Morgunblaðið - 29.03.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983
31
Sigurjón Hallsteins-
son bóndi — Áttræður
Góður vinur minn og mikill og
sannur hollvinur kirkjunnar, Sig-
urjón Hallsteinsson, bóndi f
Skorholti í Leirársveit, er áttræð-
ur í dag. Á þessum merku tíma-
mótum í lífi hans langar mig að
senda honum innilegar kveðjur og
árnaðaróskir okkar hjóna með al-
úðarþökk fyrir vinsemd aila og
góðvild í okkar garð. Það er mikið
ánægju- og þakkarefni, ekki sfst
fyrir mann í mínu starfi, að vita
af svo góðum og traustum mönn-
um á akrinum með sér, mönnum,
sem ávallt eru reiðubúnir til lið-
veislu og fórnar og vilja leggja því
lið, sem er í þjónustu hins góða og
bjarta i lífinu. Þannig maður er
Sigurjón í Skorholti. Fáir eru
fórnfúsari og jákvæðari en hann
og jafn auðugir af góðvild, dreng-
skap og trú. Þess vegna eiga vinir
hans og samferðamenn honum
gott að gjalda og hugsa til hans
með hlýju og þökk á þessum
heilladegi í lifi hans.
Sigurjón Hallsteinsson er fædd-
ur f Skipanesi í Leirársveit hinn
29. marz árið 1903. Foreidrar hans
voru Hallsteinn Ólafsson, bóndi og
kona hans, Steinunn Eirfksdóttir.
Voru þau hjón bæði miklum
mannkostum búin, viljasterk,
dugleg og traust. Heimili þeirra
var kristið menningarheimili, þar
sem börnin tóku í bernsku trú á
Guð og ættjörðina, var kennt að
iðja og biðja og lagður góður og
traustur kristinn grundvöllur að
lífi þeirra og framtíð. Að þessum
trausta arfi hefur Sigurjón vinur
minn búið og ávaxtað til góðs f
umhverfi sinu, lífi sínu og störf-
um.
Sigurjón var næst yngstur níu
systkina. Fimm ára gamall flutt-
ist hann með foreldrum sínum að
Skorholti og hefur átt þar heima
alla tíð síðan. Hann ann jörð sinni
og sveit, sem hann hefur í hví-
vetna reynst góður og traustur
sonur.
Á unga aldri stundaði Sigurjón
sjómennsku og var þrettán vertíð-
ir til sjós, lengst af f Sandgerði.
Jafnframt vann hann á búi for-
eldra sinna. Og er foreldrar hans
hættu búskap, tók hann ásamt
Böðvari bróður sinum við jörð og
búi í Skorholti. Bjuggu þeir bræð-
ur þar saman um langt skeið, en
Böðvar lézt árið 1958. Sigurjón
hefur verið góður og farsæll bóndi
og farið vel með jörð sina og bú
eins og annað, sem honum hefur
verið trúað fyrir i lifinu.
Alla tíð hefur Jóna, systir Sig-
urjóns, verið bústýra hjá bróður
sínum. Eru þau systkinin mjög
samhent og er heimili þeirra hinn
mesti rausnargarður, þar sem
ávallt er yndi að koma og geislar
góðvildar, hlýju og kærleika mæta
hverju manni, sem að garði ber.
Gestrisni þeirra er einstök og oft á
orði höfð hér í sveitum. Þá eru þau
afar barngóð, gjöful og veitul. Það
hafa svo margir reynt og minnast
þess með þakklæti á þessum
heilladegi húsbóndans.
Sigurjón Hallsteinsson er mað-
ur mjög mannblendinn og félags-
lyndur og hefur tekið virkan og
giftudrjúgan þátt f félags- og
menningarlifi allt frá unglingsár-
um og fram á þennan dag. Eins og
svo margir af hans kynslóð hreifst
hann ungur af hugsjónum ung-
mennafélaganna, sem fóru eins og
vorleysing yfir landið á fyrstu
áratugum þessarar aldar og
hvöttu æskuna til starfs og dáða
og meiri vormerkja og voráhrifa í
íslenzku þjóðlífi, ekki sfst f sveit-
um. Sigurjón hefur starfað lengi
og vel í Ungmennafélaginu Hauk f
Leirársveit. Ungur keppti hann f
glímu fyrir félagið. Þá stofnaði
hann á sínum tíma kvartett innan
félagsins ásamt þremur öðrum
ungum mönnum í sveit sinni. Sig-
urjón hefur alla tíð verið mikill
áhugamaður um söng, enda ágæt-
um hæfileikum búinn á þvf sviði.
Um árabil átti Sigurjón sæti í
stjórn ungmennafélagsins og er
nú heiðursfélagi þess. Þá átti
hann um skeið sæti f hreppsnefnd
og hefur gegnt fleiri trúnaðar-
störfum fyrir sveit sína og byggð.
Alls staðar hefur munað verulega
um hann, og ávallt hefur hann
starfað af jákvæðum hug, fórnfýsi
og einlægni, trúmennsku og
drengskap.
