Morgunblaðið - 23.03.1983, Side 42

Morgunblaðið - 23.03.1983, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983 Minning: Þóroddur Guðmunds son, skáld frá Sandi Fæddur 18. ágúst 1904 Dáinn 13. mars 1983 í dag verður gerð frá Þjóðkirkj- unni í Hafnarfirði útför Þórodds Guðmundssonar skálds frá Sandi, sem lést í Borgarspítalanum hinn 13. þessa mánaðar. Eins og alþjóð er kunnugt var Þóroddur sonur Guðmundar Frið- jónssonar skálds á Sandi í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu og konu hans Guðrúnar Lilju Oddsdóttur. Alls voru Sandssystkinin tólf og var Þóroddur þriðji í röðinni talið eftir aldri. Hér verður ekki fjallað um bernsku- og æskuár Þórodds í for- eldrahúsum, það munu aðrir kunnugri gera. Mig langar aðeins til að minnast góðvinar míns með nokkrum fátæklegum orðum að leiðarlokum. Menntunarþrá var Þóroddi í blóð borin. Á fyrstu ártugum þess- arar aldar var ekkert lánakerfi eða félagsleg fyrirgreiðsla sem gerði fátækum æskumönnum kleift að stunda langskólanám, svo að um það var ekki að ræða. Að loknu námi í barnaskóla verður Þóroddur sér úti um frekari fræðslu í unglingaskólanum að Breiðumýri og Laugum. Síðan liggur leiðin til Noregs og þar lýk- ur hann búfræðiprófi frá Östfold höire landbrugsskole í Kalnes árið 1929. Enn leggur Þóroddur land undir fót og nú til Danmerkur, og stundar nám í Statens Lærerhöj- skole 1931—32. Kennaraprófi hér heima lýkur svo Þóroddur árið 1935. Rúmum áratug síðar fer hann til námsdvalar á Bretlands- eyjum, lengst við Trinity College í Dylfinni á írlandi, en þar kynnti hann sér enskar bókmenntir. Þótt hinni eiginlegu skólagöngu væri lokið hélt Þóroddur stöðugt áfram þekkingarleit sinni. Hann fylgdist vel með nýjungum í upp- eldis- og kennslumálum, en þó voru það einkum bókmenntirnar sem hugur hans stóð til. Hann las mikið og var vel heima í bók- menntun grannþjóðanna og ís- lenskum bókmenntum að fornu og nýju. Sjálfur var Þóroddur mikil- virkur og þekktur rithöfundur og skáld og ágætur ljóðaþýðandi. Ritstörfin stundaði Þóroddur þó aðeins í hjáverkum eins og títt er um listamenn í okkar fámenna landi. Kennslan varð aðalstarfið til að geta séð sér og sínum far- borða. Þóroddur var kennari við Al- þýðuskólann á Laugum 1929—31, við Alþýðuskólann á Eiðum 1935—44, og skólastjóri Héraðs- skólans á Reykjanesi í Norður- fsafjarðarsýslu 1944—48. Síðan kennari við gagnfræðaskólann í Flensborg í Hafnarfirði 1948 og þar til hann lét af störfum íyrir aldurs sakir. Kennslustörf eru lýjandi sem kunnugt er, en Þóroddur lét það ekki aftra sér frá að setjast við skrifborðið þegar heim kom og tóm gafst til. Eftir Þórodd liggja margar ljóðabækur, og má nefna: Villi- flug, Anganþeyr, Sólmánuður, og Leikið á langspil. Þá skrifaði hann smásögur, ferðasögur og ótal greinar í blöð og tímarit um marg- víslegustu efni. Síðast en ekki síst vil ég geta þess að Þóroddur skrif- aði tvær bækur um foreldra sína, sem mikill fengur er að; Guð- mundur Friðjónsson, ævi og störf, 1950 og Húsfreyjan á Sandi, Guð- rún Oddsdóttir, 1976. Enn eru ótaldar ljóðaþýðingar Þórodds, sem út af fyrir sig eru afrek. Vil ég nefna Söngvar sak- leysisins og Ljóð lífsreynslunnar eftir William Blake, Þýdd ljóð frá 12 löndum og Ljóðaþýðingar frá Norðurlöndum. Þá má geta þess að Þóroddur var um skeið ritstjóri bókmennta- tímaritsins Eimreiðin og sá um útgáfur ýmissa bóka og nægir þar