean-Claude
Bertrand standa fyrir alþjóðlegri
rallkeppni á íslandi í ágústmánuði
næstkomandi.
Alian undirbúning að keppninni
hefur Frakkinn Bertrand, ásamt
þeim íslendingum, sem með hon-
um starfa, unnið án þess að hafa
undir höndum tilskilin leyfi ís-
lenskra stjórnvalda til slíkrar
keppni
I upplýsingabæklingi um rallið
— Ralley d’Islande — er m.a. kort,
sem sýnir helstu akstursleiðir. Þar
kemur í ljós, að áformað er að aka
bæði Kjalveg og Sprengisandsleið,
afréttarvegi á Austurlandi og á
Mistúlkun náttúruverndar-
0■
manna á Rallye d’Islande
LÍA, Landssamband íslenskra
akstursíþróttafélaga, er lands-
samtök allra þeirra klúbba og fé-
laga er akstursíþróttir stunda á
íslandi. Þessi samtök eru nú
þriggja ára gömul. LÍA, sem og
akstursíþróttafélög landsins, er
áhugamannafélag sem ekki fær
styrk frá ríki eða sveitarfélögum
eins og mörg íþróttafélög í land-
inu. LIA er aðili að FISA, Federa-
tion International Sport de
l’Automobil, sem hefur yfirum-
sjón með öllum akstursíþróttum í
heiminum. Landssamband hvers
aðildarlands um sig hefur alræð-
isvald í öllum málum er varða
akstursíþróttir í hverju landi,
þannig að LÍA hefur yfirumsjón
með öllum akstursíþróttum, reglu-
setningum og framkvæmd þeirra
á Islandi. Einnig er LÍA í nánu
sambandi við hinar Norðurlanda-
þjóðirnar, en þær halda sameig-
inlegan fund um akstursíþróttir
tvisvar á ári. Síðast var Norður-
landaþing haidið hérlendis árið
1980.
Því hefur verið haldið fram í
fjölmiðlum undanfarið, að rall-
akstur sé einungis stundaður í
vanþróuðum Afríkuríkjum. Lítum
nú nánar á staðreyndir þessarar
fullyrðingar: Rallakstur hefur
verið stundaður í Evrópu frá því
fyrir aldamót og í Svíþjóð, sem við
fslendingar berum okkur gjarnan
saman við, eru haldin yfir 400 inn-
anlandsröll árlega og með góðum
árangri. Rúmlega 80.000 manns
hafa réttindi til að stunda rall-
akstur í Svíþjóð og er þessi íþrótt
talin með öruggustu íþróttagrein-
um, sem þar eru stundaðar. Al-
þjóðlega keppni í rallakstri þarf
að skrá sérstaklega hjá FISA með
árs fyrirvara, en í þess konar
keppni er keppendum af öllum
þjóðernum heimil þátttaka. Röll
af þessu tagi verða um 300 á þessu
ári og verða haldin í 51 þjóðlandi,
í öllum heimsálfum nema á Suður-
skautinu, allt frá Bandaríkjunum
til Rússlands og Islandi til Ástr-
alíu.
„Kynntum okkur málið
vel og erum fullvissir
um hæfni Bertrand“
Hugmyndin um að halda Rallye
d’Islande barst okkur hjá LÍA til
eyrna síðastliðið vor frá Ferða-
skrifstofu ríkisins og frá ferða-
málaráði. Þegar keppnislbeiðandi,
Jean Claude Bertrand, hafði sam-
band við LÍA í upphafi, þá tók
sambandið hugmyndum hans með
mikilli varúð. LÍA ákvað að kynna
sér málið vel og vandlega og í dag,
eftir að hafa fundað með Bertrand
hér heima og erlendis og þá sér-
staklega eftir að sérfræðingur
LÍA fór til Alsír og fylgdist með
skipulagningu hans á stórri
keppni þar, þá erum við sannfærð-
Mikið hefur verið rætt og rit-
að um hið svonefnda ís-
landsrall, Rallye d’Islande
Frakkans Jean-Claude Bert-
rand. Er það viðamikil
keppni sem hann hefur mik-
inn áhuga á að halda í lok
ágúst á þessu ári. Hefur um-
ræða um þetta mál oftar en
ekki verið byggð á misskiln-
ingi, rangtúlkun og þekking-
arleysi. Eitt er vfst, og það er
að skiptar skoðanir eru um
ágæti þessarar keppni, en
fyrir stuttu sendu sam-
starfsmenn Jean-Claude
Bertrands hérlendis Morg-
unblaðinu álit sitt á málinu,
en það er Landsamband ís-
lenskra akstursíþróttafélaga.
ir um hæfni hans til að setja upp
slíka keppni hér heima.