En það, sem mér er ljúfast að
minnast af félagsmálastörfum
Sigurjóns, eru hin miklu og fórn-
fúsu störf hans f þágu kirkjunnar,
sem hann hefur innt af höndum af
fúsleika og gleði hins trúaða og
bænrækna manns allt frá
bernskuárum. Hann hefur sungið í
Leirárkirkju við guðsþjónustur og
aðrar helgar athafnir í 65 ár, eða
allt frá fermingaraldri og þar til á
sl. ári, að sjúkleiki hamlaði honum
þátttöku. Hann er svo kirkjuræk-
inn, að til fádæma má telja. Þau
eru örfá skiptin, sem hann hefur
vantað í kirkjuna þau nærri sautj-
prestur hans og munu þá jafnan
sérstakar ástæður hafa komið til.
Fyrir rúmum þrjátíu árum fóru
fram miklar og gagngerar endur-
bætur á Leirárkirkju. Sigurjón
átti þá og um langt skeið sæti í
sóknarnefnd kirkjunnar. Hann lét
verulega til sín taka í sambandi
við endurbæturnar og lagði á sig
mikla fórn osr fvrirhöfn. Þá átti
hann sinn giftudrjúga þátt f því að
útvega orgel í kirkjuna. Að þessu
gekk hann af áhuga og gleði hins
trúrækna og fórnfúsa manns, sem
í hvívetna vill láta gott af sér leiða
f lífinu og er minnugur þess, að
hann er samverkamaður Guðs og
hefur þegið lff sitt og lán af hon-
um.
Fyrir tíu árum fóru aftur fram
miklar endurbætur á Leirár-
kirkju. Þá gáfu þau systkinin Sig-
urjón og Jóna kirkjunni miklar og
stórar gjafir og sýndu eins og svo
oft bæði fyrr og síðar sína miklu
ræktarsemi, fórnfýsi og góðvild í
garð kirkjunnar. Fórnfýsi þeirra
og rausnar hefur Hallgrímskirkja
í Saurbæ einnig notið og hafa þau
gefið henni góðar gjafir í minn-
ingu um ástvini sfna, sem hvíla í
kirkjugarðinum þar.
Sigurjón Hallsteinsson er vel
greindur og góðum hæfileikum
búinn, meðal annars hagmæltur.
Hann hefur sagt mér, að ungur
hafi hann átt sér þá ósk að ganga
í skóla, en af því gat ekki orðið
sakir fátæktar. En hann hefur
menntast vel f skóla lffsins á
langri ævileið og kunnað að nýta
sína góðu hæfileika og miklu
mannkosti. Alla ævi hefur Sigur-
jón verið stakur bindindis- og
reglumaður og viljað stuðla að
heilbrigðri og sannri gleði í lífi og
félagsskap manna. Hann hefur
ávallt haft gaman af að skemmta
sér og sækir enn flestar samkom-
ur í sveitunum, ekki síst spila-
kvöld, en hann hefur mikið yndi af
að spila.
Þó að Sigurjón hafi nú áttatíu
ár að baki, er hann enn ungur í
anda og léttur í spori. Æskuglóð-
in, birta og bros vormannsins eru
yfir svip hans og fasi og gróin
honum í hug og hjarta. Það sann-
ast á honum, að „fögur sál er
ávallt ung undir silfurhærum".
Hafðu heila þökk, hollvinur
minn kæri, fyrir vinsemd þína alla
og fórn, trygglyndi þitt og
trúmennsku. Megi góður Guð.
launa þér og blessa þig á þessum
tímamótum og gefa þér alla daga
góða og bjarta á ókominni ævileið.
Sigurjón er á Borgarspítalanum
um þessar mundir.
Jón Einarsson, Saurbæ.
ín 4r oom irr V»of voriA aAlrnnr-
Hafskip á meginlandi Evrópu:
Stórbætt
þjónustuaðstaða í
Hamborg
■ mu
•iaprii
Hamborg er meö stærstu viðskiptahöfnum okkar á meginlandi Evrópu.
Þangað koma fjölhæfniskip okkar Skaftá og Rangá vikulega, lesta og losa vörur.
Frá og með 1. apríl hefur Hafskip hf. stórbætt alla aðstöðu sína í Hamborg hvað varðar
lestun og losun, þar sem fullkomnustu tækni er beitt.
Ennfremur opnað eigin þjónustuskrifstofu í Hamborg með eigin starfsmönnum
frá sama tíma.
Markmiðið er einfalt: Aukin hagkvæmni, betri vörumeðferð, lækkun flutningsgjalda og
s hraðari þjónusta.
Hafskip (Deutschland) G.m.b.h.
Chilehaus A
Fischertwiete 2
2000 Hamburg 1
Sími (040) 339341-2-3
Telex 2165028 hafud
Forstöðumaður: Sveinn Kr. Pétursson.
Okkar menn,- þinir menn
HAFSKIP HF.