Morgunblaðið - 23.03.1983, Síða 48

Morgunblaðið - 23.03.1983, Síða 48
.Anglýsinga- síminn er 2 24 80 ^^^skriftar- síminn er 830 33 MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983 Hjónin Ingibjörg Daðadóttir og Sigurður Magnússon. Myndin birtist á 100 ára afmæli Sigurðar, sem hann hélt upp á 20. apríl 1980. Síðan hefur komið í Ijós, að Sigurður er fæddur 4. apríl. Mortrunbiaðið/RAX. Fyrsta afmælið í 103 ár á réttum fæðingardegi Héldu upp á 75 ára brúðkaupsafmæli í desember Ríkis- stjórnin kannar 10% nið- urfærslu „Að undanrórnu hefur farið fram rækileg athugun á því hvaða leiðir væru helztar í sambandi við efna- hagsmálin og verðbólguna og meðal annars hefur verið athuguð rækilega niðurfærsluleið, það er aö segja að færa niður verðlag og laun jafnmikið og samtímis og ýmislegt annað þá í þjóðfélaginu. I’art hefur meðal ann- ars verið kannað hvernig það kæmi út, að lækka verðlag og laun og fjöl- margar aðrar efnahagsstærðir um 10%. Ég skýrði frá þessum athugun- um á ríkisstjórnarfundi í morgun og þær voru ræddar þar og ákveðið að halda áfram rannsókn og könnunum í þesKum málum,“ sagði forsætisráð- herra, Gunnar Thoroddsen, í samtali við Morgunblaðið í gær. Er von einhverra aðgerða á næstunni í þessa átt?. „Það get ég ekkert sagt um á þessu stigi, málið er bara í ræki- legri könnun." Hefur ríkisstjórnin samþykkt út- gáfu bráðabirgðalaga í sambandi við vandamál fiskiðnaðarins? „Já, það er rétt. Það verður væntanlega seinna í þessari viku, sem endanlega verður gengið frá tilhögun þess máls. Það þarf að hafa samband við fjármálaráð- herra, þegar hann kemur heim. Þetta er aðallega til þess að greiða fyrir fyrirtækjum til hagræðingar og til endurnýjunar, kaupa á vélum og öðru slíku, sem bætir stöðu þeirra. Hér um að ræða upphæð upp á rúmlega 100 milljónir króna,“ sagði forsætisráðherra. Siykki.shólmi, 22. marz. SIGURÐUR Magnússon, fyrrver- andi hreppstjóri hér í Hólminum, verður 103 ára hinn 4. apríl nk. Það er auðvitað merkilegt þegar menn ná svo háum aldri, en það er ennþá raerkilegra að í fyrsta skipti á ævinni heldur Sigurður upp á af- mælið á réttum fæðingardegi, hingað til hefur hann haldið upp á afmælið 20. aprfl. Móðir Sigurðar dó þegar hann var ungur og alltaf hefur verið á reiki hvenær hann var fæddur. Þegar Sigurður var fermdur kom fram á fæðingarvottorði, að hann væri fæddur 20. apríl og hefur hann haldið sig við þann dag síðan. En nú hefur það gerst, að fundizt hafa gögn frá ísafirði, þar sem Sigurður fæddist, sem sýna það ótvírætt að hann er fæddur 4. apríl 1880. Sagði Sig- urður að þessi dagur, 4. apríl, muni blíva hjá sér sem afmæl- isdagur hér eftir. Sigurður dvelur nú á sjúkra- húsinu og er við all góða heilsu. Kona hans, Ingibjörg Daðadótt- ir, er einnig á lífi o'g við góða heilsu. Frú Ingibjörg verður 99 ára gömul hinn 19. maí nk., en hún er fædd 1884. Móðir hennar, María Andrésdóttir í Stykkis- hólmi, náði 106 ára aldri. Þau Sigurður og Ingibjörg voru gefin saman af sr. Jóhanni Þorkelssyni, dómkirkjupresti í Reykjavík, í desember 1907 og hafa því verið gift í 75 ár. Áður voru þau í festum í þrjú ár. 1 þessu langa hjónabandi hafa þau aldrei rifist, það kom fram í samtali er Mbl. átti við þau á 100 ára afmæii Sigurðar 1980. FrétUriUri. Kosningayfirlýsing Sjálfstæðisflokksins: „íslenska þjóðin verð- ur að taka nýja stefiiu stefnu ábyrgðar í stað upplausnar“ „í ALÞINGISKOSNUNGUNUM standa íslendingar frammi fyrir tveim kost- um. Þeir geta kosið breytingu með stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn eða óbreytt ástand með stuðningi við vinstri flokkana.