Morgunblaðið - 29.03.1983, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983
21
•lan Rush geysist hér frá Ray Wilkins, fyrirliða Man. Utd. (úrslitaleik ensku mjólkurbikarkeppninnar á
Wembley-leikvanginum á laugardaginn. Liverpool sigraöi í leiknum, 2—1, og tryggði sér þar með
bikarinn þriðja árið í röð. Nánar er greint frá leiknum á bls. 28. simamynd ap.
„Það var gaman að vera
Islendingur í Stuttgart"
— Við vorum sex saman sem lögðum lykkju á leið okkar og fórum
gagngert til Stuttgart til þess aö sjá Ásgeir leika með liöi sínu gegn
Eintracht Frankfurt. Við uröum svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum.
Ásgeir var maðurinn á bak við stórsigur Stuttgart og lagöi alveg upp
þrjú markanna, en Stuttgart sigraði 4—1 í leiknum. Já, það var svo
sannarlega gaman að vera íslendingur á áhorfendapöllunum hjá
Stuttgart á laugardaginn, sagði Hilmar Viktorsson, skrifstofustjóri
Sölunefndar Varnarliðseigna, er Mbl. spjallaö við hann, en Hilmar var
ásamt vinum sínum á leik Stuttgart og Frankfurt á laugardaginn.
— Þaö kom í Ijós strax í upp- staðar á vellinum. Þá voru send-
hafi er leikmenn voru kynntir, í
hversu miklum metum Ásgeir er
þarna. Hann fékk langmersta
klappiö og mikiö var hrópaö fyrir
honum. Endar er hann ein styrk-
asta stoö liösins og í þessum leik
var hann besti maöur vallarins.
— Það var meö ólíkindum
hversu mikla yfirferð Ásgeir haföi í
leiknum, hann var bókstaflega alls-
ingar hans stórkostlegar. Hann
skipti yfir frá hægri til vinstri og
kom mótherjum sínum hvaö eftir
annaö í vanda. í hvert skipti sem
Ásgeir tók á rás meö boltann
skapaöist hætta hjá mótherjunum.
Já, hann sýndi snilldarleik, dreng-
urinn og fær síst of mikiö lof í blöö-
unum. Hann var til dæmis valinn
enn einu sinni i lið vikunnar og
Vésteinn í hóp
60 metra kastara
Vésteinn Hafsteinsson,
kringlukastari úr HSK, er kominn
í hóp 60 metra kastara, því á móti
í Austin í Texas á laugardag varp-
aði hann 60,14 metra. Vésteinn
sigraði á mótinu, en í öðru sæti
varð Óskar Jakobsson ÍR með
rúma 55 metra.
Óskar sigraöi hins vegar í kúlu-
varpinu, varpaöi 20,15 metra, sem
er hans langbezta í ár. En Vésteinn
setti einnig persónulegt met í kúlu-
varpinu, varpaöi 17,11 metra, og
er í stööugri framför.
Þá sýndi Siguröur Einarsson
Ármanni aö hann er aö ná sér á
strik eftir tvö töpuö ár vegna
meiðsla. Hann kastaði spjóti 70,22
metra, en sigurvegari varö ís-
landsmethafinn Einar Vilhjálmsson
UMSB meö rúma 72 metra.
Á mótinu hljóp Oddur Sigurös-
son KR 400 metra á rúmum 48
sekúndum. Mótiö var skólakeppni
háskólanna i Austin og Tusca-
loosa, og sigraöi skóli Óskars, Ein-
ars og Odds í þeirri viðureign.
fékk hæstu einkunn fyrir leik sinn,
sagði Hilmar. — ÞR.
Lava Loppet:
150 luku
göngunni
FYRSTA alþjóðaskíðagangan
sem fram hefur farið hér á landi
var háö í Skálafelli á sunnudag.
Til stóð að hafa gönguna í Blá-
fjöllum á laugardag, en vegna
slæmra veðurskilyrða varð að
fresta göngunni þar til á sunnu-
dag og færa hana af Bláfjalla-
svæðinu fyrir í Skálafell. Eitt
hundrað og fimmtíu keppendur
luku göngunni. Sigurvegarinn í 20
km göngunni varð Norðmaöurinn
Björn Arnes, gekk á 1.30.29.7,
annar varð Ingólfur Jónsson Is-
landi, gekk á 1.31.40,5. Jón Kon-
ráðsson varð í þriðja sæti og
bróðir hans, Gottlieb Konráös-
son, varð í fjórða sæti.
i 10 km göngu karla sigraöi
Finnur Gunnarsson á 49 mín. og
43 sek. í 5 km göngu karla sigraði
Ágúst Grétarsson á 28,27 mín.
Fríöa Bjarnardóttir sigraöi í 10 km
göngu kvenna á 1.28.24,6 og í 20
km göngu kvenna sigraöi Sigur-
björg Helgadóttir á 2.21.11,1.
Guöbjörg Haraldsdóttir sigraði í 5
km göngunni á 28.00,4. Hér aö
neöan má sjá göngufólkiö við
rásmarkiö í upphafi göngunnar.
— ÞR.
Dalglish kjörinn
leikmaður ársins
ENSKIR atvinnuknattspyrnu-
menn kusu á sunnudaginn leik-
mann ársins úr sínum rööum og
hlaut Kenny Dalglish, skoski
landsliösmaðurinn hjá Liverpool,
flest stig að þessu sinni. Liver-
pool átti einnig efnilegasta leik-
mann ársins, lan Rush hlaut þann
titil, en hann er nú markahæsti
leikmaðurinn í Englandi, hefur
skorað 29 mörk á keppnistímabil-
inu.
En Liverpool lét ekki tvennuna
duga — þeir fengu þrennu. Bob
Paisley, framkvæmdastjóri liðsins,
komst í hóp nokkurra þekktustu
framkvæmdastjóra fyrr og síðar en
honum voru veitt sérstök heiöurs-
verölaun frá Félagi atvinnu-
knattspyrnumanna. Þeir sem áöur
hafa fengiö slík verölaun eru m.a.
Bill Shankly, fyrirrennari Paisley
hjá Liverpool, Joe Mercer og Sir
Matt Busby.
Bryan Robson var í ööru sæti í
kjöri knattspyrnumanns ársins og
annar Man. Utd. leikmaður, Norm-
an Whiteside, varö annar í kjöri
efnilegasta leikmanns ársins.
Enginn með 12 rétta
í 30. leikviku Getrauna kom enginn seðill fram með 12 réttum og er
þetta í 6. sinn í vetur, sem enginn seðill kemur fram með öllum leikjum
réttum. Með 11 rétta voru 4 seölar og vinningur fyrir hverja röð kr.
68.845 og 63 raðir með 10 réttum og vinningur fyrir hverja röð kr. 1.873.
Nú verður hlé hjá Getraunum yfir páskana en næsti seðill veröur
með leikjum, sem fram fara laugardaginn 9. apríl.
• Norðmaöurinn Björn Arvnes (t.v.), sigurvegari í 20 km göngu í
Hraungöngunni, ásamt Ingólfi Jónssyni, sem varð annar. Á myndinni
að neöan má sjá keppendur í þessari vegalengd rétt áöur en þeir
lögðu af stað. Ljó*m. Láru* Karl Ingason.