að nefna Ritsafn föður hans. Þótt kennsla og ritstörf væru aðalævistarf Þórodds, er ekki hægt að láta undir höfuð leggjast að geta um þriðja þáttinn í starfi hans, það er að segja félagsmálin. Þóroddur var mjög félagslyndur maður, mannblendinn og ljúfur í umgengni. Hann var jákvæður í eðli sínu og lagði sig fram að finna jafnan farsælar lausnir á hverju máli. Hugsunin var skýr og hann átti létt með að átta sig á hlutun- um og greina kjarnann frá hism- inu. Málflutningur hans var rök- fastur og hann þurfti ekki að halda maraþonræður til að koma skoðunum sínum til skila. Eins og að líkindum lætur hlóð- ust margvísleg félags- og trúnað- arstörf á hendur Þóroddi er hann gegndi kennslu og skólastjórn úti á landsbyggðinni. Má þar nefna að hann var formaður Sambands þingeyskra ungmennafélaga, formaður Nemendasambands Laugaskóla, ritari ungmenna- og íþróttasambands Austurlands, formaður Eiðasambandsins, sókn- arnefndarformaður Eiðaskóknar, trúnaðarmaður Búnaðarsambands Austurlands, hreppsnefndarmað- ur í Reykjarfjarðarhreppi í N-ísa- fjarðarsýslu o.fl. Eftir að Þóroddur flyst hingað suður og sest að í Hafnarfirði, þar sem hann átti síðan heimili til æviloka, voru honum að sjálfsögðu falin ný og veigamikil verkefni í félagsmálum. Hér skulu aðeins nefnd Nor- ræna félagið og Rithöfundasam- tökin, en fyrir bæði þessi félög vann Þóroddur mikið og óeigin- gjarnt starf. Hann var formaður Norræna félagsins í Hafnafirði frá stofnun þess 1958 til 1981. Þá var Þór- oddur lengi í stjórn og fram- kvæmdaráði sambands Norrænu félaganna í Reykjavík og sótti ráð- stefnur erlendis á þess vegum. Það var í samtökum rithöfunda fyrir meira en þrjátíu árum, sem leiðir okkar Þórodds lágu saman. Fyrstu kynnin voru ánægjuleg og síðar áttum við eftir að vinna lengi saman í stjórn Félags ís- lenskra rithöfunda. Hann tók sæti í stjórninni 1953, og varð formað- ur 1954. En alls mun hann hafa verið í tíu ár formaður félagsins eða lengur en nokkur annar fé- lagsmaður í Félagi íslenskra rit- höfunda. Það sýnir best hvers álits og trausts hann naut. Árið 1974 var hann gerður að heiðurs- félaga Félags ísl. rithöfunda í þakklætis og virðingarskyni fyrir vel unnin störf. Hann var einnig heiðursfélagi Norræna félagsins. Þá sótti Þóroddur ráðstefnur og þing norrænna rithöfunda, var til að mynda fulltrúi Félags ísl. rit- höfunda á fundum Norræna rit- höfundaráðsins I Stokkhólmi og Helsingfors. Þá átti hann um skeið sæti í stjórn Bandalags ís- lenskra listamanna. Hann var einn af stofnendum Rithöfunda- sambands fslands. Það var ánægjulegt og uppörv- andi að vinna með Þóroddi að hagsmunamálum rithöfunda. Hann var víðsýnn og frjálslyndur og fordómar voru honum fjarri skapi. íslenskar bókmenntir voru honum hjartans mál og hann lét einskis ófreistað til að auka veg þeirra og virðingu. Eftir því sem ég þekkti Þórodd lengur mat ég hann meira, bæði sem skáld og hreinskiptinn drengskaparmann. Slíka menn er gott að eiga að vini og samherja. Auk ljóðlistarinnar eignaðist Þóroddur aðra heilladís er stóð við hlið han í blíðu og stríðu 1 gegn um lífstíðina. Þar á ég við hans góðu eiginkonu, Hólmfríði Jóns- dóttur frá Brekku í Presthóla- hreppi í Norður-Þingeyjarsýslu, sem hann kvæntist hinn 12. sept- ember 1936. Hólmfríður er mikil myndar- kona, greind, glaðvær og vel verki farin. Hún var manni sínum einkar samhend og tók þátt í áhugamálum