Morgunblaðið - 29.03.1983, Page 28
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983
Heiðveig Guð-
jónsdóttir
— Minning
í dag verður kvödd hinstu
kveðju heiðurskonan Heiðveig
Guðjónsdóttir, Garðastræti 13.
Heiða eins og hún var jafnan
kölluð af vinum og kunningjum
lést 22. mars sl. Heiða gekk undir
mikinn uppskurð í fyrra, en náði
sér aldrei eftir þau veikindi.
Heiða fæddist 25. apríl 1905 og
var dóttir sæmdarhjónanna Hall-
dóru Hildibrandsdóttur og Guð-
jóns Jónssonar, járnsmíðameist-
ara, er rak smiðju að Garðastræti
13. Þau hjónin eru látin fyrir
mörgum árum.
Heiða ólst upp í stórum systk-
inahóp, en systkinin voru þrettán
að tölu, ellefu systur og tveir
bræður, en nú eru fimm þeirra lát-
in.
Heiða var eins og fleiri af henn-
ar kynslóð nægjusöm, heiðvirð og
vönduð kona. Hún var jafnan
sköruleg ásýndum, snyrtimenni
hið mesta og hafði ákveðið skap.
Heiða giftist ekki, en hún hélt
rausnarlegt heimili ásamt tveim
systkinum sínum, þeim Guðmundi
og Selmu. Selma er látin fyrir
nokkrum árum, svo nú er Guð-
mundur einn eftir að Garðastræti
13.
Það var jafnan gestkvæmt á
heimilinu í Garðastræti enda
systkinin og systkinabörnin mörg
og gestgjafarnir félagslyndir.
Heiða starfaði lengst af í sæigæt-
isgerð hér í borg, en lét af störfum
fyrir nokkrum árum. Heiðveig var
tíguleg kona, mikill vesturbæing-
ur og góður fulltrúi sinnar kyn-
slóðar.
Eftirlifandi systkini, frændfólk
og vinir sakna skemmtilegs og
góðs félaga.
Blessuð sé minning Heiðveigar
Guðjónsdóttur.
Þ.Þ.
AMCEagle
4WD árg. '82
á aðeins 490.000.-
AMC Eagle 4WD hefur marg sannaö ágæti sitt viö íslenskar aöstæöur. AksturseigmieiKar Eagle
eru í sérflokki, hvort sem er á bæjarakstri eöa utanvegar. 6 cyl. 258 cid vél, 3 hraöa sjálfskipt-
ing, aflhemlar, aflstýri, veltistýri, Delux innrétting. Val um afturhjóladrif eöa framhjóladrif.
Styrkur undirvagn.
Opiö laugardag 10—18
Opið sunnudag 13—18.
// FlAT EINKAUMBOÐÁ iSLANDI // Allt á sama stað
EGILL VILHJÁLMSSON HE
Opið til 10
í kvöld
Vörumarkaðurinn hf.
Armúla 1.