Morgunblaðið - 13.04.1983, Page 17

Morgunblaðið - 13.04.1983, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR13. APRÍL1983 17 undirleik, því nótnaútgefandi tjáði mér að það væri með vin- sælustu verkum hvað það snert- ir. Hitt verkið á efnisskrá Sin- fóníuhljómsveitarinnar er Skoska sinfónían, sinfónía nr. 3 eftir Felix Mendelssohn. Mend- elssohn heimsótti Skotland og hreifst svo af landinu að þetta tónverk varð til. Hann segir sjálfur frá því í bréfi að upp- hafsstefið hafi mótast í huga hans, þar sem hann fór einförum um grónar kastalarústir. Verkið er í fjórum þáttum og Mendels- sohn tekur það mjög skýrt fram, að það eigi helst að flytja án nokkurs hlés. Þetta verk er að mörgu leyti alvöruþrungnara, en önnur verk Mendelssohns og það er meðal annars þess vegna sem ég valdi það með verkinu eftir Fauré. Þau er bæði samin í dökk- um litum, á lágsviðum strengj- anna. Persónulega finnst mér skoska sinfónían vera svona dumbrauð." Lærdómsríkt að starfa með söngsveitinni Hvernig hefur starfið með Fíl- harmóníu gengið? „Það hefur verið mjög lær- dómsríkt fyrir mig að taka við kór, sem er jafn mótaður og í jafn föstum skorðum og söng- sveitin er. Þeir kórar, sem ég hef starfað með undanfarin 15 ár, hafa oftar en ekki verið stofnaðir af mér, fylgt eftir og mótaðir allt frá tónmyndun upp í stjórnsýslu, en að baki söngsveitinni er þessi ríka hefð. Auk þess hefur hún allflókið stjórnkerfi, þar sem er stjórn hennar, stjórn Sinfóní- unnar og verkefnavalsnefnd. Maður er því langt í frá að vera einráður, sem er bæði kostur og galli í þessu samhengi. Fólkið í söngsveitinni hefur sýnt mér al- veg sérstaka velvild og hlýju og það að kynnast því hefur virki- lega gefið mér mikið. Við eigum líka sameiginlegan vin, þar sem er dr. Róbert Abraham Ottósson, sem stofnaði Söngsveitina og nafn hans höfum við í hávegum. Ég hef álitið mig lukkunnar pamfíl að fá að vinna með þessu fólki öllu saman," sagði Guð- mundur Emilsson að lokum. Búin að vera í kórum frá 10 ára aldri „Ég er búin að vera í kórum síðan ég var tíu ára gömul. Ég var í kór hjá Guðmundi Emils- syni í Hlíðaskólanum, þegar Frá æfíngunni í gær. hann kenndi þar og var með stúlknakór og ég var einnig í Hamrahlíðarkórnum, en þetta er fyrsti veturinn minn í söngsveit- inni,“ sagði Sigurlaug H. Grön- dal. „Mér .finnst gaman að syngja og ekki skemmir félagsskapurinn fyrir, það er skemmtilegt að vera innan um fólk. Þetta gefur manni mikið, og þó oft sé þetta tímafrekt, sérstaklega fyrir tón- leika, finnst mér það alveg þess virði. Ég hef kunnað mjög vel við mig í Fílharmóníu, þó hún sé nokkuð frábrugðin þeim kórum sem ég hef sungið í áður. Bæði er verkefnavalið nokkuð ólíkt og auk þess er ég óvön því að syngja með hljómsveit. Þetta er tvennt ólíkt, en ég hef haft mikla ánægju af starfinu í vetur," sagði Sigurlaug ennfremur. „Ég er búin að vera sjö ár í þessum kór, ég hef bæði gaman af tónlist og finnst gaman að syngja," sagði Jóhanna ög- mundsdóttir. „Að vísu er þetta ansi tímafrekt, einkum fyrir tónleika, en það er samt þess virði, þess vegna er maður að þessu. Að vísu koma stundum þau augnablik, þegar maður er að gefast upp, einkum ef illa gengur og það er illa mætt á æf- ingar, en þetta eru bara augna- blik og þau hverfa strax,“ sagði Jóhanna. Hvað er um þetta verk að segja, sem þið flytjið á morgun? „Þetta er mjög einfalt verk og fallegt, en samt sem áður mjög vandsungið, ef vel á að vera,“ sagði Jóhanna. Alls ekki erfitt að byrja „Þetta er fyrsti veturinn minn í söngsveitinni og ástæða þess að ég fór að syngja með henni er áhugi á tónlist, sérstaklega á stærri verkum," sagði Jón Hjaltalín Ólafsson. „Mig langaði til að kynnast því af eigin raun, hvernig er að vera flytjandi svona verka, en ekki bara hlust- andi. Þetta hefur verið mjög skemmtileg reynsla og nú er ég miklu betur í stakk búinn til að vita hvað er gott og slæmt í mús- ík. Fyrir fólk, sem hefur áhuga á tónlist, getur haldið takti sæmi- lega og er með tón, er þetta upp- lögð tómstundaiðja. Auðvitað er þetta mikil vinna, það er á hreinu, en ég mundi ekki standa í þessu, ef mér fyndist það of mik- ið á sig lagt fyrir ánægjuna sem maður hefur af þessu.“ Er erfitt að byrja í kór? „Guðmundur Emilsson, stjórn- andi kórsins var með námskeið í nótnalestri í haust og þar lærði maður undirstöðuatriðin. Það að ná tón hefur komið með þjálfun- inni og mér hefur alls ekki reynst það erfitt að byrja í kór.“ Heldurðu áfram næsta vetur? „Það fer dálítið eftir pví, hvað maður verður að gera og hvernig tíma manns verður háttað, en hafi ég tíma þá held ég örugglega áfram," sagði Jón að lokum. „Þetta er fimmta árið mitt í kórnum og ég kann mjög vel við mig, það er gaman að þessu, tón- listinni sem sungin er og félags- skapnum," sagði Bragi Guð- mundsson. „Þetta er að vísu nokkuð tímafrekt tómstunda- gaman, alltaf tvö kvöld í viku og aukaæfingar fyrir konserta, en þeim tíma er vel varið, finnst mér. Ég söng í kór sem ungling- ur, en síðan ekki nokkurn hlut, fyrr en ég byrjaði hér. Sonur minn var í kórnum og hann kom mér af stað, en ég hef alltaf haft mikinn áhuga á söng og tónlist. Þetta er bæði upplífgandi, mannbætandi, skemmtilegur og góður félagsskapur," sagði Bragi. Hvað um verkið sem þið æfið núna? „Þetta er sérstaklega skemmti- legt verk, þegar maður fer að kynnast því, og þess utan held ég að þetta sé í fyrsta skipti sem það er flutt hér á landi," sagði Bragi Guðmundsson. Félagar í söngsveitinni. Talin frá vinstri: Jóhanna Ögmundsdóttir, Sigurlaug H. Gröndal, Jón Hjaltalín t.uðmundur Emilsson og Robert Becker ræða saman. Ólafsson og Bragi Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.