Morgunblaðið - 23.03.1983, Síða 41

Morgunblaðið - 23.03.1983, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983 41 í dag kveðjum við Valtý Bjarna- son fyrrverandi yfirlækni, en hann andaðist að morgni 10. marz sl. í Hafnarbúðum, en þar hefur hann verið vistmaður undanfarin ár. Valtýr fæddist 6. marz 1920 að Meiritungu í Holtum í Rangár- vallasýslu. Foreldrar hans voru Bjarni Jónsson, bóndi og vega- verkstjóri í Meiritungu og kona hans Þórdís Þórðardóttir frá Hala í Holtum. Að Valtý stóðu því gagnmerkar ættir úr Rangárvalla- þingi. Foreldrar Valtýs eignuðust 4 börn og var hann yngstur systk- ina sinna. Elstur var Þórður, bóndi í Meiritungu, sem nú er lát- inn, en systurnar tvær, Jóna og Kristín, búa enn í Meiritungu. Strax í uppvexti sínum vandist Valtýr því að til foreldra hans í Meiritungu leituðu menn með alls- konar vandamál, því öllum vildu þau hjálpa og alltaf var tími til slíks og má segja að þetta vega- nesti úr foreldrahúsum hafi auð- kennt Valtý, allt hans líf og öll hans störf. Hugur hans stóð fljótt til þess að geta hjálpað og hann vildi snemma verða að liði. Hann vildi verða læknir og læknir varð hann með þeim orðstír sem seint gleymist. Valtýr varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1941 og þrátt fyrir mikil veikindi lauk hann embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla fslands 1952 og sér- fræðinámi í svæfingum og deyf- ingum frá Mayo Clin. í Minnesota í Bandaríkjunum 1957. Að sér- fræðinámi loknu hóf Valtýr störf við handlækningadeild Landspít- alans og var jafnframt forstöðu- maður Blóðbankans. Svæfingayf- irlæknir við handlækningadeild- ina var hann skipaður 1964 og dós- ent í svæfingum og deyfingum við læknadeild Háskóla lslands var hann frá 1962. Valtýr var fyrsti formaður Fé- lags svæfingalækna á íslandi og hann sat í stjórn Félags norrænna svæfingalækna um árabil. Árið 1956, þann 12. desember, kvæntist Valtýr eftirlifandi konu sinni, Sigríði Jóhannsdóttur hjúkrunarfræðingi, en hún er dóttir Jóhanns Steinssonar tré- smiðs á Akureyri og konu hans Sigríðar Jóhannsdóttur, en þau eru nú bæði látin. Athöfnin fór fram í Minneapolis í Minnesota í Bandaríkjunum, þegar þau Sigríð- ur og Valtýr voru þar bæði við framhaldsnám og var athöfnin meiriháttar viðburður meðal ís- lendinga á þeim slóðum í þann tíma. Valdimar Björnsson fyrr- verandi ræðismaður var svara- maður brúðarinnar og hefur ávallt síðan verið mikill vinskapur og samband milli þeirra Valdimars og konu hans og Sigríðar og Val- týs. Heimili þeirra, Sigríðar og Val- týs frá því að þau komu heim frá námi, hefur ávallt verið hér i Reykjavík og lengst af að Stiga- hlíð 85 og ber það þeim glæsilegt vitni um • myndarskap og smekk- vísi, bæði innandyra og utan. Börn þeirra eru fjögur, elstur er Bjarni læknanemi, kvæntur Dóru Gerði Stefánsdóttur hjúkrunar- nema frá Neskaupstað, Jóhann læknanemi, Valtýr sem les ís- lenzku við Háskóla íslands, kvæntur Sigrúnu Benediktsdóttur úr Reykjavík, en hún les kennslu- og uppeldisfræði við háskólann og eiga þau einn son, Valtý Bjarka. Sigríður Þórdís er yngst, en hún er nemandi í Menntaskólanum við' Hamrahlíð. Þegar litið er til baka yfir far- inn veg, þann veg sem við Valtýr fórum saman, fyrst sem svilar og síðar einnig sem vinir, er margs að minnast. Eg held að á engan sé hallað þegar ég fullyrði að engum hefi ég kynnst sem fljótari