Morgunblaðið - 23.03.1983, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983
45
Þrjár nýjar skákbækur
Ólympíuskákmótið í Luzern 1982
Bezti leikurinn eftir Hort og Jansa
Skákdæmi og tafllok eftir sovézka
höfunda.
Skákbækur hafa ekki átt upp
á pallborðið hjá stóru bókafor-
lögunum enda skilar útgáfa
þeirra ekki fljótteknum arði eða
jafnvel engum. Skákbókmenntir
Islendinga væru þvi ærið fátæk-
legar ef ekki hefði komið til
framtak Tímaritsins Skák og
Skákprents, sem hafa frá 1967,
auk þess að halda úti myndar-
legu tímariti, sent frá sér á ann-
an tug skákbóka. Langflestar
þessara bóka hafa verið þýddar
og hefur val þeirra yfirleitt tek-
ist mjög vel og áherzla lögð á að
þær væru fyrst og fremst hent-
ugar til lærdóms, en einnig til
afþreyingar.
Tímaritið Skák hefur jafnan
komið út í aukaútgáfu þegar
stórir skákviðburðir hafa átt sér
stað hér á landi. Síðan hafa blöð
þessi verið bundin inn og gefin
út í bók og hefur þetta vakið at-
hygli ekki síður utan lands en
innan vegna vandaðs efnis og
frágangs. Er þar skemmst að
minnast aukaútgáfunnar vegna
heimsmeistaraeinvígis þeirra
Fischers og Spasskys 1972, en þá
kom blaðið út á þremur tungu-
málum.
Nú síðastliðið haust fékk Jó-
hann Þórir Jónsson ritstjóri síð-
an það verkefni að sjá um móts-
blaðið á Ólympíumótinu í skák
sem háð var í Luzern í Sviss.
Jóhann fór utan með 20 manna
starfslið sem skilaði frá sér
glæsilegu 700 blaðsíðna riti með-
an á mótinu stóð. Þetta tókst
þrátt fyrir ýmsa erfiðleika sem
mættu Jóhanni og liði hans í
Sviss. Fyrirtæki það sem hélt
mótið reyndi að halda kostnað-
inum í algjöru lágmarki svo að
jaðraði við hreinan nánasarhátt.
Þetta bitnaði bæði á keppendum,
sem bjuggu margir hverjir við
ótrúlega lélegar aðstæður miðað
við það að mótið fór fram í
mesta ferðamannalandi heims,
svo og sjálfstæðum aðilum sem
áttu hagsmuna að gæta, þ.á m.
skáktímaritinu íslenska.
Ritstjórnarskrifstofan var
þannig í yfirgefnum sturtuklefa
og mikill hluti blaðsins skrifaður
í kofa sem vart hélt vatni né
vindum. En starfsfólkið, bæði ís-
lenskt og erlent, lét þetta ekkert
á sig fá og blaðið kom reglulega
út allt mótið. Það hefur fyrst og
fremst að geyma allar skákirnar
frá mótinu sem voru á fjórða
þúsund talsins, þær beztu með
skýringum, viðtöl, mikinn fjölda
mynda, og greinar um allt milli
himins og jarðar viðkomandi
skák.
Blaðið er því aðstandendum
sínum til sóma og algjört ein-
sdæmi í sögu Ólympíumótanna.
Það er bæði fróðlegt og
skemmtilegt og að sjálfsögðu
standa skákirnar fyrir sínu, en í
mótinu tóku þátt nærri því allir
sterkustu skákmenn heims. Eft-
ir að ég kom heim frá ólympíu-
mótinu í lok nóvember var ég
fram að jólum að fara yfir mark-
verðustu skákirnar og sat þó við
marga tíma flesta dagana.
Væntanlega hefur svo farið fyrir
fleiri skákmönnum, því að
Ólympíumótið er auðvitað mesti
skákviðburður hvers árs.
Blaðið hefur ekki verið fáan-
legt innbundið fyrr en nú vegna
þess að 3.000 eintök sem áttu að
fara í band eyðilögðust í flutn-
ingi. Vegna stærðarinnar er það
fremur dýrt og prentvillur eru
nokkrar í fyrstu blöðunum, en
það lagast eftir því sem líður á.
Blaðið er á ensku, en skákirnar
eru ritaðar með alþjóðlegu letri,
þannig að þær getur hver sem er
hagnýtt sér.
„Bezti leikurinn“
fslendingar standa nú vel að
vígi að því leyti að við eigum
margar þýddar kennslubækur
um skák, flestar úr rússnesku,
en Sovétmenn hafa einmitt náð
langbeztum tökum á skák-
kennslu og þjálfun, enda eiga
þeir gífurlegan fjölda efnilegra
skákmanna.
