Morgunblaðið - 29.03.1983, Qupperneq 40
j^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
jKgttttlrlðfeift
7C
_ ^skriftar-
síminn er 830 33
ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983
Olafur Jóhannesson utanríkisráðherra:
Ljósm. Mbl. ktfe
UTANKJÖRSTAÐAKOSNING vegna komandi alþingiskosninga hófst f
Mióbaejarskólanum í Reykjavík sl. laugardag og greiddu þá 27 aðilar
atkvæói. A sunnudaginn greiddu einnig 27 atkvæði, þannig að 54 neyttu
atkvæðisréttar síns um helgina.
Þetta er mun meiri „kjörsókn" en var við síðustu kosningar, sveitar-
stjórnarkosningarnar í fyrravor, en þá greiddu 20 aðilar atkvæði fyrstu tvo
dagana.
Meðfylgjandi mynd var tekin við utankjörstaðaatkvæðagreiðsluna.
Endurhönnun flugstöðv
arbyggingar á lokastigi
„ÉG HEF verið að láta vinna að
endurhönnun flugstöðvarbyggingar
og hún er nú á lokastigi," sagði Ólaf-
ur Jóhannesson utanríkisráðherra er
Mbl. ræddi við hann í gær.
ólafur sagði að endurhönnun-
inni væri að ljúka og aðspurður
um hvort þeim undirbúningi yrði
lokið fyrir kosningar sagði hann:
„Hver veit nema þetta verði kosn-
ingabomba, ég get ekkert sagt
frekar um það núna.“ ólafur sagði
Olíugeymarnir
í Helguvík
byggðir í sumar
einnig að ekkert væri þvi til fyrir-
stöðu af hans hálfu að ráðast
fljótlega í byggingu nýrrar flug-
stöðvar, en aðrir væru ekki eins
tilbúnir. „Ríkisstjórnin situr enn
og starfar eftir sínum sáttmála og
Alþýðubandalagið hefur neitun-
arvaldið," sagði hann.
Utanríkisráðherra var þá
spurður um gang mála við Helgu-
víkurframkvæmdir. Hann svaraði:
„Þær hafa sinn gang. Það er gert
ráð fyrir að olíugeymarnir verði
byggðir í sumar, ég veit ekki ná-
kvæmlega hvenær, en þeir verða
byggðir og grafnir í jörðu."
Á 150 km ínn
Miklubraut
SNEMMA á sunnudagsmorgun
lenti lögreglan í eltingaleik við öku-
Mýrar:
Bjór
rekur á
fjorur
Borgarnesi, 28. mars.
MÝRAMENN hafa löngum verið
seigir við að bjarga sér. Á jörð
einni ónefndri á Mýrum hefur nú
verið tekin upp „aukabúgrein"
allsérstæð, þó af rekaætt sé, en
reki hefur sem kunnugt er löng-
um verið Mýramönnum drjúg bú-
bót. Jarðeigandi nokkur sem
reglulega vitjar reka á jörð sinni
hefur að undanförnu fundið bjór-
dósir (Colt 45 og Carlsberg) rekn-
ar á fjörur sfnar. Ekki margar í
einu en safnast þegar saman
kemur. Einnig hefur hann fundir
nokkrar djúsdósir. Dósirnar voru
allar heilar og innihaldið
óskemmt að sögn mannsins.
„Hlunnindabóndinn" sagðist f
samtali við Mbl. ekki vita
hvernig á þessum sérstæða reka
stæði, en sagði að ekki væri
ólíklegt að þetta góss kæmi úr
vörpu sem e.t.v. hefði verið skil-
in eftir í flóanum og átt að
sækja seinna en þá ekki fundist.
Ef þetta væri rétt tilgáta sagð-
ist hann bíða spenntur eftir
meiru. Ekki vildi maðurinn láta
nafns síns getið, ekki vegna
hræðslu við lögreglu- eða tollyf-
irvöld vegna smygl- eða bjór-
bannsákæru heldur sagðist
hann vilja vera laus við ágang
hugsanlegra „gullleitarmanna“
sem búast mætti við að hugsuðu
sér gott til glóðarinnar ef þetta
fréttist. En bjórinn sagði hann
að væri góður.
HBj.
mann á Volkswagen Passat, sem ók
mjög greitt inn Miklubraut og lauk
akstrinum við Laxalón, þar sem bif-
reiðin valt og gjöreyðilagðist, en
ökumaður, sem var einn í bfl sínum,
slapp furðanlega vel. Hann er
grunaður um ölvun við akstur.
Lögreglan varð ökumannsins
vör á Snorrabraut. Hann ók sfðan
um Miklatorg og inn Miklubraut,
en á torginu hafði hann nærri ekið
á lögreglubílinn. Síðan jók öku-
maður hraðann inn Miklubraut og
mældist hraðinn frá 100 og imp í
150 kílómetra á klukkustund. Oku-
maður ók á rauðu ljósi við Löngu-
hlíð, við Kringlumýrarbraut og
Háaleitisbraut. Á grænu Ijósi fór
hann yfir gatnamótin við Grens-
ásveg, en síðan aftur á rauðu ljósi
yfir gatnamótin við Réttarholts-
veg. Okuferðinni lauk eins og áður
segir við Laxalón, þar sem bifreið-
in valt og ónýttist.