var til og fúsari til að gera öðrum greiða og alltaf var hann reiðubúinn. Það var sama hvað það var, smátt eða stórt, hann hafði alltaf tíma og áhuga. Það var því löngum anna- samt í kringum Valtý Bjarnason. Hann var sístarfandi, einu frí- stundirnar sem ég man að hann tæki sér notaði hann til að mála. Hann hafði gaman af fallegum málverkum og málaði gjarnan sjálfur og lék það í höndum hans eins og allt annað er hann tók sér fyrir hendur. Valtýr var læknir af lífi og sál. Hann var síleitandi í starfi sínu og sótti margar ráðstefnur og fundi til að geta fylgst sem allra best með og hann bryddaði sjálfur uppá mörgum nýjungum í starfi sínu sem síðar urðu viðurkenndar, enda hlaut hann ekki síður viður- kenningu hjá félögum sínum en sjúklingum. Þá sat nærgætni og umhyggja fyrir sjúklingunum ávallt í fyrirrúmi hjá honum. Valtýr var dyggilega studdur af eiginkonu sinni í þessum efnum sem öðrum, en þau voru ávallt mjög samhent. Það var því eigi lítið áfall er Valtýr veiktist svo fyrir tæpum 10 árum að hann hefur verið óvinnu- fær síðan. Það misstu margir mik- ið, en þó fjölskylda hans mest, konan hans og börnin, það yngsta aðeins 6 ára gamalt. En með fá- dæma dugnaði Sigríðar og dygg- um stuðningi systkina Valtýs og samheldni barnanna hefur þetta allt gengið og mikil var gleði Val- týs á síðasta afmælisdegi hans, 6. marz sl., þegar hann stóð upp í Hallgrímskirkju með Bjarna syni sínum, sem giftingarvottur hans. Ég og fjölskylda mín, eigum Valtý Bjarnasyni mikið að þakka, bæði sem vini og lækni og biðjum við Guð að blessa minningu hans og sendum Sirrý, börnum og tengdabörnum og barnabarni innilegar samúðarkveðjur. Við geymum í huga okkar minn- ingar um kæran vin, mikinn lækni og góðan mann. Yaldimar Ólafsson I dag kveðjum við Valtý Bjarna- son, yfirlækni, brautryðjanda ís- lenskrar svæfingalæknisfræði. Hann andaðist í Reykjavík, 10. marz, eftir nær áratugs veikindi. Valtýr var fæddur í Meiri- Tungu í Holtum, Rangárvalla- sýslu. Foreldrar hans voru Bjarni Jónsson, bóndi og vegaverkstjóri þar, og kona hans Þórdís Þórðar- dóttir, hreppstjóra og alþing- ismanns í Hala í Holtum, Guð- mundssonar. Valtýr varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1941 og cand. med. et chir frá Há- skóla íslands 1952. Eftir kandi- datsár og héraðslæknisstörf hér heima, fór hann utan til sérnáms til Mayo Foundation/Mayó Clinic í Rochester í Minnesota, Banda- ríkjunum 1955, þar sem hann afl- aði sér mjög góðrar sérmenntun- ar, en hvarf aftur heim til starfa 1957. Að loknu sérnámi biðu hans ótakmörkuð störf og má með sanni segja að hann hafi unnið margra manna verk sem eini svæfingalæknir Landspítalans, auk starfs forstöðumanns Blóð- bankans og við kennslu í lækna- deild. Til hans var einnig leitað frá öllum sjúkrahúsum Reykjavik- ur og reyndar alls staðar að af landinu, þegar vandamál bar að í hans sérgrein. Fyrst kynntist ég Valtý sumarið 1952, en þá var hann aðstoðar- læknir á Vífilsstaðapítala. Hann var kvikur í spori og léttur í lund og stutt í heillandi hlátur. Með okkur tókst vinátta, sem hefur haldist æ síðan. Sumarið 1957 hóf Valtýr störf sem eini svæfinga- læknir Landspftalans, á stöðugum vöktum og alltaf tilkallaður við hverja skurðaðgerð og reyndar hvers konar vandamál önnur. Hann var slvinnandi jafnt nætur sem daga á Landspítalanum og Blóðbankanum, enda takmarkaðri hjálp til að