hans og listsköpun, hvatti hann ef á móti blés og gladdist með honum á góðum stundum. Þá bjó hún manni og börnum fallegt og notalegt heim- ili, þar sem gott var að vinna og hvílast. Dætur þeirra hjóna eru tvær, Þorbjörg og Guðrún. Og barnabörnin eru fimm. Það var skemmtilegt að koma á heimili þeirra Þórodds og Hólm- fríðar, þar sem gestrisni, glaðværð og góðvild réði ríkjum, en öndveg- ið skipuðu samræður um bækur og íslenska menningu, ýmist í alvar- legum eða gamansömum tón. Við hjónin minnumst margra ánægju- legra samverustunda á heimili þeirra hjóna á ölduslóð 2 eða hér heima í Brautarlandinu. Að leið- arlokum þökkum við samfylgd og vináttu. Þóroddur hefur skilað miklu og gifturíku ævistarfi. Hann hefur reist sér óbrotgjarnan bautastein, hið besta í ljóðum hans mun lifa um ófyrirsjáanlega framtíð. Nú við vistaskiptin þegar skáld- inu birtist nýtt dýrðarhvel, kemur mér í hug erindi úr ljóðum hans: „Hels um djúp sem dýrðarhvel Drottinn sjálfur veg minn greidir: Rið mitt allt þér fús ég fel. Finn ég, að þín hönd mig leidir.“ Við hjónin sendum eiginkonu, dætrum, barnabörnum, systkinum og venslafólki okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Þórodds Guðmundssonar skálds frá Sandi. Ármann Kr. Einarsson. Kveðja frá Félagi íslenskra rithöfunda: Við fráfall Þórodds Guðmunds- sonar skálds vill stjórn Félags ís- lenskra rithöfunda gjalda honum þökk fyrir góð störf unnin I þágu félagsins og fyrir þann skerf er hann hefur lagt til íslenskra bókmennta. Þóroddur Guðmundsson var fæddur að Sandi í Aðaldal 18. ág. 1904, sonur hins þjóðkunna skálds Guðmundar Friðjónssonar. Eftir fjölbreytt skólanám gerðist hann kennari og var það hans aðalstarf yfir þrjátíu ára skeið, en samhliða atvinnu sinni stundaði hann rit- störf. Eftir Þórodd hafa komið út átta ljóðabækur með frumsömdum ljóðum og ljóðaþýðingum, ein bók t Faðir okkar og tengdafaðir, NJÁLL GUOMUNDSSON, fyrrv. skólastjóri, Klapparási 2, lést 18. mars. Jaröarförin fer fram fimmtudaginn 24. marz kl. 10.30 frá Bústaöakirkju. Anna Njálsdóttir Möller, William Thomas Möller, Baldur Víðarr Njálsson, Tove Víðarr Njálsson, t Maðurinn minn, faöir, tengdafaöir og afi, ÞÓRÐURGUNNARJÓNSSON, Samtúni 22, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, flmmtudaginn 24. marz kl. 15.00. Elísabet Björnsdóttir, Erla Þórðardóttir, Sigfrið Ólafsson, Guörún Þórðardóttir, Höróur Sigmundsson og barnabörn. t Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, GUÐBJÖRN GUÐMUNDSSON, prentari, Hagamel 18, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 25. mars, kl. 13.30 eftir hádegi. Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlega bent á líknarsjóö Oddfellow-reglunnar. Elín Guðbjörnsdóttir, Magnús Guðbjörnsson, Björn Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartans þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför mannsins míns, BJÖRGVINS JÓNSSONAR, Blönduhlíð 29. Þórunn Björnsdóttir. t Alúöarþakklr fyrir auösýnda samúö og vináttu vegna andláts og útfarar, ÁRNA MAGNÚSSONAR, verkstjóra. Sérstaklega þökkum viö hestamannafélaglnu Létti og Slippstöö- inni hf. Aldia Björnsdóttir, Birgir Árnason, Rebekka Árnadóttir, Helga Árnadóttir, Magnús Árnason, Björn Þorsteinsson, Kolbeinn Árnason, Ragnar Árnason og barnabörn. smásagna og ferðabók. Þá reit hann bækur um foreldra sína; Guðmundur Friðjónsson, ævi og störf, 1950 og