Morgunblaðið - 29.03.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.03.1983, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983 * 3NTaAR TÓNLISTIN í DAG Sendum í póstkröfu. Sími 11508. David Bowie / Space Oddlty, The Man Who Sold The World. Hunky Dory, Zlggy Stardust, Aladdln Sane, Pln-Ups, Diamond Dogs, Llve, Young Americans, Station To Statlon, Low, Heroes, Lodger, Scary Monsters, Stage, Changes one Bowle, Changes two Bowie, Cat People, Dýragarösbörnln, Rare (nýjasta) Trlumph / Never Surrender Taco / Musical Youth / Abba / Smokey Roblnson / Panarama / Alabama / Newton Famlly / Ýmslr / Ýmslr / E.T. / Tomas Ledin / Spyro Gyra / Dazz Band / Harry Belafonte / Puttln' on the Rltz The Youth of Today The Slngles Touch the Sky Can Thls Be Paradlse The Closer You Get Dandellon Club Danclng '83 Ein með öllu E.T. The Human Touch Incognlto On the One Midnlght Speclal Louis Armstrong, Jlm Reeves, + Best of plötur meö: John Denver Glenn Miller, Marvln Gaye. Charley Prlde, Bobby Bare. Mills Brothers og Dolly Parton. AMPEX <s> Heíldsölu simi 29575/29544 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JOHN KIFNER Jaruzelski ásamt austur-þýskum og sovéskum embættismönnum. væri tvisvar til þrisvar sinnum meiri, og krafðist hann ekki ein- ungis aukinna afkasta heldur einnig aðhaldsaðgerða í orku- og hráefnismálum. Samkvæmt fregnum frá PAP-fréttastofunni, fordæmdi hann harðlega „hættulegar stjórnleysistilhneigingar sem andstæðingar pólsks samfélags hafa reynt að koma þar inn á undanförnum árum“, en í boðuð- um efnahagsaðgerðum er sér- stakt ákvæði um aðgerðir gegn gróðabralli. Pólsk stjórnvöld boða nýjar efnahagsaðgerðir Stjórnvöld í Póllandi fóru fram á það við þegna sína fyrir skömmu, að þeir hertu sultarólina. En það er hluti af nýjum aðhaldsaðgerðum í efnahagsmálum fyrir næstu þjú árin, sem eiga að koma efnahag landsins á réttan kjöl. Samkvæmt þeim lengist vinnudagurinn, verðhækkanir eiga sér stað, nýir skattar verða lagðir á og ýmis hlunnindi verkamanna verða afnumin. Stjórnvöld vöruðu við því að „efnalegur grundvöllur þjóðarafkomunn- ar“ væri í hættu og í því sambandi bentu þau á vandræði landsins, sem aðallega væru fólgin í skuldasöfnun á Vesturlöndum, efnhagsþvingunum Vesturlanda eftir að herlögum var komið á í landinu í desember 1981, en einnig væri sjáanleg „afturför á lífsafkomu" og ekki mætti gleyma í þessu sambandi að einnig væri erfið fjárhagsstaða í heiminum öllum um þessar mundir. rátt fyrir þessar efnahags- aðgerðir virðist hins vegar sem ekki verði búið að koma landinu aftur á sama kjöl og það var árið 1980, þó aðhaldsaðgerð- um verði fylgt eftir allt til ársins 1985. Þessi tími nægir sem sagt ekki til að koma framleiðslunni á það stig sem hún var á þegar efnahagslegt ójafnvægi varð til þess að stofnuð voru óháðu verkalýðsfélögin; Samstaða. Þessum aðhaldsaðgerðum í efnahagsmálum er ætlað að auka iðnaðarframleiðslu um 14 til 16 prósent, aðallega með breyttri stjórnun. Wojciech Jaruzelski, hershöfð- ingi, leiðtogi Póllands, notaði sama tækifæri til að tilkynna um breytingar á stjórninni, en þær voru í því