dreifa. Flestum, sem til þekktu var ljóst, að hér var um margra manna starf að ræða, en Valtýr einn hafði þá sérþekkingu, sem til þurfti. Okkur, sem fylgd- ust með störfum hans á þessum árum var Ijóst, að svæfingadeild Landspítalans og Valtýr Bjarna- son var eitt og hið sama. Margir spurðu sig hversu lengi heilsa hans myndi þola þetta álag, enda kom það síðar í ljós, að öllu eru takmörk sett. Við, sem nú störfum við svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítalans, lítum á Valtý Bjarnason sem upphafsmann bæði svæfinga- og gjörgæsludeildar og reyndar brautryðjanda í svæf- ingalæknisfræði á landinu. Hann var fyrsti kennari í svæfingalækn- isfræði við Háskóla íslands og dósent í þeirri grein frá 1962. Forstöðumaður Blóðbankans var hann frá 1957 til 1970, en þar vann hann einnig mikið braut- ryðjandastarf, sem aðrir en undir- ritaður eru hæfari um að fjalla. Auk alls þessa vann Valtýr mikið að frumskipulagi Almannavarna og tók virkan þátt í sjúkraflutn- ingum bæði innanlands og milli landa. Valtýr Bjarnason beitti sér fyrir stofnun gjörgæsludeildar við Landspítalann, hann sá um skipu- lag og uppbyggingu deildarinnar og má heita að deildin hafi verið nær fullbúin, er Valtýr varð að hverfa frá störfum á miðjum starfsaldri vegna heilsubrests. Þeim, sem til þekktu var ljóst, að Valtýr var alvarlega veikur, en hann hélt áfram að starfa meðan kraftar entust, með hjálp sinna ágætu samstarfsmanna og eru mér þar efstir í huga læknarnir Valdemar Hansen og Guðjón Sig- urbjörnsson, sem störfuðu með honum við svæfinga- og gjör- gæsludeild Landspítalans síðustu starfsár hans. Valtýr var snillingur í höndun- um og listrænn maður. Það má glöggt sjá á þeim málverkum, sem hann fékkst við að gera í frístund- um sínum, að þær hafa án efa ver- ið að skornum skammti. Valtýr Bjarnason tók virkan þátt í félagsmálum lækna. Hann var formaður Félags svæfinga- lækna á íslandi frá stofnun þess 1960 og sömuleiðis meðstjórnandi í Félagi norrænna svæfingalækna um árabil frá 1960. I einkalífi sínu var Valtýr ham- ingjusamur maður. Hann kvænt- ist árið 1956 eftirlifandi konu sinni Sigríði Jóhannsdóttur, hjúkrunarfræðingi, sem alla tíð reyndist honum styrk stoð í starfi, en ekki síst í langvarandi veikind- um hans. Börn þeirra eru fjögur, Bjarni f. 1957, sem er í þann veg- inn að ljúka læknanámi, Jóhann f. 1959, nú á fjórða ári læknanáms, Valtýr f. 1960, sem nú stundar nám í islenskum fræðum og Sig- ríður Þórdís f. 1966, við mennta- skólanám. Nú þegar við kveðjum Valtý Bjarnason er efst í huga þakklæti fyrir langvarandi góða vináttu og hans ótrúlega frumherjastarf í sérgrein okkar, svæfingum og gjörgæslu, en síðast en ekki síst, mikið og óeigingjarnt starf hans að skipulagi og uppbyggingu svæf- Fædd 27. júlí 1920 Dáin 16. mars 1983 I dag kveðjum við vinkonu, skóla- og fermingarystur okkar, Guðríði Halldórsdóttur, frá Grund í Súðavík. Guðríður var fædd 27. júlí 1920, dóttir hjónanna Maríu Helgadóttur og Halldórs Guð- mundssonar skipstjóra. Gauja, eins og hún var ávallt kölluð, var yngst af þremur systkinum og var alin upp í ástúð og hlýju af sínum góðu foreldrum. Sigurður, einka- bróðir hennar, drukknaði með báti frá Súðavík ungur að árum og var þá þungur harmur kveðinn að öllu hans fólki. En eina systur á Gauja, Guðmundu, sem er búsett hér í Reykjavík, og var alltaf mjög kært með þeim systrum. Þegar