Morgunblaðið - 29.03.1983, Side 5

Morgunblaðið - 29.03.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983 5 Á rétt á bótum með- an hann er óvinnufær — segir Guðmundur Hallvarðsson, for- maður Sjómannafélags Reykjavíkur „SAMKV4ÍMT lögum á þessi sjómað- ur rétt á aflahlut frá útgerð þess báts, sem hann var skráður á, jafnlengi og hann var þar um borð, þar sem hann slasast í landi og ekki við vinnu á vegum útgerðarinnar. Hvað framhald- ið varðar fellur þetta mál undir ákvæði laga nr. 108 frá 1972 um hhitlega ábjrgð útgerðarmanns. Þar sem hann slasast á hann rétt á launum frá Trjggingastofnun ríkisins auk 75% af þeirri upphæð frá trjggingarfélagi við- komandi útgerðarmanns og greiðslu úr sjúkrasjóði stéttarfélags sins jafn- lengi og hann er óvinnufær." Þetta var svar Guðmundar Hall- varðssonar, formanns Sjómannafé- lags Reykjavíkur, er Morgunblaðið innti hann álits á réttarstöðu Ró- berts Róbertssonar, 3jómanns frá ísafirði, sem bjargaði félaga sinum frá drukknun eins og sagt var frá á baksíðu Mbl. á föstudag. Hann taldi sig verða tekjulausan vegna þess, að hann hefði ekki talist löggildur björgunarmaður og ekki slasast um borð á því skipi, sem hann var skráður á. Guðmundur sagði ennfremur, að sjómenn hefðu lengi staðið í mikilli baráttu fyrir leiðréttingu trygg- ingamála sinna og hefði það ekki verið fyrr en 1980, sem náðst hefði sambærileg staða við verkafólk í landi. Victor Borge og Folketeatret — koma til Þjóðleikhússins í vor ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ á von á tveimur gestaleikjum í vor. Afráðið er að hinn beimsfrægi danski skemmtikraftur Victor Borge komi hingað síðustu dag- ana í maí og hafi skemmtikvöld í Þjóð- leikhúsinu sunnudaginn 29. maí. Danska sendiráðið hefur haft milli- göngu um komu listamannsins, og er ekki að efa, að komu hans verður beð- ið með mikilli eftirvæntingu. Þá er og von á leikhóp frá Folke- teatret í Kaupmannahöfn með kab- arettsýninguna „Litli minn, hvað nú?“, sem sýnd hefur verið við met- aðsókn i Kaupmannahöfn i allan vetur. Leikhúsið á 125 ár afmæli um þessar mundir og kemur af þvi til- efni til allra Norðurlandanna; hingað kemur sýningin frá leiklist- arhátíðinni í Björgvin í Noregi. Má minnast þess að á 100 ára afmæli Folketeatret fór það líka um Norð- urlönd og kom þá m.a. hingað með sýningu á Tredive árs henstand og sýndi í Þjóðleikhúsinu. Kabarett- sýning þessi hjá Folketeatret hefur hlotið afbragðs dóma og þykir mjög skemmtileg. óvenju mikið hefur verið um gestaleiki í Þjóðleikhúsinu í vetur. Sl. haust kom Jón Laxdal með leik- rit sitt Veraldarsöngvarann, Arja Saijonmaa með dagskrá sína frá Broadway og svo fyrir nokkru var Bread and Pupped Theater frá Bandaríkjunum hér á ferð. (Frétutilkjnning.) Allir koma í rokkstuði og djamma eins og gert var í þá gömlu góöu daga. M' S'9'*' po<*’ a m Ri' 70 .V'" s*»* s'«' ith" t"\»t ' \ö"sS ■,nsSO»'’ - ef '

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.