Morgunblaðið - 13.04.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1983
5
Fjölleikahús sýnir í Reykja-
vík og á Akureyri í sumar
DANSKT rjölleikahús, Cirkus Ar-
ena, kemur hingað til lands í júlí-
mánuði næstkomandi, og mun sýna
bér í fimm vikur. Borgaryfirvöld
hafa gefið leyfi til sýninganna og
samkvæmt upplýsingum sem Mbl.
fékk hjá Jörundi Guðmundssyni,
sem annast skipulagningu fyrir fjöl-
leikahúsið hér á landi, verður fyrsta
sýning Cirkus Arena, laugardaginn
16. júlí í Laugardal í Reykjavík.
Cirkus Arena mun síðan sýna
daglega i Reykjavík fram til 7.
ágúst, en þá heldur fjölleikahúsið
til Akureyrar, þar sem sýnt verður
í fimm daga. Fjölleikahúsið kemur
hingað til lands með Smyrli þann
13. júlí og heldur sfðan til Færeyja
17. ágúst.
Jörundur sagði að listafólkið í
Cirkus Arena kæmi víða að úr
Evrópu og væri m.a. um að ræða
heimsþekkt fjölleikafólk. Loft-
fimleikamenn kæmu frá rúm-
enska rikissirkusnum, hljómlist-
armenn og ýmsir fleiri kæmu frá
tékkneska ríkissirkusnum, trúðar
kæmu frá Austurríki og Ítalíu, en
flestir aðrir væru Danir.
Mikill farangur fylgir fjölleika-
fólkinu hér, flutningabílar, vagnar
og fleira, en sýningartjald Cirkus
Arena rúmar 800 manns.
Cirkus Arena var stofnaður árið
1954 og hefur ferðast víða, en sl.
sumar sýndi fjölleikahúsið m.a. í
Færeyjum. Cirkus Arena er annað
stærsta fjölleikahús Danmerkur.
CiBKUS
jmwí
GALLA
Metsölublað á hverjum degi!
Allir koma í rokkstuði
og djamma eins og gert var
í þá gömlu og góðu daga
f r
k i-— r. i ,
Nú fer hver aö veröa síöastur aö sjá skemmtun ársins.
Þaö er mál mánna aö rokkhátíöin í Broadway sé einhver besta skemmtun í þessum anda
sem haldin hefur veriö hérlendis. Viö höfum nú ákveöiö aö halda rokkhátíöina enn einu
sinni næstkomandi föstudagskvöld í Broadway kl. 20.00.
Um 2ja tíma stanslaust stuð með:
Harald G. Haralds, Guöbergi Auðunssyni,
Þorsteini Eggertssyni, Astrid Jenssen, Berta
Möller, Önnu Vilhjálms, Mjöll Hólm, Sigurdór
Sigurdórssyni, Garöari Guðmundssyni, Stefáni
Jónssyni, Einari Júlíussyni, Siguröi Johnny og
Ómari Ragnarssyni. Hver man ekki eftir þessum
kempum?
Stórhljómsveit Björgvins Halldórsson-
ar leikur rokktónlist
Hljómsveitina skipa:
Björn Thoroddsen, Hjörtur Howser, Rafn Jóns-
son, Pétur Hjaltested, Haraldur Þorsteinsson,
Rúnar Georgsson og Þorleifur Gíslason.
SÆMI OG DIDDA ROKKA.
SYRPUSTJÓRARNIR
ÞORGEIR ÁSTVALDSSON OG
PÁLL ÞORSTEINSSON KYNNA.
GÍSLI SVEINN DUSTAR RYKIÐ AF
GÖMLU ROKKPLÖTUNUM.
Matseðill
Rjómalöguð rósinkálsúpa
Innbakaðir sjdvarréttir
I smjördeigi
Verð 300. aðgangseyrir 150.
Boröhald hefst kl. 20. Pantiö miöa tímanlega.
Aögangseyrir kr. 150.
Miöasala er í Broadway í dag kl. 9—5.