við hugsum til baka, þá koma upp í huga okkar bernskuár- in í þorpinu okkar kæra, hvað við vorum ánægðar í skólanum, úti- leikjum, sleða- og skautaferðum, göngu- og berjaferðum. Svo liðu árin og þá var farið að heiman til að vinna fyrir sér eins og þá var títt, en alltaf hélst sama vináttan. Ung að árum giftist hún eftirlif- andi manni sínum, Gísla Sigur- björnssyni, góðum atorkumanni. Byrjuðu þau sinn búskap á Grund, hjá foreldrum hennar, sem enduðu inga- og gjörgæsludeildar Land- spítalans, en minning hans mun lifa í áframhaldandi starfi þeirrar deildar. Blessuð sé minning Valtýs Bjarnasonar, yfirlæknis. Þórarinn Ólafsson Valtýr Bjarnason, fyrrverandi yfirlæknir svæfingadeildar Landspítalans, lést þann 10. marz sl. 63 ára að aldri. Hann var fædd- ur að Meiri-Tungu í Holtum. For- eldrar hans voru Bjarni Jónsson, bóndi og vegaverkstjóri, og kona hans Þórdís Þórðardóttir. Hann var yngstur fjögurra systkina og átti eina fóstursystur. Valtýr tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1941 og um haustið innritaðist hann í lækna- deild Háskóla íslands. Á háskóla- árum sínum varð hann fyrir því óláni að veikjast af berklum og varð því að hætta námi um tíma, en tók svo upp þráðinn að nýju og lauk kandidatsprófi í læknisfræði vorið 1952. Hann var síðan náms- kandidat við Landspítalann i eitt ár og eftir það aðstoðarlæknir héraðslæknisins í Stórólfshvols- héraði í rúmt ár, eða þar til hann hélt til Ameríku í apríl 1955, þar sem hann lagði stund á sérnám í svæfingalæknisfræði við Mayo- foundation/Mayo-klinikk í rúm 2 ár. Þegar heim kom var hann ráð- inn svæfingalæknir við handlækn- isdeild Landspítalans og jafn- framt forstöðumaður Blóðbank- ans í Reykjavík og starfaði þar æ síðan meðan honum entist heilsa. 1962 var hann skipaður dósent í svæfingum og deyfingum við læknadeild Háskóla Islands. Hann var sérfræðilegur ráðunautur við ameríska sjúkrahúsið á Keflavík- urflugvelli frá 1961. Félag svæf- ingalækna á íslandi var stofnað 19. nóv. 1960 og var hann formað- ur þess til 1970, og 13. nóv. 1974 var hann gerður að heiðursfélaga í sama félagi. Hann var meðstjórn- andi í félagi norrænna svæfinga- lækna um 10 ára tímabil frá 1960. Eftirlifandi kona hans er Sig- ríður Jóhanna Jóhannsdóttir, hjúkrunarkennari, og eru börn þeirra 4, Bjarni, Jóhann, Valtýr og Sigríður Þórdís. Fyrstu kynni mín af Valtý voru í Menntaskólanum í Reykjavík, þegar við þreyttum stúdentspróf vorið 1941, en hann tók stúd- entspróf utanskóla og las 2 bekki i einu, 5. og 6. bekk. Þetta var á hernámsárunum og mikill tvístr- ingur á nemendum skólans vegna húsnæðisskorts, því herinn hafði svo sín ævikvöld hjá dóttur sinni og tengdasyni á Grund. Gauja og Gísli eignuðust sex börn, þrjár stúlkur og þrjá drengi, sem öll eru myndarbörn. Þau menntuðu þau eftir sinni bestu getu og hafa þau öll komið sér vel áfram í iífinu eins og þau eiga kyn til. Eflaust hefur verið erfitt að ala upp sex börn, en þau hjónin voru svo samhent í því sem öðru. Gauja var mörgum góðum kost- um búin, hafði létta lund og mikla tekið af okkur Menntaskólahúsið. Um haustið hófum við bæði nám í læknadeild Háskóla íslands, en strax í fyrsta hluta veiktist Valtýr og hvarf frá námi um hríð. 1953 var hann kandidat á handlæknis- deild Landspítalans, en það ár starfaði ég þar einnig, í forföllum Elíasar Eyvindssonar, svæfinga- læknis. Ég fékk þá