Húsfreyjan á Sandi, Guðrún Oddsdóttir, 1976. Einnig stóð hann að útgáfu ýmissa bóka, svo sem ritverka föður síns. Þóroddur var einn af stofnend- um Félags íslenskra rithöfunda og æ síðan traustur og athafnasamur félagi. Hann var ritari félagsins í þrjú ár og þvívegis tók hann að sér stjórn félagsins, árin 1954—58, 1965—69 og 1972—74. Hann var einn af ritstjórum Eimreiðarinnar á þeim tíma sem félagið átti ritið og gaf það út. Þá var hann fulltrúi FÍR á fundum Norræna rithöf- undaráðsins í Svíþjóð og Finn- landi 1957. Þóroddur var kjörinn heiðursfélagi Félags íslenskra rit- höfunda 1974. Þóroddur kvæntist 1936, Hólm- fríði Jónsdóttur bónda á brekku í Núpasveit Ingimundarsonar, hinni mestu mætiskonu. Dætur þeirra eru tvær, Þorbjörg og Guð- rún, báðar giftar. Félag íslenskra rithöfunda fær- ir Hólmfríði, dætrum þeirra og vandamönnum innilegar samúð- arkveðjur um leið og það þakkar Þóroddi Guðmundssyni störf hans í þágu íslenskra fagurbókmennta og félagslegan stuðning að óháðri listsköpun. Stjórn Félags íslenskra rithöfunda Kveðja frá Norræna félaginu Þóroddur Guðmundsson, skáld og rithöfundur, hefur staðið í for- ystusveit Norræna félagsins í ára- tugi. Að forgöngu hans var Nor- ræna félagið í Hafnarfirði stofnað 2. maí 1958 eða fyrir um aldar- fjórðungi. Var hann formaður þess í fulla tvo áratugi. Með óblandinni gleði minnist ég félags- funda í Hafnarfirði á þessum ár- um, er ætíð voru með þeim menningarbrag sem þessum mennta- og mannvini var að skapi. Það er oft á tíðum töluverð vinna að veita forystu félagsstarfi eigi það að rísa undir nafni. Norræna félagið í Hafnarfirði er ein starfsamasta deild Norræna félagsins. Þóroddur lagði metnað sinn í það eins og annað sem hann tók sér fyrir hendur. Hann átti sæti í sambands- stjórn Norræna félagsins frá 1963 og var jafnan ritari hennar. Það er raunar ánægjan ein að minnast þess ásamt öðru hve fallega rit- hönd Þóroddur hafði. Eftir skipulagsbreytingu Nor- ræna félagsins á árinu 1971 var hann sjálfsagður í framkvæmda- ráð þess og sat þar í rúm sjö ár, tillögugóður og hollráður og sinnti því starfi af sömu kostgæfni og alúð og öðrum þeim störfum er hann vann að. Þóroddur var eldsál og ærlegur maður, sem heiður var að fá að kynnast og starfa með. Málstaður- inn var honum allt. Heit lund hans og einlæg þoldi þar engan undanslátt. Hann fór um landið í^erindum Norræna félagsins og flutti mál sitt logandi af áhuga á hugsjónum norrænna, friðelskandi manna. Hann átti sinn þátt í stofnun Norræna félagsins á Egilsstöðum, sem starfar af miklum þrótti. Þóroddur lét sér mjög annt um að klæða hugsanir norrænna skálda i íslenskan búning og má þá minnast veglegs safns nor- rænna ljóða sem hann þýddi og gefin voru út fyrir nokkrum árum. Var að þeim fengur fyrir ljóða- unnendur. Þegar Þóroddur lét af störfum heiðraði Norræna félagið hann með því að gera hann að heiðurs- félaga og sæma hann gullmerki félagsins. Enginn var betur að þeim sóma kominn en hann. Nor- ræna félagið á íslandi þakkar Þóroddi af alhug mikil og óeigin- gjörn störf í þágu þess. Alla tíð naut hann ástríks stuðnings eiginkonu sinnar, Hólmfríðar Jónsdóttur. Ánægju- legt er að minnast heimsókna til þeirra hjóna á hlýtt og menning- arlegt heimili, þar sem skilningur og virðing fyrir manngildinu sátu í fyrirrúmi. Við gamlir félagar Þórodds

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.