Bókin „Bezti leikurinn" eftir
tékknesku stórmeistarana Hort
og Jansa er nýtt innlegg i þenn-
an flokk. Hún er með nokkuð
nýstárlegu sniði. Lesandanum er
fengin ákveðin staða til að rann-
saka og á síðan að gizka á bezta
framhaldið fyrir þann sem á
leik. Á næstu blaðsíðu er síðan
lausnin og eru mörg hundruð
slík dæmi i bókinni. Með þessari
æfingaraðferð má læra mjög
mikið, því að allar stöðurnar eru
lærdómsríkar og reyna á skiln-
ing lesandans. Ef hann hittir
ekki á réttu lausnina getur hann
þá a.m.k. lært af mistökum sín-
um.
Þarna er því á ferðinni bók
sem flestir ættu að geta hagnýtt
sér til að ná framförum.
Skákdæmi og tafllok
Þessum þætti skákarinnar
hefur lítill gaumur verið gefinn
hér á landi, þó margir hafi haft
ánægju af því að glíma við skák-
þrautir af ýmsu tagi. Erlendis er
samning dæmanna hins vegar
orðin að heilli fræðigrein, þar
sem frumleikinn er metinn ofar
öðru. I bókinni eru fjölmörg
skemmtileg dæmi, en einnig er
saga skákdæmanna rakin og
frægustu höfundar kynntir. Bók-
inni er skipt í kafla eftir tegund-
um dæma og er hver kafli eftir
sérfræðing á viðkomandi sviði,
en höfundarnir eru allir sovézk-
ir.
Þetta er því skemmtileg bók
fyrir skákmenn, sérstaklega þá
sem hafa yndi af heilabrotum.
íslandskynning í Bandaríkjunum
Þrándheimur:
Ræðismaður: Oda E. Hövik
Kobbesgate 18
7000 Trondheim
Sími: (075) 2-28-61
1.—10. apríl kl. 10-15.
Singapore
Singapore:
Aðalræðismaður: Ingvar Nielsson
52 Block 3
JTC Pandan Terrace, Pandan
Loop
Singapore 0512
Sími: 77-77-022
4.-8. apríl kl. 9—17.
Sovétríkin
Moskva:
Sendiráð íslands
Khlebnyi Pereulok 28
Moskva
Símar: 2904742 og 2915856
26. mars—23. apríl kl. 9—17
mánud. til föstud.
Spánn
Barcelona:
Aðalræðismaður: Jose Daurella
Vararæðismaður: Luis Balaguer
de Palleja
Modolell 9
Barcelona 21
Sími: 201-50-08
5.-8. apríl kl. 12—14.
Madrid:
Aðalræðismaður:
José Maria Figueras-Dotti
Bustamante de Monsterio
Eurobuilding, Oficina 15
Juan Ramón Jlménez 8
Madrid 16
Sími: 457-89-84
5.-8. apríl kl. 10-12 og kl.
15-17.
Malaga:
Ræðismaður:
Marin Guðrún Briand de Crevec-
oeur
Paseo Maritimo 25
Malaga
Sími: 221739
5.-8. apríl kl. 10—12 og 15—17.
Svíþjóð
Stokkhólmur:
Sendiráð íslands
Kommendörsgatan 35
114 58 Stockholm
Símar: 62-40-16 og 67-27-53
26. mars-23. apríl kl. 9:30—16
mánud. til föstud.
Gautaborg:
Aðalræðismaður: Björn Steen-
strup
Ræðismaður: Gösta Christian
Lundholm
Östra Hamngatan 19A
411 14 Göteborg
Sími: (031) 11-68-68
5.-8. apríl kl. 10-12 og 13-15. 9.
apríl kl. 10—14.
Jönköping:
Ræðismaður: Björn Leifland
Högalundsgatan 19
56400 Bankeryd
Sími: (036) 77130
7.—10. apríl kl. 17—20.
Malmö:
Aðalræðismaður: Erik Philip Sör-
ensen
Stortorget 3, Box 112
201 21 Malmö
Sími: (040) 11-22-45
9. apríl kl. 10—14. 11. apríl kl.
10—12 og 17—19. 12. apríl kl.
10-12.
Sundsvall:
Vararæðismaður: Lennart En-
ström
Fack, 851 88
Sundsvall
Sími: (060) 19-32-11 og 19-32-12
5.-7. apríl kl. 10-12.
Sambandslýðveldið
Þýskaland
Bonn:
Sendiráð íslands
Kronprinzenstrasse 6
5300 Bonn 2
Símar: 364021 og 364022
26. mars—23. apríl kl. 9—16
mánud. til föstud. eða skv. sam-
komulagi.
Hamborg:
Ræðismaður: Oswald Dreyer-
Eimbcke
Raboisen 5
1. Eimbcke-Haus
2 Hamburg 1
Símar: (040) 33351 og 336696
30.—31. mars 5—13. apríl kl. 9—12
og 14—17.
Hannover:
Ræðismaður: Gisela Maurer
Birkenweg 4
3000 Hannover
Sími. (0511) 650507
7. -12. apríl kl. 16-20.