fólgnar að hann gerði tvo samstarfsmenn sína í hernum að ráðherrum. Mieczyslav Moczar, 70 ára að aldri, var vikið úr stöðu sinni sem formaður æðstu eftirlits- nefndarinnar, sem er nokkurs konar leyniþjónusta. Við starfi hans tók Tadeusz Hupalowski, hershöfðingi, sem áður var um- hverfismálaráðherra og sá um fjármál innanlands. Sá sem aft- ur tók við hans starfi í stjórn- inni er Wlodzimierz Oliwa, hershöfðingi, sem var yfirmaður herdeildanna í Varsjá. Á sama tíma tilkynnti Lech Walesa, sem var leiðtogi Sam- stöðu, að sér hefði verið gert skylt að mæta, ásamt eiginkonu sinni, Danutu, til yfirheyrslu hjá skattrannsóknarstjóra í Gdansk. Hann hefur ítrekað verið yfir- heyrður um fjármál óháðu verkalýðsfélaganna. Fyrrverandi talsmaður Sam- stöðu, Janusz Onyszkiewicz, sem látinn var laus úr fangelsi í des- ember síðastliðnum, var síðan handtekinn, þar sem hann sat að kaffidrykkju ásamt vestrænum fréttamanni, og yfirheyrður í nokkra tima. Onyszkiewicz var einn þeirra fyrrverandi Sam- stöðuleiðtoga, sem tók þátt í guðsþjónustu ásamt Walesa síð- astliðinn sunnudag í Varsjá. Tilgangurinn með boðun þess- ara efnahagsaðgerða nú er að auka afköst verkamanna, sem aftur þurfa að líða tafir vegna hráefnisskorts og eru svartsýnir vegna gífurlegra verðhækkana og vöruskorts. Verkamenn eru einnig argir vegna brostinna vona, sem bundnar voru við myndun óháðu verkalýðsfélag- anna. „Framleiðni vinnuafls í Pól- landi er mjög lítil,“ sagði Janusz Obodowski þegar breytingarnar voru kynntar, en hann er höf- undur þessara nýju efnahagsað- gerða. Hann tók fram að fram- leiðni annarra þróaðra ríkja Czelslaw Kiszczak, innanrík- isráðherra, tilkynnti einnig á þriðjudag um umfangsmikla rannsókn á fjármálamisferli í landinu. Obodowski, höfundur efna- hagsaðgerðanna, sagði á þingi að „meginuppsprettu efnhags- kreppunnar væri að leita í því að kerfið hefði fjarlægst grundvall- aratriði sósíalismans". Einn stærsti þáttur efna- hagsvandamálsins liggur í þvi að gífurlegur skortur er á verka- mönnum og er næstum hver ein- asta verksmiðja undirmönnuð. Á sumum stöðum vantar hundruð verkamanna. Meginorsök þessa er sú, að menn hafa verið hvattir til að draga sig snemma í hlé til að gefa yngri mönnum kost á að starfa og fækka veikindadögum. Samkvæmt opinberum tölum hafa 550.000 manns kosið að hætta störfum fyrr en áætlað hafði verið, síðan í ágúst 1981. Nú eru 256.800 störf laus til um- sóknar, en aðeins 7.000 umsækj- endur, að því er segir í tölum stjórnarinnar. Eitt meginmarkmið aðgerð- anna er einnig að minnka hlut innfluttrar fæðu, sérstaklega hveitis. Einnig skal hætta fram- kvæmdum við hundruð hálf- byggðra verksmiðja og einbeita sér þess í stað að minniháttar framleiðslu, eins og t.d. baðmull- arframleiðslu, þar sem ellilífeyr- isþegar gætu unnið hlutastörf og verkamenn yrðu hvattir til að vinna yfirvinnu og vinna á frí- dögum. I þessum nýju efnahagsað- gerðum er sú breyting boðuð, að yfirmenn framkvæmda og fram- leiðslu eru gerðir ábyrgir fyrir afköstum starfsmanna sinna. (Heimild: New York Times News Service)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.