Morgunblaðið - 29.03.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983
37
Viggó Alfreð
Oddsson — Minning
Fæddur 2. desember 1932
Dáinn 7. marz 1983
Viggó Alfreð Oddsson lézt að
heimili sínu í Jóhannesarborg í
Suður-Afríku hinn 7. marz sl.,
fimmtugur að aldri.
Hann fæddist í Vatnskoti í
Þingvallasveit 2. desember 1932 og
þar sleit hann barnsskónum í
skjóli móðurforeldra sinna, þeirra
Jónínu Guðrúnar Jónsdóttur og
Símonar Daniels Péturssonar.
Foreldar hans voru Katrín Sylvía
Símonardóttir og Oddur Helga-
son.
Ungur að árum fluttist Viggó
með móður sinni til Reykjavíkur
og ólst upp hjá henni og stjúpföð-
ur sínum, ívari Björnssyni cand.
mag., kennara við Verzlunarskóla
íslands, ásamt tveim bræðrum
sinum, Simoni og Gunnari Páli.
Viggó stundaði nám við Gagn-
fræðaskóla Reykvíkinga, Ag-
ústsskóla svonefnda, og lauk það-
an gagnfræðaprófi. Að því námi
loknu réðst hann í iðnnám til
Vélsmiðjunnar Hamars hf. og
nam rennismíði. Að loknu iðn-
skólaprófi fékk hann sveinsbréf í
þeirri iðngrein. Hann var ljónhag-
ur og hafði svo nett handbragð að
leitun var að öðru eins. Hann átti
til mikilla hagleiksmanna að telja.
Afi hans, Símon í Vatnskoti, og
synir hans voru þjóðkunnir þús-
undþjalasmiðir og föðurafi hans,
Helgi Magnússon kaupmaður, var
lærður járnsmiður og smiður góð-
ur, eins og smiðsgripir hans, sem
varðveittir eru í Iðnminjasafni ís-
lands bera ljóslega vott um.
Ekki gerði Viggó rennismíðina
að ævistarfi sínu, því fljótlega að
námi loknu réðst hann til Hauks
Péturssonar verkfræðings að For-
verki hf. sem kortagerðarmaður.
Hér var um nýjung að ræða, eða
öllu heldur byltingu í kortagerð.
Ljósmyndir eru teknar út flugvél
og landakort síðan unnin úr frá
þeim í vél, sem afkastar á við
marga menn. Þetta var mikil
nákvæmnisvinna, er virtist eiga
mjög vel við Viggó. Eftir nokkurra
ára störf hjá Forverki hf. fór
Viggó til Hollands til frekara
náms í myndkortagerð, og hlaut
hann til þess styrk frá Sameinuðu
þjóðunum. Að þessu námi loknu
virtust honum allir vegir færir.
Honum bauðst atvinna víða um
heim, en álitlegast þótti honum
atvinnutilboð frá Suður-Afríku.
Þangað réð hann sig árið 1963.
Vann hann fyrstu þrjú árin í
Rhodesíu, en síðan í Jóhannesar-
borg, þar sem hann starfaði til
dauðadags sem yfirmaður hjá
stórfyrirtæki. Þar naut hann álits
og mér er kunnugt um, að hann
gerði breytingar á hinum flóknu
kortagerðarvélum, sem vöktu at-
hygli hinna svissnesku framleið-
enda þeirra, er töldu breytingarn-
ar horfa mjög til bóta.
Viggó var að ýmsu leyti mjög
sérkennilegur persónuleiki. Hann
var hið mesta snyrtimenni. Hann
var fagurkeri og hafði unun af að
handleika og horfa á fagra gripi.
Hann naut þess að snæða við fag-
urlega dúkað borð og drekka
prúðbúinn vín úr kristalsglasi.
Hann fyrirleit óreglu og setur yfir
tóbakseldum voru ekki að hans
skapi. Hann var reglumaður í hví-
vetna og svo samvizkusamur var
hann, að þau fjögur ár, sem hann
var við nám í Hamri hf., kom
hann aldrei mínútu of seint til
vinnu, að sögn yfirmanna hans
þar.
Viggó var maður vel ritfær og 1
aldarfjórðung birtust greinar
hans í ýmsum blöðum hér. Þær
vöktu athygli, enda var hann oft
ómyrkur í máli. Hann var félags-
lyndur og starfaði í ýmsum félög-
um, var m.a. formaður Bindindis-
félags ökumanna hér, og á Rhod-
esíuárum sínum var hann varafor-
maður Norræna félagsins I Salis-
bury.
