Morgunblaðið - 13.04.1983, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 13.04.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1983 45 SJÓNARHORN UMSJÓN ÓLAFUR JÓHANNSSON Stefnir fjallar um stóriðju STEFNIR, fyrsta tbl. þessa árs, er kominn út. í þessu hefti er fjallað um stóriðjumál, en um það efni rita f blaðið þeir Geir H. Haarde, Sigurgeir Jónsson, Jónas Elíasson og Birgir ísl. Gunnarsson. I>á er fjallað um efna- hagsmál f blaðinu og einnig eru kenningar Miltons Friedman til um- fjöllunar í þessu hefti. Þá er birtur bókarkafli Stefnis, en það er greinargerð um tengsl hinnar alþjóðlegu friðarhreyf- ingar, sem berst fyrir afnámi kjarnorkuvopna, og sovésku leyni- lögreglunnar KGB. Höfundur þess- arar greinargerðar er John Darron, einn aðalritstjóra tima- ritsins Reader’s Digest, en hann er einnig höfundur metsölubókar um KGB. í bókarkafla Stefnis er ekki fjallað um friðarhreyfingu á ís- landi. Ritstjórnargrein Stefnis fjallar um jafnrétti, en þar gerir höfund- ur jafnan kosningarétt að umtals- efni. 1 greininni segir m.a.: „I grundvallaratriðum hefur verið nokkuð almennt samkomulag um jafnrétti fremur en jöfnun af- komu. Fremur hefur verið valin sú leið að strengja öryggisnet um þá sem minna mega sin, heldur en að gera alla eins. Þó hefur umræðan í atkvæðisréttarmálinu snúist um stefnu þjófstartsins. Misvægi at- kvæða hefur leitt til þess, að til- teknum landshlutum hefur verið veitt forskot sem aðrir hafa ekki. Með aukinni skattheimtu og póli- tískri lánafyrirgreiðslu hafa stjórnmálamenn fengið vald til að jafna afkomu fólks í landinu. Þetta er kjarni málsins. Ef stjórnmála- menn hefðu ekki þetta skömmtun- arvald væri tæplega deilt um at- SUS: Efla tengslin viö íslenska námsmenn í útlöndum SAMBANI) ungra sjálfstæðismanna sendir nú fyrir kosningarnar öllum íslenskum námsmönnum erlendis bréf, þar sem vakin er athygli á stefnu og starfi Sjálfstæðisflokksins í hinum ýmsu málum, einkum þó þeim sem námsmenn varða sérstak- lega, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Geir H. Haarde, for- manni SUS. Eins og kunnugt er af fréttum fóru þeir Geir H. Haarde og Birgir Isl. Gunnarsson til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar á fund ís- lenskra námsmanna þar. Voru haldnir 9 fundir á 8 dögum í þess- um löndum. Sagði Geir að hátt á fjórða hundrað manns hefðu mætt á fundum þessum. „Fundirnir voru bæði skemmtilegir og fjörlegir og fóru þar fram líflegar umræður. Þeir voru mjög fróðlegir fyrir okkur og vonandi fundarmenn líka,“ sagði Geir. Geir gat þess að ungir sjálf- stæðismenn hefðu síðastliðin misseri lagt aukna áherslu á það að efla samband við íslenska námsmenn erlendis, en þar hefðu til skamms tíma verið ríkjandi ofstækisfullir vinstrimenn. „Við erum sannfærðir um að þetta sé nú að breytast og að sjálfstæðis- stefnan eigi nú mun rikari hljóm- grunn á meðal ungra Islendinga erlendis, jafnt sem hér heima," sagði Geir. „Við teljum mjög mikilvægt að rækta sambandið við þennan hóp, sem hefur af skiljanlegum ástæð- um verið nokkuð afskiptur mörg síðastliðin ár,“ sagði Geir H. Haarde. kvæðisréttinn. Það myndi þá í raun tilheyra fortíðinni að boða forréttindi eins á annars kostnað. Byggðastefna sem felst i skömmtunarstefnu hefur leitt til þjóðfélagslegs ranglætis þar sem atkvæðakaup stjórnmálamanna hafa t.d. ráðið fjárfestingum en ekki hagkvæmnissjónarmið. Aug- ljóst er að þeir sem hagnast á þessu vilja halda í ranglætið — það er reynslan af öllum sérrétt- indahópum á öllum tímum. Raunhæfasta leiðin gegn órétt- lætinu felst á hinn bóginn ekki í því að taka forréttindin af einum og veita öðrum; hún felst í því að afnema þau með öllu. Það verður aðeins gert með því að taka skömmtunarvaldið af stjórnmála- mönnum. Jafnframt verður að auka vald sveitarstjórna á kostnað ríkisvaldsins og láta hagkvæmn- issjónarmið ráða fjárfestingum. Eingöngu með slíkum aðgerðum er unnt að eyða tortryggni dreifbýl- ismanna í garð þéttbýlismanna. Það yrði nefnilega engin lausn að láta atkvæðakaupin fara fram á Reykjanesi fremur en á Austur- landi — svo dæmi sé tekið.