Liibeck:
Ræðismaður: Franz Siemsen
24 Lubeck 1
Körnerstrasse 18, P.O. Box 1938
Sími: (0451) 54075
28.—30. mars og 5.-8. apríl kl.
15.30-17.
Miinchen:
Ræðismaður: Dr. Hermann
Schwarz
Muhldorfstrasse 15
8 Múnchen 80
Sími: (089) 4129-2214
8. -13. apríl kl. 9-13.
Stuttgart:
Ræðismaður: Dr. jur. Otto A.
Hartmann
Westbahnhof 79/81
7 Stuttgart-W
Símar: (0711) 652031 og 652032
6.-12. april kl. 10-12 og 15-17.
V-Berlín:
Ræðismaður: Andreas Howaldt
1000 Berlin 15
(Charlottenburg) Kurfústendamm
57
Símar: (030) 625031 og 323061
12,—13. apríl kl. 8:30-16.
Pakistan
Karachi:
Ræðismaður: Naveed A. Khan
Bldg. 1-B (lst floor) State Life
Square
off 1.1. Chundrigar Road, P.O. Box
10062
Karachi.
Símar: 239372 og 228658/9
26. mars—23. apríl eftir sam-
komulagi.
Athygli kjósenda er vakin á því
að þeim ber sjálfum að póstleggja
atkvæði sín eða koma þeim á ann-
an hátt í tæka tíð til viðkomandi
kjörstjórnar á íslandi.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 16. mars 1983.
Herra ritstjóri.
ísland hefir verið óvenjumikið í
sviðsljósinu í Bandaríkjunum
undanfarið. Má það fyrst og
fremst þakka þátttöku okkar í
sameiginlega norræna kynningar-
átakinu sem „Scandinavia Today"
nefnist. Koma forseta íslands,
Vigdísar Finnbogadóttur, til
Bandaríkjanna og glæsileg fram-
koma hennar var ein og í sjálfu
sér einstök kynning á tilveru
okkar lands og menningu þjóðar-
innar.
Við sem reyndum, oft af veikum
mætti, að halda nafni íslands á
lofti, höfum notið til þess stuðn-
ings íslenskra fyrirtækja og ein-
staklinga sem sjaldan er þakkað
sem skyldi. Ég á hér við fyrirtæki
einsog Flugleiðir, sem hér vestra
ganga undir nafninu „Icelandair"
„Hildu", þeirra Holton-hjóna, sem
hefir vakið sérstaka athygli í blöð-
um, útvarpi og sjónvarpi á þessu
ári, súkkulaðiverksmiðjuna
„Lindu“ á Akureyri og sælgætis-
gerðina „Opal“ í Reykjavík, að
ógleymdri „Rammagerðinni" í
Reykjavík. Þessi fyrirtæki og þeir
er þeim stjórna, hafa ávallt verið
reiðubúnir til að rétta okkur hönd
til hjálpar með rausnarlegum
gjöfum af framleiðslu sinni.
Landau-bræður í Princeton eru og
í þessum hópi velgjörðarmanna
íslands.
Þegar minnst er á landkynn-
ingar og þjóðarkynningarstarf í
New York og umhverfi á undan-
förnum áratug má ekki gleyma
starfsemi aðalræðismanns okkar,
ívars Gumundssonar. Við stöll-
urnar Edith Warner og ég, sem
um nokkurra ára skeið höfum
starfað í félagsmálanefnd Ameri-
can Scandinavian Foundation í
New York, höfum sem fleiri notið
ómetanlegs stuðnings ræð-
ismannsins, sem ávallt er boðinn
og búinn með ráðum og dáð til
eflingar sóma íslands.
Með aðstoð ræðismanns, Flug-
leiða og fleiri hefir tekist að efna
til menningarsamkoma, m.a. list-
sýninga árlega. Samkomur þessar
og sýningar eru fyrst og fremst
ætlaðar útlendingum. Þær hafa
fengið það orð á sig að þær beri af
öðrum slkum, sem ASF gengst
fyrir til Norðurlandakynningar í
New York.
Nú þegar líður að lokum kynn-
ingarstarfseminnar „Norðurlönd í
dag“ hér vestra tel ég mér ljúft og
skylt að þakka þann stuðning, sem
okkur hefir verið veittur sem
reynum að gera okkar til að halda
á lofti heiðri íslenskrar menning-
ar hér vestra.
Montclair, New Jersey,
Edda Magnússon.
STefnír
VANDAÐ TIMARIT UM STJÓRNMÁL
Meðal efnis að þessu sinni:
Sjálfsþurftarbúskapur — eða samstarf við útlendinga (viöhorfin í orku- og iðnaðarmálum — Kenningar Milton
Friedmans — Ástand og horfur í efnahagsmálum — Þrígreiningarkenning Monterquieus — Dulbúin barátta KGB.
Gerist áskrifendur að Stefni — það borgar sig.
Tímaritið Stefnir
Sjálfstæöishúsinu Valhöll,
Háaleitisbraut 1, 105 Rvk.
Áskriftarsími 82900