Morgunblaðið - 13.04.1983, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.04.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1983 19 Leigjendasamtökin: Mótmæla harðlega hækkun húsaleigu „Því miður eru þessi skilyrði ekki fyrir hendi í dag á íslandi. Ástæðan er stjórnleysi og alveg sérstaklega léleg frammistaða þess ráö- herra, Svavars Gests- sonar, félagsmálaráð- herra, sem farið hefur meö húsnæðismál í nú- verandi ríkisstjórn.“ mikið. Þetta kemur sérstaklega hart niður á ungu fólki, sem hefur tileinkað sér aðrar lífs- venjur en gamli vísitölugrund- völlurinn gerir ráð fyrir. Það er þessi kjaraskerðing, sem kem- ur illa við ungt fólk sem er utan við verkamannabústaðakerfið. 2) 100% verðbólguþróun gerir ungu fólki í millitekjustétt ókleift að taka verðtryggð lán, sem nokkru nemur, á sama tíma sem launatekjur hækka ekki að sama skapi. Og þótt sambæri- leg hækkun tekna ætti sér stað, raskar óðaverðbólga svo mörgu öðru í umhverfi manna, að þeir hugsa sig tvisvar um, áður en þeir binda sér mikla skulda- bagga. 3) Neikvæð skattastefna Alþýðu- bandalagsins, undir forustu Ragnars Arnalds, fjármála- ráðherra, gagnvart millitekju- fólki, samfara 100% verðbólgu- þróun, útilokar að þetta fólk geti eignast eigið húsnæði með viðunandi hætti. Ef Svavar Gestsson skilur ekki samhengið milli erfiðleika ungs fólks í húsnæðismálum og þeirra atriða er að framan greinir, 100% verðbólga, dýrtíð, minnkandi kaupgeta, ógnvekjandi bygg- ingarkostnaður, verðtryggð lán o.s.frv., þá er hann kominn langt frá uppruna sínum, þ.e. úr skauti verkalýðsins. Það er svo annað mál, hvort Svavar Gestsson rekur raunverulega uppruna sinn þang- að, í hjarta sínu. Verk hans og framkoma sem ráðherra, bera þess ekki vott. Fjandskapur við millito kjufólk Svavar Gestsson getur sparað sér yfirlætisfullar forsíðugreinar í Þjv. að nú sé röðin komin að ungu fólki í húsnæðismálum, vegna þess að hann leysir ekki þessi mál. 1 ráðherratíð sinni hefði hann getað gert það, en hann gerði það ekki. Og hvers vegna skyldi hann frekar gera það á næstu árum? Svavar Gestsson og hans líkar hafa aldrei verið vinir millitekjufólks, af þeirri einföldu ástæðu að þar er að finna hinn breiða grundvöll ís- lenzkrar borgarastéttar, sem Al- þýðubandalagsmenn hafa ætíð barist gegn. í fjögur ár hefur hann haft for- ustu í stjórnarstefnu, sem hefur lagt steina í götu ungs fólks í íbúð- armálum. Það eitt hefur nægt til að eyðileggja björtustu vonir dugnaðarfólks um að eignast eigin íbúð, að sleppa verðbólguúlfinum lausum. En til þess að bæta gráu ofan á svart, hafa ráðherrar Al- þýðubandalagsins haft sérstaka forustu um að rýra tekjur Bygg- ingarsjóðs ríkisins með því að færa hluta af tekjum hans, hluta iaunaskatts yfir í eyðsluhít ríkis- sjóðs. Heldur Svavar Gestsson virki- lega að ungt fólk, millitekjufólk, í öllum stéttum og starfsgreinum, geri sér ekki grein fyrir samheng- inu milli tekna annars vegar og stöðugt þyngri útgjaldabyrðar hins vegar vegna áhrifa óðaverð- bólgu. Heldur Svavar Gestsson, að fólkið í landinu finni ekki hvernig verðbólgan svíður jörðina undan fótum þess. Hvers vegna heldur Svavar Gestsson, að launþegar hafi tekið á sig hverja kjaraskerðinguna af annarri á undanförnum árum? Heldur Svavar Gestsson að það sé af einhverri elsku á honum og öðr- um Alþýðubandalagsmönnum. Nei. Stefna óttans Það er vegna þess, að verðbólgu- stefna Svavars Gestssonar hefur sett atvinnuvegi landsmanna upp við vegg. Fólkið óttast um at- vinnuöryggi sitt. Stefna Svavars hefur sett það út í horn. Þannig er stefna óttans gagnvart fólkinu í framkvæmd. Fyrirmynd þessarar stjórnlistar er sótt til kommún- istaríkjanna í austri. Staðreyndirnar í húsnæðismál- um þjóðarinnar í dag eru: 100% verðbólga hræðir megin- þorra fólks frá því að stofna sér í miklar skuldir. Allt tal um vöntun á lánsfé vegna íbúðabygginga fyrir ungt fólk miðað við núverandi ástand er því aumt yfirklór félagsmálaráðherra, sem hefur brugðist. Þörf stefnubreytingar Til þess að lagfæra þessi mál og gera ungu fólki kleift að eignast eigið húsnæði, þarf algjöra stefnu- breytingu: 1) Fyrsta skrefið er að kveða niður verðbólguna. Þar með verður bygg- ingarkostnaður viðráðanlegri og greiðslubyrði nauðsynlegra lána viðunandi. 