“ Ritstjóri Stefnis er Hreinn Loftsson. Gerður Thoroddsen, læknisfræði. Óli Bjöm Kárason Gerður Thoroddsen framkvæmdastjóri SUS GEKÐUR Thoroddsen, háskólanemi, var nýlega ráðin framkvæmdastjóri Sambands ungra sjálfstæðismanna, og tók hún við starfinu af Óla Birni Kárasyni, sem verið hefur framkvæmdastjóri SUS í tæpt ár. Þetta er í fyrsta sinn sem kona gegnir starfi framkvæmdastjóra SUS. Gerður Thoroddsen sagði í ir sjálfstæðismenn legðu sitt lóð samtali við Mbl. að þetta væri spennandi, fjölbreytt og skemmtilegt starf, enda væri mikið um að vera hjá ungum sjálfstæðismönnum nú í kosn- ingabaráttunni. Fjölmargir ung- á vogarskálarnar fyrir þessar kosningar og væru dugandi í að kynna kjósendum viðhorf sín og Sjálfstæðisflokksins í málefnum ungs fólks, sem og öðrum. Samband ungra sjálfstæðismanna gegn Æskulýðsfylkingu Alþýðubandalagsins: Kappræðufúndir um allt land haldnir næstu daga SAMBAND ungra sjálfstæðismanna og Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins standa fyrir kappræðufundum um allt land á næstu dögum og munu fulltrúar þessara samtaka leiða saman hesta sína á fundunum og verður efni fundanna „Andstæðar leiðir í íslensk- um stjórnmálum — sjálfstæðisstefnan eða sósíalismi**. Baráttan hefst með fundi í Reykjavík, en þar tala fyrir hönd SUS þau Bessí Jóhanns- dóttir, Geir H. Haarde og Inga Jóna Þórðardóttir. Fundarstjóri verður Árni Sigfússon formaður Heimdallar, en fundurinn verður haldinn í Sigtúni. Þá verða haldnir fundir víða um land, en það er stefna SUS varðandi þessa kappræðufundi, að sem flestir úr röðum heima- manna verði frummælendur á fundunum. Á Akranesi verður fundurinn haldinn á Hótel Akranesi sunnudaginn 17. apríl og hefst hann klukkan 14.00. Ræðumenn SUS verða þau Guðjón Krist- jánsson, Inga Jóna Þórðardótt- ir og óðinn Sigþórsson. Fund- arstjóri verður Halldór Karl Hermannsson. Á ísafirði verð- ur fundurinn haldinn sunnu- daginn 17. apríl á Hótel ísafirði og hefst hann klukkan 13.30. Frummælendur SUS verða þeir Einar K. Guðfinnsson, Guð- mundur Þórðarson og Halldór Jónsson, en fundarstjóri verður Eirikur F. Greipsson. Á Akur- eyri verður fundurinn haldinn í Sjallanúm sunnudaginn 17. apríl og hefst kappræðan klukkan 14.00. Ræðumenn SUS verða þeir Geir H. Haarde, Guðmundur Heiðar Frímanns- son og Tómas Gunnarsson. Fundarstjóri verður Björn Jós- ef Arnviðarson. Á Egilsstöðum verður kappræðufundurinn haldinn 17. apríl, sem og á fyrr- greindum stöðum og fer fund- urinn fram í Valaskjálf og hefst klukkan 13.30. Ræðumenn SUS verða þeir Einar Rafn Haraldsson, Jónas Jóhannsson og Ragnar Ó. Steinarsson. Fundarstjóri verður Rúnar Pálsson. í Vestmannaeyjum verður kappræðufundurinn laugardag- inn 16. apríl. Verður hann í Hallarlundi og hefst klukkan 16.30. Frummælendur SUS verða þeir Georg Þór Krist- jánsson, Gústaf Níelsson og Þorsteinn Pálsson, en fundar- stjóri verður Magnús Jónasson. í Kópavogi verður fundurinn haldinn sunnudaginn 17. apríl og fer hann fram í Félagsheim- ili Kópavogs og hefst klukkan 14.00. Ræðumenn SUS verða þeir Haraldur Kristjánsson, Lárus Blöndal og Jóhanna Thorsteinsson, en fundarstjóri verður Þorsteinn Haraldsson. Kosningafundur í Gamla bíói á laugardaginn SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN gengst fyrir kosningafundi í Gamla bíói í Reykjavík næstkomandi laugardag, 16. aprfl. Munu ungir frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins flytja stutt ávörp á fundinum. Samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Geir H. Haarde, formanni SUS, mun fundurinn verða í líflegu formi, þar verða skemmtiatriði ýmisskonar, tón- list, söngur og fleira verður flutt á milli ávarpa. Sagði Geir að ungir sem aldnir ættu að geta fundið eitthvað á fundinum við sitt hæfi og hvatti hann stuðn- ingsmenn Sjálfstæðisflokksins til að fjölmenna á fundinn. Bessí Jóhannsdóttir Geir H. Haarde Inga Jóna Þórðardóttir Arni Sigfússon Kappræðufundur í Sigtúni annað kvöld KINS og fram kemur annarsstaðar á síðunni eru að fara af stað kapp- ræðufundir á milli SUS og ÆFAB, og verður fyrsti fundurinn í Sigtúni I Reykjavík á morgun, flmmtudag. Ræðumenn SUS verða þau Bessí Jóhannsdóttir, Geir H. Haarde og Inga Jóna Þórðar- dóttir, en fundarstjóri verður Árni Sigfússon. Ekki var kunn- ugt um að ÆFAB væri búin að tilnefna sína ræðumenn þegar þetta er ritað. Ef að líkum lætur verður fundurinn fjörugur, eins og títt er þegar fulltrúar þessara afla leiða saman hesta sína og eru ungir sjálfstæðismenn hvattir til að mæta á fundinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.