tækifæri til að kenna Valtý að svæfa. Hann fékk strax mikinn áhuga fyrir starfinu og reyndist sérstaklega duglegur nemandi. Þetta mun hafa leitt til þess að prófessor Snorri Hall- grímsson og fleiri hvöttu hann til að leggja fyrir sig svæfingar og deyfingar, enda mikill skortur á sérfræðingum í þeirri grein hér á landi á þeim árum. Valtýr hélt síð- an til Ameríku og stundaði nám sitt við eina virtustu læknisfræði- stofnun Bandaríkjanna. Valtýr var mjög fær í sinni grein og lagði sig allan fram við að hjálpa sjúklingum sínum, enda einstaklega ljúfur maður og fórn- fús. Hann var handlaginn svo af bar og allt lék í höndum hans. Hann var mjög laginn við allar vélar, og gerði sjálfur við öll sín tæki, enda ekki í mörg hús að venda á þeim árum. Oft rétti hann mér hjálparhönd þegar eitthvað var að mínum svæfingatækjum og taldi aldrei eftir sér, þó hann væri hlaðinn störfum. Hann var einnig mjög listrænn, hafði yndi af mús- ík og söng og var mjög hæfur listmálari. Fyrstu sérfræðingar í svæfingum og deyfingum fóru að starfa hér á landi upp úr 1952, en allar götur fram til 1970 voru þeir ennþá mjög fáir og þar af leiðandi varð vinnuálagið óhemjumikið, þurfti oft að vinna sólarhringum saman með litlum hvíldum, ef svo bar undir. Ég hygg að hið geysi- mikla vinnuálag og spenna, sem því fylgdi, hafi átt drjúgan þátt í þeim sjúkleika, sem fór að herja á Valtý á miðjum aldri, svo ekkert varð við ráðið og leiddi síðan til þess að hann fékk heilablóðfall þ. 1. maí 1973. Eftir það náði hann sér aldrei nógu vel til þess að kom- ast út i lífið og starfið að nýju. Það voru þung og grimm örlög fyrir hann og fjölskyldu hans að þurfa að þola slíka raun. Hin góða og mikilhæfa eiginkona hans hefur verið stoð hans og stytta þessi erf- iðu ár, en jafnframt unnið fyrir heimili og börnum af sínum al- kunna dugnaði. Valtýr var einlægur vinur vina sinna og mikill mannkosta maður. Ég minnist míns góða vinar með hlýhug og söknuði. Þorbjörg Magnúsdóttir kímnigáfu, þrautseig var hún einnig, enda sýndi hún það best í veikindum sínum. Fyrir nokkrum árum kenndi hún sér þess sjúk- dóms sem nú hefur lagt hana að velli. Átti hún margar ferðirnar hingað suður á Landspítalann svo og á ísafjarðarspitala áður en yfir lauk. Alltaf var hún jafn róleg og kjarkmikil. Þegar hún var spurð hvernig hún hefði það var svarið „bara gott“ og fór að tala um eitthvað annað. Á milli sjúkra- húslega gat hún verið heima við sæmilega heilsu, hugsað um sitt heimili umvafin ástúð eiginmanns síns, barna, tengdabarna og ömmubarna sem öll elskuðu hana og virtu, enda vildi hún allt fyrir þau gera svo þeim liði sem best þegar komið var vestur og kunna þau að meta það öll. Gauja vinkona okkar lést 16. þessa mánaðar á Ísafjarðarspít- ala. Það er svo margt sem við ekki skiljum en það er bara einn sem ákveður. Þegar horft er til baka finnst okkur þetta stuttur tími, en endurminningarnar geymum við um góða vinkonu. Við þökkum henni samfylgdina og kveðjum hana með söknuði um leið og við biðjum góðan guð að leiða hana á nýjum vegum. Við sendum Gísla eiginmanni hennar, börnum þeirra, barna- börnum, tengdabörnum og Guð- mundu systur hennar okkar dýpstu samúðarkveðjur. Far þú í friði, friður guðs þig b'iessi. Hafðu þökk fvrir allt og ailt. Dóra, Gauja og Solla Guðríður Halldórs- dóttir — Minning

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.