“ A þessum orðum hefst kosningayfirlýsing Sjálfstæðisflokksins sem kynnt var af Geir Hallgríms- syni, formanni flokksins, á blaðamannafundi í gær. í inngangi yfirlýsingarinnar segir, að nauðsynlegt sé er að hefja endurreisn efnahags- og at- vinnulífs og „stemma stigu við því upplausnarástandi sem nú ríkir. — íslenska þjóðin verður að taka nýja stefnu. — Stefnu ábyrgðar í stað upplausnar." Kosningayfirlýsingin ber yfir- skriftina: Frá upplausn til ábyrgð- ar og skiptist í sjö kafla. Til hins fyrsta, Tveir kostir, hefur verið vitnað en þar er lýst því sem skil- ur á milli Sjálfstæðisflokksins og vinstri flokkanna og er Bandalag jafnaðarmanna talið í þeirra hópi. • í öðrum kafla, Leið Sjálfstæðis- flokksins, er því lýst í 10 liðum hvernig verðbólgunni skuli náð niður með samstilltu átaki. Þar segir m.a. um nýtingu orkulinda: „Eignaraðild að stóriðjufyrirtækj- um ráðist hverju sinni af því sem hagkvæmast er og áhættuminnst fyrir þjóðarbúið." • í þriðja kafla, Bætt lífskjör, er lýst aðgerðum sem til skal gripið um leið og meiri festa skapast í efnahagslífinu. Eru þær í 16 liðum og er m.a. mælt fyrir um athugun og endurskoðun á starfsemi opin- berra stofnana, þar með talin Framkvæmdastofnun, Húsnæðis- stofnun, fjárfestingalánasjóðir og ríkisbankar. • í fjórða kafla, Eign fyrir alla — átak í húsnæðismálum, er m. a. sagt að þeir sem eru að eignast fyrstu íbúð skuli fá 80% lán með betri kjörum en aðrir og til að örva sparnað í þágu hús- næðislánakerfisins verði sérstak- ar skattaívilnanir veittar þeim einstaklingum sem leggja reglu- lega fé inn á bundna reikninga. • í fimmta kafla, Betra mannlíf, er lýst vilja flokksins til að hlú að mannlegum verðmætum, heimil- ir.u, fjölskyldunni, menningu, menntun, jafnrétti, frelsi I út- varpsrekstri, stuðla að framgangi kristni og kirkju, viðhalda vöku þjóðarinnar gegn áfengis- og eit- urlyfjanotkun og gæta umhverfis og náttúru. • 1 sjötta kafla, Friður og frelsi, er stefnunni í utanríkis- og örygg- ismálum lýst. „Öryggi landsins byggist á aðild þess að Atlants- hafsbandalaginu og traustum vörnum samfara auknu íslensku frumkvæði í varnarmálum á grundvelli innlendrar sérþekk- ingar," segir þar. • Sjöundi og síðasti kafli kosn- ingayfirlýsingarinnar heitir Bjartari framtíð, og lýkur honum á þessum orðum: „Leið þjóðarinn- ar til bjartari framtíðar er leið Sjálfstæðisflokksins. Sjá miðopnu. Akureyri: Níu ára drengur ferst í umferðinni Akureyrl, 22. marz. BANASLYS varð á Akureyri í morg- un. Níu ára gamall drengur sem var á leið í skóla, varð fyrir olíuflutn- ingabfl klukkan 9.22 á Tryggvabraut á móti Glerárstöö OLÍS. Lenti hann utan í bflnum við afturhjól og hlaut af því mikla höfuðáverka. Lézt hann skömmu eftir að komið var með hann í sjúkrahús. Nafn drengsins er ekki unnt að birta að svo komnu. G.Berg. Kjósendur eru 150—151 þúsund EINSTAKLINGAR, 20 ára og eldri á þessu ári, eru samkvæmt yfirliti Hagstofu íslands 153.956 talsins, en voru til samanburðar 142.073 við síð- ustu Alþingiskosningar 1979. Þeim hefur því fjölgað um liðlega 8,36%. Að mati Hagstofunnar verður tala kjósenda á kjörskrá með kosninga- rétt á kjördegi við alþingiskongar 23. aprfl nk., á bilinu 150—151 þús- und. Einstaklingar, 20 ára og eldri, í Reykjavík eru 59.919 talsins, en voru til samanburðar 56.402 við síðustu Alþingiskosningar. Þeim hefur því fjölgað um 6,24%. Fjölg- unin í Reykjaneskjördæmi er mun meiri, eða 14,37%. Þar er fjölgun- in úr 29.510 í 33.739. Fjölgunin í Vesturlandskjör- dæmi er um 9,17%, eða úr 8.679 í 9.475. í Vestfjarðakjördæmi er fjölgunin um 6,91%, eða úr 6.160 í 6.575. í Norðurlandskjördæmi vestra er fjölgunin 5,02%, eða úr 6.560 í 6.889. Fjölgunin í Norður- landskjördæmi eystra er um 7,99%, eða úr 15.324 í 16.543. í Austurlandskjördæmi er fjölgun- in 8,06%, eða úr 7.683 í 8.302 og loks má geta þess að fjölgunin í Suðurlandskjördæmi er um 6,32%, eða úr 11.765 í 12.509. Þegar tölur Hagstofunnar eru skoðaðar vekur það athygli, að einstaklingum 20 ára og eldri á árinu, hefur fækkað um tæplega 1% í Siglufirði, eða eru 1.330 á móti 1.341 við síðustu kosningar. I kaupstöðum landsins í heild er fjölgunin frá síðustu kosningum um 8,6%, eða úr 108.494 í 117.825. Fjölgunin í sýslum landsins frá síðustu kosningum er 7,6%, eða úr 33.579 í 36.131. Grófst und- ir malarbing UM MIÐJAN dag í gær varö það óhapp við Búrfell að klakaþekja yflr malarnámu brast með þeim afleið- ingum að vélskófla með einum manni í, grófst undir möl sem hrundi yfir hana. Hús vélskóflunnar lagðist saman, en maðurinn sem er á miðjum aldri gat graflð sig út úr malarbingnum. Hann var fluttur á slysadeild Borgarspítalans í Reykja- vík og að sögn lögreglunnar á Sel- fossi var talið aö hann væri við- beinsbrotinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.