Viggó var elztur barnabarna
foreldra minna. Var hann afar af-
haldinn af þeim, og með honum og
okkur systkinunum var mjög
kært. Hann var frændrækinn og
nú minnist ég þakklátum huga
kveldstundar, er við áttum með
honum og systkinum hans sl.
sumar á heimili föður hans. Ekki
grunaði okkur þá, að þarna kvedd-
um við hann hinsta sinni.
Viggó átti gott hús í Jóhannes-
arborg með fögrum garði þar sem
hann las suðræna ávexti af trján-
um. Hann var gestrisinn og höfð-
ingi heim að sækja. Um jólin síð-
ustu sátu allir íslendingar í Jó-
hannesarborg, um þrjátíu talsins,
góða veizlu hjá honum, og nú
sakna þeir vinar í stað.
Bálför Viggós var gerð í Jó-
hannesarborg 21. marz sl. Áður
var minningarathöfn í sænsku
kirkjunni þar í borg, sem prestur
safnaðarins annaðist. Þar las ís-
lenzk kona, Hildur Lárusdóttir
Lúðvígssonar, úr helgri bók á
móðurmáli hans.
Viggó hafði ráðgert að hverfa
heim til íslands á næstunni og
hafði þegar hafið undirbúning að
þeim flutningi. Nú er hann að vísu
kominn heim, en með öðrum hætti
en hann hafði ráðgert. Aska hans
verður í dag lögð í íslenzka mold,
en minningarathöfn um hann fer
fram í Dómkirkjunni kl. 3 í dag.
Með Viggó Alfreð Oddssyni er
góður drengur genginn. Guð gefi
honum raun lofi betri.
Ég votta foreldrum hans og
ástvinum innilega samúð.
Magnús Helgason
Birting
afmælis- og
minningar-
greina
ATHVGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið^
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
VikuKkig
Fnankfurtaiaveísla
8r14.maí.
Veíshistjórí
Fríðrík Haraldsson.
Þátttökugjald er aðeins 8.900 krónur.
í fyrrasumar voru Flugleiða „Frankfúrtararnir" með ódýrustu
og bestu ferðatilboðum sem fslendingum buðust.
Friðrik Haraldsson stjórnaði líka frábærlega velheppnaðri
„siglingu" um Kölnarvatnið fræga.
Nú sameinum við Friðrik og Frankfúrtarana og bjóðum
vikulanga Frankfúrtaraveislu, með Friðrik sem veislustjóra,
fyrir aðeins 8.900 krónur.
Lagt verður upp frá Keflavík kl. 10:10 að morgni, 8. maí n.k.
og flogið til Frankfúrt. Þaðan verður svo terðast vikuna
út í glæsilegum hópferðabíl með viðkomu á flestöllum
fallegustu og skemmtilegustu stöðum suður Þýskalands.
Friðrik þekkir Þýskaland eins og lófann á sér og mun m.a. fara
„Rómantísku leiðina" milli Wúrzburg og Múnchen, líta inná
stúdentakrána í Heidelberg, svipast um í Svartaskógi, fara einn
hring á Ólympíuleikvanginum í Múnchen og sigla um Rín.
Gist verður á góðum hótelum í Wúrzburg, Húbertal,
Oberammergau (2 nætur), Lindau og Heidelberg. Þann 14. er
flogið aftur heim frá Frankfúrt.
Brottför: 8. maí Heimkoma: 14. maí.
Verð: 8.900 krónur.
Innifalið: flugfargjald, akstur, gisting,
morgunverður og fararstjórn.
Ekki innifalið: Flugvallarskattur og frankfúrtarar.
Við bjóðum líka venjulega vikulanga
Frankfúrtara eins og í fyrra:
Flug og bíll, verð frá 5.863,- krónum á mann.
Flug, bíll og sumarhús, verð frá 6.960,- krónum
á mann.
Flug og húsbíll, verð frá 8.516,- krónum á mann.
Miðað er við að fimm ferðist saman.
Barnaafsláttur: 2-11 ára fá 2.500 kr. afslátt
Yngri en 2ja ára greiða 800 kr.
Allar nánari upplýsingar gefa skrifstofur Flugleiða,
umboðsmenn og ferðaskrifstofurnar.
Sölusími Flugleiða er (91 >-25100.
Miðað er við gengi 1 apríl.