Fyrstu lömbin
AS.
Fyrstu lömb vorsins eru að koma í heiminn þessa dagana. Aðfaranótt laugardagsins voru tvö lömb borin á
Bjargi í Miðfirði, Vestur-Húnavatnssýslu, eru það tveir myndarlegir hrútar. Ærin er f eigu bóndans á Bjargi,
Axels Sigurgeirssonar.
Hagvangur kannar fylgi stjórnmálaflokkanna:
Fyrsta skoðanakönnun hér
á landi í samráði við Gallup
FYRSTA skoðanakönnun Hagvangs
hf. um fylgi stjórnmálaflokkanna
verður gerð fyrir næstu alþingiskosn-
ingar, 23. aprfl nk., í samráði við
Norman L Webb ritara hinna víð-
frægu alþjóðasamtaka Gallup Inter-
national, en að þeim eiga aðild 36
fyrirtæki, sem gera skoðanakannanir
af ýmsu tagi í jafnmörgum löndum. í
ráði er að birta skoðanakönnun Hag-
vangs hf. opinberlega um viku fyrir
kosningar, en nákvæm dagsetning
hefur enn ekki verið ákveðin.
Crtakið verður rúmlega 1.000
manns, sem valið er af handahófi
samkvæmt þjóðskrá. Hér er um að
Utankjörstaöaatkvæðagreiðslan hafin:
54 kusu um helgina
ræða svokallaða „omnibus“-skoð-
anakönnun, þannig að fyrirtækjum
gefst kostur á að taka þátt í henni
með þeim hætti, að semja við Hag-
vang um að spyrja fólk ákveðinna
spurninga í skoðanakönnuninni
sem þau vilja fá svör við. Með öðr-
um orðum verður fylgi flokkanna
aðeins einn þáttur af mörgum í
skoðanakönninni, en framkvæmdin
er eingöngu í höndum Hagvangs.
Norman L. Webb sagði við Mbl. í
gær að Gallup-alþjóðastofnunin
gerði miklar kröfur um gerð skoð-
anakannana og yrði skoðanakönnun
Hagvangs í samræmi við þær regl-
ur sem giltu f helztu ríkjum heims.
Hér verður skoðanakönnunin þann-
ig gerð, að í Reykjavík og á Reykja-
nesi verður fólk spurt persónulega,
en í öðrum landshlutum gegnum
síma. Sagði Normann Webb að
þessi háttur hefði gefið góða raun
annars staðar sem skoðanakannan-
ir af þessu tagi hefðu verið gerðar.
ólafur Haraldsson framkvæmda-
stjóri Hagvangs sagði í samtali við
Mbl., að hann vænti mjög mikils af
þessu samstarfi við Normann
Webb, enda hefði fyrirtækið í
hyggju að sækja um aðild að Gallup
International. Því vonaði hann að
þetta yrði aðeins upphaf að frekara
samstarfi þessara aðila í náinni
framtíð. Ólafur sagði ennfremur að
margir viðskiptavinir Hagvangs
hefðu sýnt þessari skoðanakönnun
áhuga, en ekki hefði enn verið
ákveðið hvað spurningarnar yrðu
margar, Ólafur sagði einnig að ætl-
unin væri að gefa stofnunum og
fyrirtækjum kost á að kynna sér
niðurstöður skoðanakönnunarinnar
gegn vægu gjaldi.
Sjá viðtal við Norman
L Webb á miðopnu.
Vísitala byggingarkostnaðar:
V erðbólguhraðinn
mælist nú um 105%
VERÐBÓLGUHRAÐINN er 105,3%,
samkvæmt mæiingu byggingarvísitölu,
en frá fyrri hluta desember og til fyrri
hluta mars hækkaði byggingarvísital-
an úr 100 stigum og f 119,72 stig og
nemur sú hækkun 19,7%. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu frá Hagstofu
íslands.
í fréttatilkynningunni kemur og
fram, að með lögum nr. 18/1983 hafi
grundvelli vísitölu byggingarkostn-
aðar verið breytt og jafnframt hafi
verið ákveðin ný grunntala 100, mið-
að við verðlag í fyrri hluta desember
1982. Hækkun vísitölunnar frá þess-
um tíma til fyrri hluta mars nam
19,72 stigum, og stendur vísitalan
því í 119,72 stigum og gildir á tíma-
bilinu apríl til júní 1983.
Samsvarandi vfsitala miðað við
eldri vísitölugrunninn er 1774,03
stig og gildir hún einnig á tímabil-
inu apríl til júní 1983, til viðmiðunar
við vísitölur á eldra grunni.