2) Byggðasjóður ríkisins verður efldur á ný með því að launaskatt- ur renni óskiptur til hans eins og áður var. 3) í frjálsum samningum þarf að reyna að auka þátttöku lífeyris- sjóða í fjármögnun íbúðabygg- inga. 4) Þá er mikilvægt að tekjuskattur verði afnuminn af almennum tekj- um, en það er forsenda frjáls sparnaðar eða fjárfestingar í hús- næði eða öðrum verðmætum. 5) Lánstíminn verði 42 ár á lánum til íbúðabygginga. 6) í áfóngum verði lán til staðal- íbúðar hækkuð í 80%. Sjálfstæðisflokkurinn gengur nú út í kosningar á grundvelli framangreindrar stefnu í húsnæð- ismálum. Þessi mál, sem og önnur verða ekki leyst ein sér, heldur í tengslum við samfellda stefnu í atvinnu- og efnahagsmálum. Niðurstöður kosninganna ráða, hvort stefna Sjálfstæðisflokksins í þessum mikilvægu málum nær fram að ganga. Það er á valdi kjósenda, hvort þeir vilja áframhaldandi svik og blekkingar Alþýðubandalagsins eða raunverulega framkvæmd stefnu sem byggist á ábyrgð með aðgætni. HÉR á eftir fer ályktun Leigjendasamtak- anna 10. apríl sl.: f aprílmánuði hækkaði vísitala fyrir leigu íbúðarhúsnæðis um 51,04%. Fjöl- margir leigjendur hafa leitað til skrifstofu Leigjendasamtakanna og annarra aðila, vegna þessarar gífurlegu hækkunar. Vinnulaun hækkuðu um 14,74% 1. mars síðastliðinn, þannig að leigjendur — sem margir eru láglaunamenn — ráða alls ekki við þessa gífurlegu hækkun húsa- leigu. Leigjendasamtökin hafa á undan- förnum árum krafist lagasetningar um húsaleiguupphæðir i samræmi við fyrirheit stjórnvalda frá árinu 1978 og hafa samtökin margoft bent á að breyta þurfi vísitölu húsnæðiskostnað- ar. Þessi vísitala tekur gífurleg stökk, eins og nú hefur komið á daginn, þegar laun hækka um nær 15% en húsaleiga um rúmlega 50%. Leigjendasamtökin árétta enn einu sinni kröfu sína um að sett verði lög um útreikning húsaleiguupphæða. Enn- fremur leggja Leigjendasamtökin áherslu á að eina raunhæfa leiðin til varanlegra úrbóta er veruleg aukning leiguhúsnæðis, meðal annars með ný- byggingum lítilla leiguíbúða. Til að bregðast við þvi alvarlega ástandi sem skapast hefur vegna al- gjörlega ótækrar hækkunar húsaleigu, gera Leigjendasamtökin eftirtaldar kröfur til stjórnvalda: • í samræmi við launahækkanir, verði aðeins leyfð í mesta lagi 25% hækk- un húsaleigu, og felld niður sú 50% hækkun sem nýlega var tilkynnt. Leigusölum verði heimilt að hækka leiguna um allt að 25%, hafi engar leiguhækkanir orðið frá 1. október 1982. • Ný vísitala sem tengir saman húsa- leiguhækkanir og launahækkanir, verði ákveðin hið fyrsta. • Staðið verði við fyrirheit um setn- ingu laga um húsaleiguupphæðir. (Frétutilkynninn) Við frystum verbið áPhilips fiystikistunum Þaö er eins og veröiö á Philips frystikistunum hafi verið fryst síðan í haust. Að minnsta kosti er það nokkurn veginn óbreytt. Ástæðan er reyndar sú að okkur hefur tekist að fá fram 2.410.00 króna verðlækkun á 260 lítra kistum og 2.320.00 króna verðlækkun á 400 lítra kistum. Frysta verðið er sem hér segir: 260 lítra Philips frystikista kr. 11.990.00 400 lítra Philips frystikista kr. 13.990.00 Utborgun er aðeins 3.000.00 krónur og við erum sveigjanlegir í samningum. öl Heimllistæki hf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.