Við höfum frá upphafi og stofn-
un samtaka okkar lagt mikla
áherslu á náttúruverndarmál og
gerum okkur grein fyrir að það er
skilyrði fyrir slíkri keppni hér, og
reyndar öliu því sem fram fer á
okkar vegum, að ekki verði spjöll á
náttúru landsins. Umsókn um
leyfi til að halda rallkeppni fer
þannig fram, að ákveðinn aðili,
oftast bifreiðaíþróttaklúbbur,
sækir um leyfi til LÍA, sem síðan
formlega sækir um leyfið fyrir
keppninni til yfirvalda. Það er
dómsmálaráðuneytis, Vegagerðar
ríkisins, sýslumanna svæðanna,
sem rallið nær yfir og í sumum
tilfellum til sveitarstjórnar ákveð-
ins svæðis og veghaldara, ef hann
er annar en Vegagerðin.
LÍA hefur síðan eftirlit með
keppnishaldara og keppendum og
sér til þess að keppnin fari fram
samkvæmt reglum og skilyrðum
eða takmörkum opinberra aðila,
svo sem um akstursleiðir. Við telj-
um okkur því hafa öðlast næga
reynslu til þess að takast á við
verkefni eins og hið svokallaða ís-
landsrall.
Jafnframt því að fylgja eftir
reglum um keppnina, landslögum,
sem okkar eigin reglum, munum
við stuðla að aukinni náttúru-
vernd með eða án náttúruvernd-
armanna. I þeim 40 röllum sem
haldin hafa verið til þessa á veg-
um LÍA í samvinnu við bifreiða-
íþróttaklúbbana frá árinu 1975
hefur ekki verið hægt að benda á
náttúruspjöll, sem rekja mætti til
slíkrar keppni, og geri aðrir betur.
Eins og fram hefur komið í
fréttaflutningi um þetta fyrirhug-
aða Islandsrall, hefur því verið
haldið stöðugt á loft að búið sé að
auglýsa keppnina um allan heim.
Þetta mun ekki vera allskostar
rétt. Það er búið að dreifa kynn-
ingarbæklingi um rallið til hugs-
anlegra keppenda og einnig er bú-
ið að prenta auglýsingaspjöld, sem
dreift verður um leið og leyfi fæst
fyrir keppninni. Strax í upphafi,
þ.e. á sl. ári, var hlutaðeigandi að-
ilum kynnt málið og má þar nefna
dómsmálaráðuneyti, vegamála-
stjóra, samgöngumálaráðherra,
flugfélög, Farskip, Ferðaskrif-
stofu ríkisins o.fl. I öllum röllum,
sem haldin hafa verið hérlendis,
hefur verið haft fullt samstarf við
yfirvöld og hlutaðeigandi aðila án
stórárekstra. Auðvitað eru menn
ekki alltaf sammála um alla hluti
og upp koma vandamál sem þá er
reynt að leysa, en þeim ekki kast-
að frá án þess að þau séu skoðuð
til hlítar, með öll sjónarmið í
huga.
Andstæðingar þessarar rall-
keppni, sem mest hefur heyrst í,
eru Náttúruverndarráð, landverð-
ir og félag leiðsögumanna. Þeir
tala um náttúruspjöll, lélega land-
kynningu og aukið álag á ferða-
mannastaði. Hvað varðar gróð-
urskemmdir og náttúruspjöll vilj-
um við segja þetta:
Keppnin fer fram á vegum sem
merktir eru af Vegagerð ríkisins
og tilheyra alfarið undir vegagerð-
ina. I reglum keppninnar segir að
keppendur skuli aka á veginum, en
ekki utan hans, að viðlagðri
brottvísun úr keppni. Þeir hjá
náttúruverndarráði hafa mistúlk-
að reglu sem segir að aka megi
stystu leið framhjá ef hindrun er í
veginum. Þessi regla á við um
ferjuleiðir (ferjuleiðir eru leiðir á
almennum opnum vegum þar sem
keppendur aka á milli sérleiða,
þar sem hin raunverulega keppni