Morgunblaðið - 29.03.1983, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983
r
TILVALIN FERMINGARGJÖF
Monica rafritvélin er allt í senn skóla-, feróa- og
heimilisritvél, ótrúlega fyrirferóarlítil, ódýr og fáanleg í
tveimur litum.
Hálft stafabil til leióréttingar, 44 lyklar, 3
blekbandsstillingar o.m.fl. sem aöeins er á stærri geróum
ritvéla.
Fullkomin viógeróa-
og varahlutaþjónusta.
Olympia
KJARAINI HF
ÁRMULI 22 - REYKJAVIK - SÍMI 83022
3.-24. maí
Sérstaklega hentug ferð
fVrir eldri borgara
í maí er sannkallað vorveður á Mallorka. Þá er tilvalið tækifæri
fyrir þá, sem þola illa mikinn hita að bregða sér í sólina.
í fallegu umhverfi geturðu hvílst, notið sólar og skoðað þá
fjölmörgu staði sem athyglisverðir eru á Mallorka.
Fararstjórar veröa: Séra Valgeir Ástráösson
og Aðalheiður Hjartardóttir, hjúkrunarfræðingur
Leitið nánari upplýsinga hjá Atlantik.
(ntOMK
Ferðaskrifstofa, Iðnaðarhúsinu Hallveigarstíg 1. Símar 28388-28580.
Guðni Franzson Sigrún EðraMsdóttir
Tónskáldin ungu
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Islenska hljómsveitin var með
sjöttu áskriftartónleika sína um
sl. helgi og var tema þeirra ungir
tónlistarmenn. Hljómsveitin
sjálf er fallegt sambland
námsmanna og atvinnumanna
og er að því leyti sammerkt tem-
anu. Tónleikarnir hófust á verki
eftir Guðna Franzson, er hann
nefnir Sólsetursljóð, og sækir
stemmninguna í samnefnt ljóð
Jónasar Hallgrímssonar. Guðni
er klarinettuleikari og stundar
auk þess nám í Tónfræðideild
Tónlistarskólans í Reykjavík.
Verkið er „ný-akademiskt“ að
gerð, þar sem kaflaskipti mark-
ast af aðferðum. Verkið hefst á
„skriðtónum" (glissando) og eftir
að þeirri aðferð hefur verið gerð
skil, er skipt um. Einn kaflinn
var að gerð hljómklasar fyrir pí-
anó, sem var lakasti kafli verks-
ins. Á milli þessara aðferðalegu
skipulögðu kafla brá fyrir
bragðmeiri tóntiltektum, bæði
hvað snertir hraða og tónferli.
Þrátt fyrir nokkuð lauslegt form
var verkið áheyrilegt og verður
fróðlegt að fylgjast með þroska
Guðna,-sem tónskálds. Sinfóní-
ettan op. 1, eftir Britten var
næst á efnisskránni. Verkið
samdi Britten er hann var nitján
ára og þó hann hefði þá þegar
samið fjölda tónverka, er flutt
voru opinberlega, er þetta fyrsta
verkið sem gefið er út eftir hann.
Annað verkið á efnisskránni var
fiðlukonsert nr. 2, eftir Mozart
og lék Sigrún Eðvaldsdóttir ein-
leikinn í verkinu. Sigrún er
stórkostlegt efni og lék mjög vel
og jafnvel á köflum með öryggi
snillingsins. Kadensurnar eru
eftir Guðnýju Guðmundsdóttur
og hæfðu þær verkinu vel.
Síðasta verkið á efnisskránni
var sú fimmta, eftir Schubert.
Verkið þykir merkileg tónsmíð
fyrir það að Schubert nær í því
að tengja saman söngþrungið
lagferli og sinfónískar vinnuað-
ferðir í „réttskapaðri" sinfóníu.
Sinfónían er mjög falleg og var
einnig vel leikin af Islensku
hljómsveitinni. Britten, Mozart
og Schubert voru allir nítján ára
er þeir sömdu verk þau er flutt
voru af hljómsveitinni að þessu
sinni. Saga þeirra var þó að
mestu óskráð og samtíð þeirra
ógjörlegt að sjá fyrir um það
hvern enda hún tæki. Þannig er
það einnig um íslensku hljóm-
sveitina og hversu Guðmundur
Emilsson, stjórnandi hennar,
mun duga. Þó má sjá í því, sem
af er, að nokkurs sé að vænta af
framlagi þessa unga og fallega
fyrirtækis.
Formaður Soroptimistaklúbbs Kópavogs, Jóhanna Norðfjörð, afhendir fram-
kvæmdastjóra Sunnuhlíðar, Hildi Hálfdánardóttur, peningagjöfína.
Stórgjöf til Sunnuhlíðar
FORMAÐUR Soroptimistaklúbbs
Kópavogs afhenti 14. febrúar sl.
framkvæmdastjóra Sunnuhlíðar,
sem er hjúkrunarheimili aldraðra í
Kópavogi, peningagjöf að upphæð
90.000 krónur. Peninga þessara öfí-
uðu konurnar með sölu jólasælgætis
og jólakorta. Áður höfðu þær gefíð
sjúkrabað og lyftistól.
Soroptimistaklúbbur Kópavogs
var stofnaður 4. júní 1975 og hefur
starfsemi hans verið helguð sjúk-
um öldruðum í Kópavogi frá upp-
hafi. í frétt frá stjórn Sunnuhlíðar
segir, að kveikjan að byggingu
hjúkrunarheimilisins hafi verið
þegar þær systur boðuðu til sam-
eiginlegs fundar með félagssam-
tökum og klúbbum í Kópavogi í
apríl 1978 og hefur hjúkrunar-
heimilið starfað síðan í maí 1982.