Morgunblaðið - 29.03.1983, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983
Gagnrýni Andropovs
vísað á bug vestra
Moskvu, Washington, 28. mars. AP.
YURI ANDROPOV, leidtogi Sovétmanna, réðst sl. laugardag mjög harkaiega
á áætlanir Reagans, Bandaríkjaforseta, um eldflaugavarnir úti í geimnum og
sagði þær „ákaflega hættulegan" þátt í þeirri stefnu að gera Sovétríkin
varnarlaus fyrir kjarnorkuárás. Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur vísað
þessum orðum á bug og segir Andropov hafa farið rangt með „efni og
innihald" í ræðu Reagans.
í viðtali við aðalmálgagn komm- |“————————-
únistaflokksins, Prövdu, sagði
Andropov, að Bandaríkjamenn
stefndu að því að geta orðið fyrri
til að hefja kjarnorkustríð og að
Reagan vildi að Sovétríkin stæðu
uppi varnarlaus þegar að þvl
kæmi. Hann sagði þó að allar slík-
ar tilraunir yrðu til einskis.
Talsmenn bandaríska utanrík-
isráðuneytisins svöruðu Andropov
og sögðu, að hugmyndir Reagans
væru ekki um „einhliða yfirburði"
Bandaríkjanna enda óvíst að
varnarkerfið yrði fullbúið fyrr en
um aldamót. Með ræðu sinni hefði
Andropov auk þess óbeinlínis við-
urkennt, að Sovétmenn teldu sig
standa Bandaríkjamönnum fram-
ar í kjarnorkuvörnum og á það
mætti benda, að Sovétmenn hefðu
ekki staðið við samninga um með-
aldrægar eldflaugar. Frá undirrit-
un samningsins í mars 1982 hefðu
þeir fjölgað meðaldrægum eld-
flaugum af gerðinni SS-20 úr 300 í
351.
Danmörk:
Þúsundir
mótmæltu
vígbúnaðar-
kapphlaupi
Kaupmannahörn, 28. mars. AP.
ÞÚSUNDIR Dana tóku þátt í svo-
kallaðri páskagöngu síðastliðinn
sunnudag, en hún var farin til að
mótmæla kjarnorkuvopnakapp-
hlaupi og fyrirhugaðri staðsetningu
meðaldrægra kjarnorkucldflauga í
Vestur-Evrópu.
í Kaupmannahöfn söfnuðust
a.m.k. sex þúsund manns saman í
miðborginni eftir að hafa gengið
um tuttugu kílómetra leið. I Árós-
um og fleiri borgum voru páska-
göngurnar einnig fjölsóttar.
Veður
víða um heim
Akureyrí +5 lóttakýjaó
Amitsrdam « skýjaó
Aþena 18 heíóskírt
Barcelona 12 léttskýjaó
Berlin 7 skýjaó
Briissel 8 skýjaó
Chicago 8 rigning
Dublin 8 skýjaó
Frankfurt 7 rigning
Fsarayjar 4 alskýjaó
Genf 6 rigning
Helsinki 1 heióskirt
Hong Kong 18 rigning
Jerúsalem 17 heióskirt
Jóhannesarborg 28 heióskírt
Kaupmannahöfn 4 rigníng
Kairó 25 heíóskirt
Lissabon 15 rlgning
London 8 heióskfrt
Los Angeles 20 skýjað
Madrid 15 heióskírt
Madrid 15 heióskírt
Mallorca 10 alskýjað
Malaga 15 alskýjaó
Mexikóborg 26 heióskírt
Miami 25 skýjaó
Moskva 16 skýjaó
Nýja Delhi 29 heiðskirt
New York 10 rigning
Osló 2 skýjaó
Parfs 9 skýjaó
Peking 16 heióskfrt
Perth 26 skýjaó
Reykjavik 2 alskýjaó
Rio de Janeiro 29 skýjað
Rómsborg 14 heióskfrt
San Francisco 14 skýjað
Stokkhólmur 5 heióskfrt
Tel Aviv 22 heióskirt
Tékýó 12 skýjaó
Vancouver 12 skýjaó
Vínarborg 6 skýjaó
Earþegarnir yfirgefa þotuna eftir nauðlendingu.
Danmörk:
Mávahópur inn í
annan hreyfilinn
— og þotan varð að nauðlenda
DC 10-FLUGVÉL frá SAS með 160
farþega ínnaborðs varð að nauð-
lenda á Kastrup í Kaupmannahöfn
skömmu eftir flugtak sl. fimmtudag
og var ástæðan sú, að mávahópur
hafði lent inni í einum hreyflinum.
Mávagerið lenti í hægri hreyfl-
inum þegar þotan var komið á
fulla ferð eftir flugbrautinni og af
þeim sökum neyddist flugmaður-
inn til að taka hana á loft. Tutt-
ugu og tveimur mínútum seinna
lenti hann aftur á Kastrup, en þá
kviknaði i hjólaumbúnaðinum
vegna mikils álags á bremsurnar.
Farþegar voru látnir yfirgefa
vélina um neyðardyr og gekk það
allt eins og í sögu, en sjö fengu þó
minniháttar taugaáfall en jöfnuðu
sig fljótt.
kennara-
samtímis
Gegndi sjö
embættum
— þar af sex undir fölsku flaggi
Baltimore, 28. mara. AP.
MAÐUR nokkur, sem að sögn yfir-
valda kenndi við sex bandaríska há-
skóla undir folsku flaggi, hefur nú
verið dreginn fyrir lög og dóm að því
er segir í blaðafréttum fyrir vestan.
Það varð honum að falli loks, að
hann vantaði rétt persónuskilríki,
sem sýndu og sönnuðu, að hann ætti
rétt á bflastæði á einni háskólalóð-
inni.
Að því er blaðið The Baltimore
Sun sagði, þá vakti það nokkrar
grunsemdir þegar John B. Hext,
prófessor við einn háskólann, gat
ekki með nokkru móti fært sönnur
á að hann hefði rétt á bílastæði
við skólann eins og aðrir kennar-
ar. Nemendur hans höfðu einnig
margsinnis kvartað undan undar-
legri kennslu hjá honum, en það
var þúfan sem velti hlassinu, þeg-
ar maður að nafni John B. Hext
birti eftir sig grein og lét þess get-
ið, að hann væri prófessor við
MacQuarie-háskólann í Sydney í
Ástralíu.
Við nánari eftirgrennslan kom í
ljós, að prófessorinn umræddi hét
réttu nafni Paul A. Crafton og að
hann kenndi við sjö háskóla í hin-
um fjölbreytilegustu fræðigrein-
um. Sex stöðurnar hafði hann
fengið með fölsunum og notað þá
jafnan nöfn manna, sem aðsetur
höfðu utanlands.
Crafton, sem er raunar háskóla-
kennari og hefur kennt við George
Washington-háskólann síðan
1956, segir það sér til málsbóta, að
honum hafi verið fjár vant vegna
lækniskostnaðar fatlaðrar dóttur
sinnar.
I
L
ÓTRÚLEGT
HONDA Á ÍSLANDI Vatnagöröum 24. Sími 38772.